Pressan - 18.04.1991, Side 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 18.APR1L1991
s
'amkvæmt skoðanakönnunum
blasir við fylgishrun hjá Alþýðu-
bandalaginu á Austurlandi. Þetta
þykir mörgum Aust-
firðingum ekkert
skrítið, miðað við
erjurnar innanbúð-
ar í flokknum og
gjána sem hefur ver-
ið á milli þeirra
Hjörleifs Gutt-
ormssonar sem skipar fyrsta sætið
og Einars Más Sigurðssonar sem
skipar annað sætið. Norðfirðingar
sem áttu leið í kaupfélagið í vetur
rifja nú upp ummæli sem Einar Már
lét þar falla um Hjörleif, en hann
mun hafa sagt að þessi félagi hans
ætti best heima hjá Kvennalistan-
um ...
Elnn er ekki komin niðurstaða
vegna kæru á hendur fiskeldisfyrir-
tækinu Smára hf. við Þorlákshöfn.
Fyrirtækið var sem kunnugt er kært
til RLR vegna grunsemda um fals-
aða birgðastöðu en grunsemdir þar
um vöknuðu í kjölfar gjaldþrots
þess. Nú heyrast hins vegar af því
fréttir að einhverjir af eigendum fyr-
irtækisins séu í þann veginn að
kaupa sér bát í Þorlákshöfn og hygg-
ist hefja útgerð þar ...
F yrst eftir að framsóknarmenn á
Reykjanesi opnuðu kosningaskrif-
stofu sína í kópavogi fannst þeim
grunsamlega lítið hringt til þeirra.
Þvi munu þeir hafa sett sig í sam-
band við Póst og síma og óskað eftir
viðgerðarmanni hið snarasta. Innan
skamms tíma var viðgerðarmaður
mættur á staðinn og eftir að hafa yf-
irfarið allt símkerfið vel og vandlega
mun hann hafa komist að því að fá-
ar innhringingar stöfuðu af ein-
hverju öðru en bilun í tækjum . . .
C
^^unnlendingar-Táku upp stór
augu á dögunum þegar frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins voru á
ferð. Þorsteinn
Pálsson fór einn um
kjördæmið á eigin
bíl, en þeir Eggert
Haukdal og Arni
Johnsen ferðuðust
saman. Oft þarf
minna til svo menn
fari að bollaleggja og í kjölfar þessa
heyrðist að augljóslega vildi Þor-
steinn sem minnst vita af svikurum
úr formannskjörinu ...
að vakti nokkra athygli á sín-
um tíma þegar núverandi dóms-
málaráðherra Óli Þ. Guðbjartsson
setti flokksbróður
sinn Sigurð Gunn-
arsson sem sýslu-
mann í V-Skaftafells-
sýslu fyrir rúmu ári.
Efasemdir voru um
hvort Sigurður hefði
embættisgengi en
hann hafði nýlega lokið lögfræði-
prófi. Nú er talið líklegt að Oli noti
síðustu daga sína til að festa Sigurð
í embættinu og skipi hann sýslu-
mann innan skamms ...
IPrami Axels Jónssonar, hins
nýja skemmtanakóngs Keflvíkinga,
þykir nokkuð skjótur. Er ljóst að pól-
itísk tengsl hans við bæjarstjórann
Ellert Eiríksson hafa ekki spillt
fyrir en Axel er fyrsti varamaður
sjálfstæðismanna í bæjarstjórn. Er
tekið sem dæmi um þá velvild sem
Axel nýtur að ekki var haft útboð
þegar rekstraraðili að Glaumbergi
var valinn. Húsnæðið er í eigu
Framkvæmdasjóðs aldraðra og því
er það bærinn sem ráðstafar því...
v
inatta menntamálaraðherra
Islands og Frakklands, þeirra Svav-
ars Gestssonar og Jacks Lange,
ætlar að koma ís-
lendingum í París að
góðum notum.
PRESSAN veit af ein-
um sem pantaði við-
tal hjá sjálfum
franska ráðherran-
um til að biðja um
atvinnuleyfi í landinu, en eins og
þeir vita sem í hafa komist er slíkt
leyfi ekki auðfengið. Ráðherrann ku
hafa tekið málaleitan íslendingsins
vel, en hvort hann hefur haft árang-
ur erfiðis síns er ekki Ijóst ennþá .. .
N
■ ^lú nýlega er farið að bjóða
upp á sænska póstverslun hér á
landi, Grahns International Mailor-
der. Það sem vekur kannski mesta
athygli er að á pöntunarlistanum er
gefið upp símanúmer hjá böggla-
deild Pósts og síma í Ármúlanum.
Þar fást þær upplýsingar að böggla-
deildin hafi tekið að sér þessa þjón-
ustu fyrst um sinn. Það er þó gefið
upp að um tímabundið ástand sé að
ræða ...
L'ORÉAL