Pressan - 25.07.1991, Blaðsíða 4

Pressan - 25.07.1991, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. JÚLÍ1991 DRAUMA DINNER Þaö er DÓRA EINARS- DÓTTIR búningahönnuð- ur sem er gestgjafi í draumadinnernum aö þessu sinni. Gestirnir mega vera skáldsagna- persónur, látnir, lifandi, frægir, vinir, vandamenn eða jafnvel hugarburður viðkomandi. Dóra pikk- aði eftirtalda út: Helga Kristín Einars- dóttir, systir mín Vegna þess ad hún er fallegasti og besti gim- steinninn sem ég hef eignast í lífinu. Edgar Cayse Þaö er svo margt sem ég gæti lært af honum María Markan, Kristján Jóhannsson, Ragnhildur Gísladóttir og Egill Ólafsson Það gæfi mér mikið að heyra þetta stórgóða listafólk syngja saman. Guðbergur Bergsson Vegna þess að hann segði okkur til syndanna. Friödóra Friðriksdóttir, amma mín Því ég hefði svo gjarn- an viljað kynnast henni betur og leyfa henni að njóta þess að heyra vini mina syngja. Linda og tíkin Táta Linda Steinunn í Undirgöng- unum í fötum frá Soul II Soul og meö verk eftir „spreyjar- ann" Goldie í bakgrunni. ishorn hjá Lindu Steinunni, sem er 16 ára gömul og bíd- ur þess að fara í 4. bekk í MR í'vetur. Linda brá sér í samfesting frá Soul II Soul. Tíkin Táta lét fara vel um sig á medan. Tikin Táta lítur kúnnana vel- þóknunaraugum. Jafn liðtækur við bleyjuna 09 boltann Á eftir bolta kemur barn og það á svo sannarlega við í tilviki Arnars Grét- arssonar, eins okkar efni- legasta knattspyrnu- manns. Það hefur nefni- lega farið framhjá flestum að hann hefur dundað sér við ýmislegt annað en fót- bolta urfdanfarið — fyrir tveimur mánuðum eignað- ist hann nefnilega strák, sem að sjálfsögðu er Bliki eins og pabbinn. Móðirin heitir Hildur Jóhannsdótt- ir og er líka liðtæk í knatt- spyrnunni. „Það er lítill tími aflögu þessa dagana — ef maður er ekki í fótboltanum eða vinn- unni þá er maður heima að sinna fjölskyldunni," sagði Arnar, sem hélt því blákalt fram að hann væri orðinn leikinn í því að skipta um bleyju og baða. Engin ástæða til annars en trúa honum. Sem kunnugt er varð einn okkar fræknasti knattspyrnu- maður, Arnór Gudjohnsen, pabbi þegar hann var aðeins 17 ára. Þeir Arnór og Arnar léku einmitt saman í lands- leiknum gegn Tyrkjum og stóðu sig frábærlega. ,,Jú, það var að sjálfsögðu frábært að fá tækifæri til að leika með Arnóri. Það er mikið hægt að læra af honum,“ sagði Amar en bróðir hans, Sigurdur Grétarsson, leikur einnig með landsliðinu. Arnar hefur þegar vakið at- hygli ýmissa erlendra knatspyrnuliða og hefur meðal annars Lokeren í Belgíu sóst eftir honum. Þess má geta að Arnór hóf einmitt sinn feril þar. Arnar sagðist að sjálf- sögðu hafa áhuga á atvinnu- mennskunni en öll tilboð yrði að skoða vandlega — meðal annars í Ijósi breyttra fjölskylduaðstæðna. Hann stundar nám í Mennta- skólanum í Kópa- vogi á eðlis fræði braut og segist í sjálfu sér ekkert vera að sækjast eftir því að komast strax í atvinnumennsku. Nú yfir Arnar Grétarsson, einn yngsti pabbinn í íslensku knatt spyrnunni sumartímann vinnur hann á Kópavogsvellinum, þar sem hann á kvöldin dundar sér síðan við að skora mörk með spútnikkliði Breiðabliks. m Föt frá Soul II Soul, Soviet og Stussy, tíkin Táta, skreyt- ingar eftir spreyjarann Goldie og glymjandi glœný danstónlist. Þetta er þad sem blasir við viðskiptavin- um í nýju tískuversluninni Undirgöngunum, Þingholts- strœti 1. Vefjist þetta eitt- hvað fyrir mönnum eru þau Linda Steinunn Pétursdóttir afgreiðslustúlka og Agnar Agnarsson eigandi til staðar að greiða ár flœkjunni. Báðin var opnuð í jálí- byrjun og virðist hafa fengið fljágandi start, ef marka má krakka sem rœddu fataár- valið í bœnum við blaða- mann PRESSUNNAR. „Já, fötin eru svolítið speisuð, en þó plein." Við fengum að sannreyna þetta með því að líta á sýn- Um klíkur og fleira ■'FIRDINGV* og ævintýri hans í Reykjávík Albert Albert hét rogginn grobbhani. Hann var Al- bertsson að auki. Maður skyldi ætla að slíkt hefði dugað honum en það var engan veginn nóg. Hann skírði klíkuna sína í hausinn á sér. Albertsklíkan. Albert Albert gerði töluvert af því að hanga inni í Eikasjoppu með klíkuna. Mig dauðlang- aði að fá að vera með í Al- bertsklíkunni og einn dag stakk ég upp á að við Reimar reyndum að pota okkur þangað inn. Reimar blátt áfram froðu- felldi. — í klíku við! Ertu eitthvað verri? Við erum klíka félagi. Reimarsklíkan. Við eigum sjoppu. Hvernig geturðu verið svona vitlaus? Fyrirlitning á mér skein úr augum Reimars. — Gætirðu t.d. ímyndað þér að forseti ís- lands myndi nokkurn tím- ann sækja um inngöngu í klíku? Nei, vinur. Það er sko öruggt. Lengra er ekki hægt að komast en að verða for- seti og allir verða að skríða fyrir honum til að fá að vera með í hans klíku. Meira að segja fjármálaráðherrann verður að skríða til að fá að vera með í forsetaklíkunni. Reimar hugsaði sig um. — Þó ég persónulega vildi frekar vera fjármálaráð- herra því hann hefur allan aurinn. — Já, en hugsaðu þér allt sem forseti ræður, sagði ég. — Hann getur t.d. hringt í fjármálaráðherrann fok- vondur um miðja nótt og sagt: Keyptu upp hvern ein- asta miða í öllum bíóum á morgun. Eg er að hugsa um að fara og sitja á fyrsta bekk í einu ef ég nenni. Heyrirðu það? Ef ég nenni. — Já, og svo fer hann kannski alls ekki neitt. Þetta er gott, ha, ha, ha, sagði Reimar og sótti sér appelsín í kælinn og krækti af tapp- ann og drakk niður í hálfa flösku í einum teyg. — En fjármálaráðherra hefur það samt betra, sagði hann hugsi og ropaði hraustlega. — Hugsaðu þér að halda um allan aurinn. Hann er með það allt í úlpunni hjá sér vinurinn. Kannski 100—150 milljónir. — Nei, hættu nú, sagði ég. — Svona miklir aurar eru ekki til. — Hrikalega ertu vitlaus, Nasi, sagði Reimar. — Það er til miklu meira vinur. Miklu meira. Veistu hvers vegna ég umber þennan Albert, ha? Það er vegna þess að hann á pening, sagði Reimar grimmdarlega. — Ef hann væri blankur þá gæfi ég skít í hann. Skilurðu það? Reim- ar ropaöi aftur, einum stutt- um. Svo smellti hann með fingrunum ogsagði: Nasi, þú ert séní. Stórkostlegt séní. Þú veist um draum pabba að verða forseti íslands? Ef það tækist þá segði ég kallinum að gera mig að fjármálaráð- herra. Þá fæ ég allan aurinn og hver veit vinur, þá geri ég þig að einkadræver hjá mér en þá verðurðu líka að halda kjafti. Þá munu ýmsir vilja komast inn í Reimarsklíkuna vinur, ha, ha, ha. Við settum skilti í glugg- ann. Lokað milli 3—6 og fór- um að heimsækja Eika á spítalann. Reimar var með slatta af víxlum sem hann þurfti að láta kallinn kvíttera á. Eiki var hafður í súrefnis- tjaldi og það var sjón sögu ríkari að sjá Reimar sækja á honum hramminn inn í tjald til að láta hann pára á blöð- in. Reimar sagði föður sínum hvað til stæði. Eiki hafði ver- ið seinn að hressast á spítal- anum en þegar hann frétti aö sigurganga sín til Bessa- staða væri í þann veginn að hefjast hýrnaði heldur betur yfir gamla manninum. Við Reimar skruppum-niður á torg að ráðfæra okkur við Pétur Hoffmann, sem hafði reynt svipaða hluti. Pétur sagði að við þyrftum 1.500 atkvæði víðs vegar að af landinu. Svo keyptum við Reimar tvær flottar höfuð- bækur hjá Bókaverslun Ey- mundssonar til að fólk gæti lýst yfir skriflegum stuðn- ingi við framboðið og fórum hvor í sína áttina. Til stóð að hittast aftur niðri á torgi. Ég var ekkert skotinn í þessu, en það var ekki um annað að ræða en skunda af stað fyrst Reimar vildi þetta endilega. Ég tók fólk tali á götum, blóðtappinn hjá Eika og allt það, en fékk litla sam- úö. Ég var samt ekki á því að gefast upp. Það var freist- andi að aka Chrysler Imperi- al hjá Reimari og fá meira að segja borgað fyrir það. Loks fékk ég einn til að skrifa. Reimar var kominn á undan niður á torg. Hann hafði ekkert nafn fengið. Þegar ég sýndi honum að sá sem hafði skrifað hjá mér hafði sagst vera Kúkalabbason þá tók hann báðar bækurnar og grýtti þeim í ruslatunnu. Hann sagði að ekkert gerði til þótt þetta framboð færi út um þúfur. Kona hefði sagt sér að ekki væri til aukatek- inn eyrir hjá ríkissjóði, og hvaða heilvita maður held- urðu að nenni að standa í svona veseni til að fá að skulda meiri pening en tíu manns gætu talið þótt þeir stæðu ekki í öðru allt sitt líf en telja og telja frá morgni til kvölds? Ólafur Gunnarsson AJIsherjargoðinn, Diddi fiðla 09 Páll HjálnHýsson saman á þjóðlegri snældu Frá því Páll Hjálmtýsson sló í gegn í uppsetningu leik- félags MH á söngleiknum Rocky Horror og í hlutverki dragdrottninga hefur hann komið víða við, ná síðast á mjög svo þjóðlegri snœldu sem ber nafnið „Viki- vaki-Songs from the Saga Is- land". Ásamt Páli syngja á snæld- unni þau Sigrún Hjálmtýs- dóttir, systir hans, og Jóhann Sigurðarson leikari. Að auki kveður Sveinbjörn Beinteins- son allsherjargoði rímur og Diddi fiðla leikur á langspil. Stefán S. Stefánsson útsetti lögin og stjórnaði upptökum.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.