Pressan - 28.02.1991, Síða 19

Pressan - 28.02.1991, Síða 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. FEBRÚAR 1991 19 Barþjónar tilnefna leiðinlegustu og skemmtilegustu stéttirnar LEIGUBÍLSTJÓRAR OG ATVINNULEYSINGJAR LEIÐINLEGASTIR PRESTAR * OG STÚDENTAR SKEMMTILEGASTIR Það vita allir að fólk getur verið skemmtilegt með víni. Við vitum líka að fólk getur verið hrút- leiðinlegt með víni. Fáir eða engir hafa eins mikil samskipti við drukkið fólk og barþjónar. Þess vegna leitaði PRESSAN til valins hóps barþjóna sem nefndi þær þrjár stéttir manna sem eru skemmtilegastar og eins þær stéttir sem eru leiðinlegastar á börunum. STÉTTASKIPTING Á ÖLDURHÚSUM Meðal barþjóna sem leitað var til voru nokkuð skiptar skoðanir um hvaða stétt manna er skemmti- legust þegar komið er á barina. Baráttan um efsta sætið var mjög hörð. Þeg- ar upp er staðiö standa prestar uppi sem sigurveg- arar. Greinilegt er að þjón- ar nefna frekar þær stéttir sem koma vel fyrir en þær sem versla mest. Greinilegt er að stétta- skiptingar gætir á öldur- húsunum. Ákveðnar stéttir sækja sum húsanna meira en aðrar. Þjónarnir voru nokkuð sammála um hvaða stéttir manna séu leiðinlegustu gestir baranna. Leigubíl- stjórar fengu nánast ein- ungis keppni frá atvinnu- leysingjum um fyrsta sæt- ið á leiðindalistanum. Sambærileg könnun var gerð í Bandaríkjunum fyrir ekki löngu síðan. Niður- stöður þeirrar könnunar voru á þá leið að endur- skoðendur þóttu manna leiðinlegastir. Að mati bandarísku þjónanna voru hins vegar lögmenn og læknar skemmtilegustu - bargestirnir. PRESTAR SKEMMTILEGASTIR Eftir að hafa fengið nið- urstöður þjónanna varð út- koman þessi: Prestar fengu flestar til- nefningar sem skemmti- legustu gestirnir á börun- um. Stúdentar voru í öðru sæti, endurskoðendur komu næstir, alþingis- menn og ráðherrar urðu fjórðu og læknar fimmtu. Aðrar stéttir sem voru nefndar meðal skemmti- legustu og bestu gesta á börunum voru: KR-ingar, flugmenn, flugfreyjur, verk- takar, sjómenn, hjúkrunar- fræðingar og óvirkir alkó- hólistar. LEIGUBÍLSTJÓRAR LEIÐINLEGASTIR Leigubílstjórar voru ör- uggir sigurvegarar í valinu um leiðinlegustu bargest- ina. Næstir komu atvinnu- leysingjar. Leikarar og skemmtikraftar hrepptu þriðja sætið. Hárgreiðslu- fólk og snyrtifræðingar skipuðu sér í fjórða sætið og dyraverðir í það fimmta. Aðrar stéttir sem voru tilnefndar voru þessar: Fólk í heilbrigðisgeiran- um, BHMR-ingar, sjómenn og blaðamenn. HVERNIG VERÐUR FÓLK EFTIR AÐ HAFA LESIÐ ÞETTA? „Það er greinilegt að þú hefur ekki unnið á bar. Hvernig heldur þú að það verði fyrir okkur að fá til okkar menn úr þeirri stétt sem verður valin leiðinleg- ust? Ef það fólk hefur ver- ið leiðinlegt fyrir hvernig verður það þá þegar birst hefur í Pressunni að það sé leiðinlegast allra? Þá verður leiðinlegt að vinna á barnum," sagði einn þeirra þjóna sem tók þátt í valinu. „Það er talsvert um unga stráka, um og yfir tvítugt, sem eru mjög leið- inlegir gestir. Strákar á þessum aldri eiga til að vera með allskyns leiðindi. Þeir eru oft fullir af remb- ingi, hávaðasamir og frekir. Þeir vilja oft sýna sig, hvað þeir eru sterkir og merki- legir. Oftast fara þessir menn í taugarnar á okkur sem vinnum á börunum og ekki síður á þeim sem eru gestir hjá okkur," sagði einn þjónninn. „Atvinnuleysingjar og auðnuleysingjar eru oftast til vandræða. Þeir eiga það til að setjast að öðrum gestum, sníkjandi og betl- andi. Þeir hrekja aðra gesti frá." MIKILL MUNUR Á FÖSTUDÖGUM OG LAUGARDÖGUM „Það er mikill munur á fólki á föstudögum og laugardögum. Fólk virðist vera þreyttara á föstudög- um og um leið er það leið- inlegra. Á föstudögum er meira um fólk sem er mik- ið úti á lífinu en á laugar- dögum. Það eru betri og þægilegri gestir sem koma á laugardögum. Desember er samt sérstakur. Þá er fólk erfiðara en í öðrum mánuðum. Ég held að það sé tvennt sem orsakar það. Annars vegar er stressið sem fylgir jó- laundirbúningnum og svo blessað jólaglöggið. Það er algengt að fólk sem er að koma úr jólaglöggi sé mik- ið drukkið þegar það kem- ur á barina. Mikið drukkið fólk er sjaldnast skemmti- legt," sagði einn þjónanna. „Endurskoðendur eru skemmtilegir. Þeir hafa mikinn húmor. Byggingaverktakar og aðrir sem vinna við byggingar eru skemmtilegir gestir. Leigubílstjórar geta verið skemmtilegir gestir," sagði einn barþjónanna. „Leigubílstjórar geta ver- ið leiðinlegir. Þeir eru mest áberandi á mánudögum og þriðjudögum. Þeir virð- ast vera útkeyrðir og út- taugaðir eftir helgarvinn- una og margir þeirra þola vín illa. Atvinnuleysingjar geta ver- ið ömurlega leiðinlegir. Þeir eru blankir og abbast upp á starfsmenn og gesti." I fyrstu virtust íslensku barþjónarnir ekki fúsir til að gera upp á milli gesta sinna. Þegar ákveðið var að birta ekki nöfn dóm- nefndarmanna vildu þeir vera með, að tveimur und- anskildum. Annar gat ekki gert upp á milli manna en hélt langa ræðu um ágæti áfengis. Hann sagði meðal annars að sólskin væri í hverjum áfengisdropa. Eins sagði hann að menn ættu að njóta Bakkusar en ekki slást við hann. Hinn sem neitaði sagðist ekki vilja vera með vegna skyldleika við blaðamann- inn sem skrifar þessa grein. Sigurjón M. Egilsson j

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.