Pressan - 18.04.1991, Page 6
r <■»/•» r fian *
O r U|l-i-v.Avi'.r
KJOSUM EKKI
, YFIROKKUR
LIFLAUSA fe®
SPYTUKARLA
fyrir fólk
fréttist að Ragnar Hall væri að
hætta sem skiptaráðandi í Reykja-
vík. Ragnar mun
ætla að hefja störf á
lögfræðiskrifstofu
Gests Jónssonar
en þeir eru gamlir
skólabræður úr lög-
fræðinni. Þá hafa
þeir einnig haft tölu-
vert af hvorum að segja í gegnum
störf þeirra hingað til en Gestur hef-
ur verið bústjóri í tveim stórum
þrotabúum sem Ragnar hefur haft
með að gera, það er að segja þrota-
búi Hafskips og þrotabúi Nesco. Þá
má geta þess að yfirmaður Ragnars
hingað til, Jón Skaftason yfirborg-
arfógeti, er einmitt faðir Gests .. .
l kjölfar uppsagnar Ragnars
Hall skiptaráðanda er ljóst að það
verða nokkrar mannabreytingar
hjá borgarfógetaembættinu. Við
skiptarétt eru tvær fógetastöður og
hafa Ragnar og Gréta Baldurs-
dóttir gegnt þeim um skeið eða síð-
an Markús Sigurbjörnsson var
settur prófessor í lögfræði við laga-
deild Háskóla íslands. Ólíklegt er
talið að Markús komi aftur til starfa
hjá embættinu og því er talið að
skipað verði í báðar fógetastöðurn-
ar hjá skiptarétti...
G...
Skaftason yfirborgarfógeti láti af
störfum í lok þessa árs eða upphafi
þess næsta. Að öllu jöfnu væri mikill
slagur um þetta embætti sem hefur
fært Jóni um eina milljón króna í
mánaðartekjur. Vegna breytinga á
lögum um fógetaembættin þá er
embættið ekki lengur sú tekjulind
sem það hefur verið. Þar að auki
mun það aðeins heita „sýslumaður-
inn í Reykjavík" í framtíðinni. Lík-
legt er þó að einhverjir verði til að
berjast um embættið en möguleikar
manna velta að sjálfsögðu á því hver
verður dómsmálaráðherra . . .
I* orstjóri Bændahallarinnar,
Konráð Guðmundsson, fyrrver-
andi hótelstjóri á Sögu, hefur tekið
að sér fyrir Búnað-
arbankann að stýra
framkvæmdum við
Hótel ísland. Rekst-
ur gistingadeildar
hótelsins verður síð-
an í umsjá Hótels
Sögu fyrst í stað og
eru bókanir þegar hafnar. Stefnt er
að fyrstu gistinótt þann 1. júlí næst-
komandi, en þá er ætlunin að lokið
verði frágangi við alls fjörutíu her-
bergi. Framkvæmdum við alla hót-
elbygginguna á hins vegar að vera
að mestu lokið um áramót og þá er
ætlunin að taka 70 ný herbergi í
notkun ...
LEXIS
AXIS
AXIS HUSGOGN HF.
SMIÐJUVEGI 9. KÓPAVOGI
SÍMI: 43500