Pressan - 18.02.1993, Síða 18

Pressan - 18.02.1993, Síða 18
I 18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. FEBRÚAR 1993 sinni í sjávarútvegi. „Hafrannsóknir verða ekki stundaðar án þess að nota skip eða báta og þá þarf að byggja,“ segir Björn. „Við höfum verið þeirrar skoðunar að með því að byggja til dæmis Malaví-skipið sjálfir fengjum við betra skip og skip sem uppfyllti kröfur þeirra sem eiga að stunda rannsóknir á því þarna suðurfrá. Þetta fyrir- komulag gerir framkvæmd verk- efnisins skilvirkari og bætir þar með árangurinn. Lögin um Þróunarsamvinnu- stofnun, sem tóku gildi 1981, gera ráð fyrir að við beinum þróunar- aðstoð okkar að þeim verkefhum sem við kunnum best og getum best, meðal annars með því að færa þekkingu, sem Islendingar ráða yfir betur en aðrir, til þróun- arlandanna. Skýringin á því hversu stór hluti framlaga fer í Iaun til fslendinga er sú að sér- þekkingin er ekki yfirfæranleg nema einhverjir kenni hana. þess vegna höfum við haft sérstaklega sjómenn og fiskiffæðinga í störf- um ytra.“ Jón Ormur mótmælir því sem hann kallar goðsögnina um sér- þekkingu fslendinga: „Það er út- breidd goðsögn að við íslendingar búum yfir gífurlega mikilli sér- ffæðiþekkingu sem skipti máli og við getum miðlað öðrum þjóðum. Það er ekkert merkilegt við okkar sérþekkingu annað en hvað hún er lítil og á fáum, þröngum svið- um. Allar þjóðir Evrópu búa yfir miklu meiri sérþekkingu en við og sú þekking er til sölu. En goðsögn- in um verðmæta sérþekkingu okkar er útbreidd og þróunarað- stoð okkar hefur snúist um að miðla henni. Við búum líka yfir sérþekkingu á sviði heilsugæslu og ýmsum sviðum verkfræði. Framlög til út- flutnings á einni tegund sérþekk- ingar eru ekkert annað en niður- greiðslur til þeirrar atvinnugrein- ar. Það má ekki rugla saman at- vinnuhagsmunum einnar tegund- ar sérfræðinga og hagsmunum fá- tæks fólks í þriðja heiminum og kalla það þróunaraðstoð. Slíkar niðurgreiðslur eru jafnóskilvirkar til þess að aðstoða atvinnulíf og aðrar niðurgreiðslur. Hagfræði- lega er þetta sami hluturinn og er til langframa ekki heppilegt til að auka hagvöxt.“ RÍKISSTIÓRN ÍHUGAR BREYTTNGAR Jón Ormur hefur lagt til að framlög íslendinga verði látin í hendur einkastofinmum, svo sem Rauða krossinum og hjálparstofn- unum kirkjunnar, enda hafi þær meiri reynslu og hafi sýnt mun betri árangur en ríkisstofnanir. Björn Dagbjartsson er ósammála og bendir á að með því móti hafi íslendingar sárah'til áhrif á hvemig fénu er varið. „Alþjóðasamtök kæra sig ekk- ert um að íslenskir aðilar séu að vinna þessi verk,“ segir hann. „Fjármunum er safhað í einn stór- an sjóð og það er undir geðþótta- ákvörðunum þeirra komið hverjir vinna við verkefnin. Við' erum ekki sammála því að þau hafi meira vit á þessum verkefnum en aðrir. Það em ótal dæmi um mis- heppnuð verkefni á vegum Rauða krossins og annarra alþjóðastofn- ana.“ Endurskoðun á þróunaraðstoð fslendinga virðist þó ætla að skila breytingum í þessa átt. í fyrra skil- aði nefnd tillögu um breytingar á lögum um Þróunarsamvinnu- stofnun og er hún nú til umfjöll- unar hjá ríkisstjórninni. Þar er gert ráð fyrir að yfirumsjón verk- efha verði á vegum utanríkisráðu- neytis, en framkvæmd og nánari útfærsla á vegum annarra. Ráðu- neytið hefði frumkvæði að vali verkefna og fylgdist með fram- vindu og árangri, en léti öðrum eftir að skipuleggja og fram- kvæma. Jón Ormur sagði að breytingar al" þessu tagi myndu áreiðanlega gera aðstoðina skilvirkari og skyn- samlegri, þegar hagsmunir þiggj- enda væru hafðir í huga. Björn Dagbjartsson tók undir að segja mætti að sami aðili ætti ekki að finna verkefni, skipuleggja þau og ffamkvæma og kosta síðan mat á árangrinum. Hann nefndi sem dæmi að Haffannsóknastofh- un gæti annast verkefhið sem nú er rekið í Namibíu engu síður en Þróunarsamvinnustofnun. Að- spurður sagði hann að málið hefði verið rætt í stjóm stofnunarinnar, en undirtektir verið misjafnar. Karl Th. Birgisson Þróunaraðstoðin skilar íslendingum dágóðum tekjum Níu krónur al Samkvæmt útreikningum nefndar á vegum utanríkis- og fjármálaráðuneytis runnu sjötíu af hverjum hundrað krónum, sem íslendingar vörðu á níunda ára- tugnum til tvíhliða þróunarað- stoðar, aftur í vasa fslendinga sjálffa. Ef reiknað er með umtals- verðum tekjum fslendinga af skipasmíðum í tengslum við þró- unarastoð í Malaví má gera ráð fyrir að við fáum affur hátt í níutíu krónur af hverjum hundrað sem lagðar em ff am í þessu skyni á ár- unum 1991-1994. Stefna stjómvalda í aðstoð við þróunarlönd hefur verið harka- lega gagnrýnd að undanförnu og í ríkisstjórninni eru til umræðu hugmyndir sem gera ráð fyrir að Þróunarsamvinnustofnun fslands verði lögð niður í núverandi mynd. 70 TIL90 PRÓSENT VI.RÐA EFTIR Þegar rætt er um tvíhliða þró- unaraðstoð er átt við bein afskipti og framlög ríkisins til tiltekinna verkefna — ekki almenn framlög til ýmissa alþjóðastofnana, svo dæmi sé tekið. Hér á landi fer tví- hliða aðstoð aðallega fram á veg- um Þróunarsamvinnustofnunar, sem hefúr annast verkefhi einkum á Grænhöfðaeyjum, Namibíu og nú síðast í Malaví. f þessum verkefnum er lögð áhersla á að fslendingar leggi ff am sérþekkingu og tæknibúnað í tengslum við fiskveiðar og fisk- vinnslu, enda litið svo á að það sé sér- staklega á þeim sviðum sem við höfum ýmislegt fram að færa um- fram aðrar þjóðir. Á Grænhöfðaeyjum hefur veriðleitað að nýtanlegum botn- fisktegundum og þær rannsakaðar, veiddar í tilrauna- skyni og reynt að koma þeim á mark- að erlendis. f Nami- bíu eru stundaðar Jón Ormur Halldórsson: „Það tilraunaveiðar og voru vandamál á Akureyri, en rannsóknir, þótt ekki vandamál í Afríku, sem umsvifin séu mun réðu þvlaðFengurvarbyggður minniþar. ásínumtfma." f báðum tilvik- um fór fjöldi ís- utanríkis- og fjármálaráðuneytis urðu 70 prósent ffamlaga til Þró- unarsamvinnustofnunar eftir hér á landi með þessmn hætti. SLIPPURINN FÆR120 MII.LJÓNIR VEGNA MAL- AVÍ Nýjasta verkefni Þróunarsam- vinnustofhunar er í Malaví, þang- að sem Jón Baldvin Hannibals- son fór með íslenskt rannsókna- skip á dögunum. Þetta skip er annað af tveimur sem smíðuð verða hér á landi vegna Malaví. Rannsóknarskipið, hið fyrra, kost- ar um 65 milljónir og er helming- ur þess greiddur af Þróunarsam- vinnustofhun eða rúmlega þrjátíu milljónir, hinn helmingurinn af Norræna þróunarsjóðnumn. Seinna skipið, veiðiskip, kostar að líkindum í kringum 55 milljónir og verður fjármagnað með hag- stæðu láni frá Norræna fjárfest- ingarsjóðnum. Samtals kosta skipin til Malaví því um 120 millj- ónir, en framlög okkar fslendinga eru kannski 35 milljónir. Bæði skipin eru hins vegar smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri, sem fær þannig 120 milljóna króna verkefni vegna aðstoðar- innar við Malaví. Með öðrum orð- um: Skipin fara til Malaví, en pen- ingarnir norður á Akureyri. Fram- lag til Þróunarsamvinnustofhunar á þessu ári er um 160 milljónir króna og sjötíu prósent hlutur okkar af því 112 milljónir. Ef gert er ráð fyrir að skipin séu smíðuð á þróunaraðstoð hlyti að vera þeim mun betri ef báðir aðilar högnuð- ust á henni. Þetta er ekki ný skoð- un. Ólafur Ragnar Grímsson, þá- Björn Dagbjartsson: „Með því að byggja Malaví-skipið sjálfir feng- um við betra skip, sem uppfyllti kröfur þeirra sem eiga að stunda rannsóknir á því þarna suður frá." lendinga til starfa við þessi verk- efni og ýmis veiðarfæri og tæki voru keypt hér heima. Þróunar- samvinnustofnun ieggur fram fé til launagreiðslna og kaupa á bún- aði, fé sem eðli málsins sam- kvæmt endar að miklu leyti hér á landi, þótt búnaðurinn verði eftir ytra og væntaniega þekking starfs- fólksins líka. Að mati nefndar fjórum árum, 1991-1994, og tekj- ur Slippstöðvarinnar eru lagðar við aðrar tekjur íslendinga af þró- unaraðstoðinni, má gera ráð fyrir að íslendingar fái aftur um 88 krónur af hverjum hundrað sem lagðar eru fr am á þessu árabili. I nýlegri ræðu varði Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráð- herra þessa stefnu og sagði að verandi fjármálaráðherra, sagði í nóvember 1990 að við ættum að nýta framlög til þróunarmála á þann hátt að það kæmi okkur að gagni líka. „DÆM’l TTL AÐ MISTAK- AST“ Aðrir hafa hins vegar gagnrýnt þetta harkalega, ekki síst dr. Jón Ormur Halldórsson, lektor í stjórnmálafræði. Hann hefur sér- hæft sig í málefhum þróunarlanda og vísar í áratugareynslu og rann- sóknir fræðimanna á þessu sviði. „Verkefni, sem verða til með raunverulega eða ímyndaða atvinnuhags- muni gefand- ans í huga, eru dæmd til að mistakast,“ segir Jón Orm- ur. „Það er þekkt og það er fyrirfram hægt að segja að afar litlar líkur séu á að þau skili ár- angri. Það eru vitanlega til einstaka verk- efni sem hafa gengið vel, en miðað við reynsluna af þróunaraðstoð í heiminum, þegar litið er til nokk- urra áratuga, þá hafa fslendingar fallið í allar hugsanlegar gryfjur og stundað verkefni sem skila ekki árangri. Ég hef reyndar ekki kynnt mér sérstaklega verkefnið í Namibíu, sem er nýtt, en ef það er gott verk- efni þá er það líka það fyrsta sem menn hafa gert af viti hér í fimm- Jón Baldvin Hannibalsson: „Þró- unaraðstoð er best þegar báðir aðilar hagnast á henni." tánár. Ákvörðunin um að smíða Feng, sem var gerður fyrir Grænhöfða- eyjaverkefhið, var ekki tekin eftir umhugsun um það, hverjir væru hagsmunir þeirra sem áttu að þiggja aðstoðina, heldur af því að það voru stórvandræði í Slipp- stöðinni á Akureyri langt ffarn á síðasta áratug. Það voru sem sagt vandamál á Akureyri, en ekki vandamál í Afríku, sem réðu því máli. Þetta hefur ekki breyst síðan; það eru ýmist atvinnuhagsmunir sérfræðinga, sem vilja selja þekk- ingu sína úr landi, skipasmíða- hagsmunir eða aðrir sem ráða ferð. Annað dæmi er ákvörðun í tengslum við Persaflóastríðið, að kaupa íslenskt kindakjöt og fljúga með það þangað í blikkdósum. Þetta er sama reglan: það er fyrst spurt hvernig við getum grætt á þessu eða lágmarkað tapið afþví. Verkefni, sem stofnað er til með þessum hætti, eru dæmd til að mistakast. Það eru þúsund verkefna og tugir milljarða dala sem búið er að sóa með þessum hætti. ítarlegar rannsóknir sýna að það er nánast ekkert samhengi á milli veittrar aðstoðar og hag- vaxtar í þriðja heiminum." VERÐMÆT SÉRÞEKKING EÐA NIÐURGREIÐSLUR Á ÚTFLUTNINGI? Framkvæmdastjóri Þróunar- samvinnustofnunar, Björn Dag- bjartsson, segir að íslensk skip reynist betur en önnur, enda sé með því móti hægt að fylgja leið- beiningum vísindamanna, sem á þeim munu starfa, um búnað og aðstöðu. Hann vísar líka í lögin um Þróunarsamvinnustofnun, sem beinlínis gera ráð fyrir að ís- lendingar miðli af sérþekkingu hverjum tiu lenda í vasa Islendinga Tvíhliða þróunaraðstoð íslendinga er nátengd hagsmunum tveggja atvinnugreina: skipasmíðaiðnaðar og þeirra sem búa yfir sérþekk- ingu á sviði sjávarútvegs. Hagsmunir þiggjendanna verða út undan þegar þannig stendur á, segja gagnrýnendur. Ríkisstjórnin íhugar að leggja Þróunarsamvinnustofnun niður. I

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.