Pressan - 10.09.1992, Síða 32
32
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992
„Sniðugt hjá þér að taka viðtal
við Sigurð Sverri. Mér finnst hann
með fallegri karlmönnum á ís-
landi, bæði karlmannlegur og svo
hefur hann þennan innri spiritúal
kraft,“ sagði ung kona við mig á
dögunum. Sigurður Sverrir Páls-
son hefúr ekki verið mikið í sviðs-
ljósinu, er oftast bak við kvik-
myndatökuvél eða á klippiborði.
Hann rekur kvikmyndagerðina
Lifandi myndir, ásamt félögum
sínum, og hefur mest gert heim-
ildamyndir, síðast Verstöðina fs-
land sem sýnd var við metaðsókn
í vor. Hjá Lifandi myndum taka
þeir allt á filmu meðan aðrir taka á
vídeó og það er sagt að þeir kunni
ekki á vídeó. Sigurði Sverri fannst
þetta mikið hrós. Fyrsta íslenska
bíómyndin sem hann tók var
Land og synir og nú síðast Sód-
óma-Reykjavík eftir Óskar Jónas-
son.
TILFINNING í HANDRITI
Um hvað snýst kvikmynda-
taka?
„Kvikmyndataka snýst um að
leysa vandamál. Þegar ég fæ
handrit í hendur loka ég mig af,
les handritið og reyni að fá tilfinn-
ingu fyrir því og ná ákveðnum
grunntón sem fylgir mér frá upp-
hafi og hefur áhrif á hvernig ég
nálgast verkið. Ég var með þeim
fyrstu sem fóru í kvikmyndatöku
sem sérfag. Þetta var spennandi.
Ég lá í bíó einsog aðrir krakkar, en
námið var fúllkomlega óraunhæft
á sínum tíma. Ég var í klippingum
hjá Sjónvarpinu og seinna f tökum
og stjórn upptöku. Eftir fjögur ár
fannst mér ég vera staðnaður í
færibandaframleiðslu og fram-
leiddi eftir pöntun. Það var engin
sköpun. Ég óskaði eftir að komast
í ársleyfi tíl að endurmennta mig
og fá nýjar hugmyndir en yfir-
maður minn varð ekki við þeirri
ósk og þá hætti ég bara. Ég valdi
kvikmyndatöku því ég botnaði
minnst í henni. Mér fannst ég
skilja allt annað, sem var mis-
skilningur. Ég skildi það seinna.
Maður er að læra þetta svo lengi
sem maður lifir. Það er kostur. Þá
staðnar maður ekki. Ég tek gam-
anmynd öðruvsi en drama t.d. út
ffá lýsingu. Þótt Sódóma sé undir-
heimamynd er hún gamanmynd
svo ég lýsi hana upp.“
GAMANSAMIR UNDIR-
HEIMAR
Ertu þá að lýsa upp undir-
heitnana?
„Þetta eru gamansamir undir-
heimar. Ég held að Sódóma gefi
ekki innsýn í hina eiginlegu und-
irheima í Reykjavík, sem hljóta að
vera harðari. Viðkvæðið hjá okk-
ur Óskari var: „Þetta er bara gam-
anmynd.“ Við leyfðum okkur alls-
kyns hluti í hreyfingu vélarinnar,
gáfúm okkur frelsi og nutum þess
að búa til gamanmynd. Samstarf-
ið við Óskar gat ekki verið betra.
Hann er mjög þægilegur og hefúr
ferskar hugmyndir. fslenskir kvik-
myndatökumenn hafa átt undir
högg að sækja. Þegar myndir hafa
verið fjármagnaðar erlendis frá
hefur venjulega verið sett fram
krafa um einn mann, kvikmynda-
tökumanninn, sem er næstæðstur
á eftir leikstjóra. Óskar var með
skólafélaga sinfi, Breta, á umsókn
til Kvikmyndasjóðs en fékk ekki
leyfi fyrir honum því Bretar voru
ekki með fjármagn í Sódómu. Ég
held að Óskar hafi ekki áttað sig á
þessu en hann tók því með karl-
mennsku að þurfa að skipta um
mann. Það er mikilvægt að ís-
lenskir tökumenn geti sýnt land
og þjóð með sínum hætti.“
LOFTRÆSTISTOKKAR,
GULLFISKAR OG FLÓÐ
Hvernig tilfinning var að lesa
handrit Sódómu?
„Bara gaman. Eitthvað
skemmtilegt. Mér fannst að ef
okkur tækist að halda í andann í
handritinu yrði þetta skemmtileg
mynd. Það voru ýmis vandamál
fýrir mig að leysa einsog flóð í Ell-
iðaánum, svo átti að steypa gull-
fiskum oní klósett og myndavélin
að elta þá eftir klóakinu útí sjó.
Við notuðum lokaða vatnsrenni-
braut, hentum vélinni niður í lok-
aðri tunnu ýmist með manni eða
án. Þegar gullfiskunum var steypt
niður hengdum við myndavélina í
snæri og létum hana snúast á
fleygiferð. Það tók nokkra daga og
útheimti milda hugsun en svo fór
að lokum að gullfiskaatriðmu var
sleppt. Svo brýst leikari inn bak-
dyramegin í Sódómu að bjarga
stúlku sem er þar í haldi, fer inní
loftræstistokka og það kostaði
heilabrot að fylgja honum eftir og
lýsa. Elliðaárnar eru hinsvegar
leyndarmál, menn geta spáð í það
en það var erfitt að fá leyfi fyrir
flóði. Ég sagði við Óskar eftir
fyrstu vikuna að ég hefði lært
meira á viku en á mörgum árum.
Mér finnst það heillandi. Óskar
hefúr sérstakan húmor sem skilar
sér, húmor sem er hefðbundinn
og óhefðbundinn í senn, kemur á
óvart. Óskar er myndlistarskóla-
genginn, sem er kostur, hefur
ákveðnar skoðanir á uppbyggingu
mynda og það var alltaf skemmti-
legt að heyra athugasemdir hans.“
KLIPPING ER HJARTA
KVIKMYNDAGERÐAR
„Kvikmyndataka er bara eitt af
því sem ég hef verið að vrnna við.
Stór hluti fer í undirbúning og síð-
an klippingu og hljóðsetningu. Sá
tími sem maður er í tökum er því
miður alltof stuttur. Maður lærir
mikið um kvikmyndatöku við að
klippa. Klipping er hjarta kvik-
myndagerðarinnar. Ég get líkt því
við myndhöggvara sem sækir sér
stein tíl að höggva í. Allt annað er
hráefni en klippingin mótar og
meitlar verkið. Það verður að taka
mynd þannig að hún passi í klipp-
ingu. Tökumaður þyldr yfirleitt of
náinn eigin verki tíl að klippa það.
Ég er tiltölulega laus við þetta því
fyrir mér öðlast verkið sjálfstætt líf
í klippiborðinu og góðar tökur
geta orðið slæmar og öfugt. Góð
klipping og góð kvikmyndataka
eru nokkuð sem þú tekur ekki eft-
ir. Góð kvikmyndataka þjónar
verkinu og er ósýnileg. Þetta er
skoðun sem hefur ekki breyst hjá
mér gegnum árin og ég hef reynt
að hafa að leiðarljósi. Þetta er
varla tækni sem hægt er að læra,
frekar tilfinning sem er meðfædd
og þróast með reynslu. Kvik-
myndatakan má aldrei trana sér
fram. Ég á erfitt með að þola
myndir þar sem t.d. maður kemur
inní herbergi og myndavélin er
uppí lampaskermi eða ef maður
opnar ísskáp og þú horfir á hann
innanúr ísskápnum. Þetta er ekki
frumlegt, það bara truflar og
menn nota stundum svona trix tO
að fela að þeir hafa ekkert að
segja. Svo getur verið að það þjóni
sögunni og þá er það í lagi. Það er
alltaf að koma ný tækni og margir
í þessum bransa eru mikil tækni-
frík en sagan skiptir höfuðmáli
þegar öllu er á botninn hvolft.“
HUNDRAÐ OG EITTHVAÐ
SÖGUR
„Sagan verður að halda áhorf-
anda föngnum og það má aldrei
leggja of mikið uppúr tækni á
kostnað hennar. Það er auðvitað
alltaf verið að segja sömu sögum-
ar. Mér skilst að góður maður hafi
reiknað út að það séu u.þ.b. 116
sögur sem verið er að segja, með
ýmsum blæbrigðum. Yfirleitt
veistu hvernig mynd endar og
sjaldgæft að maður fái nýjan flöt á
söguna. Annaðhvort eru bíó-
myndir góðar eða vondar, að
flokka þær í gamanmyndir eða
dramatískar er bara fyrir sérfræð-
inga. Stundum ertu í skapi til að
horfa á góða dramatíska mynd og
stundum gamanmynd. Það hefúr
viljað loða við að dramatískar
myndir séu álitnar merkilegri,
meiri list. Þá erum við komin út á
hálan ís, hvað er list? List er
kannski það sem hittír þig í hjart-
að.“
Áttu uppáhaldsbíómyndir
eða kvikmyndatökumenn?
„Það er alltaf að breytast. Ég var
hrifinn af Vitninu, góð saga og vel
kvikmynduð. John Seale sá um
tökuna. Skrítið að þegar ég sá
Regnmanninn hreif myndatakan
strax og það kom í Ijós að þar var
Seale að verki. Sven Nykvist hefúr
sagt að fólk tali um að það þekki
myndir hans á fyrstu sekúndum.“
Áttarþú þig á þínum stíl?
„Nei, en kannski aðrir geri það.
Það hefur mótað mig að ég hef
nánast ekkert verið í auglýsingum
en mikið í heimildamyndum. Það
hefúr áhrif, allt önnur hugsun, svo
kannski er ég ekki nógu uppá-
tækjasamur. Ég reyni að gagnrýna
mig í botn, maður getur alltaf gert
miklu betur. En ég er hlynntur því
að það verði gerðar fleiri myndir
einsog Veggfóður og Sódóma, þar
er um íslenskan nútímaveruleika
að ræða og kostnaði haldið í lág-
marki. Við sáum á Börnum nátt-
úrunnar að umheimurinn hefur
áhuga á alíslenskum veruleika."
BÍÓMYNDIR VERÐUR AÐ
SÝNAÍBÍÓ
Er til islenskur veruleiki?
„Eftir því sem flæðir inn meira
af erlendum áhrifum því meira
virði er að halda í þjóðareinkenni.
Ég vísa þeirri ábyrgð til íslenskra
rithöfúnda og þeirra sem skrifa að
hafa uppi á þessum veruleika ef
hann er til.“
Nú er mikið talað um of-
neyslu myndefhis.
„Ég er sammála því að hún sé
of mikil þótt það sé paradox af
manni í mínu starfi. Ég er jafnsek-
ur og aðrir að vera of latur að
horfa á myndir í bíó. Versta við
sjónvarp er að það sýnir bíó-
myndir. Þær á að sýna á tjaldi.
Bíómynd verður afmynduð, ljót
og þú sérð ekki nema hluta henn-
ar í sjónvarpi. Sjónvarp er fiínt fyr-
ir fréttir og fræðsluþætti. Það er
vísindalega sannað að það hefúr
ólík áhrif á heilann eftir því hvort
þú horfir á mynd á tjaldi eða í
sjónvarpi. Þú horfir á ljós og
skugga á tjaldi sem virkar á hægra
heilahvelið þar sem tilfinningalíf-
ið, ímyndunaraflið, rytmi og
hlustun eiga aðsetur en í sjónvarpi
horfir þú á elektróníska mynd
sem virkar á vinstra heilahvelið og
þar með rökhyggjuna. Það er
kannski hluti af því hversvegna
Verstöðm fsland varð svo vinsæl.
Það er sjaldgæft að fólk sjái heún-
ildamyndir í bíó. Okkur hjá Lif-
PRESSAN/JIM SMART
andi myndum langar líka að gera
mynd um róður í gamla daga.
Menn sátu á sömu þóftunni allan
dagin'n eða lengur og ekkert nema
himinn og haf.“
PERSÓNULEG SÝN ER MIK-
ILVÆG
Finnst þér gaman að gera
heimildamyndir?
„Já, mjög spennandi. Það eru til
margar tegundir af heimilda-
myndum. Það má endurskapa
gamla tímann en mér finnst ekki
síður áríðandi að gera heimilda-
myndir um nútímann. Eftir að
Sjónvarpið byrjaði með Kastljós
og fréttaskýringaþætti er ekkert
lengur um það að kvikmynda-
gerðarmenn geri eigin slíka þætti
þar sem persónuleg sýn kemur í
ljós og eftirsjá að því. Það kallar á
meiri skoðanaskiptí. Hitt er möt-
un. Það er einsog maður megi
ekki hafa eina skoðun í dag og
aðra á morgun. Það verður að
núlla allt út jafnóðum. Mér finnst
að Sjónvarpið eigi ekki að fram-
leiða neitt nema fréttír. Ég hef líka
áhyggjur af því að nánast allt
heimildaefni er tekið upp á vídeó.
í því hágæðasjónvarpi sem er
væntanlegt verður ekki hægt að
sýna þetta efni. Hinsvegar ef tekið
er á filmu skilar það fúllum mynd-
gæðum. Þetta sjá aðrar þjóðir og
eru að vinna margt aftur á filmu.
Hér er þetta viðkvæmt og má ekki
tala um það. Ég hef áhyggjur af
því að enginn annar hefiir áhyggj-
ur af þessu.“
Hvað ertu að gera þegar þú
ert ekki í vinnunni?
„Ég hef voðalega gaman af
mörgu en fyrirtækið tekur mikinn
tíma. Ég á þrjú uppkomin börn og
konan mín hefur haft meira af
uppeldi þeirra að segja. Að vera í
tökum er svipað og að vera á tog-
ara; ég rétt kemst heim, í sturtu,
sef og upp affur. Þótt komi ftídag-
ur er ég að hugsa um verkið. Eg
hef gaman af því að smíða og
halda við húsinu og lesa góða bók
ef ég hef tíma.“______________
Elisabet Jökulsdóttii