Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 36

Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. APRÍL 1992 Haraldur Guðni Eiðsson er 19 ára nemi á eðlisfræðibraut Menntaskólans við Sund og fráfarandi gjaldkeri skólafé- lagsins. Hann er tvíburi, eins og helstu stórmenni sögunnar, og er á blýföstu. Er ekki hræðilega leiðinlegt að vera gjaldkeri skólafélags? .d'Jei, það er mjög gaman vægast sagt. Starfið felst í stjómun fé- lagslífs skólans og vinnu með góðu fólki." Altso, en hvað borðarðu í morgunmat? „Kókópöffs með AB-mjólk.“ Kanntu að elda? „Frekar lítið." Hefurðu látið lita á þér hárið? „Aldrei og mun aldrei gera.“ Hvar vildirðu helst búa ef þú ættir þess ekki kost að búa á íslandi? „í Færeyjum.“ Hvernig stelpur eru mest kynæsandi? „Þetta er erfið spurning. Þær þurfa að vera gæddar náttúrulegri fegurð." Hugsarðu mikið um það í hverju þú ert? „Það er mis- jafnt og fer eftir því í hvemig skapi ég er. Stundum hugsa ég mikið um það og stundum lítið en alltaf aðeins." Syngurðu í sturtu? „Ég syng oft í sturtu — hátt og snjallt." Hvaða rakspíra notarðu? „Gucci og Tzar.“ Trúirðu á ást við fyrstu sýn? „Já, ætli það ekki bara.“ Ertu daðrari? „Nei, það held ég ekki, ég er frekar léleg- ur í þeim efnurn." Hvað er þér verst við? „Stúdentspróf, ég sit og læri fyrir það nú'na alla daga.“ Hefurðu verið til vand- ræða drukkinn? „Ekki svo ég muni.“ Hefurðu áhuga á stjórn- málum? „Nei, eiginlega ekki.“ Hvort eiga karlar að ganga á undan eða eftir kon- um niður stiga? „Á eftir.“ Ferðu einn í bíó? „Nei, aldrei.“ Ég held að mannandskotarir séu alveg að gera útaf við mið- bæinn. Sjáið bara Tjamarbakk- ann eftir breytingamar. Hann er eitthvað svo óguðlega pempíu- legur. Og ef ég þekki þessa menn rétt þá eiga þeir eftir að láta þessa sterflu snyrtimennsku leggjast yftr allan bæinn þangað til það verður hvergi hægt að leita skjóls í hrörlegu umhverfi og niðumíddu þegar manni líður illa og vill ekki hitta prúðbúið fólk. Vera þar sem maður fær að vera í friði fyrir þessu fólki sem virðist ekkert hafa betra við tím- ann að gera en hlaupa á milli banka með innleggin sín. Og finnst gaman að því. Hluti af undirbúnings- hópnum: G.R. Lúövíks- son, Sigurgeir Orri, Arn- dls, Finnur Arnar og Halldór. Listahátíöin hefur I augnablikinu yfirskriftina Loftárás á Seyöisfjörö, þaö er dá- lítið langt mál aö út- skýra hvers vegna. VANTAR PÖNKSVEITIR OG VOND LJÓPSKÁLD Fyrir svosem hálfum mánuði mættu svosem sextíu og tveir borgarar, flestir frekar ungir, á fund í kjallara við Hafnarstrætið í Reykjavík. Þeir sýndu áhuga frarnkomnum hugmyndum um að halda listahátíð, og sam- þykktu að hún skyldi standa frá 13. júní fram í júnflok. En er ekki nóg að hafa eina listahátíð í Reykjavík, þessa með stóra L-inu? Það telja ekki að- standendur nýju listahátíðarinn- ar, þótt þeir taki reyndar sérstak- lega fram að þeirra hátið sé á engan hátt steftit gegn stóm lista- hátíðinni, né sé hún neins konar ádeila á hana. Þetta er semsé öðmvísi lista- hátíð þar sem allir mega vera með sem vilja. Og þegar hefur gefið sig fram vænn hópur af myundlistarmönnum og leikur- um, það er að myndast kjami sem ætlar aftur að halda fund í Djúpinu á sunnudaginn klukkan fimm. En að sögn hópsins, sem kannski má kalla eins konar ffamkvæmdanefnd, vantar enn- þá „pönksveitir, vond ljóðskáld, rithöfunda, fleiri myndlistar- menn og hannyrðakonur". Hugmyndin bak við hátíðina er að hafa allt sem lýðræðisleg- ast. Þau telja sig vera búin að finna húsnæði þar sem dagskrá verður í gangi svona íjögur til sjö kvöld í viku, en annars geta allir komist á blað — hvort sem þeir ætla að sýna i galleríi eða halda tónleika heima í bflskúmum hjá sér. Og kannski verður einhver hluti hátíðarinnar haldinn í Iðnó, ef Markús Öm leyfir, en hópur- inn segir eitt markmið hátíðar- innar vera að sanna hvflflc þörf sé á að breyta leikhúsinu gamla í fjöllistahús. En em þetta kannski lélegu listamennimir, þeir sem komast ekki að á fínu listahátíðinni? .JÞetta er bara annað fólk,“ er einfalt svar og ennfremur: „Það er kominn tími á nýja hreyfingu sem er þverskurður af því sem er að gerjast. Svoleiðis hreyfing hefur ekki orðið til héma í þrjátíu ár. í staðinn hefur fólk verið að paufast þetta hvað í sínu homi. Það er kominn tími til að sam- eina þessa homamenn.“ fyrr en undir miðjan maí, með lempni. Þar virðast þó saBmilegar horfur á að komast á Ég heiti Isbjörg, ég er Ijón eft- ir svosem tíu daga, fyrstu vikuna í maí. KLASSÍKIN • Kór Öldutúnsskóla. Egill Friöleifs- son er hugsjónamaður sem lengi hef- ur enst til aö fá skólaböm til að syngja af sérstæðum yndisþokka, og stórum betur en gengur og gerist í kórum þessarar tegundar. Kórinn hans Egils heldur vortónleika á sumardaginn fyrsta og þar verða kannski ekki Vor- vindar glaöir og Vorið góða grænt og hlýtt, ekki svo mjög, heldur tónlist sem spannar I tíma allt frá Palestrina til okk- ar daga. Vfölstabakirkja fim. kl. 17. PLATAN IAN McCULLOCH MYSTERIO McCulloch hefur ekki allt- af mætt velgengni eftir að hann hætti í Echo and the Bunnymen en fyrri sólóplata hans, „Candleland", var af- bragð og þessi er það líka. Stílhrein, góð lög og hreinar og beinar útsetningar. Fullt af „hit“-lögum eins og Die forLove, Honeydrip og Hea- vens’ Gate. Fær 8 af 10. • Blásarakvintett Reykjavíkur.Það er hátt til lofts og vítt til veggja í Lista- safni Islands, svo líklega fer vel á þvl að blása þar í lúöra. Það ætlar Blása- rakvintett Reykjavlkur að gera á sunnudaginn á tónleikum þar sem veröa flutt verk eftir Þorkel Sigur- bjömsson, Hindemith, Danzi og Leon Janacek. Listasa/n Islandssun. kl. 17. MYNDLIST • Telkningar Kjarvals. Sá guðdóm- legi ólíkindamaður Jóhannes Kjarval var eilíft að hantéra blýanta og blöö. Hann var teiknari af náðargáfu, alveg áreynslulaust aö þvl manni viröist tókst honum aö skissa svipmót ýmissa samtiöarmanna sinna, einkum öld- ungsfólks. Á þessari sýningu sem veröur opnuð á Kjarvalsstöðum um helgina eru teikningar sem spanna mestallt llfshlaup Kjarvals, andlits- myndirnar frægu, landslagsmyndir, fantasíur og skissur aö stórn freskunni í Landsbankanum. Og kvarti menn svo yfir því aö Kjarvalsstaðir sýni meistaranum ekki ræktarsemi. • Trú & auglýsingar. Þessi sýning I Galleríi 15 svarar svosem ekki þeirri spumingu hvort guö og kirkjan eigi aö auglýsa með allri tækni og hugviti nú- tímans, en hún sýnir býsna skemmti- lega hvernig slíkar auglýsingar gætu litiö út. Þarna hafa margir snjöllustu auglýsingateiknarar landsins, meðlim- ir I Fólagi íslenskra teiknara, lagt hönd á plóg og sumar auglýsingamar hafa ótvíræöan slagkraft, aörar skemmt- anagildi. Það fer svo eftir upplagi hvers og eins hvort hann litur framtak- ið jákvæðum augum, með mildri eða stórfelldri hneykslan. ROMAN- TÍ5KT PRÓ- CRAMM „Þetta er mjög rómant- ískt prógramm og af- skaplega fjölbreytt, allt frá argentínskum þjóð- lögum upp í bæn eftir franskt tónskáld upp- haflegá samið á hebr- esku. Síðan er flutt tónlist frá ýmsum skeiðum, allt upp í ffanska kaffihúsa- músík. Hér eru á ferðinni lög eftir suður-amerísk tónskáld, frönsk og þýsk og því mjög blönduð tónlist með klass- ísku yfirbragði," segir Signý Sæ- mundsdóttir sópr- ansöngkona. Laugardaginn 25. apríl heldur Signý tónleika í Gerðubergi sem eru þeir fimmtu og síðustu í Ljóða- tónleikaröð þessa vetrar. Þeir hefjast klukkan 17.00. Þessir síð- ustu ljóðatónleikar eru fluttir þrisvar, tvisvar í Gerðubergi, á laugardag og mánudagskvöld 27. apríl klukkan 20.30, og á Akranesi í Vinaminni miðviku- daginn 29. apríl á sama tfma. Pf- anóleikari á tónleikunum er Jón- as Ingimundarson. Signý, sem hefur stundað söngnám jafrit hérlendis sem og í Vínarborg, hefur sungið í upp- færslum fslensku óperunnar, komið fram með Sinfómuhljóm- sveit íslands og ýmsum kamm- erhópum. Tónleikaröðin í Gerðubergi er hljóðrituð og út- dráttur úr henni væntanlegur á geisladiski með vorinu. VIN5ÆLIR ÞUR5AR Mann rekur í rogastans þegar Hinn íslenski þursaflokkur er allt í einu orðinn vinsæll á ný, en ný- lega kom út geisladiskur með hljómsveitinni sem hefur afar snarlega komið sér fyrir í þriðja sæti íslenska vinsældalistans. Þeir einu sem hafa betur em heit- ustu númerin vestanhafs, Nir- vana og Red Hot Chilli Peppers. Afar merkilegt mál. „Þetta kemur mér mjög á óvart og ég hélt satt að segja að hún hefði farið þama inn á lista af skyldurækni,“ segir Egill Ólafsson, fyrr- um Þurs. „Hér áður fyrr var gjaman selt það upplag sem var prentað og því hef ég gmn um að hún hafi ver- ið ófáanleg í langan tíma. Vínýlplötur ganga úr sér og ég á von á því að gaml- ir aðdáendur flokksins hafi rokið til og tryggt sér eintak. Enga trú hef ég á því að það sé yngra fólk sem er að kaupa þetta, en gaman væri samt að vita hverjir þetta em.“ Þursaflokkurinn sótti hug- myndir í gamlan kveðskap og tónlist. „Þetta var skemmtilegur og sérkennilegur tími og við vor- um á skjön við tíðarandann. Þetta var þegar pönkið var að byrja... og að auki lentum við í diskóæðinu. Hljóm- sveitina dagaði því í raun uppi vegna þess að ekki var í nein hús að venda.“ Hildur Snjólaug Bmun dagskrárgerðarmaður hjá Ríkissjónvarpinu PRESSAN bað Hildi að velja gesti í draumakvöld- verðinn að þessu sinni. Margrét Ingólfsdóttir stórkokkur til að elda Atli Már Sigurðsson lögreglumaður sem veislustjóri Ágúst Guðmundsson til að skemmta fólki með frábærum gítarleik Hilmar °g Árni Einarssynir vegna þeirra elskulegu borðsiða dr. Gunnlaugur Þórð- arson ferðalangur og menning- arfrömuður frú Ragna Ragnars gleðigjafi Sara Ferguson til að ræða stöðu fjöl- skyldunnar Dagur Sigurðarson til að lesa fmmsamin Ijóð Dolly Parton til að syngja Q> ‘L'CUA'tWC’i' PINNER • Finnur Jónsson. Það eru síðustu forvöð, hún er að renna sitt skeiö þessi sýning sem er algjört möst. Af hverju er hún það? Vegna þess að hún kort- leggur skilmerkilega feril einhvers fyrsta íslenska nútímalistamannsins, vegna þess aö Finnur málaði fádæma góðar og fallegar myndir, vegna þess að sýningunni er sérstaklega vel fyrir komið í sölum Listasafns Islands, vegna þess að Finni hefur í raun ekki verið nægur gaumur gefinn. ÓKEYPIS • Blysför & tertur. Eöa þannig. Á sumardaginn fyrsta snýst allt um Hall- dór Laxness og Rithöfundasambandiö ætlar aö efna til blysfarar að Gljúfra- steini I tilefni stórafmælis. Þaö kostar varia neitt að slást í för og varia er svo- sem einn kyndill heldur óviðráðanlega dýr. Á laugardaginn geta þeir sem unna Laxness og lagkökum svo tekið upp á þvi aö birtast í Þjóðleikhúskjall- aranum. Þarverðaókeypis Hnallþóm- tertur, meðan birgðir erídast. • Húsin f bænum. Ekki aö kaupa, heldur aö skoða. Eins og bent var á í samantekt hér í PRESSUNNI fyrir hálfum mánuði er bærinn fullur af Ijót- um húsum, en líka fallegum húsum. Eftir hryllilega ofnotkun á steinsteypu frameftir síöasta áratug er þeim meira að segja fariö að fjölga; frekar léttum og glaðlegum húsum í póstmódern- ískum stíl. Ágætt að kíkja á þau, svona milli Perlunnar, Edens og Laugavegs- rúntsins. SJÓNVARP • Skáldiö á Gljúfrasteini. Varla hef- ur þaö farið framhjá neinum að Halldór 1 2 3 4 6 1 ‘ 7 8 9 10 ■ " ;; ■ 13 14 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 '45 1 46 47 ■ '* 49 ■ 50 51 ÞUNGA GÁTAN LÁRÉTT: 1 bleikjan 6 jötunsheiti 11 grandi 12 frillu 13 athugað 15 skári 17 beita 18 prófast 20 kvabb 21 riftun 23 stilla 24 lund 25 ota 17 karlmannsnafn 28 urguðu 29 þíðu 32 ílát 36 sofa 37 deila 39 skíri 40 gufu 41 ástæða 43 málrnur 44 smápjatla 46 fæða 48 nudduð 49 gleði 50 tálinu 51 sterkara LÓÐRÉTT: 1 hanga 2 nykur 3 skjögur 4 stétt 5 afkomandi 6 vana 7 hita 8 lána 9 tuskum 10 minnkaðir 14 kvenmannsnafn 16 glyma 19 herslustokks 22 skunda 24 eyra 26 hláku 27 ellegar 29 signa 30 þreytt 31 maðkinn 33 fögnuðinn 34 hlóðir 35 rugla 37 korninu 38 villigötur 41 götin 42 bátur 45 blási 47 jaka i

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.