Pressan


Pressan - 10.09.1992, Qupperneq 14

Pressan - 10.09.1992, Qupperneq 14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992 Botnfiskskvótinn 1990 til 1992 Tuttugu kvótahæstu fyrirtækin hafa með sam- einingu og kvótakaupum aukið hlutdeild sína í heildarkvótanum úr 32 í 41 prósent. Botnfisks- kvótinn hefur minnkað um fjórðung á tveimur árum, en á sama tíma hefur gangverðið á var- anlegum kvóta hækkað um 60 prósent. Þannig hefur kvótaeign fyrirtækjanna Granda, Út- gerðarfélags Akureyringa, Sam- herja og Skagstrendings aukist að raunvirði um alls 2,3 millj- arða þótt sömu fyrirtæki hafi nú til samans misst 2.600 tonn frá því fyrir tveimur árum. Þrjátíu kvótahæstu sjávarút- vegsfyrirtæki landsins, að með- töldum tilfallandi dótturfyrirtækj- um, eru nú handhafar helmings af öllum botnfiskskvóta þjóðarinn- ar. Þessi þrjátíu fyrirtæki hafa fengið úthlutað liðlega 152 þús- undum tonna af 305 þúsunda tonna heildarkvóta botnfisksteg- unda. Nú er talað um að gangverð á varanlegum kvóta sé 190 krónur fyrir kílóið og hugsanlegt verð- mæti kvóta fyrirtækjanna þrjátíu því um 29 milljarðar króna. Á sama hátt kemur í ljós að hlut- deild tuttugu kvótahæstu fyrir- tækjanna er nú 41 prósent, var „aðeins“ 32,4 prósent fyrir tveim- ur árum, og hlutdeild hinna tíu stærstu er 27,9 prósent á móti 22 prósentum í upphafi veiðitíma- bilsins haustið 1990. SAMÞJÖPPUN VEGNA SAM- EININGAR OG KVÓTA- KAUPA Meginskýringin á þessari sam- þjöppun er að fyrirtæki landsins hafa í auknum mæli sameinast, eins og dæmin sýna hvað best í Vestmannaeyjum, Akranesi og Þorlákshöfn/Stokkseyri. En kvótakaup spila hér einnig inn í, til að mynda í tilfelli Samherja. I Vestmannaeyjum urðu þannig til tveir risar við sameiningu alls tíu stórra og smárra rekstraraðila. Frá því fyrir tveimur árum hef- ur úthlutaður heildarkvóti botn- fiskstegunda dregist saman úr 405.000 tonnum niður í 305.000 tonn eða um fjórðung. Reyndar var úthlutaður kvóti 1990 um 364 þúsund tonn, en þá voru smábát- ar ekki inni í dæminu og hefur áætlaðri veiði þeirra frá þeim tíma verið bætt við í samanburðinum, um 40 þúsundum tonna. Kvótasamdrátturinn hefur þó komið misjafnlega niður á ein- stökum fyrirtækjum. Sum hafa brugðist við með sameiningu og annarri hagræðingu, önnur hafa keypt kvóta og enn önnur misst kvóta umfram skerðingu stjórn- valda. En þótt kvótinn hafi al- mennt dregist saman þýðir það ekki að verðmætin í höndunum á fýrirtækjunum hafi rýrnað. Þvert á móti hefur minna framboð af veiðiheimildum leitt til verðhækk- unar á kvóta langt umfram beina skerðingu. Á þessum tveimur ár- um hefur gangverð á þorskígildi hækkað úr 120 krónum í 190 krónur eða um nær 60 prósent. Tökum nokkur dæmi af því hvað þetta þýðir fyrir einstök fyrirtæki. SKERÐINGIN JÓK VERÐ- MÆTIKVÓTA GRANDA UM HÁLFAN MILLJARÐ í september 1990 var gangverð á kvóta 120 krónur kílóið. Þá var kvóti Granda 17.184 tonn og virði hans 2.060 milljónir. Framreiknað samsvarar það 2.265 milljónum. Nú er kvóti Granda 14.821 tonn. Hann hefur því dregist saman um 2.363 tonn eða 13,8 prósent. Á hinn bóginn er nú talað um að gangverð á kvóta sé 190 krónur kílóið. Hinn skerti kvóti Granda er samkvæmt þessu um 2.815 millj- óna króna virði. Kvóti Granda hefur því þrátt fyrir samdrátt auk- ist að raunvirði um 550 milljónir króna eða um 24,3 prósent. Inni í eldri tölunum er viðbótin þegar Hraðfrystistöðin í Reykjavík sameinaðist Granda. Stærstu eig- endur Granda nú eru Hvalur hf, 36%, Hraðfrystistöðin, 17%, Hampiðjan, 15%, Ingvar Vil- hjálmsson hf., 9%, Sjóvá-Almenn- ar, 6%, og OLÍS með 5%. Á sama hátt hefur verðmæti kvóta Útgerðarfélags Akureyringa hækkað um 510 milljónir eða 24 prósent, þótt úthlutaður kvóti hafi minnkað um nær 14 prósent. ÚA er að 66,1% leyti í eigu Akureyrar- bæjar, 9% í eigu KEA, 7% í eigu Slippstöðvarinnar, 5,4% í eigu Hampiðjunnar og Verkalýðsfélag- ið Eining og Sjómannafélag Akur- eyrar eiga samtals 3,2%. SAMHERJI: ENGIN SKERÐ- ING OG 800 MILLJÓNA BÚ- BÓT Mest hefur þó verðmætaaukn- ingin orðið hjá ffændunum í Sam- herja. Þrátt fyrir almennan sam- drátt hafa Samherja- frændurnir bætt við sig kvóta, eitt örfárra fyr- irtækja sem svo hafa gert án stór- felldrar sameiningar, sem sé með kvótakaupum. Kvóti Samherja var 8.577 tonn 1990. Miðað við framreiknað gangverð þess tíma samsvarar þetta 1.130 milljónum króna. Nú er Samherji aftur á móti með 10.100 tonn og miðað 20 KVÓTAHÆSTU FYRIRTÆKILANDSINS í. Grandi (17.184) 2.815 +550 2. ÚtgerðarfélagAkureyringa... 13.860 (16.101) 2.635 +510 3. Samherji ....ÍO.IOO (8-577) 1.920 +790 4. Vinnslustöðin 7-995 (10.026) 1.520 +200 5. Haraldur Böðvarsson 7.878 (8.942) 1.500 +320 6. ísfélag Vestmannaeyja 7-589 (10.839) 1.440 4*10 7. Skagstrendingur 7-056 (6.622) 1.340 +465 8. Síldarvinnslan 5-459 (6.867) 1.040 +135 9. Ögurvík 5.240 (6.424) 995 +145 10. Saeberg 5069 (6.387) 965 +120 11. Borgey/Samstaða/Hrísey 4-440 (4-673) 845 +230 12. Skagfirðingur 4-401 (5.681) 835 +85 13. Miðnes 4-352 (5-366) 825 +115 14. Ámes 4-149 (5-474) 790 +65 15. Þormóðurrammi 3-972 (5-197) 755 +70 16. Hrönn [Guðbjörg] --3-945 (4.241) 750 +190 17. Þorbjöm 3-927 (4-419) 745 +160 18. Útgerðarfélag Dalvíkinga 3.810 (3-879) 725 4-215 19. EinarGuðfinnsson 3-48i (5-554) 660 -75 20. Stálskip 3-461 (3-890) 660 +145 Verðmætatölureru i milljónum króna á núvirði.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.