Pressan - 25.07.1991, Page 7
FIMMTUDAGUR PRMSSAM 25. JÚLÍ 1991
7
Ólafur Þ. Þórðarson alþingismaður kærði til landbúnaðarráðuneytisins
eftir að hreppurinn framseldi jörðina til Jóns Magnúsar og Hrafnhildar og
þau gerðust ábúendur þar.
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra ógiltl ákvörðun hreppsnefndarinnar,
sem þýðir að ungu hjónin verða að víkja fyrir Ólafi þingmanni.
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra ógilti forkaupsrétt
Stafholtstungnahrepps að bújörðinni Efranesi fyrir
skömmu og kom jörðinni þar með í eign Ólafs Þ.
Þórðarsonar alþingismanns. Hreppsnefndin ætlar ekki að
una þessu og undirbýr nú málsókn á hendur
ráðherranum. Engin fordæmi eru fyrir því að ráðherra
ógildi forkaupsrétt með þessum hætti.
Landbúnaðarráðuneytið lét í síðustu viku ógilda þá
ákvörðun sveitarstjórnarinnar í Stafholtstungnahreppi í
Mýrasýslu, að neyta forkaupsréttar síns til að ganga inn
í kaupsamning að jörðinni Efranesi í Stafholtstungna-
hreppi. Samninginn hafði eigandinn gert við Ólaf Þ
Þórdarson, þingmann og bónda á Vilmundarstöðum.
Sveitarstjórnin seldi jörðina aftur ungum hjónum, sem
nú eru ábúendur í Efranesi. Ólafur vildi aftur á móti ekki
sæta þessari niðurstöðu og kærði til landbúnaðarráðu-
neytisins, sem felldi forkaupsrétt sveitarstjórnarinnar úr
gildi.
Jón Höskuldsson, lögfræðingur ráðuneytisins, segist
ekki muna til þess að það hafi verið gert áður. Loka-
ákvörðun í málinu var í höndum Halldórs Blöndal land-
búnaðarráðherra.
Eigandi jarðarinnar Efraness í
Stafholtstungum var Ásclís Jóhann-
esdóttir. fvrrverandi kennari í
Revkjavík. og hafði hún í mörg ár
leigt jörðina til ábúðar. í vor auglýsti
hún hana til sölu og fékk þá meðal
annars kauptilboð frá Olafi Þ. Þórd-
arsyni. þingmanni og bónda á \'il-
mundarstöðum i Reykholtshreppi.
og hjónunum Júni Magnúsi Kuturín-
usarsyni og Hrafnhildi Björnsdóttur.
sem búsett hafa verið í Revkjavík en
hafa bæði stundað búfræðinám. As-
dís tók tilboði Ólafs. sem hljóðaði
upp á 10.250.000 krónur.
Þegar kaupsamningur hafði verið
gerður ákvað sveitarstjórn Staf-
holtstungnahrepps að neyta for-
kaupsréttar síns. sem hún hefur
samkvæmt jarðalögum. og ganga
inn í kaupsamninginn. Hreppurinn
framseldi jörðina strax til Hrafnhild-
ar og Jóns gegn sömu skilmálum og
yoru i samningnum milli Ólafs og
Ásdísar.
ÓLAFUR KÆRIR TIL
RÁÐUNEYTISINS
Hrafnhildur og Jón Magnús eru
nú ábúendur í Efranesi. en þau tóku
við búinu þegar gengið hafði verið
frá kaupunum í lok maí.
Ólafur Þórðarson sætti sig ekki
við það að sveitarstjórn Stafholts-
tungnahrepps nýtti forkaupsrétt
sinn og lagði inn kæru til landbún-
aðarráðuneytisins, þar sem hann fer
fram á að forkaupsrétturinn sé gerð-
ur ógildur. Kæran var í fimm liðum
t)g féllst ráðuneytið á fjóra þeirra:
Að sveitarstjórnin hafi ekki gætt
réttar- og lagasjónarmiða eða fariö
eftir jafnræðisreglum, að ólögmæt
sjónarmið liggi að baki ákvörðun
sveitarstjórnarinnar og hún hafi
beitt valdníðslu, að einn hrepps-
nefndarmanna hafi verið vanhæfur
og að sveitarstjórnin hafi ekki kann-
að alla málavexti og atriði sem lágu
til grundvallar ákvörðuninni um að
bjóða jörðina öðrum til kaups.
Á þessum kæruatriðum byggist
úrskurður Halldórs Blöndal land-
búnaöarráðherra, sem ógildir þá
ákvörðun sveitarstjórnarinnar að
neyta forkaupsréttar síns.
VILL TRYGGJA BÚSETU
í HREPPNUM
En hvers vegna vildi sveitarstjórn-
in neyta forkaupsréttar og koma
þannig í veg fyrir að Ólafur Þóröar-
son eignaðist jörðina? Jón Þór Jón-
asson, oddviti hreppsins, segir
ástæðuna fyrst og fremst þá aö
sveitarstjórnin vilji tryggja að jörðin
s'é setin.
..Jörðinni fylgir mjólkurfram-
leiðsluréttur og við töldum búsetu
tryggja það best að sá réttur væri
nýttur. Okkur fannst meiri líkur á að
núverandi ábúendur gerðu það en
maður sem ætlar að gera það með
aðkeyptum vinnukrafti, því reynsl-
an hefur sýnt að það hefur ekki lán-
ast að vera með mjólkurframleiðslu
nema vera í því sjálfur," sagði Jón
Þór.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR hefur Ólafur verið með
hrossabúskap á Vilmundarstööum,
en hann leigir þá jörð. Hún er án
framleiðsluréttar.
FORKAUPSRÉTTAR-
ÁKVÖRÐUN DÆMD ÓGILD
Þeir sem PRESSAN ræddi við
sögðust ekki muna eftir því að ráðu-
neytið hefði áður úrskurðað for-
kaupsréttarákvörðun sveitarfélags
ógilda og það staðfesti lögfræðingur
ráðuneytisins, Jón Höskuldsson, í
samtali við PRESSUNA.
„Það hefur áður gerst aö mál af
þessu tagi hafi verið kærð, en ekki
að felld hafi verið úr gildi forkaups-
réttarákvörðun. Að minnsta kosti
ekki svo ég muni," sagði Jón Hös-
kuldsson.
Hann taldi þó ekki óeðlilegt aö
ráöuneytið gripi til þess ráðs. „Þótt
lög geri ráð fyrir að sveitarfélög eigi
þennan forkaupsrétt, þá þarf eitt-
hvað í aðstæðum að vera þannig að
ástæða sé til þess að sveitarfélögin
grípi inn í. Kannski vantar þau betri
leiðbeiningar um það hvernig þau
eiga að fara aö i þessum málum.1'
Jón taldi það ekki næg rök að
benda á að Ólafur Þórðarson væri
þingmaður og því óhjákvæmilega
mikið fjarverandi. „Menn eru ekki
þingmenn til eilífðar og það eru ótal
dæmi þess að búskapur sé byggður
á aðkeyptum vinnukrafti," svaraði
Jón Höskuldsson þegar ummæli
oddvitans voru borin undir hann.
BREYTIR STÖÐU
SVEITARFÉLAGANNA
Eins og áður segir virðast ekki
vera fordæmi fyrir því að ráðuneyt-
ið hafi vefengt hæfni sveitarfélags til
að fjalla um forkaupsrétt sinn. „Við
teljum þennan úrskurð ráðuneytis-
ins ganga gegn því sem tíðkast hef-
ur í þessum málum og að hann eigi
eftir að breyta stöðu sveitarfélaga í
framtíöinni hvað varðar forkaups-
rétt þeirra, hvort sem er á lóðum
eða jörðum," sagði Jón Þór.
Hvað varðar þann lið kærunnar
frá Ólafi, þar sem bent er á van-
hæfni eins hreppsnefndarmanna,
þá gerði sá kauptilboð í Efranes og
var af þeim ástæðum ekki talinn fær
um að taka hlutlausa afstöðu til
málsins.
ÚRSKURÐURINN KÆRÐUR?
Sveitarstjórn Stafholtstungna-
hrepps getur kært úrskurð landbún-
aðarráðuneytisins og fer málið þá
fyrir dóm. Engin ákvörðun hefur
verið tekin ennþá um hvort það
verður gert, en sveitarstjórninni
varð kunnugt um úrskurð ráðuneyt-
isins á mánudag. Samkvæmt hon-
um er Ólafur Þórðarson nú eigandi
jarðarinnar Efraness, en Hrafnhild-
ur Björnsdóttir og Jón Magnús Kat-
arínusarson eru ábúendur. Að
minnsta kosti er staðan slík meðan
ekki liggur fyrir endanlegur dómur
i málinu, því allar líkur benda til að
sveitarstjórnin kæri þennan úrskurð
ráðherrans, sem ekki virðist eiga
sér fordæmi.
Margrét Elisabet Ólafsdóttir