Pressan - 21.11.1991, Blaðsíða 10

Pressan - 21.11.1991, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. NÓVEMBER 1991 GREIDDI MILLJOI KRÓNAI Snæfellingur hf., hið nýja útgerðarfyrirtæki bæjarsjóðs 01- afsvíkur, hefur tryggt sér alla þrjá báta Tungufells hf. Eins og PRESSAN greindi frá síðastjiðið vor voru mikil átök um sölu bátanna frá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur yfir til Tungufells. Hrað- frystihúsið er gjaldþrota og helstu eigendur þess eru einnig eigendurTungufells. Það fyrirtæki keypti bátanaskömmu fyrir gjaldþrotið. Landsbankinn hefur kært Ólaf Gunnarsson, fyrrum stjórn- arformann Hraðfrystihússins, og fálaga hans til rannsóknar- lögreglu vegna málsins. Hið nýja fyrirtæki, Snæfellingur, hefur fallist á að greiða 110 milljónir króna í bætur til þrotabúsins og með því tryggt sér að ekki verði höfðað riftunarmál vegna bátakaupanna. Þá keypti Snæfellingur hluta þrotabúsins í Tungufelli fyrir tvær milljónir. Áður hafði Snæfellingur greitt Ólafi Gunnarssyni og félögum 34 milljónir króna vegna bátanna þriggja og yfirtekið skuldir upp á 275 milljónir. Álls hefur Snæfellingur því greitt 420 milljónir króna fyrir bátana þrjá, Garðar II, Gunnar Bjarnason og Tungufell. Bátun- um fylgir rúmlega 1.700 tonna þorksígildiskvóti, sem kostar í varanlegri sölu um 350 milljónir króna. Því má segja að Snæ- fellingur hafi greitt 70 til 80 milljónir fyrir bátana og afganginn fyrir kvótann. Með þessu á að vera tryggt að bátarnir verði um kyrrt í Ólafsvík. HSÍ SELDR HM 95 TIL AÐ LOSNA VIÐ SKULDIRNAR Þau sjónarmið innan Handknattleikssambandsins sem PRESSAN skýrði frá í sumar og haust hafa nú orðið ofan á. Blaðið sagði þá frá hugmypdum forystumanna sambandsins um að losa sig við Jún Hjaltalin Mat(nússon. formann HSÍ, og bjóða ríkisstjórninni að hætta við HM '95 gegn því að ríkissjóð- ur hjálpaði sambandinu út úr fjárhagserfiðleikum sínum. Ríkisstjórnin hefur nú mótað afstöðu sína. Hún er ekki tilbú- in að hjálpa HSÍ á neinn hátt ef sambandið heldur fast við að halda keppnina. Eina leið sambandsins virðist því vera að gefa hana upp á bátinn til að minnka á líkurnar á að fara í gjaldþrot. Þar sem þessi niðurstaða liggur fyrir má búast við að þeim sambandsstjórnarmönnum, sem hafa viljað refsa Jóni Hjalta- lín fyrir háskalega stöðu sambandsins, vaxi fiskur um hrygg. Sambandsstjórnarfundur verður haldinn um helgina. HVÍTA HÚSIÐ GRÆÐIRÁ NÝJD DAGDLJ Þrátt fyrir að aðstandendur Nýmælis séu orðnir hálftvístíg- andi varðandi útgáfu nýs dagblaðs vinna G'unnar Steinn Púls- son og hans fólk í Hvíta húsinu á fullu að hönnun hins nýja blaðs. Aðrir í hópnum, meðal annars Þorgeir Baldursson í Odda og sumir stjórnarmanna Stöðvar 2, eru hins vegar komn- ir með hugann nær helgarblaði. Samkvæmt áætlunum um kostnað við útgáfu nýs dagblaðs á kostnaður við hönnun þess að verða um 16 milljónir. Þeir fjármunir munu sjálfsagt renna til Hvíta hússins. Þá er gert ráð fyrir hönnun á haus blaðsins og bréfsefni. Auglýsingaherferð blaðsins á að kosta um 20 milljónir og opnunarhátíð um 3 millj- ónir. Hvíta húsið hefur því mikinn hag af því að blaðinu verði hleypt af stokkunum. Frá Keflavíkurflugvelli. Þrír hermenn á Keflavíkurvelli voru kærðir fyrir nauðgun HERMENNIRNIR EKKI ÁK/BIBIR MtÁTT FYRIR fiRUN RNI NfUIBGIIN Símon Ólason, lögmaður konunnar sem kærði hermennina, segist undrandi á að saksóknari hafi hætt málinu þar sem hann telur allt benda til að tveir mannanna hafi nauðgað konunni. Egill Stephen- sen, fulltrúi ríkissaksóknara, segir að ekki hafi verið hægt að ákæra mennina. Rimnsóknarlögreglau á Keflavíkurflugvelli hafði til rannsóknar nauðgunarka'ru á hendur þremur þeldökkum hermönnum í Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Kftir að rannsókn lauk voru emba-tti rikissaksóknara send rann- sóknargögn málsins. Ákvörð- un saksóknara var að ákæra mennina ekki. Lögmaður konunnar. sem ka*rði nauðg- unina, segist undrandi á þess- ari ákvörðun. Fulltrúi sak- sóknara segir hins vegar að ekki hafi verið lagaheimild til útgáfu ákæru. Atburðirnir sem deilt er um í þessu máli áttu sér stað á Keflavíkurflugvelli 9. sept- ember. Konan er um þrítugt. VITNISBLRÐUR KONUNNAR Konunni segist svo frá að hún hafi farið með vinkonu sinni inn á Keflavíkurflugvöll í þeim erindagjörðum að heimsækja einn mannanna þriggja. Konan þekkti engan mannanna fyrir heimsókn- ina. Þegar þær komu inn til mannsins voru þar tveir her- menn fyrir. Fólkið sat allt við drykkju. Kftir nokkra stund yfirgaf vinkonan heimilið og því varð konan eftir ásamt mönnunum þremur. Hún segir að nokkru siðar hafi mennirnir þrir neytt sig til samfara. Þ.e.a.s. einn þeirra hélt henni nauðugri á meðan hinir tveir komu vilja sínum fram. Konan segir mennina tvo hafa haft við sig samfarir gegn vilja sínum. Kftir atburðinn segist hún hafa sofnað. Það skal tekið fram að konan hafði drukkið talsvert af áfengi og hún seg- ist hafa sofnað ölvunarsvefni. I»egar hún vaknaði voru mennirnir tveir, sem hún ber að hafi nauðgað sér, farnir en þriðji maðurinn var sofandi í herberginu. Konan segist hafa farið upp i rúm til hans og þau hafi haft samfarir. Hún segir að þær samfarir hafi ekki verið gegn vilja sínum ÞEIR NEITA ÖLLU Þremenningarnir neituðu í fyrstu að hafa haft samfarir við konuna. Þeir játuðu að hafa haft i frammi kynferðis- lega „tilburði" en neituðu öll- um ásökunum um ofbeldi. Kftir því sem á rannsóknina leið breyttu hermennirnir framburði sínum. Þeir játuðu ekki nauðgun en báru hver á annan að hafa haft samfarir við konuna. en aldrei að of- beldi hefði verið beitt. Sá er munurinn á fram- burði hennar og þeirra að konan hefur í engu breytt fyrsta íramburði í málinu en framburður þeirra hefur tek- ið breytingum án þess að játningar um nauðgun liggi fyrir. Þremenningarnir voru úr- skurðaðir í gæsluvarðhald. VOTTORÐ GEÐLÆKNIS í skýrslu sem geðlæknir konunnar skrifaði kemur fram að hún hefur átt mjög erfitt eftir atburðinn. Læknir- inn segir meðal annars um konuna að hana hrjái mikil depurð. svartsýni, erfiðleikar með svefn, lystarleysi, ein- beitingarörðugleikar. von- leysi, kvíði og hræðsla. Læknirinn skrifar þetta 10. október, mánuði eftir atburð- inn. Konan hefur verið í lyfja- meðferð og eins í stífum við- tölum. Þrátt fyrir það hefur hún ekki jafnað sig neitt og eftir því sem næst verður komist hefur heilsa hennar enn engum framförum tekið. Það ber að taka fram að konan hefur ekki áður þurft á aðstoð að halda vegna and- legs misbrests. UNDRANDI Á ÞESSARI ÁKVÖRÐUN Simon Ólason. lögmaður konunnar. segist vera undr- andi á þeirri ákvörðun sak- sóknara að höfða ekki opin- bert mál á hendur mönnun- um þremur. Hann segist telja gögn málsins benda til þess að konan fari með rétt mál. Bæði sýni áverkavottorð lækna að konan hafi lent i átökum og þá báru kynfæri hennar merki þess að um harkalegar samfarir hefði verið að ræða. Simon sagði fátt geta gerst í málinu hér eftir. Konan væri andlega veik eftir og það styrkti enn frekar grun sinn um að hún hefði verið beitt ofbeldi. Sem dæmi nefndi Símon að ekki hefði reynst unnt að samprófa konuna og mennina þrjá þar sem hún væri hrædd við þá. Hætt var við samprófun samkvæmt læknisráði. EKKISAMKVÆMT LÖGUM „Það er eins með þetta mál og velflest þeirra mála þar sem ekki er krafist frekari að- gerða, að þau gögn sem liggja fyrir þykja ekki nægja til sakfellingar. Það þóttu sem sagt engar líkur á að það næðist sakfelling," sagði Eifill Stephensen. fulltrúi hjá emb- ætti ríkissaksóknara. „Þetta er spurning um sönnun. Hennar framburður er gegn framburði þriggja manna." Er ekki rélt ad þeir hafi hreytl framburdi sinum frú fyrslu yfirhevrslum.’ „Jú, jú. þaðer eins og geng- ur. Þeir verða nákvæmari en það þótti samt engan veginn nægja til að gefa út ákæru. Okkur er hreinlega ekki heimilt að gefa út ákæru ef okkur sýnist likurnar vera nær engar til að þeir verði sakfelldir. Þau gögn sem fyrir lágu þóttu ekki duga til sak- fellis." / úrskurdi Hœsturéttar oetfna gœsluvardhalds segir aö fyrirliggjandi skýrslur styrki þann grun sem var til- efni rannsóknarinnar. Er hœgt ad túlka þessi orö Hœstaréttar ú þann ivg aö gógnin hafi sýnt aö mennirmr iKeru sekir.’ „Nei, nei. Þetta sýnir fyrst og fremst að málið er í rann- sókn og að Hæstiréttur hefur viljað að rannsóknin héldi áfram. Hæstiréttur var ekki að fjalla um sekt eða sýknu i þessu tilfelli, alls ekki," sagði Kgill Stephensen. Sigurjön Magnús Egilsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.