Pressan - 25.07.1991, Page 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. JÚLÍ1991
FJOLMIÐLAR
Útgefandi:
Blað hf.
Fram k væ m d astj ó ri:
Hákon Hákonarson
Ritstjórar:
Gunnar Smári Egilsson,
Kristján Þorvaldsson.
Augiýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson.
Ritstjórn, skriístoíur og
auglýsingar: Hveríisgötu 8-10, sími
62 13 13. Faxnúmer: 62 70 19.
Eftlr lokun skiptiborös:
RJtstjóm 621391, dreifing 621395,
tæknideíld 620055.
Áskriftargjaid 550 kr. á mánuöi.
Veröí lausasölu 170 kr. eintakiö.
Ríkisstjórnin
aöstoöar
apótekara
Þaö er margt skrítið í kýrhausn-
um á ríkisapparatinu. Á sama tíma
og ríkisstjórnin gefur út hverja yf-
irfýsinguna á fætur annarri um að
hún sé hætt aö styðja viö bakið á
atvinnufyrirtækjum í vandræðum
lánar hún Pharmaco rúmar 30
milljónir í áhættulán vegna fiskeld-
is.
Pharmaco er sem kunnugt er
vellauðugt fyrirtæki í eigu apótek-
ara. Það hefur ásamt dótturfyrir-
tækjum sínum hlaðið upp auði á
lyfjasölu og -framleiðslu. A undan-
förnum misserum hefur fyrirtækið
síðan fært út kvíarnar og keypt
fjöldann allan af fyrirtækjum í öðr-
um atvinnugreinum. Nú siðast
keypti Gosan, dótturfyrirtæki
Pharmaco, stóran hlut í veitinga-
staðnum Berlín fyrir um 14 millj-
ónir.
Á sama tíma og apótekararnir
koma ár sinni betur fyrir borð hef-
ur útsöluverð lyfja til almennings
verið hækkað. Álagning apótekar-
anna er hins vegar óbreytt.
Og á meðan þessu fer fram réttir
ríkisstjórnin apótekurunum hjálp-
arhönd með því að veita þeim
rúmlega 30 milljóna króna lán á
lágum vöxtum og með ríkis-
ábyrgð.
Sjálfsagt botna fáir í til hvers það
var gert. Kemur ríkisstjórninni yf-
irhöfuð við í hvaða braski apótek-
ararnir eru? Af hverju var þeim
ekki sagt að nota í fiskeldið pen-
ingana sem þeir lögðu í veitinga-
staðinn?
Blaöastyrkir og flokkastyrkir
Samhliða því að skera nið-
ur kaup ríkisins á dagblöðum
ætti Friðrik Sophusson að
taka til endurskoðunar tvo
liði fjárlaga: Styrki til blaða-
útgáfu samkvæmt tillögum
stjórnskipaðrar nefndar og til
útgáfumála samkvæmt
ákvörðun þingflokka. Á yfir-
standandi ári fara rúmar 93
milljónir af skattpeningum
landsmanna í þessa tvo liði.
Þótt dagbiöð og tímarit fái
á endanum hluta af þessum
fjármunum er ekki rétt að
kalla þetta blaða- eða útgáfu-
styrki. Flokkunum er full-
komlega í sjálfsvald sett hvort
þeir láta eitthvað af hendi
rakna til málgagna sinna eða
APAPLÁNETAN
ENDURSÝND
„Það er dæmigert fyrir
óþolandi hugarfar
Islendinga, að
lögreglustjóraembættið í
Reykjavík skuli láta
viðgangast, að miðbærinn
breytist í apabúr á
nóttunni."
Jónas Krlstjánsson rltstjórl.
Sighvatur heppni
„Sigfwatur er heppinn áð
hafa mig en hemn veit ekki
af því.“
Lára Halla Maack réttargeðlæknlr.
Þá er hvalkjötið
betra!
„Það orðspor fer af mér hér
í Bretlandi að vera lítt
hrifinn af grænmetisfæði."
John Gummar landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra Breta.
nota styrkinn til að fjár-
magna kosningabaráttu eða
til daglegs rekstrar á flokks-
skrifstofunum. Það er því
réttnefni að kalla þessa tvo
liði styrki til stjórnmála-
flokka. Sjálfstæðisflokkurinn,
sem fær stærsta hlutann af
styrknum, lætur þannig ekk-
ert af hendi til dagblaða.
Og um leið og eðlilegt er að
umskíra þessa tvo liði er rétt
að sameina þá. Það er óskilj-
anlegur leikur að hafa þá í
tvennu lagi þar sem sama
nefndin sér um að útbýta
þeim á milli flokkanna.
Þegar þessu er lokið geta
menn síðan farið að velta fyr-
ir sér hvort yfirhöfuð eigi að
styrkja útgáfu blaða og tíma-
rita og hvort rétt sé að sá
styrkur sé tvöfalt hærri en
framlag ríkisins til Listasafns
íslands. Og ef menn vilja
blaðastyrk er eðlilegt að
hann renni til þeirra sem gefa
út blöð en ekki þeirra sem
reka Valhallir.
Og þegar því er lokið geta
menn síðan spurt hvort skatt-
greiðendur eigi að styrkja.
stjórnmálaflokka. Og ef
menn svara því játandi er
eðliiegt að kalla þá styrki
réttum nöfnum í fjárlögum.
Gunnar Smári Egilsson
„Án þessara eðlisþátta verða
hvorki til listir né lifandi sam-
félög, heldur eitthvað þver-
pólitískt á borð við þá kven-
vísindalegu skýringu á
grútnum á Hornströndum, að
hann sé hvalabrundur."
GUÐBERGUR BERGSSON RITHÖFUNDUR.
landbúnað er það að hann
hefur ekki verið aflögufær
með fé enda hafa peningar
gengið þangað úr ríkissjóði.“
Davíö Oddsson forsætisráöherra.
KURTEiSIR HUNVETNINGAR
„Það er ekki siður í
Húnaþingi að leita í farangri
fólks og gera eigur þess
upptækar.“
Jón fsberg sýslumaður.
Gúrkutíöin horfin
„Við þurfum ekki lengur að
notast við hálfgerðar
dönskuslettur um fréttalaus
tímabil. Bragðmikið íslenskt
orð er komið í staðinn:
Grútartíð.“
Bjöm Dagbjartsson
matvælafræðlngur.
að setja hattinn?
Hvar á
Stjórnarmyndunin í vor var
áfall fyrir þá marga sem von-
uðu að vaxandi samvinna
frjálslyndra félagshyggju-
manna bæri með sér breytt
valdahlutföll, skynsamlega
landstjórn vinstra megin við
miðju, og nýja skipan fylk-
inga.
En þetta er búið og gert.
Forysta krata ákvað að reyna
mexíkanska bófaflokkinn.
Verði þeim að góðu.
Þetta eru annars vandræði'
með forystumenn í stjórn-
málum. Þeir hafa bæði annað
tímaskyn og önnur hugðar-
efni en almennir áhuga-
menn, hugsa fyrst og fremst
um andartakið, og aðallega
um sjálfa sig. Þessvegna á að
líta á forystumann svipað og
góðan fótboltamann, — þarf-
ur en aldrei ómissandi.
„Don’t follow leaders," sagði
Dylan. Fylgið ekki foringjum.
Forystumenn aka seglum
eftir vindi, og leiðtogar Al-
þýðuflokksins hafa lengi ver-
ið frægir fyrir listfengi við þá
íþrótt. Hún hefur að vísu bitn-
að nokkuð á farkostinum, og
engin furða að nú horfa
flokksmenn undrandi í kring-
um sig á siglingunni.
Um daginn var einmitt
haldinn fundur um þetta í Al-
þýðuflokknum. Og þar voru
nýjungar. Sá stjórnmálagern-
ingur sem greinilega spratt
annarsvegar af ásetningi iðn-
aðarráðherra og hinsvegar af
þreytu og pirringi — sem virð-
ist eitt helsta hreyfiafl í stjórn-
málastarfi Alþýðuflokksins,
þessi gerningur hefur nú
eignast nýtt samhengi.
Samstaða jafnaðarmanna
var misskilningur, og hin nýja
djarfa veröld í stjórnarráðinu
einfaldlega upp komin til
þess að gegn ógurlegum mið-
stýringarflokkum geti sam-
einast hin heiðríku öfl: frá
Schram-fjölskyldunni til Dav-
íðs og útí Hörð í Eimskip.
Marx (— Karl Marx, þýskur
blaðamaður á 19. öld) sagði
um hugmyndafræði (nema
auðvitað sína eigin) að hún
væri fyrst og fremst afsökun
og réttlæting, sprottin af efn-
islegum aðstæðum, gerðum
hlut, í senn sjálfsefjun og
valdatæki. Hraust framfara-
fólk í Alþýðuflokknum og á
jaðri hans þarf nú að stíga of-
ur gætilega til jarðar að ekki
hríni á því þessi orð gamla
mannsins.
Vissulega er rétt að í stjórn-
málum samtímans eru að
skerpast skil milli afturhalds
og skynsemi í til dæmis at-
vinnumálum og ríkisfjármál-
um. Þau skil ganga þvert á
flokka, eru skýr í miðjum
Sjálfstæðisflokknum en líka
til í Alþýðuflokknum, og
ganga um endilangt Alþýðu-
bandalagið, og hafa þó skyn-
semismenn haft undirtökin
uppá síðkastið. Þessi pólitíska
jarðsprunga getur því illa
orðið grunnur samstarfsins
við fjölskyldurnar fjórtán.
Hinsvegar væri beinlínis
hættulegt fyrir skynsama
krata að rúissa sjónar á öðr-
um mikilvægum stjórnmála-
skilum. Tíðindi síðustu vikna
hafa þannig vakið athygli á
þætti húmanismans í stefnu
jafnaðarmanna, mannúðar-
Pólitíkusinn sem allir halda
aö sé hættur í pólitík
Það er einhvern veginn
ómögulegt að muna að Ragn-
ar Arnalds er ekki hættur í
pólitík. Hann hefur allt til
þess að bera að vera hættur.
Hann er orðinn að nokkurs
konar „grand old man“. Það
er varla hægt að gera aðrar
kröfur til hans í pólitík en að
hann birti annað slagið grein-
ar þar sem hann sussar á þá
sem eru með ólíkindalæti og
rifjar sitthvað upp úr fortíð-
inni sem vert væri að gefa
gaum. Og síðan þyrfti hann
náttúrlega að skrifa heil
ósköp um eigin afrek í gamla
daga eins og gömlum hund-
um er svo tamt.
En það skrítna er að hann
er bara ekki hættur.
Hann vaknaði til dæmis
upp með andfælum fyrir
kosningarnar í vor og hélt
langar ræður um veginn til
Siglufjarðar og höfnina á
Blönduósi. Og þá áttuðu sig
allir á því að stjórnmál á Is-
landi snúast að mestu um
eitthvert bölvað húmbúkk.
Það er nefnilega svo ein-
stefnu sem ekki er síðri
grundvöllur velferðarsamfé-
lagsins en tæknileg skynsemi
í atvinnumálum. Og önnur
mikilvæg skil sem við höfum
verið minnt á í sumar er heil-
brigð lýðræðishyggja, gegn
skrifræði og teknókrötum.
Eftirfarandi spakmæli
brosti til mín uppúr málfræði-
bók um daginn.
Það er á tungumálinu taki-
taki sem er enskt kreólmál í
Súrínam og hljóðar svo, hrá-
þýtt innan sviga:
Effí jú sei jú hedde (eftir
þú selur höfuð), te jú bæ
hattí (þá þú kaupir hatt), pe
jú pottí eng? (hvar þú setja
hann?).
Nákvæm merking er mér
enn ekki alveg ljós. En þeir í
Jafnaðarmannaflokki íslands
skilja þetta kannski betur.
kennilegt að það er hægt að
hafa gaman af því að sjá Pál
Pétursson og aðra slíka gösl-
ast áfram í kjördæmapotinu.
En þegar virðulegt leikrita-
skáld á borð við Ragnar Arn-
alds fer með textann hans
Páls verður hvort tveggja hjá-
rænulegt; leikskáldið en þó
sérstaklega textinn. Þetta er
álíka og að hlusta á Peter Sell-
ers fara með Hard Days Night
eftir John Lennon.
En hvers vegna í andskot-
anum er Ragnar þá ekki
hættur?
Sjálfsagt vegna þess að
hann er Páll Pétursson inn við
beinið. Það vorum bara við
hin sem bjuggum okkur til
mynd af þessu virðulega leik-
skáldi. En Ragnari er miklu
tamara að leika kjördæma-
potara í pólitíkinni en leik-
skáldið. 1 raun hefur hann
aldrei reynt að samhæfa
þetta tvennt. Þegar hann er
að skálda er hann í fríi frá
pólitík og þegar hann neyðist
til að snúa sér aftur að pólitík
verður hann samstundis að
sama kjördæmapotaranum
og hann var. Og þeir sem líta
yfir síðasta kjörtímabil sjá að
Ragnar var mikið að skálda
því að varla sást tangur eða
tetur af stjórnmálamannin-
um Ragnari á þessum fjórum
árum.
Og það á líka sinn þátt í því
að okkur fannst Ragnar vera
að fara með textann hans
Páls en ekki sinn eigin. Þó að
kjördæmapólitíkin sé svipuð
hjólreiðum, þannig að sá sem
einu sinni hefur lært að hjóla
tapar aldrei niður kunnátt-
unni, má samt alltaf sjá það
þegar fólk dregur fram hjólið
eftur áratuga hlé. Og þegar
maður sér hálfryðgaðan
Ragnar við hliðina á vel-
smurðum Páli finnst manni
að Ragnar sé að drattast þetta
á eftir honum.
En Ragnar var ekki að
reyna að apa eftir Páli. Hann
var að reyna að rifja upp
hvernig hann, Ragnar Arn-
alds, var meðan hann var upp
á sitt besta heima í héraði.
ÁS
o
o
5ÍCZfl AO EiM AF
mnum 06
\f ÁUA f&iHGAVA
SÉRSVBiTÍR (£ÍTA 'akAVT
AÐ H>LFDÁM«‘ PjV/ UAHt e<j SWÍ
srsr; PEMÍMGUajiAMJj p.^ig tXAHiAaT
0C &TTWCGT STÓPT MAMNv/iR.»cr Ú.R. STfifJi J