Pressan - 25.07.1991, Side 15
FIN.MTUDAGUR PKESSAN 25. JÚLÍ 1991
15
Völundarhúsið
DÚTTURFYRIKTÆKISHIN-
TAKS VERDIFENGID TIL AD
LJÚKA FRAMKVÆMDUM
gjaldþrot Steintaks seldi fyrir-
tækið Völundarverki steypu-
mótin sem þarf til þess að
halda áfram byggingarfram-
kvæmdum. Nú eru allar líkur
á því að stjórnendur hins nýja
hlutafélags láti það verða sitt
fyrsta verk að semja við Völ-
undarverk, sem í raun er
dótturfyrirtæki Steintaks.
„Við getum ekki verið með
neina tilfinningasemi í þessu
máli,“ sagði íbúðareigandi í
húsinu í samtali við PRESS-
UNA, en húsbyggjendurnir
urðu fyrir miklu fjárhagstjóni
vegna gjaldþrots Steintaks.
„Við viljum að sömu menn
ljúki byggingunni og byrjuðu.
Þ.e. menn sem rata um lóðina
og vita að hverju þeir ganga.
Við höfum bara ekki efni á
því að hugsa um fortíðina í
þessu rnáli."
Þróunarfélagið
Afskrifar 70 milljónir vegna fiskeldlsins
Gunnlaugur M. Sigmundsson, framkvæmdastjóri Þróunarfé-
lagsins, situr í stjórnum 11 fyrirtækja á þess vegum.
Eitt þeirra opinberu fyrir-
tœkja sem tapad hafa veru-
legum upphcedum vegna
fiskeldisins er Þróunarfélag
íslands hf. Hefur félagid af-
skrifad um 70 milljónir kóna
vegna fódurkaupalána sem
þad veitti nokkrum fiskeldis-
stödvum, en upplýsingar um
þetta koma fram í ársreikn-
ingi fyrir 1990.
Tap Þróunarfélagsins á síð-
asta ári var 39,5 milljónir
króna. Rekstur fyrirtækisins
breyttist þó á síðasta ári í þá
veru að það hætti að veita
áhættulán eins og það hafði
gert frá upphafi. Þess í stað
miðast starfsemi þess ein-
göngu við að leggja hlutafé til
nýrra fyrirtækja. Þá hefur
eignarstaða fyrirtækisins
breyst mikið, því það hefur
orðið að leysa til sín miklar
eignir í kjölfar gjaldþrota.
Þróunarfélagið á hlutafé í
20 fyrirtækjum en eitt þeirra
varð gjaldþrota fyrir
skömmu. Það er fyrirtækið
lcelandic Crown, sem var
sölufyrirtæki starfrækt í
Hamborg.
Hjá Þróunarfélaginu vinna
fjórir starfsmenn og voru
laun og launatengd gjöld um
10 milljónir króna. Greiðslur
til fimm stjórnarmanna,
þeirra Ólafs Davídssonar,
Björgvins Vilmundarsonar,
Dagbjarts Einarssonar, Er-
lends Einarssonar og Magn-
úsar Gauta Gautasonar,
námu 2,4 milljónum eða um
40.000 krónum í mánaðar-
laun til hvers stjórnarmanns.
Starfsmenn Þróunarfélags-
ins eru iðnir við að sitja í
stjórnum hlutafélaga á þess
vegum. Að sjálfsögðu situr
Gunnlaugur M. Sigmunds-
son, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, í flestum þeirra.
Hann situr í stjórnum eftirtal-
inna fyrirtækja: Fjölnemar
hf„ GKS hf„ Hlaðbær . Colas
hf„ lcelandic Crown (sem nú
er gjaldþrota), Marel hf„
Tölvusamskipti hf. Silfurberg
hf„ íslenska eignarhaldsfé-
lagið hf„ Hagþróun hf„ ísteka
hf. og Kögun hf. í síðustu fjór-
um fyrirtækjunum er hann
einnig framkvæmdastjóri.
Aðrir starfsmenn Þróunar-
félagsins, þau Hreinn Jakobs-
son og Sigrún Edda Jónsdótt-
ir, eru einnig iðin við að sitja
í stjórnum félaga sem Þróun-
arfélagið á hlut að. í þremur
fyrirtækjum, þar sem Þróun-
arfélagið á allt hlutaféð, situr
bara starfsfólk félagsins.
Fulltrúar frá Reykjavíkur-
borg, íslandsbanka og Húsfé-
laginu Völundi vinna nú aö
stofnun nýs hlutafélags sem á
aö taka ad sér að semja um
lokafrágang á stórhýsinu á
Völundarlóðinni. Fram-
kvœmdir hafa legið niðri síð-
an Steintak hf. varð gjald-
þrota í febrúar á þessu ári.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR er áformað að
heildarhlutafé verði rúmlega
42 milljónir. Þar af mun Is-
landsbanki leggja fram 17
milljónir og
Reykjavíkurborg
9. íbúðareigendur í Völund-
arhúsinu þurfa að leggja fram
um 16 milljónir í hlutafé en
auk þess verður húsfélagið
sérstakur hluthafi. Alls var
búið að byggja, að hluta til
eða öllu leyti, 85 íbúðir en
bygging 115 íbúða var fyrir-
huguð.
Þegar Steintak fór á haus-
inn voru stofnuð tvö önnur
fyrirtæki, Völundarverk og
Ráðverk, og eru í höndum
ættingja Vignis Benedikts-
sonar, sem var aðaleigandi í
Steintaki.
Skömmu
fyrir
Sighvatur Bjorgvmsson hefur venö samfleytt i frettum vikum saman, m.a vegna breytinga á lyfjaverói og deilna um vistun ósakhæfra afbrotamanna.
„Við erum búnir að eiga mikið samstarf, sitt
hvorum megin við borðið í fjárveitinganefnd.
Mér líkaði það vel. Hann er fvlginn sér og fastur
fvrir þegar hann tekur ákvöröun. Hann er hrein-
skiptinn í samstarfi." sagði Pálmi Jónsson al-
þingismaður. „Hann var góður fléttumaður í
pólitík og hugmvndaríkur. Gat verið skemmti-
lega snöggur til orða og athafna." sagði fyrr-
verandi samherji. „Hann er hress maður og
skemmtilegur félagi." sagði Pálmi Jónsson.
„Sighvatur er fantaduglegur og nákvæmur.
Hann er með okkar snjallari ræðumönnum og
góður talsmaður jafnaðarstefnunnar." sagði
Jón Sæmundur Sigurjónsson, fv. alþingis-
maður og bekkjarbróðir Sighvats. „Hann er
vinnusamur. ákveðinn og óhræddur við að taka
ákvarðanir." sagði Sigurður Símonarson,
framkvæmdastjóri Norræna félagsins.
Sighvatur Björgvinsson
heilbrigðisráðherra
„Her aður fyrr hafði hann helstil morg jarn
í eldinum. Vegna annarra starfa varð hann
oft að bregða sér frá. Það kom niður á
vinnusemi hans,“ sagði Pálmi Jónsson. „Hann
á til að flækjast í eigin plottum, eins og
hendir inargan góðan drenginn í pólitík.
Sighvatur er hættur aö láta hjartalagið ráða
og lætur nú stjórnast af reiknistokknum.
Þaö er spurning hvort tölva gæti ekki sinnt
ráðherrastarfinu jafn vel eða betur en
hann,“ sagði fyrrverandi samherji. „Sighvatur
fer einum of fljótt í vörn ef honum finnst á
sig ráðist, meðan hann er enn með góða
stöðu,“ sagði Jón Sæmundur. „Það er ansi erf-
itt að ná í Sighvat, hann er svo upptekinn
maður,“ sagði Sigurður Símonarson.
UNDIR
ÖXINNI
Eggert
Magnússon
.formaður KSI
— Af hverju var Bo
Johansson látinn
fjúka eftir stórsigur-
inn á móti Tyrkjum?
„Hann var í fyrsta
lagi ekki látinn fjúka.
Það var samkomulag
milli okkar að við töl-
uðum saman strax eft-
ir landsleikinn við
Tyrki. Við hittumst svo
á þriðjudaginn og þar
kom fram sá vilji
beggja að samningur-
inn yrði ekki endurnýj-
aður þegar hann renn-
ur út um áramótin.
Báðiraðilar, KSI og Bo,
eru mjög sáttir við
þessa lausn."
— En af hverju
starfar Bo ekki út
samningstímann ?
„Ég hitti Ásgeir El-
íasson á þriðjudag og
lagði mikia áherslu á
að niðurstaða fengist
strax, m.a. vegna þess
að Fram stendur nú i
erfiðri toppbaráttu og
öll óvissa er slæm. Bo
er góður og skynsam-
ur maður og honum
fannst eðlilegt að nýr
þjálfari tæki við sem
fyrst:."
— Ertu óánægður
með árangurinn hjá
Bo?
„Ef árangurinn hjá
honum er skoðaður
þurfa menn ekki að
kvarta. Við höfum tap-
að með minnsta mun
fyrir sterkari þjóðum,
en yfirleitt unnið þjóðir
sem eru á svipuðum
slóðum og við. Bo er
góður og nákvæmur
þjálfari sem hefur inn-
leitt ný vinnubrögð að
sumu leyti."
— Hvers vegna er
hann þá að hætta?
„Það er talsvert
langt síðan islenskur
þjálfari var fastráðinn
með landsliðið. Það
fylgja því ýmsir erfið-
leikar að hafa erlenda
þjálfara, þeir eru m.a.
mikið i burtu frá fjöl-
skyldum sínum. Sam-
kvæmt samningnum
við Bo þurfti hann að
vera hérlendis átta
mánuði á ári, og það er
ekki auðvelt fyrir fjöl-
skyldumann. Það var
mjög erfitt fyrir Bo,
mjög erfitt."
IKSI hefur ákvedið aö endurnýja
ekki samninginn viö Bo Johans-
son, hinn sænska landsliðsþjálf-
ara sem hefur stýrt liðinu i 14
leikjum siðan imars 1990. Þá mun
Bo láta af störfum þremur mán-
uðum áður en samningurinn
rennur út. Undir stjórn Johans-
sons unnust 6 leikir en 8 töpuð-
ust.