Pressan - 28.02.1991, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. FEBRÚAR 1991
SJO BILSKUUM
UNHR HMMRINN
Svanur Þór Vil-
hjálmsson, for-
svarsmaöur Stein-
verks: „Þetta vesa-
lings félag fór á
hausinn, en viö
teljum okkur þó
hafa gengið frá
þessu þannig að
fólk á ekki að tapa
peningum, nema
þá óverulegum
fjárhæðum."
VEGNA KLUBURS
BYGHIWAVERKIAKA
Húseigendurnir óttast að hálfkláraðir bílskúrarnir verði slegnir öðrum, jafnvel þótt þeir standi á eignarlóðum.
Eigendur sex til sjö bílskúra við Reykjavíkurveg gætu
misst þá á naudungaruppboði vegna vafasamrar veð-
setningar Steinverks, fyrirtækis bræðranna Svans Þórs
Vilhjálmssonar lögfræðings og Hlödvers Vilhjálmssonar
verslunarmanns. Steinverk er gjaldþrota með 33ja millj-
óna króna kröfur á bakinu og veðum fyrir vel yfir and-
virði bílskúranna var aldrei aflétt.
Steinverk á engar raunverulegar eignir og bílskúrarnir,
sem teljast eign þrotabúsins, vegna þess að afsöl hafa
ekki verið gefin út, standa á eignarlóð húseigendanna.
Ekki er talið á færi annarra en húseigendanna að kaupa
þá, enda gætu hinir sömu ella gert kröfu um að bílskúr-
arnir yrðu fjarlægðir.
Hluti hinna hálfköruðu bílskúra sem tilheyra raðhúsunum viö Reykjavikurveg
24 til 46. Húseigendurnir keyptu þá og greiddu upp í topp, en þeir teljast samt
eign þrotabús Steinverks. Þeir standa á eignarlóð húseigendanna og því vafa-
samt að hægt sé að selja þá óskyldum aðilum.
Steinverk byggði tólf íbúðir í rað-
húsum við Reykjavíkurveg 24 til 46
og í kjölfar þess 10 bílskúra. Fljót-
lega voru 8 þeirra veðsettir vegna
tryggingabréfs sem Steinverk gaf út
vegna annarra viðskipta fyrirtækis-
ins. Tryggingabréf þetta hljóðaði
upp á 2,5 milljónir króna og mun
vera vegna kaupa á „plastpokavél"
á kaupleigu. Ekki tókst að fá upplýst
hver sé handhafi þessa trygginga-
bréfs í dag.
ÓVÆNT VEÐSETNING OG
33 MILLJÓNA GJALDÞROT
Þá voru sjö bílskúranna veðsettir
og 150 þúsund króna skuldabréf sett
á hvern bílskúr eða samtals rúmlega
ein milljón krónur. í kjölfar þess
gekk Svanur frá sölu bílskúranna til
húseigendanna. Kaupendurnir
vissu af veðsetningunni vegna 150
þúsund króna bréfanna, tóku enda
yfir þær skuldir upp í 700 þúsund
króna kaupverðið Þeir vissu hins
vegar ekki af 2,5 milljón króna
tryggingabréfinu, var enda að eigin
sögn aldrei sagt frá því. Vegna gjald-
þrots og vanefnda Steinverks hafa
bílskúrarnir staðið um langt skeið
hálfkaraðir og undir skemmdum.
Greiðslur vegna þeirra voru frystar,
en hvert bréf stendur nú í um 360
þúsund krónum.
Lögfræðingar sem komið hafa ná-
lægt máli þessu geta ekki skýrt
hvernig það gat gengið í gegn að bíl-
skúrarnir voru veðsettir sérstak-
lega. Nú eru sex af þessum átta bíl-
skúrum í uppboðsmeðferð vegna
skuldabréfanna, en kröfuhafi er Líf-
eyrissjóður rafiðnaðarmanna.
Þriðja og síðasta uppboð hefur verið
auglýst um miðjan mars.
Um leið er fyrirtækið Steinverk í
gjaldþrotameðferð Fyrirtækið var
úrskurðað til gjaldþrotaskipta í júlí
1989 og kröfufrestur rann út í des-
ember. Alls 68 kröfur bárust sem í
heild hljóðuðu upp á 33 milljónir
króna.
ÓFRAMKVÆMANLEGT
UPPBOÐ OG MISTÖK
BORGARFÓGETA
Inn í skiptameðferðina blandast
málaferli vegna byggingar Stein-
verks á raðhúsaíbúðunum sjálfum.
Steinverk mun hafa framselt kaup-
samningana til Kaupþings, eftir að
verðbréfafyrirtækið sjálft hafði
gengið frá þeim. Kaupendur munu
hafa gert skuldajöfnunarkröfu í
skiptarétti, sem Kaupþing hefur
mótmælt fyrir dómi.
Málið í kringum bílskúrana er ein-
stætt að því leyti, að þótt hinar um-
deildu veðsetningar reynist lögleg-
ar leikur vafi á því hvort hægt er að
selja bílskúrana á uppboði. Þeir eru
staðsettir á eignarióð húseigend-
anna og ef einhverjir aðrir en hús-
eigendurnir bjóða í og fá skúrana er
hægt að gera kröfu til þess að þeir
verði fjarlægðir af eignarlóðunum.
Lögfræðingar eru þó ekki sammála
um lagalega stöðu þessa máls og
eru engin fordæmi fyrir þeirri stöðu
sem upp er komin.
Það flækir málið að í veðbókum
er ekki ótvírætt hægt að sjá hvaða
bílskúr ber ákveðið númer eða til-
heyrir hvaða húsi. Enn flækir það
málið að nokkrir húseigendanna
telja sig hafa fengið vottorð hjá
embætti borgarfógeta um að skúrar
sínir séu ekki veðsettir vegna trygg-
ingabréfsins. Sigurður Sveinsson
lögfræðingur hjá embættinu sagði í
samtali við PRESSUNA að þegar
skúrarnir átta voru veðsettir hafi
verið ritað „áttundi bílskúr", þ.e.
„8.“. Því hafi vantað rétta athuga-
semd á útgefin vottorð. Samkvæmt
heimildum PRESSUNNAR lendir
embættið jafnvel í bótaskyldu
vegna þessara mistaka.
ÓMÆLD VANDRÆÐI VEGNA
VANEFNDA OG GJALDÞROTS
STEINVERKS
Samkvæmt upplýsingum Sól-
veigar Bachmann hjá skiptarétti
er eina leiðin til að klára þetta dæmi
allt sú, að uppboðsréttur skeri úr um
veðsetning'u og eignarhald bílskúr-
anna og gengið verði frá þrotabú-
inu. „Það er fyrirsjáanlegt að fólkið
muni skaðast á þessu. Það getur
hver sem er boðið í bílskúrana, en
þá gætu komið fram kröfur um að
þeir verði fjarlægðir og þá tekið við
margra ára dómsmál."
Einn húseigendanna við Reykja-
víkurveg var ómyrkur í máli, að-
spurður um veðsetningar Stein-
verks. „Þetta hefur kostað ómæld
vandræði. Þegar ég fékk fyrri hluta
húsnæðisláns krafðist ég þess að
veði yrði létt af eigninni og það var
samþykkt. Þegar ég ætlaði hins veg-
ar að sækja síðari hluta húsnæðis-
láns kom í ljós að það hafði verið
fryst. Það tafðist um marga mánuði
að ég gæti flutt inn. Það eru nú sex
skúrar á uppboði, veðsettir fyrir
meir en sem nemur andvirði þeirra.
Mér skilst að það ætli einhverjir
kröfuhafar frá ísafirði að bjóða í
skúrana, þótt það sé lögum sam-
kvæmt ekki hægt, því eigendur bíl-
skúra verða að búa í nágrenni
þeirra. Svona er þetta með bílskúr-
ana og hvað varðar húsin sjálf var
allt svikið og ekkert framkvæmt
vegna lokafrágangs. Fólk hefur lent
í því að greiða þær framkvæmdir
sjálft."
TAP FÓLKSINS ÓVERULEGT
SEGIR SVANUR ÞÓR
Svanur Þór Vilhjálmsson sagðist
lítið geta tjáð sig um þetta mál, það
væri gamalt orðið og komið út úi
höndum félagsins. „Þetta vesalings
félag fór á hausinn, en við teljum
okkur þó hafa gengið frá þessu
þannig að fólk á ekki að tapa pen-
ingum, nema þá óverulegum fjár-
hæðum. Málið snýst alls ekki um sjö
bílskúra, því við seldum bara fjóra
og þar af tvo sem komu þessum veð-
setningum ekki við. Fólkið vissi af
þessum skuldabréfum og þessu
tryggingabréfi og ég tel að það hafi
ekki orðið fyrir tjóni af Steinverks
hálfu. Það fékk fallegar íbúðir á
sanngjörnu verði. Þegar í vandræði
var komið var skuldajafnað og sam-
ið og þótt framkvæmdir hafi ekki
klárast hélt fólkið eftir það miklu af
greiðslum að dæmið á að ganga
upp."
Friðrik Þór Guðmundsson