Pressan - 13.09.1990, Qupperneq 30
30 ' n^míydagMc ^vSept.iaao
FIMMTl IDAGUR FÖSTUDAGUR LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR
0 ^^STÖD-2 Tf ^ísTöoi 0 STOÐ 2 0 STOD2
0900 17.50 Syrpan 16.45 Nágrannar 17.30 Meö Afa 17.50 Fjörkálfar 'T ’ 16.45 Nágrannar 17.30 Túni og Tella 17.35 Skófólkiö 17.40 Hetjur himin- geimsins 14.00 íþrótta- þátturinn 09.00 Með Afa 10.30 Júlli og töfraljósiö 10.40 Táningarnir í Hæöageröi 11.05 Stjörnusveitin 11.30 Stórfótur 11.35 Tinna 12.00 Dýraríkiö Fræðsluþáttur 12.30 Eðaltónar 13.00 Lagt í’ann 13.30 Forboöin ást (Tanamera) 14.30 Veröld — Sagan í sjónvarpi 15.00 Hverjum þykir sinn fugl fagur To Each His Own) 17.00 Glys 15.30 Evróputón- leikar: Pavarotti, Domingo og Carreras 17.40 Sunnudagshug- vekja Flytjandi Jón Oddgeir Guö- mundsson 17.50 Felix og vinir hans 17.55 Rökkursögur 09.00 Alli og íkornarnir 09.20 Kærleiks- birnirnir 09.45 Perfa 10.10 Trýni og Gosi 10.20 Þnimukettirnir 10.45 Þrumufuglarnir 11.10 Draugabanar 11.35 Skippy 12.00 Sagan um Karen Carpenter Leikin mynd um ævi söngkonunnar Karen Carpenter 13.45 ítalski boltinn Bein útsending 15.25 Golf 16.30 Popp og kók 17.00 Björtu hliðarnar 17.30 Listamanna- skálinn
1800 18.20 Ungmenna- félagiö 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Yngismær 18.20 Hraðboðar Breskur myndaflokkur 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Poppkorn 18.05 Henderson- krakkarnir 18.30 Bylmingur 18.00 Skytturnar þrjár 18.25 Ævintýra- heimur Prúðu- leikaranna 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Ævintýra- heimur Prúðuleik- aranna Frh. 18.00 Popp og kók 18.30 Nánar auglýst síðar 18.15 Ungmenna- félagið Lagst í leti 18.40 Felix og vinir hans 18.55 Táknmálsfréttir 18.30 Viöskipti í Evrópu
1900 19.20 Benny Hill 19.50 Dick Tracy 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Skuggsjá Kvik- myndaþáttur í umsjá Hilmars Oddssonar 20.50 Matlock 21.40 Iþróttasyrpa 22.00 Feröabréf (1) Setiö á púðurtunnu. Norskur heimilda- myndaflokkur í sex þáttum 19.1919.19 20.10 Sport '21.05 Aftur til Eden 21.55 Náin kynni (Intimate Contact) Bresk framhaldsmynd um fjölskyldufööur sem smitast af al- næmi 22.45 Umhverfis jöröina á 15 mínútum Peter Ustinov ferðast um ókunnar slóöir 19.20 Leyniskjöl Piglets Breskur gamanmyndaflokkur 19.50 Dick Tracy 20.00 Fréttir og veður 20.30 Eddie Skoller 21.40 Bergerac (2) 22.30 Borgarastríð (Latino) Sjá umfjöllun 19.1919.19 20.10 Kæri Jón (Dear John) Gamanmynda- flokkur 20.35 Ferðast um timann (Quantum Leap) 21.25 Beinn í baki (Walk Like a Man) Sjá umfjöllun 22.50 í Ijósa- skiptunum 19.30 Hringsjá 20.10 Fólkið í landinu — Sautján barna móöir í sveit 20.30 Lottó 20.35 Ökuþór Breskur gamanmyndaflokkur 21.10 í mestu vin- semd (Just Between Friends) Sjá umfjöllun 22.50 Hefndarþorsti (Hennessy) Sjá umfjöllun 19.1919.19 20.00 Morögáta Jessica Fletcher mætir til leiks á ný 20.50 Spéspegill (Spitting Image) Breskir gamanþættir 21.20 í hita nætur (In the Heat of the Night) Sjá umfjöllun 19.00 Vistaskipti 19.30 Kastljós 20.30 Systkinin á Kví- skerjum Sjónvarps- menn sóttu heim fjöl- skylduna á Kví- skerjum í Öræfum og dvöldu nokkra vor- daga ávþessum sér- stæða sveitabæ. Fyrri þáttur 21.15 Á fertugsaldri 22.00 Spaghetti (Spaghetti) Sjá umfjöllun 19.1919.19 20.00 Bernskubrek Framhaldsþáttur 20.25 Hercule Poirot 21.20 Björtu hliöarnar 21.50 Loforð um kraftaverk Promised a Miracle) Sjá umfjöllun
2300 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok 23.00 Ekki mín mann- gerö (But Not for Me) Sjá umfjöilun 00.55 Dagskrárlok 00.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 23.15 Glæpaheimar (Glitz) Sjá umfjöllun 00.50 Brestir (Shattered Spirits) Sjá umfjöllun 02.20 Dagskrárlok 00.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 23.05 Tiger Warsaw (Tiger Warsaw) Sjá umfjöllun 00.35 Lestarrániö mikla (Great Train Robbery) Sjá umfjöllun 02.20 Myndrokk 03.00 Dagskrárlok 23.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 23.25 Hættuleg kynni (Fatal Attraction) Sjá umfjöllun 01.20 Dagskrárlok
fjölmiðlapistill
Ljóti karlinn, hann
sjónvarps-snarl
Saddam Hussein hefur nú
verið helsta bitbein flestra
fjölmiðla í einar sex vikur.
Allt frá innrásinni í Kúvæt
hefur ekki liðið sá dagur að
umfjöllun um hana og mál-
efni arabalandanna, einkum
íraks, hafi ekki tekið stórt
rými á fréttasíðum blaða og í
fréttatímum útvarps- og sjón-
varpsstöðva. Þetta er raunar
ekki skrýtið, þegar þess er
gætt að hálfur herafli heims-
ins er annaðhvort mættur á
staðinn eða í viðbragðsstöðu
heima fyrir.
Fjölmiðlar láta sér þó alls
ekki nægja að skýra frá dag-
legum viðburðum og þróun
mála. Til að skýra baksvið at-
burðanna hefur allmikið ver-
ið sagt frá ástandinu í írak og
sömuleiðis hefur margt og
mikið verið sagt um persónu
Saddams Husseins sjálfs.
Ljóst virðist að Saddam Hus-
sein sé hinn versti maður,
a.m.k. á vestrænan mæli-
kvarða. Fjöldamargar sögur
hafa á undanförnum vikum
verið rifjaðar upp um með-
höndlun hans á samstarfs-
mönnum sem hann tortrygg-
ir og meðferð hans á Kúrdum
svo nokkuð sé nefnt.
Nú hefur sá er þetta ritar
ekki sérstakan áhuga á að
stefna mannorði sínu í vísan
voða með því að halda fram
að hér fari fjölmiðlar með
staðlausa stafi. Á hinn bóginn
er það dálítið merkilegt,
hvernig fréttir sem berast ut-
an úr heimi eru misjafnlega
merkilegar, allt eftir því á
hvaða tímum þær berast okk-
ur. Þannig eru fjöldamorð og
útrýmingarherferðir Iraka
gagnvart Kúrdum í rauninni
alls ekki nýjar fréttir, þótt þær
kunni fram að þessu að hafa
farið framhjá mörgum al-
mennum blaðalesendum.
Kúrdar búa heldur ekki
bara í írak. Land þeirra nær
einnig yfir svæði innan
landamæra Tyrklands og Ir-
ans og að hluta einnig til Sov-
étríkjanna. Kúrdar eru ekki
heldur einungis ofsóttir í ír-
ak. Þeir eru ofsóttir í öllum
þessum löndum og sennilega
eru ofsóknirnar yfirleitt ekki
endilega verstar í írak, þótt
mest beri á þeim í fréttum um
þessar mundir.
Það er líka svo skrýtið að
það eru ekkert mörg ár liðin
frá því fjölmiðlum var ekkert
tiltakanlega illa við Hussein 1
karlinn. Þá var hann í styrjöld
við íran, sem á þeim tíma var
hér á Vesturlöndum talið eins
konar heimsveldi mann-
vonskunnar undir ógnar-
stjórn erkiklerksins Kho-
Hussein
meinis.
Á þeim tíma voru daglega
sagðar fréttir af aftökum
fólks í Iran fyrir sakir sem við
hér á Vesturlöndum myndum
telja litlar eða engar. Skyldi
alveg vera hætt að taka fólk
af lífi í Iran, eða skyldu yfir-
völd í Tyrklandi alveg vera
hætt að ofsækja Kúrda? Þess-
ar spurningar virðast ekki
skipta neinu máli í fréttaflutn-
ingi. Heimurinn hefur sam-
einast gegn Saddam Hussein
og engum blaðamönnum
virðist detta í hug að athuga
t.d. hvort að einhver söguleg
rök kynnu að styðja yfirráða-
kröfur hans gagnvart Kúvæt.
Komst ekki Halldór Laxness
svo að orði um víkinga ein-
hvers staðar í Gerplu að þeir
leituðust jafnan við að vera
þar að kveldi þar sem her-
fangi var skipt?
Vinnutími fólks er misjafn
og það stenst ekki alltaf á
endum að hlusta á kvöldfrétt-
ir útvarpsins yfir matnum og
setjast svo að sjónvarpsfrétt-
um með kaffibollann sinn. Ef
þannig stendur á að matur-
inn er ekki tilbúinn fyrr en
um það bil sem sjónvarps-
fréttirnar byrja tekuK maður
stundum diskinn með sér að
imbakassanum. Þá hentar
illa að maturinn sé fram bor-
inn á mörgum fötum og flók-
inn tæknibúnað þurfi til að
koma honum upp í sig.
Hér er uppskrift að einföld-
um og tiltölulega fljótgerðum
rétti sem fyrir utan að vera
ódýr hefur þann stóra kost að
einn gaffall dugar ágætlega
til að skófla honum af diski í
munn.
1 lítill pylsupakki
kartöflur (fjöldi eftir
smekk en miða má við að
ívið meira verði af kart-
öflum en pylsum)
1—2 laukar
Kartöflurnar eru flysjaðar
hráar, skornar í smáa teninga
og brúnaðar á pönnu. Lauk-
urinn hakkaður og bætt út í.
Pylsurnar skornar í smátt og
sameinaðar því sem fyrir er á
pönnunni. Þetta er svo hrært
vel saman og kryddað eftir
smekk, gjarna með einhverri
algengri kryddblöndu.
Rauðrófur bragðast vel
sem meðlæti og sömu sögu
er reyndar að segja um tóm-
atsósu. Spæld egg þykja sum-
um ómissandi. Rétt er að
benda á að ef skammturinn
er stækkaður getur verið
heppilegra að steikja kartöfl-
ur, lauk og pylsur hvað í sínu
lagi og hræra saman á eftir.
Þessi réttur er raunar algeng-
ur á Norðurlöndum og geng-
ur í Svíþjóð undir nafninu
„Pyttipanná*. Þýðing óskast.