Pressan - 21.11.1991, Síða 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. NÓVEMBER 1991
*
OLAFUR
Þ. Þórðarson fer nú fyrir
þeim mönnum sem and-
skotast út i Seðlabankann.
sem er reyndar friður hóp-
ur manna: Jón Halilnn
Hurmitxjlsson kallaði SeAla-
bankabyxKÍnkuna ,.i svörtu-
loftum" ok vildi helst leKKja
hana niður. I>á hefur Matl-
hius Hjurnuson senl seðla-
bankamönnum skeyli o«
Steingrimur Hermunnsson
vildi svifta bankann sjálf-
stæði. I>að er reyndar háll-
skrílið að helstu andsta-ö-
inxar Seölabankans skuli
allir koma af Vestfjöróuml
Kkki er þó vitað til þess art
undirskriftasöfnun hafi ver-
ið Ketfn Seólabankanum.
t’aö sama ((etur
SKiHVATUH HJÖRCMSS-
SON heilbrÍKðisráöherra
ekki saKl. en hann hefur
feiiKÍð hvern undirskrifta-
listann af öðrum i hausinu.
Fyrir skömmu vildu allir
styðja St. Jósefsspitala i
Hafnarfirði ok nú vilja allir
skrifa )(e((n fýluverksmiðju
i Orfirisey. Si|(hvatur þyrfti
að lá sér blaðafulltrúa eins
"K
HINAH SKH 'HDSSON. en
stétl blaðafulltrúa er revnd-
ar ekki fjölmenn hér á
landi. Stundum er sagt að
hlutverk þeirra sé að miðla
veruleika fyrirtækisins til
almenninKS. Nú er Lnids-
virkjun nýkomin með
blaðafulltrúa. Þorslein
Hitmursson. Hjá IVisti <>k
sima slarfar Hrefnu Innólfs-
ilóllir i>k hjá Bændasamtök-
unum starfar Helffu (íudrún
Jónusdóllir. Kn ýmsir aðilar
hafa tekið að sér að Kerast
málsvarar fyrirtækja eða
einstakliiiKa eins ok
RMiNHEIDUK DAVÍDS-
DOTTIK. sem er alltaf að
taka að sér K<>ð málefni.
fyrst umferðina. síðan fcirn-
arlömb bruna á HverfisKöt-
unni <>k nú síðast stelpurn-
ar í Tyrklandi. Þar er hún i
hópi með Mafinúsi Shurf>-
hédinssyni. Þá helur Hunn-
es Hólmsleinn (lissururson
tekið að sér að verja Datiö
Oddsson <>k skammaði síð-
ast dr. Henjumin H.J. Eirihs-
son fyrir að skamma Davíð.
Vonlausust er likleKa bar-
átta bindindismannanna.
en (iuörún Áfitislsdóllir
borKarstjórnarfulltrúi Kreið-
ir til dæmis atkvæði K<‘Kn
öllum vinveitinKaleyfum.
Tíu stærstu fyrirtæki landsins
Hlutfall kvenna í aðalstjórnum 300000000 • ( TTTTlnrTTlÍ Hlutfall kvenna í toppstöðum ffíTiW j Hlutfall kvenna meðal allra starfsmanna SfflWW
\
Karlar Kortur 68 eða 86 % 11eða14% Karlar Konur 49 eða 96 % 2 eða 4 % Karlar Konur 3.754 eða 45 % 4.622 eða 55 %
Bv99* a ••sla Frjalsrar verslunar um ttaerstu (yunækin. en sa listi tekur miö al veltu fyrirtækjanna en ekki starfsmannafjolda Tiu stærstu fyrirtækin eru Samband islenskra samvmnufelaga. Solumtdstóó hraófrystihusanna.
Landsbankmn. Flugleióir. Solusamband islentkra fiskframleióenda. Áfengis- og tobaksverslun nkisins. Kaupfelag Eyfiróinga. Islenska alfelagió. Hagkagp og Itlandsbanki
flflEINS TVÆB KOBIUR
í TOPPSTÖDUNUM
Áisama tíma eru 49 karlar í æðstu stöðum þessara fyrirtækja.
Mest misræmi í launum og metorðum innan bankanna.
Stjórna konur íslenskum
fyrirtækjum? Flestir mundu
eflaust svara þessari spurn-
ingu réttilega neitandi.
Stjórnunarstörf í fyrirtækjun-
um eru almennt karlastörf og
þær konursem þar eru heyra
til undantekninga.
í athugun PRESSUNNAR
kom í Ijós að af 79 aðalstjórn-
armönnum í tíu stærstu fyrir-
tækjum landsins voru aðeins
11 konur. í þessum fyrirtækj-
um flokkast 51 starfsmaður til
æðstu yfirmanna meðal laun-
aðra starfsmanna. Af þeim
voru aðeins 2 konur. Konur
voru hins vegar rúmlega
helmingur allra starfsmanna
fyrirtækjanna.
Bankarnir, Landsbanki og
íslandsbanki, komu verst út
úr könnuninni hvað varðar
hlutfall kvenna af starfs-
mönnum og svo aftur í stjórn-
um fyrirtækjanna. Saman-
lagt eru starfsmenn þessara
tveggja banka 2.593 og af
þeim fjölda eru 1.819 konur.
Kngin kona situr í banka-
stjórn þessara banka og að-
eins tvaer konur í bankaráði.
Anna luarsdótlir, formadur
Sambands íslenskra banka-
manna, segir að lauslega
megi áætla að um 75 prósent
allra bankamanna séu konur.
BANKAKONUR MEÐ LÍTIL
ÁHRIF OG LÁGT KAUP
,,Það er engin kona í topp-
stöðu í bankakerfinu," sagði
Anna Ivarsdóttir, formaður
Sambands bankamanna.
„Hlutur kvenna i lægri
stjórnunarstöðum hefur þó
aukist. Það er hinsvegar at-
hyglisvert í því sambandi að
eftir að konum fór að fjölga í
deildarstjórastöðum kom upp
ný stétt í bankakerfinu, sem
er sérfræðingarnir. Þau verk
og sú ábyrgð sem fylgdu
deildarstjórastöðunni hafa í
miklum mæli færst yfir á sér-
fræðinga og verksvið deildar-
stjóra því í raun orðið annað.
Sérfræðingar eru síðan í 90
prósentum tilfella karlmenn.
í bönkunum hafa karl-
mennirnir um 23 prósentum
hærri laun. Þessi munur
minnkar síðan í 12 prósent
þegar komið er upp t stjórn-
unarstöður, óháð því hvort
staðan er há eða lág. Þessar
tölur miðast þó aðeins við
dagvinnu og engar auka-
greiðslur eru inni i þeim. Inni
í tölunum eru síðan ekki
bankastjórar, aðstoðarbanka-
stjórar eða útibússtjórar, en
þeir eru ekki félagar i stéttar-
félagi okkar."
MINNI HVATNING
„Það er Ijóst að meirihluti
karla i bankakerfinu er í
stjórnunarstöðum en minni-
hluti kvenna og einnig að
launamunurinn skýrist að
miklu leyti af því," segir
Anna.
„Maður spyr sig af hverju?
Það er kannski vegna þess að
konur treysta sér síður til
þessara starfa vegna tvöfalds
vinnudags á heimili og vinnu-
stað? Það má einnig hugsa
sér skýringar eins og þá að
karlarnir fái meiri hvatningu
frá yfirmönnum til að sækja
Rannveig Rist, stjómdeildar-
stjórí hjá fsal, er menntuó sem
velstjori, vélvirki, verkfræó-
ingur og hefur aö auki MBA i
alþjoöavióskiptum. Er hægt
aö ganga framhjá slíkri konu?
á. Við höfum um skeið haldið
uppi námskeiðum í stéttarfé-
laginu í því skyni að auka
sjálfstraust og styrkja sjálfs-
vitund kvenna, en flestar
þeirra líta þannig á að þær fái
ekki sömu tækifæri og karlar.
Þessi námskeið hafa verið gíf-
urlega vel sótt og er það til
góðs.
Staðreyndin er nefnilega sú
að þessi launamunur er einn-
ig konunum sjálfum að
kenna; þær eru mjög „stað-
bundnar" og veigra sér við að
sækja um stjórnunarstöðu án
tillits til þess í hvaða banka
eða útibúi hún er auglýst."
segir Anna.
KARLMENN HIRÐA
BÍLASTYRKINN OG
AÐRAR SPORSLUR
í iaunakönnun sem gerð
var af Sambandi íslenskra
bankamanna og samninga-
nefnd bankanna eftir þjóðar-
sáttarsamningana í febrúar
1990 kom fram að eftir því
sem ofar dregur á skalanum
og karlmönnum fjölgar
margfaldast upphæð launa
fyrir óunna yfirvinnu, en sú
leið var farin í könnuninni að
reikna hlutfall milli greiddrar
og unninnar yfirvinnu og fá
út þá launauppbót sem þvi
næmi.
Þannig þiggja að meðaltali
aðeins 0,63 prósent gjaldkera
launauppbót meðan til dæm-
is 50 prósent embættismanna
gera það. Það sama er upp á
teningnum varðandi fasta
bílastyrki. Hann höfðu 0,63
prósent gjaldkera, 2,71 pró-
Anna ívarsdóttir, formaöur
Sambartds islanskra banka-
manna, gerói umfangsmikla
könnun i þjóóarsáttarsamn-
ingunum i fabrúar 1990, sam
laut aó kjörum bankamanna. I
kónnuninni kemur þó akki
fram munur á milli kynja i
bankanum, bankayfirvöld
lögóu blátt bann vió slikrí
könnun.
sent fulltrúa, enginn aðstoð-
arfulltrúi og 0,25 prósent
bankaritara. Á sama tíma
höfðu 62,07 prósent forstöðu-
manna og 66,67 prósent
embættismanna slíkan samn-
ing.
Það er auðvelt að segja sér
að stjórnendur bankans eða
einstakra deilda hafi meira að
gera við bílastyrk en aðrir.
Þetta er þó dæmi um yfir-
borganir til kariastarfanna í
bönkunum.
Þegar áðurnefnd könnun
var gerð ætluðu forsvars-
menn bankamanna að taka
inn í hana launamun kynj-
anna. en því var hafnað af
hálfu bankanna.
STJÓRNDEILDARSTJÓRI
HJÁ ÍSAL
í aðalstjórn ísals sitja tveir
pólitískt skipaðir fulltrúar og
fjórir af Alusuisse. Þeir eru
eingöngu karlmenn, en
æðstu stjórnendur fyrirtækis-
ins sjálfs eru forstjóri, tækni-
legur framkvæmdastjóri og
sex stjórndeildarstjorar. I
þeim hópi er ein kona, Rann-
veig Risl.
„Það er allt of lítið um að
konur sæki um störf hérna,"
sagði Rannveig Rist „Við höf-
um reyndar tekið það fram
sérstaklega að við óskum
ekki síður eftir konum, en
það hefur ekki haft áhrif sem
skyldi. Það er þó alltaf ein og
ein sem kemur svo að þetta
Valgeröur Sverrisdóttir al-
þingiamaöur aitur í aöalatjóm
Sambandains og aöalstjóm
KEA.
er að breytast, þótt hægt fari."
Rannveig byrjaði hjá fyrir-
tækinu fyrir rúmu ári, en hún
hóf störf sem stjórndeildar-
stjóri í september. Hún hefur
ákaflega fjölbreytilega
menntun; er vélvirki, vel-
stjóri, með MBA-gráðu í al-
þjóðaviðskiptum og verk-
fræðipróf frá Háskólanum.
Þurfa karlmennirnir svona
yfirgripsmikla menntun lil aö
komast til metorda hjá fyrir-
tœkinu?
„Þeir eru margir hverjir
mjög vel menntaðir hérna og
aðrir með minni menntun.
Umsækjendur eru ekki ein-
göngu metnir eftir menntun.
heldur færni." sagði Rann-
veig.
FRAMSÓKNARKONAí
TVENNUM SKILNINGI
í aðalstjórn Sambandsins,
þar sem konurnar eru tvær á
móti sjö karlmönnum, situr
Valgerdur Sverrisdóttir al-
þingismaður, en hún situr
einnig í aðalstjórn KEA. Síð-
an listi Frjálsrar verslunar yfir
stærstu íslensku fyrirtækin
var gerður hafa orðið skipu-
lagsbreytingar hjá Samband-
inu. Sambandið sjálft er nú
eignarhaldsfélag með um
fimmtán starfsmenn.
Hjá sex hlutafélögum Sam-
bandsins starfa 1.469 starfs-
menn, þar af 648 konur, og
eru forstjórar hlutafélaganna
allir karlmenn.
AÐRAR KONUR
Á VALDASTÓLI
Af öðrum konum í valda-
sessi við stjórn tíu stærstu fyr-
irtækjanna má nefna Rakel
Olsen, sem situr í aðaistjórn
Krístin Siguröardóttir er önn-
ur tveggja kvanru sam sitja i
bankaráöi Landsbankans.
Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, Kristjönu Millu
Thorsteinsson, sem situr í að-
alstjórn Flugleiða, Kristínu
Sigurdardóttur og Ragnheiöi
Sveinbjörnsdóttur, sem sitja í
Bankaráði Landsbankans.
Gudrídi Eiríksdóttur, sem sit-
ur í aðalstjórn KEA, Jónínu
Gísladóttur og Lilju og Ingi-
björgu Pálmadætur, sem sitja
í hluthafastjórn Hagkaups, og
Þórhöllu Snœþórsdóttur, sem
situr i aðalstjórn Sambands-
ins.
Konur í æðstu stjórnar-
störfum innan fyrirtækjanna
sjálfra eru mun fágætari, en
auk Rannveigar Rist, sem
nefnd var hér á undan, er
Svava Bernhöft innkaupa- og
útflutningsstjóri ÁTVR.
Það er því Ijóst, þrátt fyrir
ánægjulegar undantekning-
ar, að konur eiga langt í land
með að ná völdum i þjóðfé-
laginu. Gamla lumman um
allt sem konur þurfa að hafa
til brunns að bera, eigi þær
að hafa forgang. er enn í fullu
gildi._______________________
Þóra Kristin Ásgeirsdóttir