Pressan


Pressan - 03.10.1991, Qupperneq 10

Pressan - 03.10.1991, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR PRES3AM 3. OKTÓBER 1991 Félag eldri borgara á Suöurnesjum og Spari- sjódurinn í Keflavík stóöu sameiginlega að byggingu húss fyrir aldraöa. Byggingarfyrir- tœkiö Húsanes sat eitt aö byggingunni. Bróöir VIB BYGGINGU annars eigenda Húsa- ness á fasteignasölu, en þaö fyrirtœki haföi einkarétt á sölu íbúö- anna. Ekki var leitaö tilboöa viö bygginguna eöa kaup á innan- stokksmunum, nema í undantekningartilfell- aðir hafa fe Tilboða var við bygginguna og ein fasteignasala af þrem- ur i Keflavík hafði einkarétt á sölu íbúð- anna. Sölulaunin voru rúmar tvær miiljónir st kaup á. ekki leitað Hornbjarg. í þessu húsi eru 26 íbúðir sem aldr- um. Sparisjóösstjórinn er ánœgöur meö hvern- ig til tókst og sama er aö segja um formann Félags eldri borgara. Fjölbýlishús í Keflavík, sem byggt var á vegum Félags eldri borgara á Sudurnesjum og Sparisjódsins í Keflavík, var byggt án þess að nokkurt útboð færi fram. Samið var við fyrirtækið Húsanes um bygginguna. Þetta hefur vak- ið viðbrögð annarra verktaka í Keflavík og nágrenni. Eins hefur það vakið athygli að eitt prósent af verði hverrar íbúðar rennur til Fasteignamiðlunar Suðurnesja, en eigandi hennar og annar eigenda Húsaness eru bræð- ur, og einu gildir hvort fasteignasalan hefur komið nærri gerð samninganna eða ekki. Sonur formanns Félags eldri borgara var ráðinn eftir- litsmaður með byggingunni, en hann er í fullu starfi ann- ars staðar. Þóknun til hans var tæplega ein milljón. Eins er deilt á kaup á móttökudiski fyrir gervihnattasjónvarp, kaup á húsgögnum, gardínum og fleira, en öll þessi kaup voru gerð án þess að tilboða væri leitað. Ibúðirnar í húsinu eiga að teljast þjónustuíbúðir. Eina þjónustan i húsinu eru húsgögn og sjónvarps- tæki í sai á efstu hæð. Eigendur Húsaness eru Hulldór Ragnursson og Þoryeir Margeirs- son. Eigandi Fasteignamiðiunar Suðurnesja er Sigurdur V. Ragriars- son, en hann er bróðir Halldórs í Húsanesi. Faðir þeirra, Ragnur Jón- asson, er einn stjórnarmanna í Fé- lagi eldri borgara á Suðurnesjum. EINKARÉTTUR FASTEIGNASALA Fasteignamiðlun Suðurnesja hafði einkarétt á sölu íbúða í Horn- bjargi. Kaupendur íbúðanna voru látnir greiða eitt prósent kaupverðs til fasteignasölunnar og skipti þá engu hvort fasteignasalan kom nærri samningagerðinni eða ekki. Það er fátítt að kaupendur greiði sölulaun, það er venjulega hlutverk seljenda að gera það. Eins vakti það athygli að Fasteignamiðlun Suður- nesja fékk sinn hluta, burtséð frá hvort fasteignasalan hafði komið nærri samningum eða ekki. Þóknun til fasteignasölunnar hefur verið 2,3 milljónir króna. Þá hefur það vakið athygli að Fast- eignamiðlun Suðurnesja fékk að sitja að allri sölu í Hornbjargi. Aðrar fasteignasölur í Keflavík fengu ekki tækifæri á að bjóða í söluna. Þegar Ijóst varð að Eignamiðlunin sæti að allri sölu íbúða í Hornbjargi fékk sú fasteignasala ákveðið forskot á hin- ar hvað varðar sölu á þeim íbúðum og húsum sem kaupendur í Horn- bjargi seldu áður en þeir keyptu nýju íbúðirnar. Eigandi fasteignasölunnar er Sig- urður Ragnarsson, bróðir Haralds, sem aftur er annar eigandi Húsa- ness hf. „Það verður að gá að því að Hall- dór og Sigurður eru bræður. Það er því ekkert óeðlilegt að Sigurður selji fyrir Húsanes. í þessu tilfelli var Húsanes ekki að selja heldur Spari- sjóðurinn. Ég held að flestum hefði þótt eðlilegt og sjálfsagt ef Spari- sjóðurinn hefði gefið fleiri fyrirtækj- um kost á þessum viðskiptum," sagði athafnamaður í Keflavík. GERVIHNATTADISKLR OG GARDÍNUR Keyptur var móttökudiskur fyrir gervihnattasjónvarp, sem kostaði tæplega 800 þúsund krónur. Hann var keyptur hjá verslun í Keflavík. Sem fyrr var tilboða ekki leitað. Diskurinn þykir nokkuð dýr, sér- staklega þar sem íbúar í einbýlis- húsahverfi í Keflavík höfðu skömmu áður keypt stærri disk fyrir rétt um 350 þúsund krónur. Leitað var til- boða við þau kaup. Heimilistæki áttu lægsta tilboðið, sem var rétt um 350 þúsund krónur, eins og áður sagði. Þegar ákveðið var hvaða gardínur yrðu keyptar fyrir sameignina var ekki leitað tilboða. Einn íbúanna sagðist undrandi þar sem ekki var leitað til verslunarinnar Álnabæjar, sem er með verslanir í Keflavík og Reykjavík. Framkvæmdastjóri Álnabæjar hafði tilkynnt öllum íbú- um Hornbjargs að hann mundi veita þeim umtalsverðan afslátt. Þegar gardínur voru keyptar fyrir sam- Olafur Björnsson, formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum. Hann segist ánægður með hvernig til tókst. eignina kom upp sama staða og svo oft áður við byggingu og frágang Hornbjargs. Tilboða var ekki leitað. „Ég er mjög ánægður maður. Ég hef átt góð viðskipti við einstakl- inga í Keflavík. Þetta var ekki það stórt að það taki því að vera óánægður vegna þess. Ef einum að- ila er treyst er best að versla við hann, þetta var ekki það stór biti," sagði Magni Sigurhansson, fram- kvæmdastjóri Álnabæjar. Þjónustan sem íbúarnir fá er tak- mörkuð. Hún felst aðallega i því að húsgögn og sjónvarpstæki eru í sameigninni. Sparisjóðurinn gaf sjónvarpstækið en húsgögnin, tvö sófasett, átta borð og fjörutíu stólar, voru keypt án þess að tilboða væri leitað. KOMA HINGAÐ TIL.AÐ FAÐMA MIG „Ég trúi því ekki að einhver sé óánægður. Við höfum fengið mikið þakklæti frá íbúum hússins. Ég held að þeir hafi allir komið hingað og faðmað mig," sagði Páll Jónsson sparisjóðsstjóri. Páll sagði að svo vel hefði tekist til með byggingu Hornbjargs að til stæði að byggja annað hús. „íbúarnir vildu þetta sjálfir og þeir eru ánægðir. Það getur vel ver- ið að það séu einhverjir öfundar- púkar úti í bæ. Það sem skiptir mestu er að íbúarnir eru ánægðir." Sparisjóðurinn í Keflavík lagði til 120 milljónir vegna byggingarinnar. Páll sagði að endurgreiðslur kæmu samkvæmt sölu á íbúðum og húsum þeirra sem keyptu í Hornbjargi. Hann sagðist vera sáttastur við þessa byggingu af öllum störfum sínum fyrir Sparisjóðinn. ER MJÖG STOLTUR „Ég hef unnið mikið í félagsmál- um. Þessi bygging er það sem ég er stoltastur af af öllu þvj sem ég hef komið nálægt," sagði Ólafur Björns- son, formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum. Ólafur sagði ástæðu þess að sam- ið var við Húsanes að fyrirtækið hefði haft umráðarétt yfir lóðinni og aðrir byggingaraðilar því ekki kom- iðtil greina — ef byggja átti á þessari lóð — sem Ólafur sagði þá bestu í bænum. Varðandi þátt Fasteignamiðlunar Suðurnesja sagði Ólafur að það fyr- irtæki hefði verið með Húsanesi í málinu frá upphafi. Hann sagðist telja það góðan samning að kaup- endurnir hefðu aðeins þurft að greiða eitt prósent í þóknun fyrir kaupin. Ólafur bætti við að fast- eignasalan hefði tekið sömu þókn- un fyrir að selja þær íbúðir og hús sem kaupendurnir hefðu selt til að geta keypt í Hornbjargi. Þá sagðist hann vera mjög ánægður með sam- starfið við Sjaarisjóðinn. Að sögn Olafs var verð íbúðanna um 72 prósent af staðalverði, sem hann sagði mjög gott. EKKI LEITAÐ HINGAÐ Friörik Magnússon, fram- kvæmdastjóri Steypustöðvar Suður- nesja, sagði að ekki hefði verið leit- að til fyrirtækis síns vegna sölu á steypu til byggingarinnar. „Þeir keyptu steypuna úr Reykja- vík, eftir því sem ég best veit. Við fengum ekki kost á að bjóða í þetta. Það er reyndar ekki neitt nýtt," sagði Friðrik Magnússon. Þegar ákveðið var að ráðast í við- byggingu Fjölbrautaskóla Suður- nesja, alls 3.000 fermetra, fékk Húsanes, eitt fyrirtækja, að bjóða í bygginguna. Tilboð þeirra var 175 milljónir króna. Það vakti mikla reiði að fleiri fengu ekki að bjóða i bygginguna. Óánægjan varð slík að fleirum var gefinn kostur á tilboð- um. Það varð til þess að lægsta til- boð var 135 milljónir króna, eða 40 milljónum lægra en upphaflegt til- boð Húsaness hf. Sigurjón Magnús Egilsson

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.