Pressan - 18.02.1993, Blaðsíða 2

Pressan - 18.02.1993, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. FEBRÚAR 1993 F Y R S T & F R E M S T BORIS SPASSKf. Kemur til fslands með franska skáklandsliðinu. JÓN BALDVIN HANNIBALSSON. Eftir að hann sagði að Banda væri Jónas frá Hriflu Afríku vill Jón Ormur kalla Gaddaffi Jón Baldvin Afríku. SPASSKÍ KEMURTIL ÍSLANDS Von er á skáksnillingnum Bor- is Spasskí hingað til lands um miðjan næsta mánuð. Skáksam- band fslands gengst þá fyrir landskeppni við Frakka, sem standa mun yfir frá 16.-28. mars. Landsliðið skipa tólf til fjórtán franskir skákmeistarar, þeirra á meðal Spasskí, en hann er ffansk- ur ríkisborgari og hefur keppt fyr- ir Frakklands hönd um nokkurt skeið. Landskeppnin fer fram í Hafnarfirði og verður keppt á tíu borðum. Ætla má að margur skákáhugmaðurinn líti með til- hlökkun til komu Spasskís, ekki síst eftir vonbrigðin með að ekkert skyldi geta orðið af heimsókn hans og Bobbys Fischer hingað til lands, í tilefhi þess að tuttugu ár eru liðin frá heimsmeistaraeinvígi þeirra í Reykjavík. GADDAFI ERJÓN BALDVIN AFRÍKU Það hefur verið nóg að gera hjá Jóni Baldvini Hannibalssyni utanríkisráðherra við að útskýra hvað hann átti við þegar hann sagði að Hastings Banda Mal- avíuforseti væri nokkurs konar Jónas frá Hriflu Afríku. Þurfti Jón Baldvin'sérstaklega að útskýra þetta fyrir Þingeyingum á stjóm- málafundi um síðustu helgi. Jón Baldvin svaraði því til að Jónas og Banda hefðu báðir haft skömm á borgarsamfélögum. Jón Ormur Halldórsson hermdi þessi um- mæli upp á hann í útvarpsþætti á rás 1 á laugardaginn og sagði að með sama hætti mætti segja að Gaddafi Líbýuforseti væri Jón Baldvin Afríku vegna yfirlýsinga- gleði hans. Þess má einnig geta að Jón Baldvin upplýsti í útvarpinu að hann væri félagi í Amnesty Int- ernational þannig að hann vissi allt um mannréttindi. „UMFJOLLUN PRESSUNN- ARHAFÐI ÁHRIF" Umfjöllun PRESSUNNAR um fórnarlamb nauðgara, stúlku á tví- tugsaldri sem ekki hefur tekist að innheimta miskabætur sem henni voru dæmdar, hefur vakið mikla athygli. f ffamhaldi af umfjöllun- inni hefur Sólveig Pétursdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, haft frumkvæði að því að flytja þings- ályktunartillögu um ríkisábyrgð á bótagreiðslum vegna kynferðisaf- brota. Meðflutningsmenn Sól- veigar eru Anna Ólafsdóttir Björnsson Kvennalista, Jón Helgason Framsóknarflokki, Margrét Frímannsdóttir Al- þýðubandalagi og Össur Skarp- héðinsson Alþýðuflokki. f greinargerð um málið er lögð fram spurning um hvort ríkið eigi að tryggja greiðslur slíkra bóta í málum vegna kynferðisafbrota eða annarra grófra ofbeldisbrota við ákveðin skilyrði, t.d. þar sem hinn bótaskyldi er eignalaus. „Það sem þarf hins vegar að at- huga er eðli refsiréttar og þau varnaráhrif sem honum er ætlað að hafa. Við megum ekki senda þau skilaboð út í þjóðfélagið að fólk beri minni ábyrgð á gjörðum sínum; að menn hugsi sem svo að allt í lagi sé að taka áhættu og láta eftir ofbeldishneigð sinni því ríkið muni tryggja bótagreiðslur handa fómarlambinu. Hægt er að athuga aðrar leiðir eins og að tengja greiðslur bóta viðurlögum. Þetta fer auðvitað eftir greiðslugetu við- komandi aðila og vandamálið er meðal annars að margir afbrota- menn eru ekki borgunarmenn fyrir slíkum málum. Svo er líka spurning hvort þetta geti orðið til þess að hækka dæmdar bætur í nauðgunarmálum," segir Sólveig Pétiu-sdóttir. „Ég hafði orðið vör við þetta vandamál og heyrt um það talað en umfjöllun PRESSUNNAR hafði auðvitað ákveðin áhrif á það að nú er flutt tillaga um málið. Mér fannst kominn tími til að þessi mál væru skoðuð, bæði um- fangið og hvort hægt væri að finna ráð til úrbóta.“ Annars staðar á Norðurlönd- um kveða ýmis lagaákvæði á urn skyldu ríkisins til að tryggja greiðsiu dæmdra skaðabóta við ákveðin skilyrði. Þessar reglur virðast svipaðar og í Evrópu- samningnum frá 24. nóvember 1983 um bætur fórnarlamba of- beldisbrota, en ísland er ekki aðili að samningnum. BOÐVAR SmiR UPPI MEÐ LÖGGURNAR SEM HANN RAK Niðurstaða Gauks Jörunds- sonar, umboðsmanns Alþingis, í máli fjögurra lögregluþjóna sem Böðvar Bragason lögreglustjóri vék úr starfi, hefur vakið mikla at- hygli. Þar er Böðvari gert að end- urráða lögregluþjónana. Talsverð óánægja var innan lögreglunnar með þessar brott- vikningar og gengu meðal annars undirskriftalistar á milli manna. ATU EINARSSON VILL RIFTA SAMN- INGI VIÐ VÍKING Landsliðsmaðurinn Atli Einarsson hefur óskað eftir því við stjóm knatt- spyrnudeildar Víkings að samningi sínum við félagið verði rift. Atli stað- festi þetta í samtali við PRESSUNA en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Samkvæmt öruggum heimildum PRESS UNNAR stafar óánægja Ada af vanefhdum á samningum af hálfu Víkings og einnig því að allar forsendur hjá félaginu hafa breyst. Búið er að skipta um þjálfara og stór hluti leik- manna hefur yfirgefið félagið. Stjóm Víkings hefur neitað Atla um að ganga úr félaginu þar sem hann á enn eftir að Ijúka seinna ári tveggja ára samnings síns við það. Ljóst er að stjómin rær lífróður í málinu, þar sem sterkar líkur em á því að ef Atli Einarsson hættir muni fleiri leikmenn fylgja í kjölfarið. Hafa nöfii þeirra Ada Helgasonar og Harðar The- ódórssonar meðal annars verið nefnd í því sambandi. Nærri má geta hvílíkt áfall það yrði fyrir Víking ef Atli Einarsson færi frá félaginu. Hann hefur verið einn af máttarstólpum liðsins undanfarin ár og átti mikinn þátt í að Víkingar urðu fslands- meistarar árið 1991. Þá herma heimildir PRESS UNNAR að önnur lið hafi sýnt honum mikinn áhuga, t.d. Stjaman, en Atli vildi ekk- ert staðfesta í þeim efnum. HVERNIG ÆTLA VÍKINGAR AÐ FYLLA í SKÖRÐIN? Þar sem Víkingur hefur misst marga góða leikmenn verður félagið að fylla í skörðin með aðfengnum innlendum leikmönnum og/eða gefa ungum leikmönnum færi á að spreyta sig. Nær öruggt má telja að stjórn Víkings muni ekki Ieita til Austur-Evrópu eftir leik- mönnum, slíkt væri ekki í samræmi við áæd- anir stjórnarinnar um að draga úr rekstrar- kostnaði deildarinnar, en eins og komið hefur frarn í PRESSUNNI er fjárhagsstaða Víkings mjög slæm. Af þeim sökum er sömuleiðis vart við því að búast að félagið hafi bolmagn til að kaupa til sín góða innlenda leikmenn. Nú þegar hafa fjórir leikmenn gengið í Vík- ing sem líklegir eru til að leika með aðalliðinu. Það eru þeir Arnar Amarsson úr KR, Trausti Ómarsson, sem lék áður með Selfossi, Sigurð- ur Sighvatsson úr ÍBÍ og Guðmundur Guð- mundsson, sem skiptir úr sænsku liði en lék áður með Breiðablild. Svo er bara að sjá hvort þessir leikmenn geta fyllt skörð þeirra sem þegar hafa yfirgefið félagið eða fara á næstu vikum. Stafaði það ekki síst afþví að hlut- aðeigandi lögregluþjónar, þeir Eiður Eiðsson, sá sem kærði til umboðsmannsins, Ingólfur Bru- un, Ellert Svavarsson og Hörð- ur Ólafsson, höfðu allir lokið fyrrihluta Lögregluskólans og auk þess verið í starfsnámi í níu mán- uði. Finnst mörgum sem ákvörð- unin um hvort mennirnir veldu lögregluþjónsstarfinu eða ekki hefði átt að liggja fyrir áður en þeir voru samþykktir inn í Lögreglu- skólann, þar sem annars kæmi námið þeim að litlum notum. Nægur tími hefði verið til að meta þá þar sem þeir höfðu allir starfað sem sumarmenn í lögreglunni áð- ur en þeir fóru í skólann, einn þeirra meira að segja sem aðstoð- armaður varðstjóra við vegaeftirlit umferðardeildar. JÓN ORMUR HALLDÓRSSON. Sneri samlíkingu Jóns Baldvins upp á hann sjálfan og Gaddafi. GAUKUR JÖRUNDSSON. Taldi að lögreglustjórinn hefði rekið lögregiuþjónana að ósekju. BÖÐVAR BRAGASON. Neyðist til að ráða aftur mennina sem hann rak. JÓHANN J. INGÓLFSSON. Frétt PRESSUNNAR um að hann hefði ekki enn greitt miskabætur til stúlkunnar sem hann nauðgaði mun hugsanlega leiða til réttarbóta. SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR. Hún er fyrsti flutningsmaður frumvarps um ríkisábyrgð á miskabætur. JÓN HELGASON. Hann og fulltrúar allra flokka standa að frumvarpinu með Sólveigu. „Éger tilbúin aðfara í formlegt andófinnan flokksins og takast á við forystuflokksins ogþau öfl sem styðja óvinsælar aðgerðir ríkisstjórnarinn- ar og standa gegn Nýjúm vettvangi. “ mmmm ólIna þorvarðardóhir andspyrnuhreyfing Geir, þú sérð um djúsið héðan í frá! „Þorbergur er opinn og tekur gagnrýni frá okkur leikmönnum mjög vel. Hann fær ágætiseinkunn þótt ekki sé það tíu.“ Geir Sveinsson forystusauðui Er hann meö spegil qfir röminu? „Ég vaknaði kluldcan átta með því að opna augun eins og oftast en fann mér til skelfingar að ég var heldur grár og gugginn." Hermann Gunnarsson gleðigandur. Sérstaklega andvökunætumar „Tíminn er afstætt hugtak." Sighvatur Björgvinsson niðurskurðarhnífur. Hann hefði átt að kaupa sér sjúkra- hús en ekki hótel „En hótelið lét mig ekki í friði og var stöðugt í huga mér.“ TómasÁ. Tómasson hótelsjúklingur. Eg hélt það mætti ijúga á þingi! „Ég vil ekkert unt frumvarp Páls Péturssonar segja fýrr en ég hef séð það. En að ég hafi skrökvað að Alþingi, því neita ég.“ Jón Baldvin Hannibalsson friðardúfa. I

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.