Pressan - 18.04.1991, Blaðsíða 26

Pressan - 18.04.1991, Blaðsíða 26
.1 FIMMTUDAGUR PRMSSAN 18. APRÍL 1991 LP LISTAPÓSTURINN Kjartan Ragn- arsson leik- stýrir hjá Þjóð- leikhúsinu Kjartan Ragnarsson mun leikstýra nýju íslensku uerki hjá Pjódleikhúsinu sem hann er jafnframt höfundur að. Æfingar munu hefjast nú í vor. Leikritið fjallar um leikrita- skáldið Sigurð Pétursson og gerist á tímum frönsku bylt- ingarinnar þegar miklar hug- myndafræðilegar hræringar áttu sér stað í Evrópu. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem Kjartan leikstýrir hjá Þjóðleikhúsinu. ✓ Eg var ekki þriggja ára undrabarn með óslökkvandi ást á Beethoven — segir Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari í spjalli ,,Pví er líkt farið með allar listgreinar að það er erfitt að | skilja starfið frá einkaltfinu," segir Bryndís Halla Gylfa- dóttir sellóleikari, en hún Iteldur einleikstónleika þann fyrsta maí nœstkomandi í Bú- staðakirkju. Á tónleikunum sem eru ú vegum Musica No- va mun Bryndís Hulla flytja ; einleiksverk fyrir selló eftir j tónskáldin Hauk Tómasson, | Atla Heimi Sveinsson, Hróð- mar Sigurhjörnsson og Guð- ! mund Hafsteinsson. Bryndís : Halla er tuttugu og sex ára | gömul. Heldur heimili ásamt I hróður sínum og átta mán- aða gamalli dóttur sinni sem er að komast á rífa og tœta skeiðið, og á að sjálfsögðu að lœra á selló þegar hún verður þriggja ára. Hvar varstu við nám? „Ég var hérna í Tónlistar- skólanum frá sex ára aldri en 11 ára gömul fluttist ég síðan til Halifax í Kanada ásamt for- eldrum mínum og var þar um fimm ára skeið. Ég hélt þar áfram í náminu og eftir að heim var komið lauk ég ein- leikaraprófi frá Tónlistarskól- anum hérna hjá Gunnari Kvaran. Ég lauk síðan BA og MA prófi frá New England Conservatory í Boston en var að því loknu í hálft ár í Amst- ardam þar sem ég nam í einkatímum hjá Dimitri Ferschtamm. Ég byrjaði síð- an að leika með Sinfóníu- hljómsveitinni síðastliðið haust. Ég hef hugsað mér að vera þar áfram en það getur alltaf eitthvað óvænt komið upp á.“ Afhverju selló? „Það er víst ekki mjög róm- antísk saga á bak við þetta allt saman. Ég var ekki þriggja ára undrabarn með óslökkvandi ást á Beethoven. Sannast sagna tel ég megin- ástæðuna vera þá að mamma var mjög ástfangin af selló- inu. Ég er mjög fegin og nýt góðs af því í dag. Tónlistin er eins og hver önnur vinna en þó ólík annarri vinnu að því leyti að þú ert ekki búin í vinnunni þegar þú kemur heim. Það er ákveðinn óró- leiki sem fylgir tónlistinni. Þessi ótti við að geispa gol- unni ef manni mistekst á tón- leikum hefur sitthvað að segja þar um." Hefur þú ekki hugsað þér að reyna meira fyrir þér sem einleikari? „Það ganga all margir með einleikaradrauminn í magan- um og setja það skör hærra en að vera í hljómsveit. Ég geri mér engar rósalegar vonir um það. Eg myndi hins- vegar vilja gera meira til dæmis í kammertónlist. Það getur líka allt gerst og ég er vön því að búa ekki lengi á hverjum stað. Ég er líka hald- in þessum sígilda ótta við að staðna. Einleikarar hafa mjög tak- markaða möguleika hérna. Raunverulegir einleikarar halda tónleika í hverri viku og það segir sig sjálft að tón- leikagestir hérna yrðu fljótir að fá leið á manni. Það hefur þó sínar jákvæðu hliðar að búa á íslandi og tón- listarfólki hérna bjóðast ýmis tækifæri, til dæmis í Skandin- avíu. Og svo má nefna það að þó að ísland sé lítill staður er fólk ótrúlega ötult við að sækja tónleika. Það má segja að hér séu hungraðir áheyr- endur. Ég sakna þess þó að hafa ekki meira tónlistarlíf í kringum mig. Þessara áhrifa sem flæða yfir mann erlend- is. Mér finnst ég stundum detta úr samhengi á íslandi. En eyjan hefur þennan ókost -o að það er ekki bara hægt að £i hoppa yfir landamæri í leit að nýjum áhrifum. En jafnvel þetta hefur sínar góðu hliðar. Þar má nefna friðinn til að einbeita sér.“ En hvernig finnst þér að öðru leyti búið að tónlistar- fólki? „Ég hef ekki yfir neinu að kvarta. F.g er ekki pólitísk manneskja og blanda mér lít- ið í pólitíska umræðu. Það er líka svo stutt síðan ég var í námi að ég er ekki komin inn í þennan hugsunarhátt enn- þá. Ég vil þó nefna ansi að- kallandi mál fyrir allt tónlist- arfólk sem er tónlistarhús. Svo er ég sérstaklega ánægð með það framtak sem Lista- háskólinn er. Hann hefur geysilega þýðingu fyrir tón- listarfólk. Þetta er mjög stórt atriði í því að fá sig metinn inn i skóla erlendis. Auk þess er nám erlendis mjög dýrt og því kjarabót að geta lokið BA námi hér heima áður en lengra er haldið," sagði Bryn- dís Halla að lokum. Odru fremur liturinn og ljósið sem ég læt heillast Eggert Pétursson sýnir í Nýlistasafninu ,,Ég œtlaði að verða nátt- úrufrœðingur þegar ég var svona 6—7 ára,“ segir Eggert Pétursson myndlistarmaður en hann sýnir í Nýlistasafninu um þessar mundir. Eggert nam við myndlistaskólana í Reykjavík ogþví nœst við Jan Van Eyck Academie í Maast- richt í Hollandi. „Ég safnaði plöntum, flokkaði og málaði þœr,“ segir Eggert,,Pegar ég var stðan orðinn 10 ára gam- all kom ekkert annað til greina en myndlistin. „Ég hef alltaf haft ánœgju af plöntum en það er kannski öðru frem- ur liturinn og Ijósið sem ég læt heillast af.“ Hefur náttúran alltaf verið megin viðfangsefnið? „Nei, ekki eingöngu. Þetta er öllu heldur árátta sem ég læt undan. Það má kannski frekar segja að það sé ímynd- unaraflið. Á fyrstu sýning- unni minni sýndi ég myndir sem ég vann með því að þurrka plöntur í vatnslita- pappír og plönturnar skildu eftir sig för í pappírnum. Ég vinn einnig mikið með rýmið líkt og ég geri í þessari sýn- ingu. Það er stígandi í sýning- unni, því meira sem ofar dregur. Ég vinn tvívíð verk og stilli þeim upp saman til að framkalla viss heildaráhrif." Hefur þú alltaf haft lifi- brauð af myndlistinni? „Já, það má segja aö þetta hafi allt skriðið saman frá því að ég kom úr námi. Ég hef náttúrlega fengist töluvert við myndskreytingar og svo hef ég kennt við Myndlista- og handíðaskólann. Ég fékk einnig starfslaun til sex mán- aða og þau gerðu mér kleift að vinna þessa sýningu núna.“ Eggert hefur haldið fjölda- margar sýn ingar hérlendis og tekið þátt í samsýningum er- lendis. Sýningin er opin frá 14—18 en henni lýkur sunnu- daginn 21. apríl. Danskir menningar- dagar Nú er dönskum menn- ingardögum í Reykjavík að mestu lokið. Éjöldi danskra listamanna hef- ur sótt okkur heim og veitl fersku lífi í þessa mis- lyndu vordaga. Þessir dagar voru ekki síst þarfir fyrir þœr sakir að við sjá- um furðu litiö hér af danskri menningu hversu vel upplýst sem við teljum okkur annars vera. Það er ekki langt síðan að sannir Reykvíkingar settu upp hundshaus yfir danskri kvikmyndagerð og fannst frœndur vorir á Norðurlöndum krumpa sœngurvoðirnar full mik- ið í samförum við vanda- málagrýluna. Pað er aö segja í þeim myndum sem ekki féllu inn í „senge- kanten" eða Passer flokk- irin. En nú njóta danskar myndir virðingar á al- heimsvettvangi og þeir voru ófáir fyrrum hunds- hausarnir sem völnuðu músum yfir Pelle erobrer- en og Babettes gœstebud í bíó. En það eru fleiri danskar myndir sem verðskulda athygli og viö fengum smjörþefinn af þeim núna. Pað er alltaf undrunarefni hversu fáar norrœnar myndir hljóta náð fyrir augum bíogesta og vonandi að dönsku menningardagarnir hafi breytt þar einhverju um. Það er leiðinlegt ef bíólíf- ið œtlar aö pipra í forpok- aöri aðdáun sinni á amer- ískum afþreyingariðnaði og kemur það í alla staði iílu út. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.