Pressan - 21.11.1991, Page 18

Pressan - 21.11.1991, Page 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. NÓVEMBER 1991 4 .VJNDIR OXINNI Þorvaldur Veigar Guðmundsson formaður læknaráðs Landspitalans — Hvers vegna viljið þið ekki nota stimpilklukku? „Stimpilklukkur veita ekki það aðhald sem sumir virðast halda. Spjald i rauf segir ekkert til um vinnuna, hvort þú ert að störfum eða að drekka kaffi. Þá telja margir læknar að starfið sé ekki 8 til 4-vinna, menn eru að taka með sér vanda- mál heim á kvöldin og um helgar." — Þúsundir laun- þega búa við stimp- ilklukku. Gætu þeir ekki margir haft uppi sömu röksemda- færsluna? „Ég býst við þvi, en það fer eftir eðli vinn- unnar. I dæmigerðri færibandavinnu getur stimpilklukka um leið verið vinnuskýrsla, en það er ekki hægt hér. Þá er ætlast til þess að við skilum vinnu- skýrslum auk þess að stimpla inn og spar- ast þá litið." — Er einhver slæm samviska á bak við tregðuna, er tjd. ótt- ast að launin dragist verulega saman? „Siður en svo. Yfir- vinna hefur ekki verið viðurkennd nema um bráöavakt sé að ræða og það hefur verið strikað yfir vinnu sem sannanlega hefur ver- ið unnin. Hjá sumum sem nota klukkuna hafa launin jafnvel hækkað. Þetta er fyrst og fremst prinsipp- mál. Við aðstæður á spitulum gæti stimp- ilklukka jafnvel auð- veldað misnotkun." — Á ekki vinnu- veitandinn að hafa valdið i þessum efn- um? „Við erum ekki á móti eftirliti og erum tilbúnir að taka á mál- um ef eitthvað er að. Þetta er bara ekki leiðin og það hefur ýtt undir óánægjuna hversu kynningin á þessu hefur verið slæm. Sambandið á milli stjórnenda og þeirra sem vinna hjá þeim er vandamál." Læknataó Landspitalans hefur bemt þvi til lækna spitals aó nota ekki stimpilklukkur aó svo komnu mali. þott stiomendur spitalans hah skipaó svo fynr Landsbankinn á Fáskrúðsfirði - eigendurnir höfðu leigt kvótann fyrir 1,2 milljónir Við uppboðsmedferð ú Stjörnunni SU-OOS. niu lonnu hút frú Fúskrúðsfirði, kom i Ijós uð uppboðsþolinn Sult- funif hf. ú Neskuupstað hufði selt bútinn 01} nýir eiyendur leiift '.!() tonn uf kuótunum til eins úrs. Hæstbjóðundi i bút- inn, Ijundsbunkinn ú Fú- skrúðsfirði, keypti búlinn ú uppboði fvrir 7.S milljónir krónu. Orfáum dögum fyrir annað og síðara uppboðið kom í Ijós að einstaklingarnir sem keyptu bátinn af Saltfangi. Vulur Þórurinsson og (iuð- rnundur Vulur Slefúnsson. höfðu leigt kvótann. Þeir leigðu 30 af 37 tonna kvóta bátsins í september til Pólar- síldar hf. á Fáskrúðsfirði. en Valur er starfsmaður fyrir- tækisins. Samkvæmt heim- ildum PRESSUNNAR var kvótinn leigður á 40 krónur kílóið eða á 1,2 milljónir sam- tals. Landsbankinn mun vera í nokkrum vanda staddur vegna þessa máls. Kvótaleig- an er lögleg samkvæmt kvótalögum og bankinn á ekki endurkröfurétt í leigu- upphæðina. Ekki er þó alveg víst að bankinn verði fyrir fjárhagslegu tjóni vegna málsins, því vonir standa til að fyrirtæki í bænum kaupi bátinn eða þá hreppurinn. sem á forkaupsrétt. Annars er viðbúið að bankinn verði að leita til dómstóla. en engin fordæmi eru (yrir máli af þessu tagi. ..Landsbankinn vissi af þessu og tók tillit til þess í til- boði sinu. Hann hafði engin mótmæli uppi. Staðreyndin er sú að við settum bátinn á uppboð. Kvótinn hafði minnkað úr 80 tonnum, sem við reiknuðum með, i 37 tonn og við gáfumst upp." sagði Valur í samtali við PRESS- UNA, en hann er hrepps- nefndarfulltrúi fyrir Alþýðu- bandalagið á Fáskrúðsfirði. PRESSAN ritaði sl. sumar um erfiðleika Saltfangs á Nes- kaupstað. Fyrirtækið fékk talsverða fyrirgreiðslu frá Landsbankanum. en einn eigenda, Höskuldur Guð- mundsson, hafði lýst því yfir að fyrirtækið yrði flaggskip einkaframtaksins í bænum, gagnvart Sildarvinnslunni og sósíalistum. Skömmu síðar sögðu tveir af þremur stjórn- armönnum sig úr stjórninni og Höskuldur sat einn eftir. Kvótinn af Stjörnunni SU 8 var framseldur. Það er ekki einsdæmi. Mjög mikið hefur verið um að kvóti af smábátum og trillum hafi verið seldur. Kvótasala hefur verið umdeild en sennilega sjaldan eins og í þessu tilfelli. Gjaldþrot Hótels Stefaníu Bústjóri krefst leigu eða fá innbúið afhent Hreinn Pálsson, bústjóri þrotubiis Hótels Stefuníu. setfir uð til tfreinu komi múls- höfðun vetfnu heimildur- luusrur notkunur Intfunnur Arnudóttur ú luusumunum sem tuldir eru eitfn þrotubús- ins. Intfunn tferði skömmu fyrir tfjuldþrot Hótels Stefuniu sumnintf við Stefán Sigurðs- son, eitfinmunn sinn otf eitf- undu hótelsins, um leitfu ú innbúi otf tækjum hótelsins. en þeirri rúðstöfun vur mót- rnælt. Krefst bústjóri þess uð fú leiifusfreiðslur fyrir riotkun- iriu eðu fú innbúið ufhent Hótel Stefanía var að kröfu Hreinn Pálsson er bústjóri í þrotabúi Hótels Stefaníu. Búnaðarbankans tekið til gjaldþrotaskipta 19. júlí. Skuldirnar reyndust 92 millj- ónir króna, en eignir taldar nema tj til 7 milljónum með hinum umdeildu tækjum. Bú- stjóri hefur að undanförnu kannað riftunarleiðir vegna tveggja leigusamninga frá hendi Stefáns til Ingunnar eiginkonu sinnar skömmu fyrir gjaldþrotsúrskurð. en eftir að beiðni bankans var lögð fram. Oþinglýstir papp- írar voru lagðir fram. þar sem Stefán leigir konu sinni ann- ars vegar reksturinn (Hótel Stefanía) og hins vegar fast- eignirnar. I þeim samningi sem fyrr var gerður var kveð- ið á um að innbúið og tækin yrðu eign þess hlutafélags hjónanna sem skráð hefur verið fyrir fasteignunum. Þær fasteignir keyptu Ferða- málasjóður og Byggðasjóður saman á uppboði í haust. ,,Það var ákveðið á skipta- fundi að leita eftir leigu- greiðslum vegna þessara ákveðnu eigna, enda niður- staðan sú að þrotabúið ætti þær. En á ágreininginn hefur ekki reynt í raun, því Ingunn hefur ekki svarað til um hvort til standi að greiða umbeðna leigu." sagði Hreinn. Hjalli Arnason er nybakadur heimsmeislari i kraftlyftinqum DEBET ..Hjalti er alveg gríðarlega duglegur að æfa og leggur mikið á sig til að ná árangri." segir Óskar Sigurpálsson hjá Æfingamiðstöðinni. ..Hann er einstakt góðmenni og glaðlyndur húmoristi og jákvæður við alla. Hann er ósér- hlífinn og duglegur við æfingarnar og jákvæður gagnvart æfingafélögum og samkeppnismönn- um," segir Valbjörn Jónsson, bakari og vin- ur. „Hjalti er vinur vina sinna og hreinskiptinn. Hann stundar æfingarnar sínar af samviskusemi og íþróttirnar eru látnar ganga fyrir í lífinu. Hann á gott með að koma fram og er ófeiminn. Hann er duglegur að tala fyrir hönd íþróttarinn- ar. ekki bara sjálfs sín." segir Ólafur Sigur- geirsson, fararstjóri á heimsmeistaramót- ió. „Hann er góður vinur. einlægur og góðhjart- aður. í íþróttum er hann mjög ákveðinn og ætlar sér stóra hluti. Margir höfðu ekki trú á að hann næði þessu takmarki en nú er hann búinn að sýna það og sanna." segir Eggert Bogason vin- ur. „Hjalti er prýðisdrengur, ákveðinn og áræð- inn og hikar ekki við að gera hlutina. Alltaf já- kvæður, hress og létt yfir honum. Hann er mikill stemmningsmaður á mótum og lyftir vel undir álagi og hvatningum," segir Stefán Hallgríms- son hjá Orkulind. Hjalti „Úrsus" Árnason heimsmeistari í kraftlyftingum KREDIT „Hjalti virkar stundum hrjúfur og rudda- legur því hann talar oft áður en hann hugs- ar. Hann er ekki illa innrættur og meinar oft ekki það sem hann segir, en það kemur bara þannig út,“ segir Oskar Sigurpálsson. „Hann er stundum fijótfœr og hættir til að vera óhóflega bjartsýnn og ætla sér of mik- ið,“ segir Valbjörn Jónsson. „Hjalti er svolítill göslari og maður verður stundum nervus um að hann klúðri móti. Hann vandar ekki nógu vel til hlutanna og getur verið fljót- fær," segir Olafur Sigurgeirsson. „Helsti galli hans er sá að það veður einum of mikið á kallinum. Hann hefur skoðun á öllu og sú skoðun er sú eina rétta," segir Eggert Boga- son. „Mér finnst hann hafa smitast of mikið af „body building" og finnst hann ætti að stunda kraftæfingaraar betur. Stundum er hann líka of kaldur við að taka grimmar æf- ingar rétt fyrir mót og of stuttar hvíldir á milli æfinga," segir Stefán Hallgrímsson.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.