Pressan - 25.07.1991, Side 28
28
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. JÚLÍ1991
Konur hafa haldiö því fram aö
þœr þurfi aö leggja helmingi
meira á sig í starfi en karlar til aö
hljóta sömu metorö. Þá eiga þœr
ekki viö barnauppeldiö, sem þœr
sjá aö sjálfsögöu um á sama tíma
og þœr eru tveggja karla makar í
vinnunni. Og þetta dugir ekki allt-
aftil.
Fyrir þá karla sem eiga erfitt
meö aö sœtta sig viö aö einhverjar
konur séu svona miklu duglegri,
hugmyndaríkari og í alla staöi
betri starfsmenn en þeir sjálfir er
til ákveöih áöferö til aö skilja
þessa kenningu. Hán er sá aö
velta fyrir sér hvort Markús Örn
Antonsson vœri borgarstjóri í dag
ef hann vœri kona. Eöa Steingrím-
ur Hermannsson formaöur Fram-
sóknarflokksins, Hörður Sigur-
gestsson forstjóri Eimskips eöa
Jón Skaptason borgarfógetinn í
Reykjavík.
Svariö er nokkuö Ijóst.
Ef til vill, kannski, heföi
einhver þessara manna náö
þangaö sem þeir eru
staddir í dag ef þeir heföu fœöst
stúlkubörn. En þaö heföi aldrei
nokkurn tímann getaö gerst aö
þeir vœru þarna a/lir.
Aldrei.
Þótt þetta sé niðurstaðan er ekki
endilega verið að halda því fram
að ofangreindir karlmenn séu
óverðugir þeirra starfa sem þeir
sinna eða að þeir séu þarna fyrst
og fremst vegna þess að þeir eru
karlar — að þeir hafi potað sér
þetta áfram með tippinu, eins og
það mundi hljóma á götumállýsku.
Málið er að þessir karlar hefðu
sjálfsagt ekki komist svona langt
ef tippið hefði vantað. Ef þeir
hefðu haft áhuga á að reyna það
hefðu þeir að minnsta kosti þurft
Væri
• •
Markús Orn
borgarstjóri
ef hann væri
kona?
eða væri hann í fimmta sæti á
borgarstjórnarlista Sjálfstæðisflokksins,
formaður félagsmálanefndar og blaðafulltrúi
Tryggingastofnunar.
Hefði Hannibal gamli
ekki frekar veðjað á
pólitískan frama
tengdasonarins,
Bryndísar Schram, en
dóttur sinnar Jóns
Baldvins?
Væri Hörður
Sigurgestsson enn í
vinnu hjá
fjármálaráðuneytinu ef
hann væri kona?
borgarstjórnarflokki sjálfstæðis-
manna þegar hann stóð frammi
fyrir að velja á milli þeirra Árna
Sigfússonar og Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar. Katrin hefur haldið
því fram, meðal annars í viðtali
við Heimsmynd, að hún hafi gold-
ið þess að vera kona.
Ef hún væri karl hefði hún lík-
lega allt eins komið til greina sem
borgarstjóri eins og Árni eða Vil-
hjálmur og því líkast til ekki lent í
því að vera hugsanleg málamiðl-
un. Og þótt svo hefði verið er
ólíklegt að Markús Örn hefði verið
sóttur út í bæ og tekinn framyfir
hana.
Og það er enn ólíklegra að
flokkurinn hefði sótt Markús Örn
út í bæ ef hann væri kona. í fyrsta
lagi væri ótrúlegt að Markús hefði
náð að krækja í jafn virðulega
stöðu og embætti útyárpsstjóra. í
öðru lagi er ótrúlegt að hann
hefði á sínum tíma náð einhverj-
um frama innan borgarstjórnar-
flokksins. Líkast til hefði hann orð-
ið að gefa þann frama upp á bát-
inn til að geta sinnt börnunum á
meðan þau voru lítil. Ef hann
hefði komist í borgarstjórn væri
hann líklega í fimmta sæti á fram-
boðslista flokksins og formaður fé-
lagsmálaráðs. Og um það leyti
sem börnin kæmust á legg hefði
flokkurinn útvegað honum ein-
hverja huggulega vinnu í kerfinu;
til dæmis sem blaðafulltrúi Trygg-
ingastofnunar.
Og þótt ævi Markúsar sem
kvenmanns hefði getað orðið allt
önnur en þessi þá er eitt víst;
Hann hefði aldrei orðið borgar-
stjóri.
STEINGRÍMUR FENGI
KANNSKI DÚSU
EINS OG GUÐRÚN HELGA
Og heldur nokkur að framsókn-
armenn hefðu kosið Steingrím
Hermannsson yfir sig sem for-
mann flokksins ef Steingrímur
væri kona? Ef hann væri ekki karl
hefðu sjálfsagt beðið hans svipuð
örlög og Guörúnar Helgadóttur.
Þau eru bæði dálítið kjaftforir
pólitíkusar, segja margt og ekki
Hefði Jón Óttar
Ragnarsson getað fengið
500 milljón króna lán út
á blanka sjónvarpsstöð
efhann væri
kvenmaður?
að leggja miklu meira á sig.
Meinið er að konum er ekki
treyst í þessu þúsund ára karlaríki.
Það er þó ekki endilega svo að
körlum sé treyst fyrir of miklu.
Og þó.
SUMIR KARLANNA VORU OF
LATIR TIL AÐ DREKKA
I raun er þetta karlaríki afskap-
lega notalegt fyrir karlana. Og
þannig hefur það verið lengi.
Það sá John Ross Browne,
bandarískur ævintýra- og blaða-
maður, sem var hér á ferð upp úr
miðri síðustu öld. Hann lýsir
vinnuframlagi kynjanna svo í
ferðabók sinni:
„Konurnar eru þær einu íbú-
anna sem sýna einhver merki lífs,
að frátöldum flónum. Þótt þær séu
óheflaðar í framkomu, fákunnandi
og subbulegar má sjá með þeim
nokkurn vott lífsorku og dugnað-
ar, að minnsta kosti samanborið
við karlmennina. Enda þótt þær
séu ofhlaðnar heimilisverkum fara
þær samt niður í fjöru
þegar skip kemur inn
og vinna sér með
erfiðisvinnu inn
nægilegt fé til þess að
kaupa ofurlítið af
fataræflum á
börnin sín.
Karlmennirnir eru jafn-
vel of latir til að bera fiskinn upp
úr sínum eigin bátum. Þegar þeir
eru heima við hengslast þeir við
húsvegginn reykjandi og rausandi
og of oft drukknir. Sumir eru jafn-
vel of latir til þess að stunda
drykkju og gera ekkert annað en
sofa."
Eins og sjá má af þessari lýsingu
var ástandið litlu skárra fyrir rúm-
um hundrað árum. Eins og nú
komust karlar æði langt á letinni
og konur uppskáru að sama skapi
lítið. þrátt fyrir lífsorkuna og
dugnaðinn.
MARKÚS HEFÐI FENGIÐ
VINNU HJÁ TRYGGINGA-
STOFNUN ÞEGAR BÖRNIN
VÆRU KOMIN Á LEGG
En hvar væri Markús Örn An-
tonsson í dag ef hann væri kona?
Hann var tekinn framyfir Katr-
ínu Fjeldsted sem málamiðlun í