Pressan - 03.10.1991, Side 28
28
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. OKTÓBER 1991
* er með
ólíkindum
— Sækjandinn í Avöxt-
unarmálinu hefur meöal
annars sai>t að Ármunn
Reynisson hlyti að hafa
vitaö hvaö hann var aö
gera, enda lært í Londnn
School of Economics eins
og Jóhunnes Nordul.
Fleiri hafa iært í þessum
virta skóla. Viö nefnum
örfá nöfn: Jón Sigurdssoit
viöskiptaráöherra,
Tryujivi Púlsson hanka-
stjóri, Kinur Reiiedihlsson
sendiherra, Olufur Isleifs-
son. fyrrum efnahags-
ráðunautur ríkisstjórnar.
Sólrún Jensdótlir, fyrrum
aðstoöarmaöur ráöherra,
og (judniundur Mufínús-
shii. sagnfræöingur og
kosningastjóri. . .
— Sjálfstæöismenn hafa
gagnrýnt sjóöasukkiö í
Atvinnutryggingasjóöi.
Mikilsmetandi sjálfstæöis-
menn hafa hins vegar
ekki hikaö viö aö sækja
um lán hjá sjóönum, eins
og dæmin sanna: Kinur
Oddur Kristjúnsson skuld-
ar persónulega 550 þús-
und og fyrirtæki hans,
Hjálmur, 71 milljón. Kinur
Kr. (iudfinnsson og
frændur á Bolungarvík
skulda um 25(1 milljónir.
Kristiiin Pélursson þing-
maöur i Útveri á Bakka-
firöi skuldar 12 milljónir
og Skerseyri í Hafnarfiröi,
þar sem hann er stjórnar-
maöur, skuldar 41 millj-
ón. ()g svo framvegis. . .
— Knn nefnum viö
dæmi af skrítnum vensl-
um: Kurl Sleinur (ludnu-
soii. þingmaöur og verka
lýösfrömuöur, er mágur
Illfurs Porniódssonar.
erkiallahalla og frinuir-
araskelfis.. .
SVO ER AÐ
HANNA SJÓÐA-
SUKKSHERMI
Eiltlwerl allru merkileg-
asta visinduverkefniö sem
Háskóli Islands hefur púkkaó
undir er hönnun Snjólfs Ól-
afssonar og Þorkels Helga-
sonar á svokölludum álgerd-
urhermi. Um er að rueðu for-
lála tölvuforrit sem mun veru
tilbúið til nolkunar.
Tölvuforrit þetta líkir eftir
útgerö togara. Notanda lík-
ansins er ætlað að taka
ákvarðanir sem eru sem lík-
astar ákvörðunum togara-
skipstjóra. Dæmi um slíkar
ákvarðanir eru hvar eigi að
toga, bæði staður og stefna,
hraði skips, lengd togvíra og
hvenær beri að hífa.
En á þessum verstu tímum
kvótaskertra þorskígilda
veröur að ganga lengra. Við
leggjum því til að Snjólfur og
Þorkell hanni forrit sem gæti
kallast Sjóðasukkshermir.
Forrit þetta mundi líkja eftir
ákvörðunum útgeröar- og
fiskvinnslumanna á borð við:
Hvenær skal sækja um lán til
Fiskveiðasjóðs eða Byggða-
stofnunar? Á það að vera lán
til „fjárhagslegrar endur-
skipulagningar" eða ,,til
hlutafjárkaupa"? Hvenær er
rétt að sækja um lán til
„skuldbreytingar viö
Byggðastofnun"? Hversu
margar eiga milljónirnar að
vera? Hversu miklar likur eru
á þvi að lánið verði endan-
lega afskrifað? Og áfram
mætti telja.
Þá væri hægt að hanna for-
ritið þannig aö það sæi um
sjóðasukkið alfarið. Sendi t.d.
sjóðstjórnum umsóknir og
ítrekunarbréf, sendi þing-
mönnum og ráðherrum
bænaskjöl, sæi um nauðsyn-
legar frestunaraðgerðir
gagnvart sýslumönnum og
fógetum og þannig mætti
endalaust telja.
AKADEMÍA WERNERS
RASMUSSONAR
Lúffi Clausen kaupsýslu-
tnaður er búinn að stofna
..Akademiu Café Óperu" og
setja í hana valinkunna
sæmdarmenn úr forstjóra-
stéttinni. Öllum að óvörum
komsl Werner Rasmusson
lyfsali og athafnamaður
hvorki i Akademíuna né var
hann heiðraður í fyrsta vali
hennar á mönnum sem skar-
að hafa fram úr.
Akademían hans Lúffa
valdi í síðustu viku þá Orra
Vigfússon „laxaspekúlant",
Paul Richurdson, ferðaþjón-
ustumann bænda, og Svein
Runólfsson landgræðslu-
stjóra. Ekki Werner.
Úr þessu er ekkert annað
fyrir Werner að gera en
stofna „Akademíu Café Berl-
ín". Lúffi i Óperu er með Val
Valsson i íslandsbanka og
Werner í Berlín hlyti því aö
velja Sverri Hermannsson í
Landsbanka. Lúffi er með
Friörik Pálsson í SH og Wern-
er tilnefnir Magnús Gunnars-
sori í SÍF. Lúffi er með Jón Ás-
bergsson í Hagkaup og Wern-
er tilnefnir Jóhannes Jónsson
í Bónus. Lúffi er með Ingi-
mund Sigfússon í Heklu og
Werner velur sér þá Ragnar
Bjarnason söngvara í Fi-
at-umboðinu. Lúffi er með
Helga Jóhannsson í Sam-
vinnuferðum-Landsýn og
Werner lokkar þá til sín
Guðna Þórðarson „í Sunnu".
Lúffi er með Lýð A. Friðjóns-
son í Kók og að sjálfsögðu fær
Werner Björgólf Guðmunds-
son í Pepsi-umboðinu Gosan.
Lúffi hefur Magnús Oddsson í
ferðamálaráði, en við bend-
um Werner á Pétur Einarsson
flugmálastjóra. Lúffi krækti
sér í Baldvin Jónsson á Stöð 2
og þá nær Werner í Heimi
Steinsson, verðandi útvarps-
stjóra. Lúffi fékk Hjördísi
Gissurardóttur í Benetton og
Werner fær Önnu Ringsted í
Fríðu frænku. Loks valdi Lúffi
sjálfan sig óg Werner gerir
slíkt hið sama.
Guðrún Ágústsdóttir
komin í templaraham
A fimdi Félagsmúlaráðs
Reykjuvíkurborgar voru
fyrir skömmu teknar fyrir
umsóknir frá (> veitinga-
stöðum um vínveitinga-
leyfi. A fundinum gerðist
Guðrún Ágústsdóttir (sem
eins og ullir vita er maki
Svavars Gestssonar? Iier-
ská.
Guðrún greiddi þannig
atkvæði gegn umsókn frá
„Fimmunni" (Veitinga-
staönum Hafnarstræti 5),
sem ekki dugði þó til því
fjórir voru meömæltir.
Guðrún greiddi atkvæöi
gegn umsókn frá veitinga-
staðnum N-1 bar viö Klapp-
arstíg, en tapaöi aftur 1:4.
Hún greiddi líka atkvæöi
gegn umsókn frá „Hressó",
en tapaöi 1:2 (Björn Björns-
son og E/in G. Ólafsdóttir
sátu hjá). Umsóknir Ömmu
Lú og Hróa hattar runnu i
gegn, en afgreiöslu um-
sóknar frá Glaumbar var
frestað.
KYNLÍF
Sæðiskláði og óspilltir sveinar
Áöur en ég svara bréfinu
frá „Skottu" langar mig að
ítreka enn og aftur að ég
svara eingöngu bréfum þar
sem bréfritari skrifar fullt
nafn, heimilisfang, síma og
kennitölu. Hér hjá mér
liggja nokkur bréf sem ég
get ekki svarað því engar
upplýsingar koma fram um
hver skrifar. Sé þess óskaö
er aö sjálfsögöu hægt að
viðhafa nafnleynd þegar
bréfum lesenda er svarað.
„Kæra Jóna, ég er
sautján ára stelpa og hef
stundað kynlíf með
sama stráknum frá 14
ára aldri. Ekki gapa,
þetta er algengara en
fólk heldur. Nú er ég
hætt með þessum strák.
Við gerum það samt enn-
þá stundum þegar við
hittumst því okkur líður
best í rúminu saman.
Það sem mig langar að fá
svar við er það að síðan
ég byrjaði á P-pillunni
fyrir nokkrum mánuð-
um og hætti að nota
smokkinn hef ég alltaf
fengið hrikalegan kláða
og sviða þar sem sæðis-
^fc
#
iSfete
JONA
INGIBJORG
JONSDOTTIR
vökvinn lekur út úr mér.
Ætli ég sé með ofnæmi
fyrir sæðinu? Þetta er
rosalega óþægilegt
svona rétt eftir að við
höfum fengið það og mig
langar til að knúsast í ró-
legheitum því ég fer ekki
að klóra mér í klofinu
eins og bjáni. Þetta líður
fljótlega hjá en kemur
samt alltaf á versta tíma,
stundum meðan hann er
ennþá inni, ef hann fer
ekki út strax eftir full-
næginguna. Eg hef ekki
sofið hjá mörgum strák-
um og þeir eru allir frek-
ar ungir og óspilltir, ætli
þeir séu ekki svona fimm
talsins, og engum hef ég
gert það með oftar en
tvisvar (nema gamla
kærastanum) þannig að
ég hef ekki enn áhyggjur
af sjúkdómum. Skotta.“
Elsku besta Skotta. Bréfið
þitt var svo langt að ég
þurfti aö skera það niður
um helming. Hafðu ekki
áhyggjur, ég fékk ekki fyrir
hjartað þegar ég las að þú
hefðir stundað kynlíf síðan
þú varst fjórtán ára. í könn-
un sem gerð var meðal
unglinga árið 1978 kom í
Ijós að um fjórðungur fjór-
tán ára unglinga í Reykja-
vík hafði einhvern tímann
haft samfarir. Ætli sú tala
hafi mikið breyst síðan þá?
Helsta ráðið sem ég get
gefið þér er að skoða við-
horf þitt nánar. Þú segir að
kláðinn líði hjá, hann komi
á versta tíma og þú getir
ekki farið að klóra þér eins
og „bjáni". Hvers vegna
máttu það ekki? Ég sé ekk-
ert bjánalegra við það að
klóra sér á kynfærunum en
til dæmis að klóra sér á
bakinu vegna óþæginda.
Hver er ástæðan fyrir sæð-
iskláðanum? Um leið og
sæðið kemst í snertingu viö
leggangaslímið verður
ákveðið efnaferli sem mið-
ar meðal annars að því að
gera sæðinu léttara fyrir að
synda í áttina að leghálsin-
um til fundar við eggið svo
frjóvgun geti átt sér stað.
Einnig þykknar sæðið til aö
það leki síður út úr leg-
göngunum strax einni mín-
útu eftir sáðlát (sæðið verð-
ur svo aftur vökvakennd-
ara eftir um það bil tuttugu
mínútur svo sæðisfrumurn-
ar eigi auðveldara með að
ferðast að leghálsinum).
Kannski valda þessar efna-
breytingar þér smáóþæg-
indum. Blessuð láttu það
eftir þér að klóra þér eða
biddu elskhugann að vera
svo vænan að draga liminn
út. Sambandið er ekki upp
á marga fiska ef þú ert
hrædd við að virka kjána-
leg í augum hans þótt þú
finnir fyrir óþægindum í
skautinu eftir sáðlátið. Þú
verður að hugsa um sjálfa
þig og þegar þú kynnist
stráknum betur áttu auð-
veldara með að tala um
þetta við hann, því eins og
þú segir sjálf í bréfinu finnst
þér erfiðara að tala við
strák sem þú ert rétt að
byrja að kynnast.
Ef ofangreint ráð dugar
. .. síðan ég
byrjaði á P-
pillunni fyrir
nokkrum mán-
uðum og hætti að
nota smokkinn
hef ég alltaf
fengið hrikalegan
kláða og sviða
þar sem sæðis-
vökvinn lekur út
úr mér.
ekki geturðu alltaf notað
smokkinn, sem er um leið
prýðisgóð kynsjúkdóma-
vörn. Þú segir að strákarnir
sem þú hefur sofið hjá síð-
an þú hættir með kærast-
anum séu ungir og óspilltir
sveinar, þú hafir sofið hjá
þeim sjaldan og þess vegna
þurfirðu ekki að hafa
áhyggjur af kynsjúkdóm-
um. Eg er ósammála þér —
bara það eitt að gera það
án smokksins með ein-
hverjum sem maður er rétt
að byrja að kynnast er nóg
ástæða til að hafa áhyggjur
af kynsjúkdómum. (Svo sef-
ur þú hjá gamla kærastan-
um öðru hvoru — hefur
hann líka sofið hjá öðrum í
millitíðinni?) Það er hægt
að vera smitaður af kyn-
sjúkdómi án þess að hafa
nokkur einkenni. Eins og
þú lýsir kláðanum er lík-
lega ekki um kynsjúkdóm
að ræða. Viljirðu hins veg-
ar fá fullvissu þína er ekk-
ert annað hægt að gera en
arka upp í Þverholt 18 og fá
ókeypis tíma hjá göngu-
deild húð- og kynsjúk-
dóma. Lifðu heil og hafðu
þakkir fyrir greinargott
bréf.
Kær kveðja,
Jóna Ingibjörg.
Spyrjió Jónu um kynlífið. Utanáskrift: Kynlíf c/o PfíESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík