Pressan - 03.10.1991, Side 42

Pressan - 03.10.1991, Side 42
Leifur kom fram á miðilsfundi hjá danska miðlinum Paulinu Finsen LEIFUR HEPPNI KEMUR FRAM Á MIBILSFUNDI OG SEGIST VERA DANSKUR — vissar efasemdir þar sem miðillinn var danskur, — seg ir Knut Kloster, norski skipa- kóngurinn Mer finnst eg finna lykt af mutum, — segir Sturla Böðvarsson Jón Baldvin Hannibalsson ÍSLENDINGAR BJÓÐAST TIL AÐ HÆTTA VIÐ AÐ TAKA NÝJU FALLBTSSURNAR í GAGNIÐ — munum sætta okkur við gömlu byssurnar ef það leiðir til friðar, — segir Gunnar Bergsveinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar FJÁRVEITINGA- NEFND BODIÐ AÐ LEGGJAST INN Á ST. JÓSFSSPÍTALA — líst vel á hugmyndina og sérstaklega hjúkkurnar, — segir Árni Johnsen Jón Baldvin tilkynnti einhliða sam- drátt vígbúnaðar i ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR Landbúnaöar- ráöuneytiö Kvartar við dönsk stjórnvöld undan danska náttnrugripa- safninu — íslertskar kartöflur fengu ekki inni í grœn- metisdeildinni Koupmonnahöfn, 2. október Danska utanríkisráðu- neytinu hefur borist bréf frá íslenska landbúnadar- ráðuneytinu þar sem kvartað er yfir meðferð Konunglega danska nátt- úrugripasafnsins á ís- lenskum kartöflum. Þær fengust ekki flokkaðar sem matjurtir og ekki einu sinni sem grænmeti, held- ur voru þær settar í sýn- ingarskápa með ýmsum frumstæðum sveppa- gróðri og bandvefsflétt- um. ,,Mér er alveg sama hvað hver segir. Það væri l)rot á öll- um vísindalegum kröfum safnsins að setja þetta í sýn- ingarskápa með grænmeti. Knut Kirkegaard, forstöðu- maður Konunglega danska náttúrugripasafnsins, vill ekki flokka íslenskar kartöflur sem grænmeti. Með því værum við að Ijúga að gestum okkar," sagði Knud Kirkegaard, forstöðumaður safnsins, í samtali við (lULU PRKSSUNA. ,,Við vitum ekki alveg hvað við eigum að gera," sagði Bent Rasmussen, deildar- stjöri í danska utanrikisráðu- neytinu, í samtali við (iULU PRKSSUNA. ,,Við sendum ís- lendingunum handritin heim um árið, Mér vitanlega hefur enginn í Danmörku neitt á möti því þött við sendum þeim kartöflurnar líka." Sýslumaöurinn á Selfossi Vill hvorki sjá þessar plötur né heyra Selfoss, 3. október „Eg vissi ekkert um þessi kaup. Það kom bara sendibíl með fimm kassa af þessum plötum einn daginn og skellti þejm á gólfið við dyrnar. Ég á ekki einu sinni plötuspil- ara,“ sagði Andrés Valdi- marsson, sýslumaður á Selfossi. Plöturnar sem um ræðir eru hljómplötur með hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar, öðru nafni Steina spil, sem Óli Þ. Guðjartsson keypti á síðustu dögum sínum sem dómsmálaráðherra. „Þetta er enn alvarlegra fyrir þær sakir að andvirði platnanna var tekið af rekstr- arfé embættisins. Við eigum ekki einu sinni fvrir vélritun- arpappír út árið," sagði Andr- és. „Það er fleira matur en feitt kjet," sagði Oli Þ. Guðbjarts- son í samtali við (iUI.U PRKSSUNA. „Kg er enn þeirrar skoðun- ar að þetta hafi verið rétt ákvörðun hjá mér. ()g eftir viðbrögð sýslumanns er ég enn vissari í minni sök. Þess- um manni veitir auðsjáan- lega ekki af að kynna sér önnur lög en þau sem finnast í lagasafninu. Og ég held að Flokkur mannsins Pólskir frambjóðendur fyrir næstn kosningar — vonum aö þeir tryggi betri árangur en síöast, — segir Pétur Guöjónsson Reykjovik, 3. október__ „Okkur gekk illa að manna framboðslistana síðast svo við ætlum að grípa til aðgerða í tíma,“ sagði Pétur Guðjónsson, formaður Fiokks manns- ins, í samtali við GULU PRESSUNA, en flokkur- inn hefur fiutt inn eina 47 frambjóðendur frá Póllandi. „Svo virðist sem almenn- ur pólitískur áhugi á íslandi sé að dofna. Við verðum því að flytja inn fólk ef ís- lendingar fást ekki til að taka þátt í starfi okkar," sagði Pétur. Hann sagði að þeir Pól- verjar sem nú væru á leið til landsins hefðu flestir nokkra reynslu af stjórn- málum og framboði. „Sumir þeirra voru í framboði í síðustu þing- Nokkrir af pólsku frambjóöendunum áöur en þeir héldu til Islands. kosningum og aðrir í sveit- arstjórnarkosningunum. Einnig eru þarna nokkrir prestar sem hafa tekið þátt í prestskosningum og eins fáeinir óvanir. En sem heild er þetta efnilegur hópur og engir nýgræðingar," sagði Pétur. Ríkisstjórnin vill einkavæda lögregluna Óli Þ. vill að syslumaðurinn hlusti á lögin hans Steina spil í staö þeirra sem eru í laga- safninu. lögin hans Steina spil henti vel til að létta á honum hrún- ina." Reykjavík, 3. október Samkvæmt heimildum GULU PRESSUNNAR er gert ráð fyrir því í fjárlaga- frumvarpi ríkisstjórnar- innar að lögreglan verði einkavædd og hlutabréf í henni seld á almennum markaði. Ef af verður mun aðeins hluthöfum verða veitt vernd gegn afbrotum og eignaspjöllum. „Eg vil hvorki játa þessu né neita," sagði Þorsteinn Páls- son, dóms- og sjávarútvegs- ráðherra, í samtali við GULU PRESSUNA. „Þetta hefur ver- ið til skoðunar eins og aðrar sparnaðarhugmyndir. Per- sónulega finnst mér þetta til dæmis frekar koma til greina en að sjávarútvegurinn taki meiri þátt í rekstri Hafrann- sóknastofnunar. Hann er ekki aflögufær um þessar mundir." Þorsteinn sagði að um sam- stofna mál væri að ræða. Ætl- ast væri til að sjávarútvegur- inn sæi sjálfur um að gæta þess að hann gengi ekki of nærri fiskstofnunum. „Ég sé ekki að það sé fjar- stæðukenndara að almenn- ingur sjái sjálfur um að halda sig frá afbrotum," sagði Þor- steinn. Aðspurður um hvað ætti að gera við þá sem ekki ættu hlutabréf í lögreglunni sagði Þorsteinn að það mál væri til skoðunar. „Það kemur til dæmis til greina að hafa allir sektir þeirra þyngri og fangelsisvist lengri," sagði Þorsteinn. Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfí, umbrotskerfí og alhliða þjónusta MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.