Pressan


Pressan - 28.02.1991, Qupperneq 13

Pressan - 28.02.1991, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. FEBRÚAR 1991 13 Fiárdráttur framkvæmdastióra Blindrafélagsins 1985 Akæran fimm ár í SKÚFFIIHÉRADSDÓMARA „Hörmulegur dráttur" segir vararíkissaksóknari Þótt fimm ár séu liöin frá þuí aö ríkissaksóknari gaf út ákœru á hendur Oskari Guönasyni, fyrrverandi fram- kvcemdastjóra Blindrafélags- ins, fyrir fjárdrátt og skjala- fals og sendi sýslumannsemb- œttinu í Hafnarfiröi hefur dómur enn ekki veriö kveö- inn upp. Um mitt ár 1985 komst upp að Óskar hefði dregið sér fé af vinningum happdrættis Blindrafélagsins. Stjórn fé- lagsins kærði Óskar til RLR, sem sendi ríkissaksóknara niðurstöðu rannsóknar sinn- ar og ákæra var gefin út 16. apríl 1986. Óskar er sakaður um fjár- drátt og skjalafals í starfi sínu, um að hafa á tímabilinu frá október 1981 til júní 1985 dregið sér samtals 3,3 millj- ónir króna. Hér er um höfuð- stól að ræða og lætur nærri að um 10 til 20 milljónir króna að núvirði sé að ræða. Þess skal getið að Óskar náði fljótlega samkomulagi við Blindrafélagið um greiðslu peninganna og stóð við það samkomulag. Forsvarsmenn Blindrafé- lagsins hafa ítrekað haft uppi fyrirspurnir um afdrif málsins hjá embætti sýslumannsins í Hafnarfirði, en dómari í mál- inu er Finnbogi Alexanders- son. Leitað hefur verið til tveggja dómsmálaráðherra, Halldórs Asgrímssonar og Óla Þ. Guöbjartssonar, en allt hefur komið fyrir ekki. Að mati Braga Steinarsson- ar er hér um hörmulegan drátt að ræða. „Svo háttar til að kærur vegna fjárdráttar, sem ekki gerist í opinberu starfi, sæta ekki flutningi. Embættið sendi málið frá sér og eftir það er það í höndum dómarans. Vegna þess að ekki er um flutningsskyldu að ræða reynir síður á eftir- Fjárdrátturinn nam 3,3 millj- ónum króna á þáviröi en það fé hefur nú veriö endurgreitt. litshlutverkið," segir Bragi. Talsmenn Blindrafélagsins, Ragnar Magnússon formað- ur og Halldór Rafnar fram- kvæmdastjóri, vildu lítið um málið segja, en sögðust vera undrandi á því hversu málið hefði dregist. „Við höfum reynt að ýta á eftir málinu, en getum lítið gert, því málið er alfarið í Jiöndum dómstól- anna,“ segir Ragnar. „Allur dráttur á sakamálum er öll- um aðilum til tjóns. Það getur valdið ómetanlegri sorg og skaða þegar málið er með dómi rifjað upp eftir svo lang- an tíma," segir Halldór. Svínabú meh rúmlega 40 milljóna gjaldjirot Svínabúiö aö Þúfum í Hofs- hreppi í Skagafiröi var tekiö til gjaldþrotameöferöar fyrir skömmu. Engar eignir fund- ust í búinu. Kröfurnar voru 42.702.422 krónur. Eigandi búsins, þegar það fór í gjaldþrot, var Ágúst Waltersson. Hann hefur selt búið og það er nú rekið af nýj- um eiganda. Hluti ástæðna þess hvernig fór fyrir rekstri Ágústs er að mikið af útistandandi kröfum töpuðust við gjaldþrot versl- ana víða um land. Háar fjár- hæðir töpuðust þegar Versl- un Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga varð gjald- þrota. „Þorsteinn á vont med ad fást við erfið mál í návígi við aðra. Beitir um of útúrsnún- ingi i varnarstöðu. Hann er þrjóskur,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson. „Þegar ég hugsa til þess hvernig hann stóð sig í erfiðu starfi sem framkvæmdastjóri VSÍ finnst mér að hann hafi ekki fengið að njóta sín til fulls. En hann á eftir að gera þaö,“ segir Albert Guðmundsson. „Þorsteini hefur ekki tekist að skapa sér þá stöðu sem formanni Sjálf- stæðisflokksins er nauðsynleg,“ segir Björn Bjarnason aðstoðarritstjóri. „Varfærni Þor- steins, sem ég kalla stundum feimni, getur stundum virkað sem hik,“ segir Víglundur Þorsteinsson. „Hann er kannski of geðþekk- ur maður til að stjórna Sjálfstæðisflokkn- um, þar sem harðir hagsmunir ráða ferð- inni," segir Guðrún Helgadóttir. Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson hat framboði til formanns Sjálfstæöisflokksins á landsfundi flokksins sem hefst í næstu viku. „Þorsteinn vill gera vel. Hann er vel gefinn og trúr frjálslyndri stjórnmálastefnu," segir Jón Steinar Gunnlaugsson. „Þeir eru báðir dipló- matar, sem ég flokka sem kost, en Þorsteinn er meiri diplómat en Davíð," segir Albert Guð- mundsson. „Þorsteinn er vel að sér um úr- lausnarefni íslenskra stjórnmála og hefur tök á flóknustu þáttum þeirra," segir Björn Bjarna- son. „Þorsteinn er eins og Davíð heiðarlegur stjórnmálamaður með pólitíska framsýni og ákaflega vinnusamur. Hann er varfærnari en Davíð, sem er vart löstur," segir Víglundur Þorsteinsson, iðnrekandi. „Þorsteinn er vel- viljaður og vandaður maður. Væri ég í Sjálfstæð- isflokknum kysi ég fremur ímynd Þorsteins en einræðisímynd borgarstjórnarvaldsins," Guðrún Helgadóttir alþingismaður. Þorsteinn Pálsson >jálfstæðisflokksins „Davíð er heiðarlegur og hreinskiptinn, stendur við það sem hann segir. Býr yfir sterkri stjórnmálahugsjón. Er skemmtilegur og hefur gott pólitískt nef," segir Jón Steinar Gunn- laugsson hæstaréttarlögmaður. „Davíð er skemmtilegur og duglegur samstarfsmaður. Mér þykir vænt um hann og þá báða," segir Al- bert Guðmundsson sendiherra. „Davíð er einstakur og skemmtilegur baráttumaður og fé- lagi, sem á auðvelt með að kalla hið besta fram í fólki," segir Björn Bjarnason. „Hann er heið- arlegur, hefur pólitíska framsýni og er ákaflega vinnusamur. í borgarstjórn hefur hann mikla persónutöfra og hefur sýnt dirfsku," segir Víg- lundur Þorsteinsson. „Það hefur ekkert reynt á pólitískan styrkleika Davíðs. Að vera einráður í Reykjavíkurborg er stjórnmálum óviðkom- andi," segir Guðrún Helgadóttir. „Davíð er svolítið eigingjarn. hann hefur stundum vont tímaskyn, hættir t.d. til að vera óstundvís,“ segir Jón Steinar Gunnlaugs- son. „Davíð hefur hingað til verið á réttum stað. Það átti að vera óbreytt ástand, þeir eiga ekki að bítast um bitann,“ segir Albert Guðmundsson. „Hann hefur vakið öfund í sinn garð vegna pólitísks styrks síns og vel- gengni," segir Björn Bjarnason. „Dirfska Dav- íðs hefur sínar neikvæðu hliðar, t.d. við ákvarðanatöku án nægilegs samráðs. Hann er svolítið einráður,“ segir Víglundur Þor- steinsson. „Styrkur stjórnmálamanns felst í því að taka tillit til skoðana annarra, hvort sem viðkomandi líkar betur eða verr. Ég á eftir að sjá Davíð í þessu hlutverki. Ég hugsa að fjölskyldurnar fjórtán ráði áfram, þótt Davíð verði kosinn, segir Guðrún Helga- dóttir. Davíð Oddsson borgarstjóri og vara- formaður Sjálfstæoisflokksins UNDIR OXINNI Páll Pétursson alþingismaður — íslendingar eiga engan formann /' nefndnum Noröur- landaráðs á næsta ári og kröfu ykkar um for- mennsku til handa Sighvati Björgvins- syni var hafnað. Er verið að niðurlægja ykkur? „Ég veit ekki hvort hægt er að líta á þetta sem niðurlægingu fyr- ir okkur íslendinga. En þetta gerðist og er af- leiðing af auknu flokksræði i Norður- landaráði. Það er brot- in regla sem verið hef- ur frá því Norðurlanda- ráð var stofnað 1952, að nefndunum verði skipt á þjóðimar en flokkarnir velji ekki hverjir veiti nefndun- um forstöðu." — Ef ekki er hægt að koma fram af fullri virðingu gagnvart ís- lendingum er þá nokkuð annað en hætta í þessu sam- starfi? „Ég vil ekki segja að i þessu felist nein óvirðing við okkur. Þetta erauðvitað mjög slæmt og eðlilegt að það hafi einhveráhrífá stemmninguna. En við erum ennþá í reiptogi og höldum því áfram." — Eru þetta kannski eðlileg við- brögð Norðurland- anna í Ijósi þess, að ís- lendingar láta minnstu fjármuni af hendi en bera hlut- fallslega mest úr být- um? „Ég veit ekki hvort við eigum að vera að leggja í þetta mikið dýpri merkingu. Vegna fámennisins erum við auðvitað í dálitlum vanda, sjö á móti tutt- ugu frá hinum þjóðun- um. Þessir sjö hafa notið jafns réttar á við tuttugu manna sendi- nefndir. Þeim hefur kannski blætt það í augum. Við höfum auðvitað á margan hátt notið góðs af þessu norræna sam- starfi, bæði á menn- ingarlegu sviði og efnahagslegu. Við höf- um setið við sama borð og stóru þjóðirn- ar, en borgað 1% af sameiginlegum kostn- aði." Páll Pétursson er fráfarandi forseti Norðurlandaráðs, en þing ráðsins var sett i Kaupmannahöfn í vik- unni. Islendingar telja framhjá sér gengið við embættisveitingar á þinginu og gagnrýna aukið vald stjórnmálaflokka.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.