Pressan - 10.09.1992, Side 34
34
i
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. SEPTEMBER 1992
POPP
F I IVI IVl T U D A G UR
kemur fram í
^^WBfyrsta sinn í langan tíma,
það ígamla Hressing-
Jk^^Parskálanum. Þeir í Ham
æti^^era í miklum ham í kvöld og
flytja með öðru efni lögin úr væntan-
legri mynd Óskars Jónassonar, Só-
dómu Reykjavík, sem unglingar og
annað fólk bíða óþreyjufull eftir.
•Gildran með Gipsy Kings-lagið
Chicas á Púlsinum í kvöld en það
trónir á toppnum á vinsældalistum.
Góð barbabrella hjá Gildrunni.
•Hiti er samsuða, sprottin upp úr
ekki ómerkari sveitum en Vonbrigð-
um, Með nöktum, Nefrennsli, Hinni
konunglegu flugeldarokksveit og
Leiksviði fáránleikans. Hana skipa Alli,
Ágúst, Harry og Jói. Von er á geisla-
diski með þessari hljómsveit með
fortíð sem mun spila á Púlsinum.
•Bubbi Morthens loks mættur eft-
ir nokkurt hlé og flytur nú úr smiðju
sinni lög af væntanlegri plötu, þar
sem kúbverskir tónlistarmenn koma
einnig við sögu. Bubbi treður upp á
Tveimur vinum, staðnum þar sem
;allir kyrja karaoke daginn út og dag-
^inn inn.
•Svartur pipar er í júróvisjón-stuði
allan ársins hring enda söngvari
sveitarinnar, Gylfi Már Hilmisson, sá
er skipaði 10. sætið í undankeppni
júróvisjónsöngvakeppninnar síðast
er hún var haldin hér á landi. Félagar
hans eru Margrét Eir Hjartardóttir, Ari
Einarsson og Ari Daníelsson, Veigar
Margeirsson, Jón Birgir Loftsson og
Hafsteinn Valgarðsson. Hafnfirðingar
láta sérlega vel af þessari hljómsveit,
enda stoltir af öllu sem hafnfirskt er.
Þeir verða á Gauk á Stöng.
• Rokkvalsinn er þriggja manna
stormsveit með allsérstakri hljóð-
færaskipan. Þar ber fyrsta að nefna
rafmagnsharmónikkuna sem er sú
eina sinnar tegundar hér á landi.
Hana plokkar Jóhann Ingi. Hin hljóð-
færin eru kassagítar og rafmagnsgít-
ar en það eru þeir Sigurður og Heim-
ir sem spila á þá. Rokkvalsinn leikur á
Café Amsterdam.
•Guðmundur Rúnar, hinn ágæti
trúbador, leikur fyrir gesti Fógetans
og það sem meira er; hann fær til liðs
við sig kontrabassaleikara úr Sinfón-
íuhljómsveit íslands sem sýnir á sér
nýja hlið með því að leika á þvotta-
bretti og ár.
•Tveir Logar frá Vestmannaeyjum
eru þeir Hermann Ingi, söngvari og
gítarmaður, og Guðlaugur hljóm-
borðsmaður. Þeir syngja meðal ann-
ars gömul Eyjalög. „Þið þekktuð
þennan mann..."
FÖSTUDAGUR
•Silfurtónar, mennirnir með hvítu
tennurnar og breiða brosið, flytja lög
með Bee Gees og öðrum álíka yndis-
fríðum grúppum. Kynnir verður að
vanda leikarinn góðkunni Ari Matt.
•Límonaði er ný gleðisveit sem lít-
ur dagsins Ijós á Hressó á föstudags-
kvöldið. Þetta er ný tegund svala-
drykkjar sem hellist í eyru lands-
manna. Hljómsveitina skipa menn
eins og Diddi krani, Hrannar sóda-
vatn og söngvarinn Jón F. Atli og
Gulli gringó. Límonaði mun leggja
sig í líma við að skemmta gestum
Hressingarskálans.
•Pops er unglingasveit sem skipaði
sér í hóp vinsælustu hljómsveita ís-
lands fyrir einum 25 árum þegar hún
kom úr æfingabúðum Verðlistans og
fór að kyrja gargandi sjúkheitapopp.
Pops heldur tímamótatónleika á
Hótel íslandi og rifjar væntanlega
upp lög eins og Born to be wild og
Wild thing. Pétur Kristjáns fer þar
fremstur í flokki en aðrir eru þeir
Björgvin Gíslason, Birgir Hrafnsson,
Olafur Sigurðsson og Óttar Felix
Hauksson ryþmagítarleikari. Óvæntir
afmælisgestir þetta sama kvöld með
enn eitt kombakkið; félagarnir Magn-
ús og Jóhann.
•Testimony Soui band Co. flytur
soul-tónlist á soulkvöldi Púlsins. 85%
af efni hljómsveitarinnar eru soul-
tónlist í anda Percy Sledge, Wilson
Picket, Sam og Dave, Arethu Franklin
og Tinu Turner. Sveitin vakti athygli á
afmæli Hard Rock Café fyrir hreint
ágætan flutning. Sumir segja soul-
tónlist inni í dag en aðrir eru á önd-
verðum meiði. Hljómsveitina skipa
Gunnar 'Þór Eggertsson gítargrillari,
Stefán Henrýsson hljómborðspotari,
Benedikt ívarsson bassabelja og Hel-
ena Káradóttir og Ingibjörg Erlings-
dóttir standa baksviðs og syngja.
Leikarinn Richard Todd Licea er
söngmaður, sviðsmaður og
skemmtikraftur.
•Svartur pipar og hinir Hafnfirð-
ingarnir enn á Gauknum.
•Rokkvalsinn, hin rafmagnaða gít-
ar- og harmónikkusveit, atfur og ný-
búin á Café Amsterdam.
•Guðmundur Rúnar trúbadpr aft-
ur á Fógetanum en nú án hins sin-
fóníska þvottabrettisleikara.
• Hermann Ingi heldur að öllum
líkindum uppi rífandi stemmningu á
Feita dvergnum sem fyrri daginn. Þá
er leyfilegt að aansa uppi á borðum,
enda borðin sérsmíðuð fyrir villta
dansa.
•Tveir Logar með Eyjastemmn-
ingu á Rauða Ijóninu.
LAUGARDAGUR
•Magnús og Jóhann og Snigla-
bandið leika allir saman nú, einn,
tveir, þrír. Og þeir ætla að endurtaka
sig enn einu sinni á Púlsinum með
nýjum stuðlögum. Sérstakur gestur
kvöldsins verður söngkonan Rut
Reginalds, sem mun sjálfsagt hjálpa
félögum sínum að meikaða' gegn-
um nóttina með laginu „Help me
make it through the night".
•Todmobile, eða Andrea, Eyþór og
Þorvaldur Bjarni ásamt hinum feiki-
góða píanóleikara Kjartani Valdimars-
syni, leikur á Tveimur vinum í kvöld.
Góð hljómsveit með fögrum píanó-
leikara.
•Svartur pipar með Gylfa Má og
Margréti Eir í broddi fylkingar á loka-
kvöldinu sínu á Gauk á Stöng. Hafn-
firðingapopp.
•Rokkvalsinn aftur á Café Amster-
dam. Þess virði að heyra hvemig raf-
magnsnikkan virkar.
•Bogomil Font og Milljónamær-
ingarnir eru mikið fyrir augað en
þeir hafa líka þann kost að vera mikið
eyrnavndi, sem er afar sjaldgæft. Þeir
eru aftur komnirtil höfuðborgarinnar
eftir Patreksfjarðarferð og leika á
Hressó í kvöld og taka væntanlega
góða mjaðmahnykki í anda Elvis og
Franks Sinatra.
•Guðmundur Rúnar trúbador er
langlífur á Fógetanum. Hann er
hreint ágætur.
• Hermann Ingi aftur á Feita
dvergnum. Krá þeirra sem búa rétt
við Höfðabakkabrúna.
•Tveir Loganenn á Rauða Ijóninu.
SUNNUDAGUR
•Haraldur Reynis er ekkert skyldur
Jónasi Reynis. Hann tekur við sem
trúbador af Guðmundi Rúnari á Fóg-
etanum.
•Karaoke á Tveimur vinum eins
og alltaf á sunnudagskvöldum. Hægt
að kyrja fullt af lögum og annað eins
aftextum.
•Tveir Logar eru eina hljómsveitin
í bænum sem spilar á sama pöbbn-
um fjögur kvöld í röð og þeir eru enn
á Rauða Ijóninu.
BARIR
• Þá er veturinn kom-
inn, sem sést best á því
að miðbærinn er sem
Beirút yfir að líta um
hverja helgi og fyrir ut-
an vínveitingastaði norpa langar
krókloppnar raðir. Enn einn ör-
uggur vetrarboðinn er þó sú
staðreynd að næturklúbbar höf-
uðborgarinnar eru að vakna upp
af sumardoða — ef unnt er að
kalla síðastliðna mánuði „sum-
ar". Reyndar vantar enn nokkuð
upp á að allt sé komið á fullt
svíng, en þess er vart langt að
bíða að ekki verði þverfótað fyrir
leyfislausum skemmtistöðum á
borð við þá, sem blómstruðu síð-
astliðinn vetur. Það virðast að
mestu vera sömu athafnaskáld-
in, sem standa að baki þessum
klúbbum, sem bendir til þess að
meiri stöðugleiki sé í þessum
bransa en hinum löglega
skemmtistaðarekstri. Um síðustu
helgi brá drykkjumaður PRESS-
UNNAR sér á einn hinna ágætu
næturklúbba Reykjavíkur að
loknu sumbli á löglegum börum
bæjarins. Þar var samankomið
alls kyns fólk — flest þó í yngri
kantinum — og fór gleðin mjög
prúðmannlega fram. Það var til
dæmis til sérstakrar fyrirmyndar
að tónlistin var nógu hávær til
þess að unnt væri að stíga við
hana dans af þrótti, en nógu lág-
vær til að samræðulistin fengi
notið sín. Þjónustan var líka
hreint ágæt, sem til dæmis mátti
sjá á því að þegar óminnishegr-
inn læsti klónum í einhvern gest-
anna var honum (gestinum) ekki
hent út með fúkyrðaflaumi og ill-
indum líkt og tíðkast á mörgum
hinna löglegu staða, heldur
hringdi dyravörðurinn á leigubíl
og fylgdi gestinum út. Eitt er það
þó, sem eícki er hægt að komast
hjá að finna að þessum ólöglegu
stöðum, en það er áfengisúrval-
ið. Þegar valið stendur milli bjórs
og vodka fer nefnilega mesti
glansinn af þeim. Meðan staðirn-
ir eru ólöglegir og silakeppirnir í
dómsmálaráðuneytinu gera ekk-
ert til þess að rýmka verslunar-
tíma vínveitingastaða er vart
hægt að ætlast til þess að að-
standendur næturklúbbanna séu
að halda úti miklum og dýrum
lager af áfengi. En það má samt
sem áður gera betur en að leyfa
fólki að velja milli bjórs og
vodka. Ef boðið væri upp á bjór,
vodka, gin og viskí væri strax
miklu skemmtilegra að lifa, tala
nú ekki um ef eins og ein, tvær
tegundir af millisterku fylgdu
með. Drykkjumaður PRESSUNN-
AR skorar hér með á athafna-
skáld næturklúbbanna að bæta
úr þessu hið fyrsta, því það er
náttúrulega ekki hægt að stunda
einhverja næturklúbba þegar
vínúrvalið er meira í glerbrota-
bingnum á Lækjartorgi.
Þórhallur Sigurðsson
(Laddi) leikari
„Þetta er hjá Þórhalli Sigurðs-
syni. Hér verður enginn við í
allan dag en um kvöldmatar-
leytið verð ég í síma þrír fimm-
tíu og fimm níutíu. Nú, einnig
geturðu lesið inn nafii og síma-
númer og skilaboð ef vera vill.
Ég þakka fyrir.“
RAVE-DROTTNIJsJGIN
Þessi spræka stúlka, Bryndis Einarsdóttir, er
nýkomin frá New York þar sem hún kynnti
sér það glænýjasta i dansi, meðal annars
furðufyrirbærið „rave", sem ísienskir ung-
lingar hafa ekki aldeilis látið framhjá sér
fara. Bryndís ætlar í vetur að kenna íslensk-
um ungmennum að dansa við ravetónlist,
nánar tiltekið I Dansstúdíói Sóleyjar. En
hvað er það eiginlega, þetta reifsem allir
eru að tala um?
„Rave er ákveðin tegund afmúsík
sem á rætur að rekja til Bretlands og
Bandaríkjanna. Hún verður þannig
til að hljómplötur með ósköp venju-
legri tónlist eru spilaðar á 140 snún-
inga hraða. Úr verður algjör stuðmúsik sem gaman er að dansa
við. Ravetimarnir hjá mér I vetur verða því tómt fjör; byrjað er á
stuttri upphitun og svo fer allt afstað með rosalegum hamagangi
og látum." Bryndís segir eldri krakkana, 15 ára og upp úr, greini-
lega hafa mikinn áhuga á ravedansi en sig langi jafnframt til að
ná til þeirra yngri og því sé námskeiðið hugsað fyrir tiu ára og
eldri. „Þetta er svo mikið fjör að það verða allir að prófa. Það er
alveg ótrúlega gaman að dansa trylltan dans við ravetónlist og
sleppa gjörsamlega fram afsér beislinu."
Bryndís Einarsdóttir
kennir ísienskum
ungmennum
ravedans.
Spessi sýnir
portrett
LEIKARAR FRAM-
TÍÐAMNNAR
Mikið er um að vera hjá út-
skriftaraðli leiklistarskólans um
þessar mundir. Nemendur hans á
síðasta ári eru að æfa verkið Clöru
S. eftir Elfriede Jelinek undir leik-
stjóm Sódómuleikstjórans Óskars
Jónassonar. Leikritið gerist í kast-
ala ítalska skáldsins Gabríels
D’Annunzio, en hann var frægur
fyrir að hafa fullt af listamönnum í
kringum sig sem vom tilbúnir að
selja líkama sinn gegn því að hann
kæmi þeim á ffamfæri eða veitti
þeim fjárstuðning.
Nemendur á lokaári leiklistar-
skólans em sex og er áætluð frum-
sýning á verkinu um miðjan októ-
ber. Tvær leiksýningar verða til
viðbótar í vetur á vegum Nem-
endaleildiússins; óákveðið verk í
janúar í leikstjórn Þórhalls Sig-
urðssonar og í apríl í leikstjórn
virts finnsks leikstjóra; Kaisa Ko-
hronen.
Einn Færeyingur er meðal út-
skriftarnemenda í leiklistarskól-
anum. Það er til komið vegna þess
að Færeyingar eiga ekki eigin leik-
listarskóla og því hafa íslendingar
gert samstarfssamning við Færey-
inga um að taka inn einn og einn
nemanda þegar fjárhagur leyfir.
Er þetta efnilegur hópur sem
nú lýkur leildistarnámi?
„Já, þetta er mjög kraftmikill
hópur. Okkur finnst mjög spenn-
andi að vera að nálgast útskrift
þótt maður viti svosem ekki hvað
bíður, en það er hægt að nota leik-
listarmenntun til margs,“ sagði
Gunnar Gunnsteinsson, leiklistar-
nemi á lokaári.
Fara allir í leikhúsið sem út-
skrifast?
„Það er mjög misjafnt, sumir
byrja í leikhúsinu en fara svo í
annað. Margir fara í kennslu, aðrir
í framhaldsnám; sérhæfa sig til
dæmis í látbragðsleik og fleiru.“
Er stórstjama meðal ykkar?
„Ja, nú veit ég ekki. Þessar leik-
sýningar í vetur eru einmitt að
hluta til þess að kynna nemendur
skólans leikhúsfólki og auðvitað
til að þjálfa okkur í sjálfstæðum
vinnubrögðum.“
LESTRARSAL-
IRERU KYN-
FERÐISLECIR
Skólastarfer að hefjast út um allt og bókasöfn fyllast
aflúsiðnum námsmönnum sem ætla ekki að missa af
strætó lífsbaráttunnar. Lestrarsalirsem hafa verið
tómir síðan I vor fyllast á nýjan leik. Einu sinni var sagt
um líkamsræktarstöðvaraðþærværu„the meeting place ofthe eighties";sem útleggstaðþarhafi kynin skotið sérsaman á síðasta
áratug. Líklega hefur það breyst. Barir og víndrykkjuhús eru náttúrlega sígildir staðir til að skjóta sér ístrákum eða stelpum, en
kannski ekki síður lestrarsalir. Eða er ekki rómantískara að finna ástina yfir lærdómsbókum á lestrarsal eða í reykjarkófinu á krá?Á
lestrarsölum skoða strákar stelpur og stelpur stráka, þegar námsbækurnar verða fram úr hófi leiðinlegar er íraun ekkert betra að
gera — lestrarsalir eru semsagt rómantískir staðir (og svolítið kynferðislegir).
Spessi ljósmyndari opnar
portrettljósmyndasýningu í gallerí
Einn einn á laugardaginn. A sýn-
ingunni verða nokkrar svarthvítar
portrettmyndir sem hann hefur
fest á filmu undanfarin tvö ár.
Þetta er í annað sinn sem Spessi
heldur einkasýningu en hann hef-
ur tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum. En hvernig vinnur Spessi
myndirnar sínar: „Ég reyni að lesa
. fólk og ná fram því augnabliki þar
sem sá sem ég mynda gefur ekki
allt upp. Ég vil ekki að fólk grípi
myndirnar mínar, það verður leitt
á svoleiðis myndum. Ég geri fólk-
inu skil eins og það er á gráa
svæðinu; hvorki brosandi né grát-
andi. Mér finnst bros oft vera auð-
veld lausn sem á frekar heima í
þeirri iðnaðarljósmyndun sem
stunduð er á mörgum ljósmynda-
stofum héríbæ.“
Er mikil vinna að taka svona
myndir?
„Já, því fyrst þarf maður að
finna réttu manneskjurnar og síð-
an að byggja myndirnar upp.
Mikil vinna fer oft í uppbyggingu
myndarinnar, til dæmis lýsingu,
en ég reyni að ná fram lógískri
birtu.“
Meðal áhugaverðra ljósmynd-
ara í hugum Spessa er til dæmis
Bandaríkjamaðurinn Robert
Maplethorph, sem látinn er úr
eyðni. „Hann var á mörkum erót-
íkur og pornógrafi'u og sumu fólki
varð svo um að skoða myndirnar
að það hrækti á þær. Hann er ým-
ist elskaður eða hataður.“ Spessi
er einnig hrifinn afgömlu íslensku
ljósmyndurunum, eins og Kaldal
og fleirum, sem létu myndirnar
ekki segja alla söguna.
Alls verða á sýningunni fimm-
tán myndir af stærðinni 40 X 50
og eru þær allar til sölu. Ljós-
myndasýningin verður opin alla
daga frá kl. 13-18 til
26. september.
Útskriftaraðall leiklistarskólans: Björk Jakobsdóttir, leikstjórinn
Óskar Jónasson, Jóna Guðrún Jónsdóttir og Dofri Hermannsson. í
aftari röð sitja Finnur Arnar Arnarsson leikmynda- og búningahönn-
uður, Gunnar Gunnsteinsson, Hinrik Ólafsson, bróðir stórleikarar-
ans Egils Ólafssonar, hin færeyska Kristína Sundar Hansen og Vigdís
Gunnarsdóttir.