Pressan - 25.07.1991, Side 19
FIMMTUDAGUR MttÍSSAN 25. JÚLÍ 1991
19
Athugasemd
viö „smáfrétt“
„Slúður er ósannindi. Það eru
smáfréttirnar okkar ekki." Þetta
segir Gunnar Smári Egilsson, annar
ritstjóri Pressunnar, í fjölmiðlapistli
sínum í síðasta tölublaði. Stoltið og
trúarvissan leynir sér ekki. En því
miður er í sama blaði tvíprentuð
,,smáfrétt“ þar sem því er haldið
fram, að fyrirtækið Marei hf., en
framkvæmdastjóri þess er Geir A.
Gunnlaugsson, nýskipaður formað-
ur stjórnar Iðnlánasjóðs, sé einn af
stærstu skuldunautum Iðnlána-
sjóðs. Þetta er fjarstæða. Skuld Mar-
els hf. við Iðnlánasjóð er nú 4,4
milljónir króna, en heildarútlán Iðn-
lánasjóðs voru um síðustu áramót
tæpir 10 milljarðar króna. Þetta
þýðir einfaldlega að skuld Marels hf.
er um 0,04% af útlánum sjóðsins. Þá
á Iðnlánasjóður 10 milljón króna
hlutafé í Marel hf. Skuldin við Iðn-
lánasjóð skiptir heldur engum sköp-
um fyrir Marel hf. Niðurstöðutölur
efnahagsreiknings fyrirtækisins
voru um sl. áramót 170 milljónir
króna. Iðnlánasjóðsskuldin er því
um 2,6% af skuldum og eigin fé
Marels hf. Að gefa í skyn að þessi
tengsl valdi vanhæfi hjá forstjóra
Marels hf. til að gegna stjórnarfor-
mennsku í Iðnlánasjóði er fjarri öllu
lagi. Stjórn sjóðsins fjallar reyndar
ekki um einstakar lánveitingar
nema í undantekningartilfellum,
heldur fjallar hún fyrst og fremst um
meginstefnu í lánveitingum sjóðs-
ins. Eg vísa til föðurhúsanna að-
dróttunum um óeðlileg vinnubrögð
við skipun nýs stjórnarformanns
sjóðsins. Jafnframt lýsi ég þeirri ein-
lægu von minni að „smáfréttirnar"
í Pressunni hætti að vera þvílíkt
„slúður" sem ritstjórinn sjálfur kall-
ar ósannindi.
Jón Sigurðsson,
idnaðar- og viðskiptaráðherra.
Það er Ijóst af athugasemdum
Jóns Sigurðssonar að ofmælt var í
síðustu PRESSU að Marel væri einn
af stærstu skuldunautum Iðnlána-
sjóðs. Við biðjum því hlutaðeigandi
velvirðingar og látum þeim eftir að
velta fyrir sér hvort 4,4 milljóna
króna skuld Marels við Iðnlánasjóð
sé innan eða utan þeirra marka sem
gera skipun Geirs A. Gunnlaugsson-
ar sem formanns sjóðsins siðlega.
Þrátt fyrir vilja og mikla vinnu
munum við seint komast hjá því að
gera mistök á borð við þessi. I hverri
PRESSU fjöllum við um mörg mál
sem almenningur og blaðamenn
hafa ekki greiðan aðgang að en við
teljum engu að síður nauðsynlegt
að komist í almenna umræðu.
Dæmi um þetta eru viðskipti ein-
stakra fyrirtækja við opinbera sjóði,
en upplýsingum um þau er nær und-
antekningarlaust haldið leyndum.
Og því fastar sem opinberir aðilar
og forsvarsmenn fyrirtækja liggja á
upplýsingunum því hættara verður
okkur við að misstíga okkur. En það
verður hins vegar aldrei afsökun
fyrir að birta rangt mál. Því höfum
við tekið við athugasemdum og birt
leiðréttingar þegar tilefni er til. Sem
betur fer höfum við ekki þurft að
gera meira af því en aðrir fjölmiðlar
sem á annað borð sinna slíku. Blað
allra landsmanna, Morgunblaðið,
gerir til dæmis síður en svo færri
mistök en við og heldur blaðið sig
þó frekar við upplýsingar sem eru
opnar öllum og jafnvel öllum kunn-
ar.
En við erum ekki að hreykja okk-
ur af því að birta það sem satt er og
rétt. Það er sjálfsagt mál — eins og
það verður aldrei sjálfsagt eða rétt-
lætanlegt að fara með fleipur.
FJALLABÍLL Á FÍNU VERÐI
Lada Sport er ódýr 4 manna ferOabíll sem treysta
má á jafnt sumar sem vetur. Aldrifið og læsta drifið
gera bílinn mjög öruggan og stöðugan í akstri.
Hann er með 1600 cnf vél og er fáanlegur bæði
með fjögurra og fimm gíra skiptingu.
Farangursrými má stækka með því að velta fram
aftursæti. Lada Sport er fjallabíllinn í ár.
& LADA SPORT
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR HF.
Ármúla 13108 Reykiavik Símar 6812 00 & 312 36
Um leið og örlar á stærilæti er
okkur refsað, eins og öðrum sem í
smástund missa sjónar á því að allir
geta gert mistök. Það sannaðist á
fjölmiðlapistlinum, Marel og Iðn-
lánasjóði.
Ritstj.
lldORE, I UORÉA
1
Í,8,'Bira
L'OREAL
Hvemig sem á stendur
Viðerumávakt
allan sólarhrínginn
UREVFlll /
68 55 22
» t?i:- i, 'k. .. u, i> Wi »• ti iv ii' n m j