Pressan - 13.09.1990, Síða 29

Pressan - 13.09.1990, Síða 29
Fimmtudagur 13. sept. 1990 29 sjúkdómar og fólk Miklar tiðablæðingar Konur hafa reglulegar blæðingar eða tíðir einu sinni í mánuði frá um tólf ára aldri til tæplega fimmtugs. Þær koma með kynþroskanum og búa legið undir að taka við frjóvg- uðu eggi og ganga með það. Bábilj- ur og hindurvitni hafa ávallt verið tengd blæðingunum; konur álitnar óhreinar meðan á þeim stóð. Þær áttu ekki að handfjatla mat eða ann- að til heimilisins og ýmiss konar trú- arathafnir voru tengdar þeim. í sumum erlendum tungumálum eru tíðir kallaðar „bölvun konunnar", svo engan skýldi undra þó neikvæð afstaða tengist þeim. Tíðahringur- inn er talinn hefjast á fyrsta degi blæðinganna og endar daginn fyr- ir þær næstu. Lengd þessa tímabils er frá 21—40 daga, en 28 daga tíða- hringur er algengastur. Minnkuð framleiðsla kvenhormóna dagana fyrir blæðingar veldur samdrætti í æðabeð slímhimnu legsins og blæð- ingarnar standa í 3—6 daga, en stundum lengur. í tíðablóðinu eru smávefjabitar úr slímhimnum legs- ins og heildarmagnið er næsta lítið eða 40 ml, en lítur út fyrir að vera meira, þegar það dreifist í nokkur bindi eða tíðatappa. Þannig gengur þetta mánuð eftir mánuð, ár eftir ár þann tíma sem konan er frjósöm. Nútímakona hefur tíðir 400—500 sinnum, en formæður okkar mun sjaldnar. Þær byrjuðu síðar, hættu fyrr og urðu oftar þungaðar en nú. Trú og tíöir Víða er bannað af trúarlegum ástæðum að hafa samfarir meðan konan hef.ur tíðir. Hjá gyðingum er hún talin óhrein í sjö daga og allir sem snertu hana voru óhreinir til kvölds. Tíðablóð var talið óhreinka lim karlmannsins, og var karlmað- urinn óhreinn, ef hann samrekkti konu sem hafði á klæðum, í sjö daga á eftir og jafnvel hver hvíla sem hann lá í. Þegar konan var hrein af rennslinu skyldi hún telja sjö daga og var eftir það alveg hrein (3ja Mósebók 15:19—30). í mörgum frumstæðum þjóðfélögum voru svipaðar hugmyndir uppi, og meðal. sumra ættbálka indíána í Suður- Ameríku var unga stúlkan einangr- uð í afhýsi í nokkra daga þegar tíð- irnar hófust. Andlit hennar var makað kolaryki og hún mátti ekki láta sólina skína á sig. Frumbyggjar Ástralíu grófu stúlkur sem höfðu á klæðum í sand upp að mitti og girtu í kringum þær. í Persíu átti að brenna öll föt konunnar eftir blæð- ingarnar og hún skyldi baða sig í nautsþvagi. I gömlum íslenskum heimildum kemur fram, að samfar- ir voru stranglega bannaðar meðan á tíðum stóð. í skriftamálum Olafar ríku Loftsdóttur, frá 15du öld, biðst hún fyrirgefningar á að hafa haft kynmök við mann sinn meðan hún hafði á klæðum. Hún virtist hafa trúað, að kæmi barn undir fengi það sjúkdóma eins og holds- veiki, flogaveiki eða einhver önnur kynjamein. Allt fram á þessa öld var sú trú útbreidd, að kona á blæðing- um skyldi ekki fást við matargerð, sinna blómum eða öðrum húsverk- um, þar sem blóð hennar og sviti innihéldu eitrað efni, sem kallað var menótoxín. Nútímarannsóknir hafa ekki rennt stoðum undir þessar kenningar, svo læknisfræðin virðist hafa verið á villigötum í þessu efni eins og víðar. Kynlíf er algjörlega hættulaust meðan á tíðum stendur og margar konur njóta þess mjög á þeim tíma og dagana rétt fyrir þær og eftir. Samfarir, fullnæging og innileg kynferðisleg samvera eru ágæt ráð við þeirri miklu spennu og erfiðleikum sem sumar konur finna fyrir. Það er heldur ekkert óhreint við klæðaföllin, þau eru hluti af eðli- legu lífi og þróun þess. Miklar blœdingar Stundum verða blæðingar of miklar og telja sumir, að svo sé hátt- að með 10% kvenna. Þá blæðir kon- unni 80 ml eða meira í hverjum tíð- um, sem oft standa í marga daga, en eru reglulegar að öðru leyti. í helm- ingi tilfella stafa miklar tíðablæð- ingar af svokölluðum myomum. Myom eru góðkynja vöðvahnútar sem setjast í legið, svo það stækkar og samdráttarhæfni þess minnkar. Fjórðungur fullorðinnna kvenna fær slíka vöðvahnúta i legið en þeir valda yfirleitt engum óþægindum. í flestum öðrum tilvikum vita menn ekki hver ástæðan er, en konur með lykkjuna fá þó oft miklar blæðingar. Einkennin eru margvísleg; konurn- ar líða blóðskort, verða fölar og þróttlitlar. Miklar blæðingar hafa áhrif á vinnugetu konunnar, skap- lyndi og samskipti við nána að- standendur. Oft bíður kynlífið hnekki og margs konar samskipta- örðugleikar geta komið upp. Meöferö Kona með miklar blæðingar á að leita til kvensjúkdómalæknis, sem skoðar hana rækilega og reynir að finna einhverja skýringu á ástand- inu. Hann metur síðan hvaða með- ferð henti best. Yfirleitt er lyfjum beitt fyrst og veitt hormónameðferð með samsettri getnaðarvarna- pillu (inniheldur bæði kvenkyns- hormónin; östrogen og progester- on), sem minnkar oftast blæðing- arnar mjög verulega. Stundum er gefið kvenkynshormónið prógest- eron eitt sér og gefur það oft góða raun. Cyklocapron (tranexamín- sýra) er efni sem minnkar blæðing- arnar. Þegar vefur skaddast og blæðir úr honum storknar blóðið í æðunum svo blæðingin stöðvist sem fyrst. Þegar vefurinn jafnar sig leysist þessi blóðstorka upp og æð- arnar fara aftur að flytja blóð. Cykiocapron kemur í veg fyrir að blóðstorkan leysist of fljótt upp, og reynist oft vel. Stundum er gripið til þess örþrifaráðs að taka legið úr konu með miklar blæðingar en slíkt er stór ákvörðun, sem enginn lækn- ir tekur nema að vel athuguðu máli. Blæðingarnar eru sjaldnast svo mik- ið vandamál að það réttlæti slíka að- gerð. Konur eru oft skrapaðar vegna of mikilla blæðinga, en fæstir telja rétt að gera það á yngri konum (undir 45 ára). Útskröpun á ekki að vera meðferð vegna mikilla reglu- legra tíðablæðinga. Hún getur á hinn bóginn verið nauðsynleg til greiningar, þegar blæðingarnar eru mjög óreglulegar og standa lengi, og menn hafa grun um eitthvert sjúkdómsástand í slímhimnum legs- ins. ÓTTAR GUÐMUNDSSON j? á heimavelli Bláber — aðalbláber fófalestur í þessari viku: Fiskurinn (kona fædd 9.3. 73) Þetta er svolítið lokuð persóna, sem lifir mikið í eigin hugarheimi. Hún tekur hlutina mjög nærri sér, því hún er afar viðkvæm. Hún er annaðhvort fædd í öðru umhverfi en hún býr núna í eða mun fljót- lega flytja í nýtt umhverfi. Hún giftist fremur seint, þ.e. um eða eftir þrítugt, og eignast ekki mörg börn. Næstu tvö ár þyrfti hún að nýta sér mjög vel, t.d. með því að fara menntaveginn. Hún hefurtilhneigingu til að dragast að dulrænum málum og er dálítið heimspekilega sinnuð. Nú er talin mikil berjaspretta hér víða um land. Margir hafa rnikla ánægju af því að fara í berjamó og tína þá af krafti þessa einstöku ávexti sem vaxa hér villtir í góðu árferði. Berin eru bragðgóð, holl til matar, gefa okkur umtalsvert C-víta- mín, dálítið af A-vítamíni og svolítið af steinefnum. Við getum notið þeirra sem ávaxta og aldinmauks til að bragðbæta ýmsar matartegundir í staðinn fyrir erlenda ávexti, og því eru þau okkur afar kærkomin og góð búbót þegar heim er komið. Og þeir sem hafa þau vaxandi við tún- garðinn hjá sér ættu að gera eins mikið af því og mögulegt er að tína þau til matar daglega á meðan sprettan stendur og veðráttan spillir þeim ekki. En berin eru viðkvæm eins og aðrir ávextir og grænmeti og því þarf að sjóða þau niður eða frysta til að varðveita þau til vetrarins. Lengi hefur það tíðkast að sjóða úr þeim mauk eða saft og var það áreiðan- lega eitt það kærkomnasta sem hús- mæður áttu í búri sínu á haustin. Sumar konur hrærðu berin hrá með sykri og töldu þau varðveita bragð og gæði best þannig. Geyma má bæði bláber og aðalbláber á þennan hátt, og sumir tína þau í bland og nota þau þannig saman ef svo vill verkast. Þegar sjóða á berjamauk eða útbúa hrærð ber þarf auðvitað að hreinsa þau vandlega áður. Hent- ugt er að gera það þannig að hafa hreinan léreftsklút, vinda hann úr volgu vatni og breiða hann yfir flat- an potthlemm. Haldið svo á hlemm- inum í annarri hendi, setjið lúku og lúku af berjum á klútinn á hlemmin- um og strjúkið þau yfir rakan klút- inn. Þá sitja lauf og önnur óhrein- indi eftir í klútnum, en þið veltið hreinum berjunum út af hlemmnum og niður í hreint ílát. Þetta er ekki svo seinleg aðferð og vinnst með þolinmæði eins og annað. Auðvitað þarf að vinda klútinn við og við upp úr vatni eftir því sem hann óhreink- ast. Hrærð ber: í hvert kg af berjum þarf 700—1000 g af sykri (þetta get- ur farið eftir geymsluskilyrðum, meira sykurmagn ef skilyrði eru slæm), síðan er hrært í berjunum með góðri sleif í um 1 klst. og svo sett í góðar krukkur og lokað. Sumir setja 1 tsk. af bensosúru-natron- upplausn út í, og einnig er ágætt að þvo barma krukkunnar úr henni. Sjálfsagt er að þvo allar krukkur vandlega sem nota á undir hrærð ber og sultu og jafnvel sjóða upp á VILTU LÁTA LESA ÚT ÞÍNUM LÓFA? Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT af haegri lófa (örvhentir Ijósriti þann vinstri) og skrifaðu eitthvert lykilorð aftan á blöðin, ásamt upp- lýsingum um kyn og faeðingardag. Utan- áskrift PRESSAN — lófalestur, Armúla 36, 108 Reykjavík. AMY ENGILBERTS þeim í hreinu vatni áður en berin eru sett í þær. Berjasulta: Hreinsið berin eins og lýst er að framan. Notið um 800—1000 g af sykri í hvert kg af berjum. Ef berin eru ekki vel þrosk- uð má saxa þau í söxunarvél eða merja í matkvörn eða berjapressu. Setjið þau í góðan pott með sykrin- um og sjóðið í 2—4 mín. Setjið þau í hreinar krukkur, látið kólna og þvoið barmana með soðnu vatni eða bensósúrri natronupplausn, lokið krukkunum, merkið þær og geymið á köldum stað.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.