Pressan - 03.10.1991, Síða 44

Pressan - 03.10.1991, Síða 44
L rKYGGVAG()TlJ L\. ______^ s^2féSTAUBM*I< 101 KKYKJAVIK SÍMI 15520 HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 621373 Ltökin á upphafsdögum þings- ins hafa verið í samræmi við gömlu formúluna; stjórnarsinnar gegn stjórnarandstæðing- um. 1 okkar eyru er því spáð að áður en langt um líður komi upp ágreiningur milli Sjálfstæðis- flokks og Alþýðu- flokks í mörgum veigamiklum málum. Þar eru ein- stakir liðir fjárlaga nefndir, en ekki síöur t.d. hlutur umhverfismála- ráðuneytis. Þannig megi búast við því að Alþýðuflokkurinn, með Eið Guðnason umhverfismálaráðherra í fararbroddi, krefjist fljótlega laga- setningar um að færa Landgræðslu ríkisins, Skógrækt ríkisins og fleiri slikar stofnanir frá Halldóri Blön- dal í landbúnaðarráðuneytinu til Eiðs. Miðaö við skapgerð ráðherr- anna tveggja megi búast við mikilli orrahríö . . . k7jóræningjaáskrift að Stöö 2 er nú orðin fyrirtækinu nokkurt áhyggjuefni, en þeim virðist sífellt fjölga sem þannig fylgjast með útsend- ingum stöðvarinnar. Hefur Páll Magnús- son sjónvarpsstjóri lagt áherslu á að reynt verði að koma í veg fyrir þetta. Núna 10. október, þegar áskriftar- númer verða send út, verður nýtt kerfi tengt sem á að gera sjóræn- ingjaáskrifendum erfitt fyrir. Um leið er farið að liuga að því að fá nýja myndlykla fyrir Stöðina, en Ijóst er þó að það veröur ekki áður en Sýn fer í loftiö. Þá hefur and- rúmsloftið á milli Stöðvar 2 og Heimilistækja, sem hafa umboöiö fyrir núverandi lykla, verið heldur kuldalegt undanfarið . . . Um tuttugu manns hafa skráð sig á djassnámskeið Jóns Múla Árnasonar, sem haldið er á vegum endurmenntunar- deildar Háskólans fyrir almenning. Kvöldnámskeið Jóns Múla hefjast í næstu viku og standa framundir áramót. Jón Múli segir sjálfur að skráðir þátttakendur séu á aldrinum 25 til 50 ára. „Ungt fólk á aldur við mig," bætti liánn við . . . . fjárlögum Reykjavíkurborgar á þessu ári var 50 milljónum króna Verðlauna- peningar bikarar FANNAR UEKJARTOMM - o 16488 úthlutað til Borgarleikhússins. Meg- inhluta þeirrar upphæðar var variö til að innrétta „stórglæsilegan" bar, eins og einn leikhúsmanna orðaði það, í kjallara hússins. Lögreglu- stjóraembættið fellst hins vegar ekki á að leikhúsið afgreiði vín á barnum eftir sýningar, nema því að- eins að ákveðin lágmarksstærð af hópi fólks panti vínstofuna fyrir- fram . . . H, Lann Bubbi mun ekki bregðast aödáendum sínum þessi jól fremur en endranær. Þeir eiga nú kost á að eignast plötu með tónleikaupptökum á Púlsinum frá því í nóvember á síðasta ári. Þar kom Bubbi fram og tók bæði gömul og nýleg lög ásamt Kristjáni Kristjánssyni blúsara, Þorleifi Guðjónssyni og Reyni Jónassyni sem þandi harmónikkuna. Platan ber nafnið „Ég er“. Svo skemmti- lega vill til að í ár eru einmitt liðin fimmtán ár frá því Bubbi kom fyrst fram á almennum tónleikum, en það var á tónlistarkvöldi Jazzvakn- ingar árið 1976. Af öðrum plötum sem koma í verslanir á haustmánuð- um má nefna að um miðjan október kemur út ný plata Rúnars Þórs sem ber nafnið „Yfir hæðina". . . wjtrætisvagnarnir í Reykjavík gerast sífellt skrautlegri og þeim fjölgar ört sem eru alsettir auglýs- ingum. Græni vagninn, þ.e. sá sem sparisjóöirnir auglýsa á, hefur vakið mikla eftirtekt og sama má segja um Fantavagninn. Nú hefur Osta- og smjörsalan „keypt" vagn. Svo skemmtilega vill til að vagninn er í réttum lit og því dugði að mála á hann götin. Þar með var sá vagn orðinn eins og akandi ostur . . . I I I „Prime ribs" öll fimmtudagskvöld. Lifandi tónlist öll sunnudagskvöld. A L L T A F VIÐSKIPTAVINIR o r S T E I K H 0 S Barónsstíg 11a • Sími 19555

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.