Pressan - 28.02.1991, Síða 26

Pressan - 28.02.1991, Síða 26
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR Þjóökirkjan berst fyrir athygli Ég er til í að rappa testamentin og gefa uppskriftir með kvöidmál- tiðinni — segir séra Viglundur Bárð- arson, sem mun sjá um skemmtidagskrá þjóökirkj- unnar í Sjónvarpinu. Ruglingur á kennitölum Giftist alnafna nnnnsta síns fyrir misskilning — ég veit ekki hvort það er rétt að leiðrétta þetta úr þessu.segir brúðurin. Vegna ruglings á kennitölum er Grétar Ólafsson nú giftur konu sem alnafni hans ætlaði að giftast. Vegna óska hennar hefur verið limt yfir augun á henni á mynd- inni. Skurðlæknir á Landspitalanum Rukkar fólk á skurðaur borðinn — neitaði að sauma fyr- ir botnlangaskurð fyrr en hann fékk næturalag borgað. Ég er orðinn þreyttur á að við læknar séum álitnir einhverj- ar góðgerðarstofnanir, segir Ingvar Matthiasson læknir. Séra Viglundur ásamt aðstoðarstúlkum i sjónvarpsþáttun- um. |?wn FIMMTUDAGURINN 28. FEBRÚAR 1991 7. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR STOFNAÐ 1990 Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944 Bryndís Hjálmarsdóttir frá Súganda segist ekki hafa nein sér- stök stefnumál á dagskrá utan þau sem kjósendur vilji að hún hafi. „Það verður ekkert vesen hjá mér," segir hún. Kosningarnar 39 FLOKKAR I FRAMBOBI — aukiö atvinnuleysi líklegasta skýringin Reykjovík, 27. febrúor Þrjátíu og níu flokkar hafa nú lýst yfir framboði til næstu þingkosninga og eru þeir fleiri en nokkru sinni fyrr. „Fyrir mér er þetta fyrst og fremst atvinnuspursmál," sagði Bryndís Hjálmarsdóttir, húsfreyja á Suðureyri, en hún er formaður Kvenfélagsins á Súganda, sem hefur ákveðið að bjóða fram. „Það er ekki mikið um at- vinnutækifæri í minni sveit. Maður verður því að leita eft- ir því litla sem í boði er,“ sagði Bryndís. Að sögn Svans Kristjáns- sonar, lektors í stjórnmála- fræði, má sjá afleiðingar lé- legs atvinnuástands í fleiri framboðum. „Það virðast margir renna hýru auga til þess að hafa ör- ugga vinnu næstu fjögur árin. Sjálfur hef ég íhugað fram- boð og margir í minni ætt,“ sagði Svanur. Meðal nýrra framboða má nefna; Kristilega bræðra- flokkinn, sem nokkrir guð- fræðingar án brauða standa að, Miðflokkinn, sem hunda- þjálfarar og hunda-hársnyrti- fræðingar hafa sameinast um, og Sameinaða flokkinn, en að honum standa nokkrir fyrrverandi stjórnmálamenn sem eiga það sameiginlegt að hafa verið hafnað í sínum fyrri flokki. „Ég veit ekki nema að það væri ódýrara að hækka ein- faldlega atvinnuleysisbætur," sagði Benedikt Blöndal, for- maður kjörnefndar í Reykja- vík. „Hættan við það er hins vegar sú að þeir sem hafa verið í framboði undanfarin ár mundu líka hætta og fara á atvinnuleysisbætur." Þrír íslenskir bissnessmenn Sakaðir nm samstarf við Saddam Hússein London, 21. febrúar í frétt breska dagblaðs- ins The Time í gær voru þrír íslenskir bisness- menn sakaðir um að hafa aðstoðað Saddam Hússein við hernaðaruppbyggingu Iraks. Þeim er gefið að sök að hafa lagt til sérfræði- þekkingu á sviði eitur- vopna og efnahagslegra hryðjuverka. „Þetta er allt orðum aukið," sagði Höskuldur Traustason, heildsali í Reykjavík, í samtali við GULU PRESSUNA, en hann er einn þremenning- anna. „Það eina sem ég gerði var að senda íröskum kunningja mínum afrit af þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar og frum- varp Ólafs Ragnars að fjárlög- um fyrir þetta ár. Ef það er glæpur þá mætti sjálfsagt frekar hengja höfunda þess- ara pappíra en mig.“ Ég kvarta ekki nema ég sé sérstaklega spnrð — segir Olga Finns- dóttir, forstööukona Reykjavík, 28. febrúar_ „Það er rétt að við get- um hækkað í launum með því að vinna yfir- vinnu, en þannig er það nú með flestar stéttir,“ segir Olga Finnsdóttir, forstöðukona á dag- heimilinu Hamrakoti, en hún hafði um 240 yfir- vinnustundir í janúar síðastliðnum. „Mér finnst samt að mig vanti ýmislegt sem aðrir geta veitt sér,“ bætti Olga við. Heildarlaun hennar í janúar eru um 420 þúsund krónur. Eru það ekki mjög há laun miðað við þær upp- lýsingar sem fóstrur hafa hingað til látið frá sér fara um launamál? „Ég er ekkert að kvarta svo sem. Ég geri það yfir- leitt ekki nema ég sé sér- staklega spurð,“ sagði Olga. Eru þeir striðsglæpamenn? Höskuldur Traustason, Bjartmar Pálsson og Gunnlaugur Ívarsson. Samkvæmt frétt The Time hefur Saddam Hússein notað þessi plögg til að kollvarpa efnahag þeirra arabaríkja sem hafa lýst yfir stuðningi við bandamenn í stríðinu. „Ég gerði ekki annað en þýða þessi bréf Höskuldar," sagði Bjartmar Pálsson, lög- giltur skjalaþýðandi. „Ef eitthvað er ólöglegt við mín viðskipti vil ég fá það upp á borðið. Ég kæri mig ekki um að svara órökstudd- um dylgjum — jafnvel þó þær komi frá virtu blaði,“ sagði Gunnlaugur Ivarsson, verk- stjóri hjá niðursuðuverk- smiðju KJ á Akureyri, en í grein The Time er sagt að niðursoðnir gaffalbitar fyrir- tækisins séu ein helsta uppi- staðan í eiturvopnabúri Hús- seins. Nýr búvörusamningur Bæði spennandi og skemmtilegt Vík í Mýrdal, 27. febrúar „Mér líst vel á þessar til- lögur. Þær bjóða upp á margt nýtt og skemmtilegt sem ekki er að finna í kerf- inu í dag,“ sagði Kristinn Pálsson, bóndi á Felli, en honum hefur tekist, sem kunnugt er, að verða með tekjuhæstu mönnum landsins með því að nýta til fullnustu ýmis ákvæði búvörusamningsins. Að sögn Kristins hefur hann einungis rétt litið yfir tillögur sjö manna nefndar- innar um endurskoðun samn- ingsins. „í fljótu bragði sýnist mér margt vera miklu meira spennandi í þessu nýja kerfi. Ég sé til dæmis ekki betur en það sé hægt að græða helvíti vel á því að hætta í kindakjöt- inu, fara yfir í hross, ná sér í salmonellu og vinda sér svo beint í refinn eða kanínuna. Ef maður nær þessu á innan við átta mánuðum er maður á grænni grein, að ég tali nú ekki um ef maður getur troð- ið ferðaþjónustunni þarna einhvers staðar á rnilli," sagði Kristinn. „Annars er ég að mestu bú- inn að draga mig í hlé til að gefa sonum mínum tæki- færi,“ bætti Kristinn við. „Enda er það orðið fullt starf að halda utan um þær fjár- festingar sem við höfum lagt í fyrir hagnaðinn af búrekstr- inum.“

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.