Pressan


Pressan - 03.10.1991, Qupperneq 8

Pressan - 03.10.1991, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. OKTÓBER 1991 nmiam lögmaburB HACNAST OIRULEGA ■ MDHINM rannsóknarlögreglan hefur haft kœru á hendur Guð- mundi Ola Guðmundssyni lögmanni til rannsóknar í níu mánuði. Auk þeirrar kœru hefur hún tvœr aðrar á hendur honum til rannsóknar. Engin hreyfing virðist vera á málinu. Eins hefur Lög- mannafélagið fengið kærur á hendur Guð- mundi Ola til meðferðar. / einu tilfelli var hann úr- skurðaður brotlegur en í öðru tilfelli slapp hann, þar sem hann neitaði að gera grein fyrir málinu. Lögmannafélagið sœttist á rök hins kœrða lögmanns og gaf honum grœnt Ijós á að halda áfram hinum umdeildu störfum. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur til meðferðar kærur gegn þremur lögmönnum, eins og kom fram í PRESS- UNNI fyrir réttri viku. Einn þessara lögmanna, Gud- mundur Óli Guömundsson, hefur sérstöðu miðað við hina tvo, Eddu Sigrúnu Ólafsdóttur og Guönýju Hös- kuldsdóttur. Sérstaða Guðmundar Óla er aðallega fólgin í því að hann er kærður fyrir að hafa ekki skilað inn- heimtufé til þeirra sem hann vann fyrir, en Edda Sigrún og Guðný eru sakaðar um að hafa haldið eftir slysabótum skjólstæðinga sinna. Allt eru þetta alvarlegar ásakanir. Viðmælendur PRESSUNNAR, sem hafa átt í erfiðleik- um með að fá þá peninga sem Guðmundur ÓIi hefur inn- heimt, bera honum, að vonum, illa söguna. Dæmi eru til um að Guðmundur Óli hafi tekið tíu sinnum hærri upp- hæð í kostnað viö innheimtu en höfuðstóll skuldarinnar var þegar hann hóf innheimtutilraunir. PRESSAN hefur undir höndum gögn sem sýna ötrúlega framkomu Guðmundar Óla vegna uppboðs- máls og fleira. Þeir sem telja sig svikna í því máli eru enn að leita réttar síns. Borgarfógeti hefur sagt að rannsóknarlögreglan taki ekki svona mál. Annar lögmaður tök að sér málið, þrátt fyrir að vera náinn ættingi Guðmundar Óla, og aðhafð- ist ekkert í málinu. KOSTNAÐURINN TÍU SINNUM HÆRRI Eins og áður sagði eru til dæmi um að aðili, sem fékk Guðmundi Óla innheimtu, hafi fengið reikning frá lögmanninum fyrir tíu sinnum hærri fjárhæð en innheimtukrafan var í upphafi. Það var árið 1989 sem Guðmundur Óli var beðinn að inn- heimta kröfu sem var rétt um 6.500 krónur. Skuldarinn greiddi rúmar fjögur þúsund krónur. Guðmundur Oli sendi þá eiganda kröfunnar, þ.e. viðskiptavini sínum, reikning upp á 69 þúsund krónur. Sem sagt; sá sem átti útistandandi 6.500 krónur skuldaði lögmanninum 65 þúsund krónur þrátt fyrir að skuldarinn væri búinn að borga rúmar fjögur þúsund krónur, sem runnu til Guð- mundar Óla. í þessu tilfelli var verr af stað farið en heima setið. í stað þess að tapa kröfunni, sem var 6.500 krónur, varð eigandi skuldarinnar skuldug- ur við lögmanninn upp á 65 þúsund krónur og það án þess að Guðmundi Óla hefði tekist að innheimta alla þá skuld sem honum var falið að gera. En þetta er ekki allt. TVEGGJA MILUÓNA EIGN VARÐ AÐ ÞRIGGJA MILUÓNA SKULD Fyrirtæki í Reykjavík fékk Guð- mundi Óla talsverðar fjárhæðir til innheimtu, eða um 2,1 eina milljón króna. Þrátt fyrir mikinn eftirgang tókst forráðamönnum fyrirtækisins ekki að fá uppgjör frá lögmannin- um. Það var nánast sama hvað var reynt. Kært var til Lögmannafélags- ins. Að fengnu svari félagsins var Guðmundur Óli kærður til rann- sóknarlögreglunnar. Þar hefur mál- ið verið í nærri ár, án þess að nokk- uð hafi gerst. Guðmundur Óli sendi frá sér skila- grein, en sá galli var á henni að alla sundurliðun vantaði. Niðurstöðutöl- urnar eru eitthvað á þessa leið: Teknar til innheimtu 2.100 þúsund krónur. Þar af innheimtust 900 þús- und krónur. Fyrirtækið fékk frá hon- um 25 þúsund krónur af þessum 900 þúsund krónum. — Það var ekki allt. Vegna „vinnu" Guðmundar Óla sagðist hann eiga inni hjá fyrirtæk- inu 750 þúsund krónur og það á sem sagt að vera skuld fyrirtækisins við hann. í fáum orðum lítur þetta þannig út; Guðmundur Óli átti að inn- heimta 2,1 milljón. Hann gat aldrei innheimt nema 900 þúsund krónur, eða rúm 40 prósent, en ætlar að taka 1.600 þúsund fyrir. LÖGMANNAFÉLAGIÐ SÁ EKKI ÁSTÆÐU TIL AFSKIPTA Forráðamenn fyrirtækisins gerðu athugasemdir við störf Guðmundar Óla til Lögmannafélagsins. Svar fé- lagsins olli forráðamönnunum mikl- um vonbrigðum. í svari Lögmannafélagsins kemur fram að Guðmundi Óla hafi borið að senda fyrirtækinu lokauppgjör krafnanna og sundurliðaðan reikn- ing yfir þann kostnað sem til féll. Með því að gera það ekki gerðist Guðmundur Oli brotlegur við siða- reglur Lögmannafélagsins. I lok svars Lögmannafélagsins segir að þar sem Guðmundur Óli hafi ekki gert reikning vegna kostn- aðarins geti stjórn félagsins ekki úr- skurðað um verkkostnað í einstök- um málum. Með þessu taldi stjórn Lögmannafélagsins afskiptum sín- um af málinu lokið. Þetta má skilja á þann veg að þar sem Guðmundur Óli gerir ekki reikninga sé ekkert hægt að aðhaf- ast í málinu. Hann neitar að gera grein fyrir reikningum sínum og þess vegna sleppur hann. Kærand- inn túlkar þetta á þann veg að Lög- mannafélagið úrskurði Guðmund Óla brotlegan, en þar sem hann neitar að fara að settum reglum sé ekkert við því að gera og hann geti þar með haldið áfram á þeirri braut sem hann kýs. Kæran til Lögmannafélagsins var send 16. október 1990. Svar Lög- mannafélagsins var sent 6. desem- ber 1990. Forráðamenn fyrirtækis- ins segjast vera verulega ósáttir við afskiptaleysi Lögmannafélagsins. KÆRÐUR TIL RANNSÓKNAR- LÖGREGLUNN A R Seint í janúar á þessu ári kærðu forráðamenn fyrirtækisins Guð- mund Óla til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Þar er málið enn, níu mán- uðum síðar. Auk þessarar kæru liggja tvær aðrar á hendur Guö- mundi Óla hjá rannsóknarlögregl- unni. Forráðamennirnir vilja að rann- sóknarlögeglan kanni sérstaklega vanrækslu Guðmundar Óla á að skila því fé, sem hann hefur inn- heimt fyrir fyrirtækið. Þá segjast þeir vilja dráttarvaxtareikna pen- ingana sem hann hefur haldið. Eins og áður segir hefur málið leg- ið hjá rannsóknarlögreglunni í níu mánuði. Á meðan svo er fær fyrir- tækið ekki þá peninga sem Guð- mundur Óli innheimti og er, sam- kvæmt reikningum hans, skuldugt við hann upp á 750 þúsund krónur. AFTUR TIL LÖGMANNAFÉLAGSINS Guðmundur Óli Guðmundsson innheimti, fyrir danskt fyrirtæki, nærri 1.200 þúsund krónur í júlí og september 1990. Þrátt fyrir að danskur lögmaður hafi margoft gengið á eftir greiðslum til danska fyrirtækisins skiluðu þær sér ekki. Danski lögmaðurinn vísaði málinu til siðanefndar Lögmannafélags ís- lands, sem hefur fellt úrskurð í mál- inu. Þar segir meðal annars: „Hegðun lögmannsins er mjög ámælisverð að áliti stjórnar LMFI og til þess fallin að rýra álit hans sem lögmanns og álit lögmanna- stéttarinnar í heild. Guðmundur Óli Guðmundsson hdl. hefur ekki gert viðhlítandi grein fyrir þörf á fjarvist sinni. Stjórnin telur því ekki um lög- mæt forföll að ræða." Guðmundi Óla var gert að greiða 20 þúsund krónur í sekt til styrktar- sjóðs Lögmannafélagsins og í fyrsta sinn í sögu félagsins var nýlegt ákvæði í siðareglum þess nýtt til að birta nafn í úrskurði.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.