Pressan - 18.04.1991, Page 9

Pressan - 18.04.1991, Page 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. APRIL 1991 9 íslands sem sett voru seint á sjöunda áratugnum. Fram eftir áttunda ára- tugnum tóku ýmsir ráðherrar sér aðstoðarmenn en það var hins veg- ar ekki algilt. Það var ekki fyrr en með ríkisstjórn Gunnars Thorodd- sen, sem tók við völdum árið 1981, að það varð regla að ráðherrar væru með aðstoðarmenn. Frá síðustu kosningum hefur að- stoðarmannahópurinn hins vegar vaxið jafnt og þétt og er nú svo kom- ið að telja má um 19 af launuðum starfsmönnum ráðuneytanna til pól- itískra aðstoðarmanna ráðherr- anna. Það er því um 1,7 aðstoðar- maður á hvern ráðherra. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að samanlögð árslaun þessa hóps sé um 45 milljónir króna. 800 MILLJÓNIR Á KJÖRTÍMABILI Samanlagt nemur styrkur ríkis- sjóðs til stjórnmálaflokkanna eftir ofantöldum leiðum um 206 milljón- um. Á einu kjörtímabili renna með þessum hætti rúmlega 800 milljónir úr ríkissjóði til flokkanna. Hér að neðan verður rakið hvað hver flokkur fær í sinn hlut. ALÞÝÐUFLOKKURINN FÆR 40,3 MILLJÓNIR Alþýðuflokkurinn fær 3 milljónir og 580 þúsund krónur í sérfræðiað- stoð á þessu ári. Auk þess fær hann um 14 milljónir og 820 þúsund krón- ur í blaða- og útgáfustyrk. Þar á ofan kaupir ríkissjóður 750 eintök af mál- gagni flokksins, Alþýðublaðinu, og borgar fyrir það 9,9 milljónir á ári. Beinn styrkur til flokksins er því 28.3 milljónir króna. Mörg undanfarin ár hefur Alþýðu- flokkurinn notað blaða- og útgáfu- styrkinn sjálfur. Hallarekstri Al- þýðublaðsins hefur vanalega verið mætt með því að minnka blaðið. Þessar rúmu 29 milljónir króna hafa því runnið nær óskertar til flokks- starfsins. Ráðherrar Alþýðuflokksins hafa hver sinn aðstoðarmann. Jón Sig- urðsson hefur Guðmund Einarsson, Jóhanna Sigurðardóttir hefur Grét- ar J. Guðmundsson og Jón Baldvin Hannibalsson hefur Birgi Dýrfjörð. Auk þess hefur Jón Baldvin ráðið Þröst Ólafsson til sérverkefna í utan- ríkisráðuneytinu. Bílstjóri Jóns Baldvins, Kristinn Haraldsson, verð- ur einnig að teljast til aðstoðar- mannahópsins þar sem hann tekur virkan þátt í starfi Alþýðuflokksins og er einn af helstu ráðgjöfum Jóns. Aðstoðarmannahópur Alþýðu- flokksins er því fimm manns. Miðað við 200 þúsund króna mánaðarlaun færþessi hópurum 12 milljónir í árs- laun. Samanlagt renna því rétt rúmar 40.3 milljónir til Alþýðuflokksins úr ríkissjóði í þessa liði. Kvennalistinn er ekki í ríkisstjórn og gefur ekki út dagblaö. Samt fær flokkurinn 13,1 milljón. FRAMSÓKNARFLOKKURINN FÆR 54,6 MILLJÓNIR Framsóknarflokkurinn fær 5 milljónir og 30 þúsund krónur í sér- fræðiaðstoð til þingflokksins. Blaða- (.g útgáfustvrkur flokksins er síöan 17 milljónir og 750 þúsund krónur. Þessu til viðbótar kaupir ríkissjóður 750 eintök af báðum flokksblöðum Sjálfstæöismenn gjalda þess að vera ekki í ríkisstjórn og fengu ekki nema 33,4 milljónir. Kvennalistinn gefur ekki út dag- blað. En samkvæmt samkomulagi við flokkinn kaupir ríkissjóður 200 eintök af málgagni fiokksins, Veru. Það blað kemur út sex sinnum á ári og kostar ársáskrift þess 2.400 krón- ur. Ríkið greiðir því 480 þúsund krónur í áskrift til blaðsins. Kvennalistinn er ekki í ríkisstjórn og hefur því enga aðstoðarmenn á launum hjá ríkissjóði. Heildarstyrk- ur flokksins er því 13.1 milljón króna. BORGARAFLOKKURINN FÆR 19,2 MILLJÓNIR Borgaraflokkurinn fær á þessu ári styrk vegna sérfræðiaðstoðar sem nemur um 2 milljónum og 155 þús- und krónum. Flokkurinn fær auk þess blaða- og útgáfustyrk að upp- Framsóknarflokkurinn fékk mest eöa 54,6 milljónir. hæð 9 milljónir 890 þúsund krónur. Samanlagt eru þetta 12 milljónir króna. Borgaraflokkurinn gefur hvorki út dagblað né annað blað sem ríkis- sjóður gæti gerst áskrifandi að. Ráðherrar flokksins hafa báðir að- stoðarmenn. Júlíus Sólnes hefur Jón Gunnarsson og Óli Þ. Guðbjartsson hefur Sigurð Jónsson. Auk þess hef- ur Júlíus ráðið Guttorm Einarsson til sérverkefna. Samanlagðar árstekjur aðstoðarmanna Borgaraflokksins eru því 7,2 milljónir. Heildarstyrkur til flokksins nem- ur því 19,2 milljónum. SAMIÐ VIÐ AUGLÝSINGA- STOFUR SEM RÁÐHERRA OGFORMAÐUR Það skal ítrekað að hér að ofan hefur einungis verið fjallað um kostnað ríkissjóðs af stjórnmála- flokkunum sem auðveldast er að benda á. PRESSAN fjallaði fyrir viku um óeðlilega útgáfu ráðuneyta Al- þýðubandalagsins rétt fyrir kosn- ingar. Blaðið áætlaði að hún kostaði skattgreiðendur um 10 milljónir. Auk þess má benda á tíðar auglýs- ingar um ríkisverðbréf að undan- förnu, bæði í blöðum og í sjónvarpi. 1 þessum auglýsingum er lögð höf- uðáhersla á að sannfæra fólk um að markmið um innlenda fjármögnun á halla ríkissjóðs hafi staðist á síð- asta ári. Það er enginn vafi á því að Alþýðubandalagsmönnum er ósárt um ef það tekst að sannfæra al- menning um það. Auglýsingaher- ferðin um ríkisverðbréf að undan- förnu kostar ríkissjóð tugi milljóna. Annað sem benda má á í þessu sambandi er að það er sama auglýs- ingastofan sem sér um gerð þessara auglýsinga, gerð bæklinga fyrir ráðuneytið og auglýsinga og útgáfu fyrir Alþýðubandalagið. Það hlýtur að teljast mjög alvarlegur hags- munaárekstur. Fjármálaráðherra semur við sömu stofuna um stórar auglýsingaherferðir, annars vegar sem ráðherra og hins vegar sem for- maður Alþýðubandalagsins. Gunnar Smári Egilsson Alþýðuf lokkurinn fékk í sinn hlut 40,3 milljónir. framsóknar, Tímanum og Degi, og greiöir fyrir það 19.8 milljónir. Beinn styrkur til framsóknar er því 42.6 milljónir króna. Framsóknarflokkurinn hefur látið hluta af útgáfu- og blaðastyrknum renna til málgagnanna tveggja en það hefur verið misjafnt hverju sinni. Ráðherrar framsóknar hafa hver sinn aðstoðarmann. Steingrímur Hermannsson er með Jón Sveins- son, Halldór Ásgrímsson hefur Her- mann Sveinbjörnsson og Guðmund- ur Bjarnason er með Finn Ingólfs- son. Auk þess er Steingrímur með Bolla Héðinsson sem efnahagsráð- gjafa og hefur nýverið ráðið Helga Pétursson til sérverkefna. Aðstoðar- menn flokksins eru því jafn margir og Alþýðuflokksins eða fimm. Árs- laun jjeirra eru nálægt 12 milljón- um. Samanlagður stuðningur ríkis- sjóðs við Framsóknarflokkinn eru því 54,6 milljónir króna. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN FÆR 33,4 MILLJÓNIR Sjálfstæðisflokkurinn fær mest allra þingflokka í sérfræðiaðstoð þar sem hann er stærstur. í ár nemur þessi styrkur 7 milljónum og 550 þúsund krónum. Sjálfstæðisflokkur- inn fær auk þess ríflegasta blaða- og útgáfustrykinn eða 25 milljónir 835 þúsund krónur. Samanlagt nema þessir styrkir 33 milljónum og 385 þúsund krónum. Ríkissjóður kaupir 750 eintök af Morgunblaðinu og greiðir fyrir það 9,9 milljónir króna. Sömu sögu er að segja af DV. Þó þessi tvö blöð hafi verið andlega skyld Sjálfstæðis- flokknum þá eru þau ekki tengd honum rekstrarlega. Það er því ekki hægt að flokka þær 19,8 milljónir sem ríkið greiðir fyrir áskrift þess- ara blaða sem styrk til Sjálfstæðis- flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki í rík- isstjórn og hefur því ekki aðstoðar- menn á launum hjá ríkissjóði. Heild- arstyrkur hans í í dag er því 33,4 milljónir króna. Alþýöubanda- lagiö fékk 40,9 milljónir. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ FÆR 40,9 MILLJÓNIR Alþýðubandalagið fær í sérfræði- styrk í ár 3 milljónir og 235 þúsund krónur. í blaða- og útgáfustyrk fær flokkurinn síðan 13 milljónir og 355 þúsund krónur. Þessu til viðbótar kaupir ríkissjóður 750 eintök af Þjóðviljanum, flokksmálgagni Al- þýðubandalagsins, og greiðir fyrir þau 9,9 milljónir króna. Samanlagt gerir þetta 26 milljónir og 490 þús- und krónur. Þjóðviljinn hefur verið rekinn með miklu tapi á hverju ári. Alþýðu- bandalagið hefur því lagt hluta af út- gáfustyrknum til blaðsins. Ráðherrar Alþýðubandalagsins hafa hver sinn aðstoðarmann. Ólaf- ur Ragnar Grímsson hefur Svanfríði Jónasdóttur, Svavar Gestsson er með Guðrúnu Ágústsdóttur og Steingrímur J. Sigfússon hefur Gunnlaug Júlíusson sér til aðstoðar. Auk þessa hefur Svavar Gerði Ósk- arsdóttur í sérverkefnum og Ólafur Ragnar hefur Má Guðmundsson sem efnahagsráðgjafa og Mörð Árnason sem upplýsingafulltrúa. Aðstoðarmenn Alþýðubandalags- ins eru því helmingi fleiri en ráð- herrarnir eða sex. Árslaun þeirra eru um 14,4 milljónir. Samanlagður styrkur til Alþýðu- bandalagsins er því um 40,9 milljón- ir. KVENNALISTINN FÆR 13,1 MILLJÓNIR Kvennalistinn fær í ár 2 milljónir og 515 þúsund krónur í sérfræðiað- stoð til þingflokksins. Auk þess fær flokkurinn 10 milljónir og 125 þús- und krónur í útgáfustyrk. Saman- lagt nemur þetta 12,6 milljónum. mji ■ ýr skemmtanakóngur er nú að rísa upp á Suðurnesjum en á skömmum tíma hefur Axel Jóns- son tekið við tveim stærstu veitinga- og skemmtistöðunum í Keflavík. Fyrir ekki löngu varð Veisla hf., sem rak skemmtistaðinn Glaumberg, gjald- þrota. Axel hefur nú tekið við rekstri staðarins fram á haust. Um leið yfirtók hann rekstur veitinga- hússins Glóðarinnar í Keflavík en fyrri rekstaraðili Glóðarinnar hafði einnig orðið gjaldþrota ... að gerist margt skondið í kosningabaráttunni. Á kosninga- fundi hjá Sjálfstæðisflokknum í kauptúni einu á Suðurlandi var eftir því tekið að flokkurinn bauð aðeins upp á molakaffi og þótti það afleit risna. Á fundi hjá Framsóknar- flokknum skömmu síðar sáu fund- armenn sér til ánægju stórt hlað- borð á staðnum með öllu tilheyr- andi og var vel veitt. Tvær grímur runnu hins vegar á menn að fundin- um loknum. Við útgöngudyrnar var rukkað fyrir veitingarnar .. . rátt fyrir hrakspár ýmissa hef- ur Örlygi Hálfdánarsyni hjá Erni og Örlygi gengið vel að selja Is- lensku alfræðibók- ina. Fyrsta sending- in, samtals 2.400 bækur, er uppseld og er bókaútgáfan nú að hefja sölu á næstu sendingu, sem telur jafn marg- ar bækur. Örlygur og hans menn eru nú bjartsýnir á að íslenska al- fræðibókin komi til með að standa undir úgáfukostnaði fyrr en ráð var fyrir gert... ær sögur ganga nú meðal þeirra nemenda, í Myndlista- og handíðaskóla Islands, sem eiga að útskrifast í vor, að þeir þurfi ekki annað en labba sér upp i Háskóla og biðja þar um stimpil á prófskírteinið, til að vera komnir með BA- gráðu . . . V w/ eitingastaðurinn Italía við Laugaveginn skipti um eigendur um síðustu mánaðamót. Nýi eigandinn er af ítölskum upp- runa, heitir Valur p Tino og hefur hann |P»%1 reyndar séð um mat- seldina á Ítalíu frá BQhK fl endur Vals, þeir Sal- vacjore 0g Fabio, eru einnig frá landinu Ítalíu og því ör- uggt að matseðillinn mun áfram byggjast upp á pitsum og pasta. Fyrri eigendur Ítalíu, hjónin Einar Oskarsson og Anna Peggý Frið- riksdóttir, halda áfram að reka ind- verska staðinn Taj Mahal við Lauga- veg, auk þess sem þau ætla að opna aftur á Hverfisgötunni veitinga- stað, þar sem áður var Banditos. Þau áttu þann stað, en höfðu hann í út- leigu. Hvað boðið verður upp á við Hverfisgötuna, við hliðina á Regn- boganum, þegar líða fer á vorið hef- ur enn ekki verið látið uppi . . .

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.