Pressan - 21.11.1991, Síða 4

Pressan - 21.11.1991, Síða 4
4 Gau»‘num ' *»'• . .. -1 ... Dav & AÆgh ■ Gaukurinn hélt sína árlegu ■ afmælishátíð með mat og ííneríi, Bnokkrar hljómsveitirH komu íram og varð ég ekkilSppjn ^ntið hissa þegar ég heyrði í Sú Ellen.l^t J Þeir voru með frábaerlega skemmtih-glpyW* lagaval og söngvarinn hafði þrælgóðaH rödd, en mest kom mér þó á óvartH hljómborðsleikarinn; hann minnti migUK óneitanlega á gamlan og góðan vin á okkargpjrW*! yngri árum, Kar! Sigtryggsson heitinn.Pja&rTj Annars er víst alltaf fjör á Gauknum ogi| lifandi músík alla daga. 1 \ i(M ■MM fm « ,9 © c w Jæja, þá fer að líða að jólum, þessari yndislegu hátíð þegar fóik á aö lifa saman í sátt og samlyndi, fara í kirkju og vera gott hvað við annað. En kapphlaupið í okkur íslendingum vill oft skemma þessa fjölskylduhátíð. Spurningin er: Á maður að flýja land og sleikja sólina á erlendri strönd eða skíða í Ölpunum? Ég var að spekúlera íþví sísvona hvort það kæmi ekki ódýrar út en allt pakkastandið og glysið og fara svo ein í kirkju á aðfangadag, því enginn hefur tíma. Nú, en fyrir þá sem vita ekki hvað þeir eiga að gefa mæðrum sínum eða kærustum þá mæli ég eindregið með alveg stórgóðum silkislæðum sem fást í íslensku óperunni. Því ekki að gera tvöfalt góðverk; gleðja þann sem manni þykir vænt um og styrkja óperuna um leið? Slæðurnar eru hið mesta djásn, einn af þessum hlutum sem allar konur langar í. Þessa gersemi létu hinar frægu Wathne- systur hanna sérstaklega fyrir íslensku óperuna af færustu hönnuðum til styrktar óperunni. Bíó-mjólkin e. .. ai pessum stórgóðu uppfinningum. Meðfædd- ar manninum eru Bifidobacterium Bifidum, sem lifa í ristli, og Lactobacillus Acidophilus, sem eru i smáþörmum. Auk þess að hjálpa líkamanum við að fullnýta holl efni fæðunnar gegna þessar örverur lífsnauðsynlegu forvarnarhlutverki í meltingunni. Þær gefa frá sér efni sem hindra vöxt og draga úr virkni skaðlegra baktería, draga úr mynd- un ensíma sem virðast örva mynd- un krabbameins í meltingarfærum, minnka meltingartruflanir af völd- um streitu og breytinga í mataræði og draga úr þarmabólgum og sum- um lifrarsjúkdómum. — Það er vissara að passa upp á þetta allt saman og ég mæli eindregið með þessari mjólkurafurð fyrir börnin í skólann — að minnsta kosti góð forvörn. Nú, svo fyrir okkur, þetta fólk sem alltaf er út um allt, er þetta besti drykkur jafnt í hádeginu sem á morgnana. Ég mæli eindreg- ið með þessum holla og góða drykk. oj <3>o Rabbi Uppselt var á tónleikana hans Rabba, en þar voru samankomnir góðvinir hans og aðdáendur. Til hamingju, kæri vinur, og gangi þér vel í baráttunni. Við stöndum öll með þér. Á L I N svo er það Sálin hans Jóns míns að koma með nýja plötu og ég hleraði að þeir væru með útgáfutónleika í Tunglinu í kvöld. Úllalla, það held ég stelpurnar eigi eftir að væla! Annars gengur orðrómur um bæinn að Guðmundur, þessi dökkhærði sexí, við heimsfræga konu!!! Listin að lifa er nýjasti ilmurinn á svæðinu í dag. Ekki nóg með að hann sé óvenju rómantískur, heldur er hægt að taka gullmolana af glösunum eftir að þau tæmast og láta búa til eyrnalokka eða hálsmen; í töppunum er 18 karata gylling! Það er ýmislegt hægt að gera i dag. Vorið er komið 'SF|RDINGur og ævintýri hans í Reykjavík Vorið er komið og grund- irnar gróa. segir i gömlu kvæði. Allt þetta hafði nú dunið yfir okkur Keimar og lífið var dásamlegt. Skólinn var búinn og við valhoppuð- um arm i arm um götur og torg í sólskini og hlíðu og sungum bibbidí babbidi bú. Kitt og annað hafði á daga okkar drifið þessa seinustu mánuði vetrar. Keintar hafði selt Kadilakkinn. Hann hafði komist að þeirri niðurstöðu eftir mikil þankabrot að bíll- inn væri of dýr í rekstri. Með lagni hafði hann komið hon- um í góðan pening og keypt bil hjá sölunefnd varnarliðs- eigna. Við vorum lunknir þar. Við sendum slatta af til- boðum og skrifuðum ýntsa ættingja fyrir. Síðan sógðum við þvert nei niður skalann. Vitaskuld var þetta töluvert rísíkó en það hafðist og Keimar hreppti bílinn, IHmti- ae 195». Þó svo að ég (æki mér tugi kafla i þessari sögu. sem er dæmigerð hispurslaus og hreinskilin islensk ævisaga, — því hvernig á ég, Jónas Jo- nes, ættaður frá Kansas og vel má vera að galdrakarlinn í Oz sé afi minn. að kljiífa ;evi mina frá ævintýrum Keimars —, þá gæti ég aldrei lýst með orðum hve gífur- lega flottur svarti Pontiacinn var. Hann var eins og geim- skutla á hjólum. Hann var eins og Batmóbílinn. Hann var eins og svartmálaður svifnökkvi í bæjarferð. Kramsætið eitt var eins og fyrsti bekkur á bíó. Hjólbarð- arnir sátu styrkir á götunni með hvítum hringjum eins og breiðþotudekk. Mæla- borðið glampaði eins og djásn undir gleri i skart- gripabúð. Átta snjóhlébarð- ar höfðu lagt til áklæði í sæt- in. Kinn lítill gulur tígur lá undir afturrúðunni. geggjað- ur til augna. Það var einung- is einn vandi. Bíllinn eyddi hálfu meira en sá gamli. eða á að giska <>() lítrum á hundr- aðið. Keimari var nokk sama Nú ók hann með stíl. Nú ók um við báðir með stíl. Stelp ur settust klofvega upp húddið ef þ«‘r fengu ekki far Við skriðum rúntinn og lit um tæplega út um gluggam á pöpulinn. Kg var ekki kom inn með hílpróf og fékk aldr ei að keyra heldur sat í aftur sætinu með gítar og tók nokkur vinnukonugrip og öskraði; I ean’t get no satis- faction. Kinu sinni hrækti gutti á húddið og ég elti hann hálfan bæinn á harða- hlaupum og náði honum uppi i Fischersundi og rétti honum lauflétt spítalavink. Já, vorið var komið. Sólin ætlaði að sundrast yfir okk- ur. Við höfðum allt það vín og vændi sem við gátum ráðið við. Við höfðum ekki snert á námi eftir áramótin heldur dundað við að pússa bilinn öllum stundum. Út- koman um vorið var vægast sagt slök. Nokkru fyrir hvitasunnu sátum við niðri við sjó og horfðum út á hafið. Sjórinn vaggaði þungur fyrir framan okkur í bliðunni eins og ávaxtasafi í dós. Nokkrar rottur voru að skjótast á milli glampandi steina og við höfðum koinið okkur upp góðum birgðum af grjóti til að drita á þær en vorum fer- lega óhittnir. Við röltum nið- ur í fjöru og fórum að fleyta kerlingar. Við vorum staur- blankir og hvorki Kiki Strandamaður né nokkur annar vildi lána okkur finunaur eftir að við höfðum rúllað núllunum heim frá skólanum með gjörðum. Keimar þeytti steini sem virtist ekki ætla að stoppa fyrr en úti í Viðey. — Lífið er fúlt frændi. sagði hann. —■ Skólastjórinn hefur af okkur stóran pen- ing. — Hvað er mikið á tanknum? spurði ég. — Kétt nóg til að murra inn á næstu bensinstöð mað- ur. sagði Keimar. Hann hristi hausinn þegar ég hafði þeytt steini og sótti sér nýjan. — Svona áttu að fara að þessu, Nasi. sagði hann áður en hann grýtti en mistókst. Hann settist á stein. — Hvitasunnan um næstu helgi og við erum báðir staur. — Allt skólastjóranum að kenna. sagði ég. — Skólastjórinn er naut- heimskur. sagði Keimar. — Hann situr öll kvöld heima og er að revna að troða flugvélakubb ofan i skiptagatið í púsluspilinu sem kellingin hans setur fyr- ir hann á meðan hún les Ált for Damerne. — Allir ætla út úr bænum um helgina með sprútt og fínt fínt, sagði ég — og við verðum að hanga heiina. Þetta er hræðilegt. Já. þetta var hræðilegra en svo að það væri til að þola. Við sátum þarna dapr- ir góða stund. Fullur Færey- ingur. sem var að mála skút- una sína í fjörunni. kom og vildi spjalla við okkur. en við vorum ekki i standi til að gantast við hann. — Sjerap. sjerap, sagði Reimar þreytu- lega. — Veistu hvað kom fyrir þennan gaur í hitteðfyrra? spurði ég. — Hann var hér að gluða farfa á fleytuna og hvað heldurðu að byrji þá að gubbast út úr skólprörunum. — Minnstu ekki á það frændi. Minnstu ekki á það. — Peningur. sagði ég. — Kinhver brjálæðingur hafði sturtað aleigunni niður um klósettið, hundraðkall- arnir lágu hér og hvar út um allar (jörur. — Nasi, sagði Reimar. — Þú þarft ekki að segja meira. Ólafur Gunnarsson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.