Pressan - 03.10.1991, Side 36
36
FIMMTUDAGUR PRESSAN 3. OKTÓBER 1991
Um vandrϚagang
þýöenda viö aö koma
fjölskrúöugri flóru er-
lendra fúkyröa yfir á
hiö óspjallaöa mál, ís-
lenskuna.
DÓNASKAPURINN GERÐUR PRENTHÆFUR
Á HINA TEPRULEGU TUNGU
Huud þýdir enska ordii)
..fuck'' í raun og veru? týdir
þad bévílans? Edu þá ensku
ordid ,,gay“? Þýdir þad unclir
einhverjum kringumstædum
úlfur, líkl og einlwer sjón-
varpsþýöandi ufgreiddi þai)
fyrir nokkrum árum?
Þó aó sama orðið i>eti í
„Ég þýddi einu sinni „Jesus
Christ" sem „fjárinn", segir
Guðni Kolbeinsson og fékk
hann bágt fyrir.
mörgum tilfellum haft ólíka
skírskotun leikur sjaldnast á
því nokkur vafi hvaða merk-
ingar er verið að höfða til.
Stundum eru orð hreinlega
merkingarleysan sjálf. Smið-
ur sem lemur sig á þumal-
puttann og horfir örvinglað-
ur til himins og endurtekur
orðið „fuck" í þrígang er ekki
að undirbúa ástaleik með
heilagri þrenningu, eða
hvað?
Sá vandi sem blasir við þýð-
endum bandarískra og
breskra sjónvarps- og kvik-
mynda er oft á tiðum sá að
við íslendingar eigum okkur
fremur teprulegt ritmál í sam-
anburði við til dæmis Banda-
ríkjamenn, en í smiðju þeirra
sækjum við meirihluta sjón-
varpsefnis og kvikmynda.
ÍSLENSK
DÓNAMÁLNEFND
Kanarnir eiga þvílik
ógrynni af dónaskap í mál-
forðabúri sínu að ef ætti að
innprenta máltilfinningu í
haus þeirra dónakalla og
-kellinga sem sækja innblást-
ur sinn vestur um haf þyrfti
að starfrækja sérstaka dóna-
málnefnd. ()g, það sem meira
er, sú nefnd yrði að vera mun
skilvirkari en málnefndin
sem nú situr.
Nú er búið að tiltaka það
upp á dag í Bretlandi hvenær
og hvaða maður það var sem
sagði fyrst „fuck" í breska
sjónvarpinu. Slík atriði verða
líklega snar þáttur í menning-
arsögu hverrar þjóðar.
SLANGURORÐABÓKIN
Fyrir nokkrum árum kom
út bók sem bar titilinn Slang-
urorðabókin og leituðust höf-
undar hennar við að koma
þeim íslenskum orðum á bók
sem ekki höfðu komist á blað
í orðabókum, enda voru þau
flest hver tiltölulega ný af nál-
inni, og þá ekki síst brúkuð
utangarðs. Einn höfundur
bókarinnar var Mörður Árna-
son málfræðingur.
„Upphafið að Slanguroröa-
bókinni var það að við vorum
nokkrir félagar að vinna við
Orðabók Háskólans og rák-
um okkur á að mörg orð, sem
við höfðum heyrt og fannst
skemmtileg og athyglisverð,
höfðu hvorki verið rannsök-
uð né komist á blað í orða-
bókum," segir Mörður.
FELUORÐ HAFA
ALLTAF VERIÐ TIL
„Það verður að segjast til
skýringar að slangur er eitt
en slettur annað, en mönnum
hættir til að setja þessi fyrir-
bæri undir sama hatt," segir
Mörður.
„Slettur eru almennt fyrir-
bæri og geta átt við öll svið
tungumálsins og eru lán úr
erlendum tungumálum sem
ekki hafa verið viðurkennd.
Slangur er hinsvegar óhefð-
bundið orðfæri, sem tengist
oft ýmsum hópum eða at-
vinnugreinum, og er auk
þess til um marga þessa við-
kvæmari þætti mannlífsins,
svo sem heiti yfir kynlíf,
skemmtanir og svo framveg-
is. Slík feluorð hafa alltaf ver-
ið til."
LÍKINDI MILLI
BLÓTS OG KLÁMS
„Bölv og ragn eru síðan
einn þátturinn enn. Það eru
aðallega guðlast og nöfn á
hinum vonda, en það er til-
tölulega þröngt svið," segir
Mörður.
„Það eru ákveðin tengsl og
líkindi á milli þess að blóta og
þess að klæmast, en á íslandi
hefur þetta aldrei gróið sam-
ÚR ÍSLENSKRI
FÚKYRÐAFLÓRU
Djöfulsins
Fjárinn
Andskotinn
Bévítans
Ansans
Hurðalaust
helvíti
an, eins og í mörgum kaþ-
ólskum tungumálum.
í nýrri útgáfu Orðabókar
Menningarsjóðs er töluvert af
slangri tekið með og það var
ekki síst fyrir tilstuðlan Slang-
urorðabókarinnar. Ekki má
síðan gleyma Samheitabók-
inni, en þar eru meðal annars
ýmis samheiti yfir erlent
klám, og er sú bók kjörin fyr-
ir þýðendur sem glíma við
slíkan texta.
Maður verður auðvitað var
við vissan vandræðagang hjá
þýðendum í þessum efnum.
Það á einkum við um slangur
og grín, en þau orð og orða-
sambönd er einna erfiðast að
þýða og reyna mest á þýð-
andann. Enda á það við um
slangur að það getur bæði
fest sig í sessi í tungumálinu
eða úrelst á nokkrum árum,"
sagði Mörður Árnason.
JESÚS KRISTUR
OG FJÁRINN
PRESSAN spurði nokkra
þýðendur hvort þeir hefðu
ratað í vandræði tengd þessu
efni við þýðingar á banda-
ÚR AMERÍSKRI
FÚKYRÐAFLÓRU
Dickbrain
You cocksucking
son of a bitch
Fucking asshole
Shithead
Motherfucker
Fuckface
rísku efni. Fyrstur fyrir svör-
um varð Guðni Kolbeinsson:
„Einhvern tímann þýddi ég
„Jesus Christ" sem „fjárinn",
en það var notað sem blóts-
yrði af mælandanum.
Skömmu eftir það hringdi til
mín reiður maður og fannst
illa vegið að guðdóminum,"
sagði Guðni.
En nú virðist broddurinn í
mestu hnjóðsyrðahrinunum
ekki skila sér í íslensku þýð-
ingunni?
„Það vill verða og það hef-
ur og verið stefnan hjá Ríkis-
sjónvarpinu að draga úr
ruddaskapnum. Það hefur
auðvitað vankanta, því það
segir sig sjálft að ef einhver
persóna i mynd er gróf ætti
það að skila sér í textanum."
FÁBREYTILEG
BLÓTSYRÐAFLÓRA
„Það er einnig auðvelt að
rata í ógöngur með bandarísk
blótsyrði, því að þau hafa oft
og tíðum kynferðislega skír-
skotun í íslenskri þýðingu og
flokkast strangt til tekið undir
klám, en þessari skírskotun
hafa þau glatað i enskri tungu
og eru notuð í hvaða sam-
hengi sem er,“ sagði Guðni.
„Annars verður að spila
þetta mest af fingum fram, en
þegar yfir heildina er litið má
segja að íslendingar eigi sér
fremur fábreytilega blóts-
yrðaflóru. Þetta eru ekki
nema nokkur nöfn sem ná yf-
ir höfðingjann í neðri byggð
og vistarveru hans," sagði
Guðni Kolbeinsson.
RITMÁL OG TALMÁL
TVENNT ÓLÍKT
„Það er fulit af þessum orð-
um merkingarlausar upp-
hrópanir eins og til dæmis
„fuck you“. Þeim hortittum
er hreinlega hægt að sleppa,"
sagði Gunnar Þorsteinsson
þýðandi.
„En stefnan er sú að reyna
að milda öll klúryrði og blóts-
yrði," bætti hann við.
„Á íslandi hefur þetta aldrei
gróið saman, eins og í mörg-
um kaþólskum tungumálum,"
segir Mörður Árnason um
tengslin á milli bölvs og
kláms.
Það er Ijóst að þrátt fyrir að
íslenskt mál sæki smám sam-
an í sig veðrið hvað varðar
klám og blót munu skjátexta-
lesendur varla eiga von á að
fá munnsöfnuð söguhetjanna
íslenskaðan inn í stofu. Það er
staðreynd í þessu sambandi
að talmál og ritmál eru
tvennt ólíkt og það, sem í töl-
uðu máli er harla saklaust,
getur orðið argasta klám á
prenti.
Þóra Kristin Ásgeirsdóttir