Pressan


Pressan - 13.09.1990, Qupperneq 28

Pressan - 13.09.1990, Qupperneq 28
28 Fimmtudagur 13. sept. 1990 Lframhiáhlaupi Þráinn Hallgrímsson skrifstofustjóri ASÍ „Að blessðður starrinn sé syngjandi.. 1' — Hvaða persóna hefur haft mest áhrif á þig? „Mamma, ekki spurning. Sér- staklega á mótunarskeiði ævinn- ar, fyrstu mánuðina!" — Án hvers gætir þú síst ver- ið? „Unglinganna minna! Ég kvelst af þeirri tilhugsun að ein- hvern tímann í fjarlægri framtíð komi að því að börnin mín verði fulltíða og flytji að heiman! En án gamans. Góðir vinir og félagar eru kryddið í tilveruna." — Hvað finnst þér leiðinleg- ast? „Leiðinlegast er að sofna á kvöldin með hugann sprengfull- an af verkefnum sem maður átti að koma í verk þann daginn." — En hvað er skemmtilegast að gera? „Eg þori varla að nefna það. Ég vissi ekki að þetta væri þannig dálkur. En jú annars. Skemmti- legast finnst mér að vakna á morgnana og finna að ég er enn á lífi, að morgunútvarpsmenn eru á vaktinni yfir rjúkandi kaffi- bollanum, að blessaður starrinn sé syngjandi fyrir utan gluggann minn og að lesa Reykjavíkurbréf Styrmis og Matthíasar eld- snemma á sunnudagsmorgn- um. — Manstu eftir ákvörðun sem hefur skipt þig miklu? „Hvílík spurning! Eg man eftir mörgum. T.d. þegar ég ákvað að verða ekki sálfræðingur. Þegar ég hafnaði frábæru starfstilboði í upphafi NT-ævintýrisins, þegar ég ákvað að hætta viðskiptum við draumabankann minn — Iðnaðarbankann, þegar ég ákvað að gerast menntaskóla- kennari á ísafirði í sjö heilög ár o.s.frv...." — Hvenær varðstu hrædd- astur í lífinu? „Ég minnist þess að hafa orðið hræddur nokkrum sinnum, en ég bókstaflega get ekki komið því fyrir fyrir mig hvort ég hafi einhvern tímann orðið „hrædd- astur"..." — Hvaða eiginleikar finnst þér mikilvægastir í fari ann- arra? „Trygglyndi, glaðværð og drengskapur." — Getur þú nefnt einn kost þinn og galla? „Ég get nefnt marga kosti en aðeins einn galla. Alvarlegasti veikleiki minn er að ég hef ætíð trúaö á hið góða í manninum. Helsti galli minn er að geta ekki sagt nei, þegar ég er beðinn um greiða, eins og þegar ég var beð- inn að svara þessum spurning- uml" — Hver ereftirlætismaturinn þinn? „Það er djúpsteiktur þorskur í bjórdýfu með góðu hvítvíni og hvítlaukssmjöri." — Hvert er uppáhaldssjón- varpsefnið þitt? „Ég hef yndi af öllu því sem er vel gert og lögð er vinna og alúð í. Ég kann vel að meta dúndrandi spennumyndir þegar mér líður þannig, eða Ijúfa klassík á síð- kvöldum, ég er fréttasjúklingur af verstu gerð og mikill aðdáandi Derricks svo ekki sé talað um Matlock og vinur hans ..." — Hvaða stað þykir þér vænst um á íslandi? „Eftir því sem líður á ævina þykir mér vænna um landið. Ölf- usið á sinn sess í hjartanu. Til Vestfjarða sótti ég kraftinn í líf mitt. En vænst þykir mér um fæðingarsveit foreldra minna, Fljót í Skagafirði, og síldarbæinn Siglufjörð þar sem ég er fæddur og uppalinn ..." — Trúir þú á Irf eftir dauðann? „Hver hefur efni á að hafna því?" — Hvað vildir þú helst gera ef þú þyrftir að skipta um starf? „Ég á mér þann draum að geta einhvern tímann á ævinni lagst í ærlegt dekur við sjálfan mig og gerst kennari eða jafnvel skóla- stjóri í litlum skóla úti á landi. Skólinn á að vera yfirfullur af brosmildum og fallegum börn- um. Þar gæti ég unað glaður við skriftir í miklum frítíma mínum sem kennari eða skólastjóri og verið samvistum við brosmildu börnin þegar ég kysi. Ef einhver sem veit um svona stöðu les þetta þá má hann hafa sam- band..." kynlifsdálkurinn Bréf til kynlífsdálksins má skrifa undir dulnefni. Utanáskriftin er: PRESSAN — kynlífsdálkurinn, Ár- múla 36, 108 Reykjavík. spáin (21 murs—20. upril) Hugur þinn beinist aö sambandi þinu viö fjölskylduna. Pegar líöur á helgina lendiröu í þeirri aöstöðu að þú þarft að gera greinar- mun á ástum og draumórum. Einhver sem þú metur mikils lætur í Ijós sömu skoðun á þér, þetta getur leitt til náinna samskipta. (21 upril—20. mui) Nákominn ættingi leitar upplýsinga um ferö, heimsókn eöa skiptingu á eignum. Lagaleg- ar spurningar geta vaknað við úrlausn á þessu. Ástin blómstrar og þú færð stuðning þinna nánustu við að bæta samband þitt við þér yngri aðila. (21. mui—21. júni) Líkur eru á að þú finnir eitthvað sem þú hafðir týnt. Jafnframt muntu losna við byrði sem í raun réttri á ekki að tilheyra þér. Laug- ardagurinn er rétti dagurinn til félagslegra samskipta, þar á meðal stefnumóta. Per- sónutöfrar þínir njóta sín á þessum degi. (22. júni—22. júlí) Þú þarft að taka frumkvæðið, það mun reyna á dómgreind þína og áræði. Kona mun reynast góður bandamaður þinn. Horf- ur í fjármálum og ástamálum eru góðar að þessu sinni. (23. júli—22. útfúsl) Pú gerir uppgötvanir í ástamálum. Ættingi kynnir þér áætlun sem virðist mjög voguð, þú skalt láta i Ijós áhuga en ekki aðhafast neitt að fyrra bragði. Skyndileg uppsveifla í persónulegum vinsældum getur hjálpað þér að vinna einhvers konar samkeppni. (23. úffúsl — 23. sept.) Nú er kominn tími til að breyta út af vanan- um, þú baðst um einstakt tækifæri og nú hefurðu fengið það! Andleg málefni draga að sér athygli þina og þú getur komist að því að mörg mál verða leyst með innhverfri ihugun. (2.1 sept —24 uht.) Einlægni í tjáskiptum — Betra kynlíf Mig langar í þessum pistli að ræða um hvað einlægni í umræðum getur kennt okkur um mannleg samskipti og okkur sjálf sem kynverur. Ekki ails fyrir löngu skrifaði ég pistil og fjallaði um „umhverfishollar" leiðir til að taka við tíðablóði. Þá minntist ég á náttúrulega svampa sem vaxa í ómenguðum sjó. Sumir héldu að ég væri að spauga en svo var ekki. Nú- tíma túrtappar eru ekkert annað en síðari tima afbrigði þess að setja svampa inn í leggöngin til að taka við tíðablóði. Munurinn á töppun- um og svömpum er síðan sá að tapp- ar eru einnota og eyðast ekki í nátt- úrunni heldur eru mengunarvaldar, en náttúrulega svampa er hægt að nota í-mörg skipti og þeir menga ekki umhverfið. Mér er ekki hlátur í hug þegar ég liugsa til milljarða af notuðum dömubindum sem úldna í sjó og fjörum á okkar litlu jarðar- kúlu. Mikið hlakka ég til þess dags þegar íslendingar komast af flissstiginu og geta líka farið að ræða af alvöru og einlægni um mál sem snerta okkur öll mjög náið. Kœru stelpur og strákar Síðastliðið vor kenndi ég stutt námskeið í menntaskólum sem ég nefndi: „í gamni og alvöru — er kjaftæði að tala um kynlíf?" Þar tóku nemendur þátt í verkefni þar sem þeim gafst kostur á að vera ein- lægir i umræðu um kynlíf. Hver og einn fékk blaðsnifsi í hendurnar og skrifaði niður eitthvað sem hann eða hún vildi segja við hitt kynið eða spyrja um. Eg lagði áherslu á einlægni og alvöru í orðsending- unni því annars myndum við skemma námskeiðið með tómu flissi og fíflalátum. Orðsendingin hófst á þessa leið: „Kæru stelp- ur,“. . . Kæru strákar" . . Siðan lásu strákarnir upphátt bréfin frá stelp- unum og öfugt. í kjölfarið fylgdu fjörugar umræður og hægt var að draga ýmsar athyglisverðar álykt- anir af þessari reynslu. Meira aö grœda á hreinskilni Það kom afar skýrt fram hversu mikið samskipti kynjanna mótast af alhæfingum um hvort kyn fyrir sig, tjáskiptaerfiðleikum og hreinni og beinni fáfræði. í hópi stelpnanna var engin sem sneri út úr í sínu bréfi en í hópi strákanna komu þó nokkr- ir með klúrar athugasemdir og brandara. Okkur fannst það vissu- lega fyndið og það var mikið hlegið, en flestir virtust sammála um að það væri miklu meira að græða á því sem sagt var af hreinskilni og al- vöru. Lítum á nokkur bréf sem krökk- unum fannst eitthvert vit í. Heyrum fyrst hvað strákarnir hafa að segja: „Kæru stelpur, þið ættuð ekki að vera svona hræddar við að viðurkenna hvað ykkur finnst gott — tölum meira saman.“ „Kæru stelpur, það er makalaust hvað fólk er bundið af kjaftasögum, auðvitað eru allir graðir en þora misjafnlega að láta það í Ijós. Það er afskaplega leiðinlegt að fá þetta gredduorð á sig, því það er svo neikvætt. Þær fáu stelpur sem ég hef verið með þykir mér vænt um og fer vel með þær.“ „Kæru stelpur, hvers vegna haldið þið að strákar hugsi ekki um annað en að fá sér að ríða þegar þeir eru með stelpu?" Mannalœtin óþörf Þetta höfðu stelpurnar meðal annars að segja: „Kæru strákar, hvers vegna haldið þið að þið eigið að sleppa við allt þegar stelpur verða ófrískar?" „Kæru strákar, kynnumst áður en við ríðum — ekki við fyrstu kynni." „Kæru strákar, verum betri hvert við annað — sýn- um hlýju og tölum saman." „Kæru strákar, mér finnst þið dásamlegir, en talið meira við okkur — hvað okkur finnst gott og hvað við viljum. Við verðum oft hræddar við ykkur." „Kæru strákar, finnst ykkur óþægi- legt ef stelpan fær það ekki?“ „Kæru strákar, þið þurfið ekki að vera með þessi mannalæti. Við vit- um að þið hafið tilfinningar eins og við stelpurnar. Þið eruð mjög oft að reyna að fela þær með einhverjum stælum." „Kæru strákar, þið hugsið of mikið um það að komast í bólið. Mér finnst alveg sjálfsagt að strákar noti smokka við samfarir frekar en að stelpur noti pilluna. Það er ör- ugglega mjög algengt að stelpur fái ekki fullnægingu." Margt, margt fleira kom í ljós og það er öruggt að þarna var brotinn einhver tjáskiptamúr. Hefst ekki löng ferð á einu skrefi? Einhver sem þú taldir hlutlausan ætlar aö hrósa starfshæfileikum þínum. Einhver sem virðist letjandi mun reynast bandamaöur þegartil lengri tíma er litiö. Fjölskyldan kem- ur saman um helgina og samhugur hennar mun eflast. (24. okt.—22. nóu.) Fólk þér nákomið trúir þér fyrir vandamálum sínum, vertu örlátur á tíma þinn en ekki svo vitlaus aö lána neinum peninga. Fjármál maka þíns komast í brennidepil um helgina. (23. nóu.—2l. des j Fyrrverandi elskhugi eöa mjög nákominn vinur gerir vart viö sig á ný. Getur reynst sársaukafullt fyrir báöa aö horfast í augu viö þær breytingar sem orðnar eru á högum ykkar. Samband þitt viö maka þinn er ein- staklega gott þessa dagana. (22. des.—2U. jun.J Aðili af gagnstæöu kyni veitir þér áhuga. Faröu varlega og áttaðu þig á stööu þinni. Helgin er kjörin til aö rækta sambandið viö fjölskylduna því aðrir eru opnir fyrir félags- skap þínum. (21 junúur—19. febrúurj Eftirlátssemi viö sjálfan þig í mat og drykk er bönnuö núna og þú verður að standast freistingar. Einhver sem gagnrýnir þig kann aö vilja fá nánari útskýringar frá þér. Börn og gæludýr þarfnast athygli þinnar og umönn- unar. (20. febrúur—20. mars) Einbeittu þér aö öllum hliðum starfs þíns og haföu auga meö öllum möguleikum á fjölg- un verkefna og hærri tekjum. Þú þarft aö endurmeta mataræðið og auka líkamsrækt. Varkárni í ástamálum og vináttu er nauðsyn- leg þessa dagana.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.