Pressan - 21.11.1991, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 21. NÓVEMBER 1991
7
KÆRIR FYRRUM
TBHGDAFÖRÍÍ
SINN FYRIR
Ágúst Kristmanns heildsali. Hann
hefur verið kærður og sakaður um
að hafa stundað tollsvik um árabil.
MlliJSNR
T0LL8VIKI
Rannsóknarlögreglan og ríkistollstjóri hafa til
rannsóknar kœrur á hendur Ágústi Kristmanns
heildsala. Hann er sakaður um að hafa skráð
snyrtivörur sem umbúðir í innflutningsskjölum
og komist með því hjá háum tollum.
Lacoste-snyrtivörur. Snyrtivörur voru með umboð fyrir þessar vörur
sem og margar aðrar. Nú hafa aðrir umboðsmenn tekið við þessum
umboðum.
Rannsóknarlögreglu ríkisins og
ríkistollstjóra hafa borist kærur á
hendur Ágústi Kristmanns heild-
sala. Kærandinn, fyrrum tengda-
sonur Ágústs, segir að Ágúst hafi
svikist undan að greiða milljónir
króna i tolla, aðflutningsgjöld og
vörugjöld. Kærandinn, Atli Már Jós-
afatsson, keypti fyrirtækið Snyrti-
vörur af Ágústi, en þegar kaupin
voru gerð voru þeir tengdafeðgar.
Fyrirtækið er nú hætt rekstri.
Þá er Ágúst sakaður um ólögleg-
an innflutning og útflutning á snyrti-
vörum. Eins og áður sagði eru kær-
urnar á hendur Ágústi til meðferðar
hjá rannsóknarlögreglu og ríkistoll-
stjóra.
í kærunni er því haldið fram að
tollpappírum. eða erlendum vöru-
reikningum, hafi verið breytt áður
en vara var leyst úr tolli. Það á að
hafa verið gert með þeim hætti að
litavöru, þ.e.a.s. varalit og nagla-
lakki, hafi að stórum hluta verið
breytt í umbúðir.
Það hafi verið gert til að komast
hjá tollum og aðflutningsgjöldum,
sem samtals voru 115 prósent. Um-
búðir eru tollfrjálsar og bera aðeins
aðflutningsgjöld, þrjú prósent.
Því er haldið fram að Ágúst Krist-
manns hafi komist yfir óútfyllta
vörureikninga frá erlendu fyrirtækj-
unum og fyllt þá út með allt öðrum
hætti en raunverulegir vörureikn-
ingar eru fylltir út. Með þessu hafi
hann komist hjá miklum innflutn-
ingsgjöldum og tollum.
PRESSAN hefur aflað sér gagna
um þessar ásakanir. Þar er að finna
pappíra frá sömu fyrirtækjum i
tveimur ólíkum útgáfum. Dæmi er
um að mismunurinn á gjöldunum sé
allt að 200 þúsund krónum.
Þetta eru þungar ásakanir. Sem
fyrr er getið eru kærurnar til með-
ferðar hjá rannsóknarlögreglu og
ríkistollst jóra.
Kæran til rannsóknarlögreglunn-
ar barst þangað fyrir fáeinum dög-
um en kæran til ríkistollstjóra er ein-
hverju eldri. Það kemur ekki í ljós
fyrr en þessum rannsóknum er lok-
ið hvort grunur Atla Más reynist á
rökum reistur. Ef marka má pappír-
ana sem PRESSAN hefur undir
höndum er hér um verðugt rann-
sóknarefni að ræða.
FLUTTl VÖRUNA INN
OGAFTURÚT
Eftir að kaupin voru gerð með
Snyrtivörur gerðu þeir tengdafeðg-
ar með sér samkomulag. Eftir því
sem best verður séð var samkomu-
lagið á þá leið að Atli Már keypti fyr-
irtækið með allri viðskiptavild hér á
landi. Ágúst sagðist hins vegar hafa
heimild til að flytja nokkur vöru-
merkjanna hingað til lands og selja
þau aftur til annarra landa. Þannig
gekk þetta fyrst eftir kaupin. Ágúst
seldi mest til Hong Kong.
Það var talsverðu síðar að Atli
Már var á ferðalagi erlendis og
heimsótti þá meðal annars nokkur
þeirra fyrirtækja sem hann var um-
boðsmaður fyrir.
Þar var hann yfirheyrður um
hvað væri að gerast á íslandi. Spurn-
ingar höfðu vaknað vegna þess
hversu mikið var selt til íslands.
Magnið þótti ótrúlegt í Ijósi þess
hversu markaðurinn hér er lítill.
Atli Már kunni engin svör önnur
en þau að Ágúst seldi meirihluta
þess sem keypt væri til annarra
landa. Þær skýringar féllu ekki i
góðan jarðveg og fljótlega kom í Ijós
að slíkt var með öllu óheimilt.
LÆGRA VERÐ TIL ÍSLANDS
Vegna þess hversu háir tollar eru
á þessari vöru hér á landi hafa fram-
leiðendurnir veitt mikinn afslátt, til
að hægt sé að selja vöruna hér. Að
öðrum kosti væri hún svo dýr hér að
fáir eða engir hefðu efni á að kaupa.
Þess ber einnig að geta að stóru
snyrtivöruframleiðendurnir keppa
að því að vara þeirra kosti mjög
svipað alls staðar.
Það er einmitt þetta sem Ágúst
Kristmanns er sakaður um að hafa
hagnýtt sér. Mikill afsláttur erlendis
frá gerði honum kleift að keppa
með vöruna í þeim löndum þar sem
engir tollar eru og varan því seld á
allt öðru verði frá framleiðanda en
hingað til lands.
Eftir að erlendu framleiðendurnir
komust að því hver skýringin var á
þessari miklu sölu til íslands var séð
til þess að „útfhitningur" á frönsk-
um snyrtivörum frá íslandi stöðvað-
ist.
VARÐ AÐ KAUPA
ALLA VÖRUNA
Atli Már var neyddur til að kaupa
allar þær vörur sem Snyrtivörur
höfðu pantað, en meirihluti pantana
var vegna Hpng Kong-viðskipta
fyrri eiganda, Ágústs Kristmanns.
Atli Már heldur þvi fram að þetta
hafi riðið fyrirtækinu að fullu.
Hann hyggst höfða miskabótamál
á hendur fyrrum tengdaföður sín-
um vegna þessa. Þeir hafa lengi átt
í illdeilum út af samskiptunum
vegna fyrirtækisins og talast varla
við öðruvísi en fyrir milligöngu lög-
manna, og þá skriflega.
VEIT EKKERT UM ÞETTA
„Ég hef ekki frétt þetta," sagði Ág-
úst Kristmanns þegar PRESSAN
ræddi við hann.
„Ég kannast ekkert við þetta. Ég
kem af fjöllum."
Nú hef ég sagt þér lauslega frá
þessu. Huad geturdu sagt um þad
sem á þig er boriö?
„Ég get ekkert sagt án þess að
kynna mér það frekar. Mér þykir
skrítið að hafa ekkert fengið að vita.
Ég er undrandi á þessu," sagði Ágúst
Kristmanns og bætti við aðspurður,
að hann gæti ekki á nokkurn hátt
tekið undir þessar sakargiftir.
„Þessu máli hefur verið valin önn-
ur leið i gegnum f jölmiðla og ég vil
halda mig við þann vettvang sem
málið er á," sagði Atli Már Jósafats-
son.
FYRRUM
SÍGARETTUKÓNGUR
Ágúst Kristmanns hefur víða
komið við. Fyrir fáeinum árum
skaust hann upp á stjörnuhimin ís-
lensks viðskiptalífs. Hann er um-
boðsmaður fyrir frönsku Royal-
sígaretturnar, sem náðu ótrúlegri
markaðshlutdeild fyrir nokkrum ár-
um.
Sígaretturnar fást enn hér á landi
en sala þeirra hefur dregist verulega
saman. Um tíma náðu þær að skjót-
ast fram úr öllum öðrum sígarettu-
tegundum.
Sigurjón Magnus Egilsson