Pressan - 03.10.1991, Síða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. OKTÓBER 1991
9
GET EKKI VARIÐ MIG
,,Ég get ekki varið mig í fjölmiðl-
um,” sagði Guðmundur Óli Guð-
mundsson lögmaður.
Hann sagði það geta bakað sér
refsiábyrgð að vera með eitthvert
blaður í fjölmiðlum. í máli hans
kom fram að honum þætti óvið-
eigandi að lögmenn tjáðu sig um
slík mál í fjölmiðlum.
Máli danska fyrirtækisins væri
lokið og hin málin sagði hann að
ættu ekki heima í refsigeiranum,
heldur hjá bæjarþingi Reykjavík-
ur, eins og önnur mál þar sem deilt
er um uppgjör.
Guðmundur Óli var margboðaður
á fundi hjá Lögmannafélaginu
vegna málsins. Hann sinnti því engu
og boðaði forföll ýmiskonar. Þrátt
fyrir úrskurð Lögmannafélagsins
hefur danska fyrirtækið ekki fengið
greitt, en styrktarsjóður Lögmanna-
félagsins hagnaðist um 20 þúsund
krónur.
ÞETTA ER EKKl HÆGT
Þeir „viðskiptamenn” Guðmund-
ar Óla Guðmundssonar, sem PRESS-
AN ræddi við, sögðust flestir vera
búnir að afskrifa það að fá pening-
ana sem þeir telja sig eiga inni hjá
honum. Einn viðmælendanna hafði
þetta að segja:
,,Það er verst að maðurinn er enn
með opna skrifstofu þar sem hann
tekur að sér mál og saklaust fólk
lætur allt sitt í hendurnar á honum.
Þó svo Lögmannafélagið hafi
ákveðið að birta nafn hans þykir
mér það ekki nóg. Félagið er ekki
saklaust. Hann hefur sloppið ótrú-
lega vel áður. Til þessa hefur félagið
tekið hans hagsmuni framyfir hags-
muni þeirra sem hann hefur svikið.
Þetta er ekki hægt og verður að
linna."
ÓTRÚLEG SAGA AF BÍL
Eldri maður var dæmdur til að
greiða skuldabréf sem var í vanskil-
um. Gamli maðurinn hafði tekið á
sig sjálfskuldarábyrgð og þar sem
greiðendur skuldabréfsins voru
ekki borgunarmenn kom það í hlut
gamla mannsins að greiða skuldina.
Um það er ekki deilt.
Skuldabréfið var til innheimtu á
lögmannsstofu Guðmundar Óla
Guðmundssonar. Dætur gamla
mannsins tóku að sér að semja við
lögmanninn og greiða honum.
Samningarnir gengu vel og dæturn-
ar hófu að greiða af bréfinu. Skulda-
bréfið var ekki einungis tryggt með
sjálfskuldarábyrgð — heldur einnig
með veði í bíl, Opel Corsa árgerð
1987.
Eftir að dæturnar höfðu gert full
skil á skuldabréfinu töldu þær, sam-
kvæmt þeim samningum sem gerð-
ir voru, að þær ættu að fá hluta pen-
inganna til baka, þar sem veð var á
bílnum. Þetta höfðu þær eftir lög-
manninum, Guömundi Óla Guð-
mundssyni, og samstarfsmanni
hans, Þorfinni Egilssyni. Svo fór að
lokum að bíllinn var seldur á upp-
boði fyrir 185 þúsund krónur. Dæt-
urnar höfðu greitt alls 690 þúsund
krónur vegna sjálfskuldarábyrgðar
föður síns. Þær sáu fram á að með
uppboðinu fengju þær jafnvel 150
þúsund krónur á móti þeim 690 þús-
undum sem þær höfðu greitt.
Þess ber að geta að Guðmundur
Óli gerði ekki skil á allri upphæð-
inni til eiganda kröfunnar, Bílvangs
hf. Eftir því sem PRESSAN kemst
næst vantar yfir 400 þúsund þar upp
á.
GUÐMUNDUR ÓLI FÉKK
SAMT PENINGANA
Þær gengu á fund fógeta eftir upp-
boðið og báðu hann að láta Guð-
mund Ola Guðmundsson ekki fá
þessa peninga. Þar sem veðið á bíln-
um hefði verið þeirra, og mikill
trúnaðarbrestur hefði orðið milli
þeirra og hans, þá einfaldlega
treystu þær honum ekki til að taka
við peningunum.
Þrátt fyrir orð dætranna afhenti
fógeti Guðmundi Óla peningana
sem fengust fyrir bílinn. Dæturnar
hafa skuldabréfið í höndunum en
Guðmundur Óli fékk peningana
sem áttu að koma á móti því sem
þær höfðu greitt vegna ábyrgðar
gamla mannsins.
Höfuðstóll skuldabréfsins var 460
þúsund krónur. Til að koma skuld-
inni í skil greiddu systurnar 690 þús-
und krónur. Allir þeir peningar
runnu til Guðmundar Óla. Hann
hélt eftir af þeirri fjárhæð yfir 400
þúsund krónum. Ekki nóg með það;
hann fékk einnig þá peninga sem
fengust fyrir bílinn á uppboðinu.
Fyrir að hafa innheimt skuldabréfið
fékk hann því alls yfir 500 þúsund
krónur.
Dætur gamla mannsins áttu mikil
samskipti við Guðmund Óla. Þær
bera honum ekki vel söguna, segja
að lítið hafi verið að marka orð hans
og svik hans hafi verið með ein-
dæmum.
LEITUÐU TIL
ANNARRA LÖGMANNA
Þegar sýnt var að Guðmundur Óli
heföi ekki skilað greiðslum, og eins
þegar hann náði andvirði bílsins til
sín, fóru systurnar á lögmannsstofu
að leita sér hjálpar. Lögmaðurinn
sem tók á móti þeim tók að sér mál-
ið. Ekkert gerðist. Síðar kom í Ijós að
þessi lögmaður er ættingi Guð-
mundar Óla. Þrátt fyrir skyldleik-
ann varaði lögmaðurinn dæturnar
ekki við, heldur tók að sér málið án
þess að aðhafast nokkuð.
Nú er málið komið til enn eins lög-
mannsins. Sá hefur haft það í
skamman tíma og ekki orðið ljóst
hvaða endi það kemur til með að fá.
Af samtölum við konurnar kemur
fram að þær hafa átt í ótrúlegum
samskiptum við Guðmund Óla. Hér
að framan var aðeins hluti sögunnar
rakinn. Meðal annars bauð Guð-
mundur Óli þeim að fá bílinn, þ.e.
eftir að einhver allt annar hafði
keypt hann á uppboðinu, ef þær
greiddu sér 70 til 80 þúsund krónur
í peningum vegna kostnaðar sem
hann sagðist hafa lagt út fyrir. Þær
höfnuðu þessu tilboði, þótti það
bæði fáránlegt og eins höfðu þær
fengið sig fullsaddar af samskiptum
sínum við Guðmund Óla Guð-
mundsson, héraðsdómslögmann í
Reykjavík.
Sigurjón Magnús Egilsson
s
l^Ptöð 2 ætlar enn að reyna að
berjast við þátt Hermanns Gunn-
arssonar, ,,Á tali”, sem notið hefur
------------ feikna vinsælda. Nú
hefur verið ákveðið
að færa viðtalsþátt
Eddu Andrésdótt-
ur yfir á þriðjudags-
kvöld og þar að auki
verður Omar Ragn-
. arsson með henni í
þættinum, sem á að heita „Óska-
stund". Þá hefur Stöð 2 gert samning
við hljómsveitina Sléttuúlfana um
að hún leiki undir í þáttunum.
Hljómsveitin, með Björgvin Hall-
dórsson í broddi fylkingar, er að
fara að gefa út aðra plötu sína . . .
N
X ^ úverandi menntamalaráð-
herra, Ólafur G. Einarsson, var
ekki búinn að vera lengi í embætti
þegar hann lýsti því
yfir að sú vinna, sem
forveri hans, Svavar
Gestsson, hefði
unnið um fram-
haldsskólana, væri
ómöguleg. Ólafur
hefur ekki enn skip-
að nefnd um endurskoðun laganna,
en heyrst hefur að SigríAur Þórð-
ardóttir, framhaldsskólakennari og
nýr þingmaður sjálfstæðismanna,
komi til með að veita nefndinni for-
stöðu .. .
P
M. eningana til að kaupa malverk-
in klippti Óli Þ. Guðbjartsson af
framkvæmdafé sýslumannsemb-
ættisins á Selfossi,
án þess að Andrés
Valdimarsson
sýslumaður vissi
nokkuð. Sýslu-
mannsembættið
vildi ekkert með
málverkin hafa og
sendi þau yfir á lögreglustöðina. Þar
hafa menn hins vegar reynst tregir
til að hengja þau upp, einfaldlega
vegna þess að þau eru öll af fjallinu
Baulu í Borgarfirði. Svíður Árnes-
ingunum að þurfa að hengja borg-
firskt fjall upp á vegg hjá sér . . .
u
A. Aörð samkeppni er á blaða-
markaðinum á ísafirði. Elsta blaðið
vestra, Vestfirska fréttablaðið, virð-
ist vera að gefa eftir í samkeppninni
við Bæjarins besta. Vestfirska hefur
fengið greiðslustöðvun til þriggja
mánaða. Fyrirtækið sem gefur út
Vestfirska, Grafíktækni, er einnig
með prentsmiðju ...
U ppsetning Borgarleikhússins á
Dúfnaveislu Halldórs Laxness, í
leikgerð sonarsonar hans, hefur
fengið vægast sagt
misjafna dóma. Þær
Súsanna Svavars-
dóttir hjá Morgun-
blaðinu og Auður
Eydal á DV hafa
gagnrýnt uppfærsl-
una harkalaga. Sér-
staklega hefur frammistaða Þor-
steins Gunnarssonar í hlutverki
pressarans verið gagnrýnd. Þetta
kemur sumum aðstandendum sýn-
ingarinnar ekki mjög á óvart, því til-
fellið er að Þorsteinn hljóp í skarðið
fyrir Gísla Halldórsson, sem varð
að sleppa hlutverkinu vegna augn-
sjúkdóms...