Pressan - 18.04.1991, Blaðsíða 30

Pressan - 18.04.1991, Blaðsíða 30
Jón Baldvin Hannibalsson heldur áfram leit sinni að einhverjum sem vill ræða við hann. Jón Baldvin Hannibalsson Skorar nú á Bryndísi Schram að ræða við sig — ég veit ekki hvort þaö passar inn í prógrammið, segir Bryndís Landsprófsbekkurinn 1970 úr Laugalækjaskola Allir nema einn úr bekknum eru í framboði — reikna meö aö mér verði boðið starf aðstoð- arráðherra eða eitthvað ámóta, segir Hjörtur Landsprófsbekkurinn er nú i framboði fyrir átta flokka í fimm Ingvarsson, sá eini sem kjördæmum. _ ekki býður sig fram Útreikningar Þjóðhags- stofnunar Skatileysismörk í 200 þúsund ef kosið yrði í haust Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar, segir að skattleysismörk færu að öllum líkind- um í 200 þúsund ef kosið yrði í haust. 16. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 18. APRÍL 1991 HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR Gallup á íslandi Háskólamenn á frjálsum markaði með miklu hærri lann en ríkisstarfsmenn „Ríkið er þrælahaldari," segir Olafur Ragnar og segist ætla að segja upp strax á morgun og sækja um vinnu hjá einka- fyrirtæki. — ótrúleg nidurstada, segir Ólafur Ragnar Grímsson sem segist œtla að sœkja um uinnu hjá einkafyrirtœki sem fyrst Reykjavík, 18. apríl „Það er rosalega svekkj- andi að hafa unnið allan sinn starfsaldur hjá ríkinu og fá þetta svo framan í sig,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármáiaráð- herra þegar hann kynnti niðurstöður könnunar Gallups á íslandi um launamismun háskóla- menntaðara manna hjá ríkinu og á hinum frjálsa vinnumarkaði. „Pælið í þessu. Ég er búinn að kenna í Háskólanum frá því ég kom úr námi. Síðan fór ég á þing og loks í ráðuneyt- in. Núna, mörgum árum seinna, fæ ég það beint í and- litið að ég hefði haft það miklu betra ef ég hefði asnast til þess aðsækja um vinnu hjá einhverju einkafyrirtæki út í bæ,“ sagði Ólafur Ragnar. ,,Ég veit ekki hvað menn eins og Páll Halldórsson ætla að gera en það er ljóst að ég ætla ekki að láta bjóða mér þetta," bætti Ólafur við. Öngþveiti á íslenskum hlutabréfamarkadi Enginn veit hver á stærstu hlutafélögin Reykjavík, 17. apríl „Við erum að reyna að greiða úr þessari flækju en það bendir fátt til þess að skýrar línur fáist fyrr en eftir nokkrar vikur,“ sagði Halldór H. Jónsson, stjórnarformaður Eim- skips og fleiri stórfyrir- tækja, í samtali við GULU PRESSUNA, en mikil upp- lausn er nú á íslenskum hlutabréfamarkaði eftir að það kom í Ijós að enginn veit í raun hver á mörg af stærstu hlutafélögum landsins. „Þetta byrjaði allt með því að við keyptum hlutabréf í Flugleiðum og Sjóvá. Stjórn Sjóvá keypti þá hlutabréf í Eimskip á móti og bauð síöan í bréf í Granda á móti okkur. Grandi keypti þá hlut í Flug- leiðum sem aftur keypti hlut í Sjóvá sem skipti á bréfum í Eimskip og Skeljungi. En sum af bréfunum í Skeljungi voru eign F.imskips þannig að Sjó- vá var í raun að skipta á hlut í Eimskip fyrir hlut í Eimskip," sagði Halldór en bætti síðan við: „Annars er ég ekki alveg viss um að þetta hafi verið svona. En þetta hljómaði alla vega eitthvað þessu líkt þeg- ar Hörður var að skýra þetta út fyrir mér." Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR áttuðu- menn sig á flækjunni þegar í ljós kom að Hörður Sigur- gestsson gerði kröfu um að verða stjórnarformaður í sjö af tíu stærstu fyrirtækjum landsins. „Hann gat sýnt fram á að hann hafði hlutabréf á bak við sig til að ná þessu. Ekki veit ég hvernig honum tókst þetta. Pó það sé skömm frá að segja þá er eins og honum hafi tekist að gabba okkur alla,“ sagði Halldór. Aðeins tveir Reyknesingar eru ekki á framboðslistum Við vitmn ekkert hvað við ætlitm að kjósa — segja hjórtin Páll Kjartansson og Karen Hjaltadóttir Keflavík, 10. apríl_____ „Vid höfum ekki gert upp okkar hug enda er þad mjög erfitt án þess að móðga einhvern,“ segir Páll Kjartansson, blikk- smiður í Njardvík, en hann og kona hans eru Reyk- nesingarnir sem ekki eru á framboðslista einhvers af þeim flokkum sem bjóða fram í kjördæminu. „Mamma er í framsókn, pabbi er græningi, Dóri bróð- ir er í framboði fyrir Heima- stjórnarsamtökin og vinnu- veitandi minn er allaballi. Ég á því erfitt með að ákveða mig og enn erfiðara með að segja frá því opinberlega hvað ég ætla að kjósa," segir Karen Hjaltadóttir, eiginkona Páls. „Stuttu áður en framboðs- frestur rann út datt okkur í hug að bjóða bara fram sjálf," segir Páll. „En það kom í Ijós að við hefðum ekki fengið neinn á lista með okkur. Hinir listarnir höfðu hreinsað upp allt kjördæmið." Karen og Páll. Kjósendurnir í Reykjaneskjördæmi. ALLTBENDIR TIL STORSIGURS FRAMSOKNAR Reykjavi'k, 18. apríl „Eftir að hafa borið saman hitastig sjávar fyr- ir norðan land og úrslit síðustu kosninga finnst mér flest benda til að Framsóknarflokkurinn eigi eftir að vinna stór- sigur í þessum kosning- um,“ sagði Páll Bergþórs- son veðurfræðingur í samtali við GULU PRESS- UNA. Páll segir að þegar sjór hefur verið óvenjulega kald- ur fyrir norðan land, eins og hann er nú, hafi Framsókn- arflokkurinn unnið sýna stærstu sigra í kosningum. „Samanburður minn á hita sjávar og kosningaúr- slitum hefur leitt í Ijós að hægt er að spá fyrir um kosningaúrslit með allt að 92 prósent nákvæmni," seg- ir Páll. „Það eina sem getur hindrað stórsigur framsókn- ar er að hingað komi eitt- hvað af heitu lofti frá Evr- ópu fyrir kosningar. Fram- sókn gæti misst einn eða tvo þingmenn út á það." Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.