Pressan - 03.10.1991, Síða 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. OKTÓBER 1991
23
heúTl ilið
Að hanna húsgögn úi vélum
Hönnuður þessa sófaborðs heitir PATRICK NAGGAR og er þekktur
franskur hönnuður. Þetta borð kallar hann „sýlinder-borðið", er.
hugmyndina að því sækir til hann til véla. Patrick þessi er arkitekt
að mennt og segir það ekki til baga að vera ekki sérmenntaður
húsgagnahönnuður, enda hafi arkitektar hannað velflest frægustu
og bestu húsgögn sem um getur.
Patrick er mjög hrifinn af öllum vélum og vélarhlutum og sækir
mikið af hugmyndum sínum til véla og hönnuða þeirra. Sérstak-
lega er hann hrifinn af vélum þeim sem voru í fyrstu gerðum
flugvéla og segir einfaldleika þeirra stórkostlegan.
Það væri kannski athugandi fyrir skapandi og hugmyndaríkt fólk
að fara á bílapartasölur og skoða hvort ekki megi finna þar eitt-
hvað sem breyta má í nýtískuhúsgögn með litlum tilkostnaði.
AjjSÚdJz áJzteýtiliAÍ
á (jÁmiLuvi wumuun
Hér gefur að líta i
gamalt lítið tré-
borð, með einni
skúffu. Borðplat-
an og skúffan
eru handmálað-
ar í ýmsum lit-
um. Þetta borð
málaði kona að
nafni MAXIME
DE LA FALAISE,
en hún hefur
öðlast mikla
frægð fyrir
skreytingar sínar
á gömlum hús-
gögnum. Maxime viðar að sér
húsgögnum á uppboðum eða
annars staðar þar sem gamalla
hluta er von. Hún handmálar síð-
an húsgögnin, hugmyndir sínar
að mynstrum sækir hún til frum-
stæðra þjóðflokka í Afríku. Stórir
og voldugir gamlir skápar breyta
algjörlega um svip þegar Max-
ime hefur farið höndum um þá
og afríska skreytilistin kemur
mjög vel út. Gömul og þreytt
húsgögn fá nýtt, skemmtilegt og
spennandi yfirbragð og eflaust
getur laghent fólk nýtt sér þessa
hugmynd þannig að eftir yrði
tekið.
fm
(^iTrrr-yj,
** ^ltlí
EÍNkAþjÓNN fyRÍR lÍTÍð
Hér er hann kominn, yfirþjónn-
inn James. Loks geta allir þeir
sem áhuga hafa fengið sinn
einkaþjón með litlum tilkostnaði.
Sá sem þetta hannaði er breskur
og heitir KEITH OP OWEN og er
víst ærið þekktur hönnuður.
Hugmyndin sjálf er einföld og
ekki að efa að snjallir tóm-
stundasmiðir geta nýtt sér þessa
hugmynd að skemmtilegu, fal-
legu og jafnframt hagnýtu borði.
Þá er bara að draga fram hobbí-
settið og fara út í skúr og smíða
sér þjón.
Efni í góðar hugmyndir
cro “ö1
STEYPUSTOÐIN
hí
SÆVAR HOFÐA 4