Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 14

Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR PRCSSAN 23. APRIL 1992 FYRIMVER'M Á fjögurra ára fresti kjósa íslendingar sér fulltrúa til að sitja fyrir sína hönd á Alþingi. Máltækið segir að þjóðin fái þá stjórn sem hún á skilið en alltaf skal það samt vera svo að óánægjuraddir heyrast og á lesendasíðum dagblaðanna og í þjóðarsálum útvarpsstöðv- anna bölsótast almúginn og skammast út í þingmenn sína. Oft STMIDA^H MHHIIEHHIRHIR OKMRI^M heyrist þá sagt að þetta sé allt sami grautur í sömu og skál og það sé nú sami rassinn undir öllum þessum pólitíkusum. En þetta kýs þjóðin. Aftur og aftur. En hvernig eru þessir fulltrúar? Gefa þeir trúverðuga þverskurðarmynd af þjóðinni sem býr í land- inu? Hvar búa þeir? Hvernig bíla eiga þeir? Úr hvaða þjóðfélags- hópum koma þeir? Hverjir eru fjölskylduhagir þeirra? í síðustu kosningum átti óvenjumikil endumýjun sér stað í þingliðinu. Margir þeirra þing- manna sem verið höfðu á þingi mörg kjörtímabil hurfu til ann- arra starfa og ný andlit komu í þeirra stað. Hvorki fleiri né færri en 24 þingmenn tóku sæti á Al- þingi sem ekki höfðu setið þar áður. Það er þó samt ekki svo að al- þingismennimir séu gegnum- sneitt einhverjir nýgræðingar. Ekki aldeilis. Þeir 63 þingmenn sem nú sitja eiga að baki rúm- lega 460 ár sem þingmenn. Það samsvarar því að hver þingmað- ur hafi setið á þingi rétt ríflega sjöár. Samkvæmt þjóðskrá eiga 35 þingmenn heima í einbýli (rað- hús og parhús em hér talin sem einbýli), 18 búa í fjölbýli eða húsum sem í er meira en ein íbúð og tíu búa í sveit. Hér er miðað við lögheimili en ekki dvalar- stað. TVÆR KVENN ALIST A- KONUR f EINBÝLI Af 26 þingmönnum Sjálf- stæðisflokks búa 22 í einbýli. í fjölbýli búa því einungis 4 þingmenn flokksins, þau; Frið- rík Sophusson, SigríðurA. Þórð- ardóttir, Sturla Böðvarsson og Halldór Blöndal. Reyndar búa þeir Sturla og Halldór í tvíbýlis- húsum og því á mörkunum að um fjölbýli sé að ræða. í sveitasælunni eru Eggert Haukdal á Bergþórshvoli, Egill Jónsson á Seljavöllum og Pólmi Jónsson á Akri. Af kvennalistakonunum fimm búa tvær í einbýli, þær Anna Olafsdóttir Björnsson og Kristín Einarsdóttir. Kristín Ast- geirsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir búa hins vegar allar í fjölbýlishúsi. STEINGRÍMUR J. MEÐ LÖGHEIMILIHJÁ MÖMMU OG PABBA Alþýðuflokksþingmennirnir tíu skipta högum sínum þannig að fimm búa í einbýli, fjórir í fjölbýli og Gunnlaugur Stefáns- son á lögheimili í sveitinni, í Heydölum eystra. Jóhanna Sig- urðardóttir býr í blokk við Háa- leitisbraut, Karl Steinar Guðna- son er í fjölbýli á Heiðarbrún 8 í Keflavík og Sigbjörn Gunnars- son er búsettur í blokk á Akur- eyri en Ossur Skarphéðinsson býr á Vesturgötunni í Reykjavík. Sjö þingmenn Framsóknar- flokks búa í einbýli. Til að mynda er Steingrímur Her- mannsson á Amamesinu og Guðni Agústsson á Dælengi 18 á Selfossi. Þau Jóhannes Geir Sigur- geirsson, Jón Helgason, Olafur Þ. Þórðarson, Páll Pétursson og Valgerður Sverrisdóttir búa öll í sveitinni. Alþýðubandalagsmenn skipta jairít á milli einbýlis og fjölbýlis, fjórir búa í hvom. Ragnar Arn- alds er síðan í sveitasælunni á Mánaþúfu í Skagaftrði. Olafur Ragnar Grímsson býr í einbýli á Barðaströnd 5 Seltjam- Sjálfstæöismennirnir í lögfræöingaflokknum. Björn Bjarnason, Eini þingmaöurinn sem er læröur læknir er Árni Mathie- sen, aö vísu dýralæknir en læknir samt. Árni er um leiö yngsti þingmaöurinn, aöeins 34 ára. Hann er kvæntur en barnlaus. amesi, Kristinn H. Gunnarsson er á Hjallastræú 24 í Bolungar- vík og SteingrímurJ. Sigfiisson á reisulegt hús í Brekkuseli 19 í Reykjavík. Steingrímur á reynd- ar ekki lögheimili þar, heldur - af einhverjum ástæðum - heima hjá pabba og mömmu á Gunn- arsstöðum I í N-Þing. TÓLFEIGAEKKIBÍL Af þessum 63 fúlltrúum okkar á 51 bíl skráðan á sitt nafn. Ein- ungis tólf em ekki bfleigendur. Þeirra á meðal em ráðherramir Friðrik Sophusson, Jón Baldvin Hannibalsson og sjálfur sam- gönguráðherrann Halldór Blön- Eini þingmaöurinn sem á Lödu er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagnfræöingur og fyrrum blaðamaöur. dal. Vilhjálmur Egilsson á heldur ekki bfl og þá ekki Össur Skarp- héðinsson, sem reyndar er svo til nýbúinn að taka bflpróf. Þingmennimir 51 sem eiga bfla eiga þá af 19 tegundum, langflesta framleidda í Japan. 34 eiga bfla framleidda þar í landi. Vinsælustu tegundimar em Mitsubishi, Subam og Toyota, mu þingmenn keyra um á hverri tegund eða samtals 27 þing- menn. Einungis átta bflar em árgerð ’86 eða eldri. 43 bflar em fimm ára eða yngri og af þeim em 16 árgerð ’91. DAVÍÐ Á SPACE WAGON Eins og áður sagði eiga þrír Þrátt fyrir aö Össur Skarp- héöinsson sé svo til nýbúinn aö taka bílprófið finnst eng- inn bíll skráöur á hans nafn. Össur er yngstur þingmanna Alþýöuflokks, 39 ára. ráðherrar ekki bíl en þá em sjö eftir. Davíð Oddsson á Mitsubis- hi Space Wagon árgerð ’91. Eið- ur Guðnason á lítinn og penan jeppa af Daihatsu Rocky-gerð, sömuleiðis árgerð ’91. Jóhanna Sigurðardóttir á Nissan Sunny ’91-módel en Jón Sigurðsson á aftur á mód Chevrolet Monsa ár- gerð ’88. Ólafur G. Einarsson á Mitsu- bishi Lancer árgerð ’90. Sighvat- ur Björg\’insson leitar dl frænda vorra Svía eftir fararskjóta og ek- ur um á Volvo 960 árgerð ’91 og Þorsteinn Pálsson er á Ford Explorer og að sjálfsögðu árgerð ’91. Bflafloti ráðherranna er því ekki slorlegur. Allt saman nokk- Halldór Blöndal samgöngu- ráöherra er ekki skráöur fyrir neinu samgöngutæki. um veginn splunkunýir bflar. nema kannski Monsan hans Jóns sem orðin er fjögurra ára. En slíkur bfll þætti ekki amalegur á mörgum bæjum. GUÐRÚN HELGA Á ELSTA BÍLINN Margir þingmanna eiga dýra og veglega bfla. Egill Jónsson og Guðmundur Bjarnason eiga Ford Explorer eins og Þorsteinn, meira að segja sama módel. Jón Helgason á Toyota Landcmiser árgerð ’90, Steingrímur Her- mannsson á Toyota Four Runner árgerð ’91 og Sturía Böðvarsson ekur um á Mitsubishi Pajero ár- gerð ’91. Eggert Haukdal og Steingrím- ur J. eiga Subam Legacy árgerð ’91. Matti Bjama er á Range Ro- Davíö Oddsson, Eyjólfur Konráö Jónsson, Friörik Sophusson, Ólafur G. Einarsson og Þorsteinn Pálsson.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.