Pressan - 15.04.1993, Blaðsíða 2
PRESSAN
FYRST & FREMST
Fimmtudagurinn 15.apríl 1993
í ÞESSU BLAÐI
Stuttur Frakki á sjúkrahúsi eftir að
hafa verið ekinn niður
á Laugaveginum
6
Yfirheyrsla yfir Hrafni Gunnlaugssyni
7
Árni Finnsson grxnfriðungur sendi
Greenpeace skýrslur um einkahagi
Hvala-Magnúsar
8
160 milljarða gat á lifeyrissjóðunum
9
Fjármálafyllerí
íkringum
áfengismeðferð
10
Tíska
n
íslenskar fyrirsxtur slá i gegn
íNewYork
Nýjustu fréttirafLeoncie
Hverjir eru hvar?
12
Brynja fertug og aðrir stórviðburðir
isamkvxmislífinu
14
Þórarinn Fldjárn svararMerði um
Hrafnsmálið
16
Óbirturbókarkafli um Stein Steinarr
Bókin um Hrein Friðfinnsson
18
Hin efnilega sveit Yucatan
Síðasta ball Sálarinnar
19
Hverfispöbbinn
Stutturfrakki
20
Cantona: Fótboltamaðursem
getur ekki verið í liði
Spekingarspá um úrslitakeppnina
ihandbolta
21
Dagskráin eins og Hrafn
vildi hafa hana
Dagskráin eins oghúner
23
GulaPressan
HEIMIR STEINSSON. Segir sig úr Sjálfstæðisflokknum í kjölfar
Hrafnsmála. DAVÍÐ ODDSSON. Heimtaði að fá að vita hvaða krata-
ráðherra talaði um „einkavinavæðingu".
Heimir segir sig
úr Siálfstæöis-
flokknum______________
Hrafnsmál virðast ætla að
taka á sig allar hugsanlegar og
óhugsanlegar myndir. Nú sann-
fregnum við að útvarpsstjóri,
Heimir Steinsson, hafi sagt sig
úr Sjálfstæðisflokknum eftir
áralanga aðild, væntanlega
vegna framgöngu ráðherra
flokksins í málefnum Ríkisút-
varpsins síðustu vikur. Sjálfur
vill Heimir hvorki játa þessu né
neita, en samkvæmt upplýsing-
um PRESSUNNAR er úrsagn-
arbréf útvarpsstjóra dagsett
föstudaginn 2. apríl, daginn
sem Ólafur G. Einarsson veitti
Pétri Guðfinnssyni formlega
leyfi og réð Hrafn Gunnlaugs-
son í hans stað. Aðrar heimildir
PRESSUNNAR herma hins
vegar að af því hafi Heimir ekki
frétt fyrr en að morgni laugar-
dags, J. aprfl,.svo ekki er hægt
að fullyrða áð sú'sé ástæða úr-
sagnarinnar. Nema náttúrlega
Heimir hafi dagsett bréfið aftur í
tímann, en það barst ekki í Val-
höll Sjálfstæðisflokksins fyrr en
miðvikudaginn 7. apríl. Þessi
tilgáta var reyndar einnig uppi
varðandi beiðni Péturs um leyfi
— að hann hafi dagsett bréfið
aftur í tímann til að hagræða
stöðu Ólafs Garðars — en sjálf-
ur neitar hann því staðfastlega.
Jóhönnu fórnaö
g miðnæturfundi
Það varð uppi fótur og fit í
kringum Davíð Oddsson for-
sætisráðherra í Alþingishúsinu í
síðustu viku, þegar fréttastofa
útvarps hafði það eftir einum
ráðherra Alþýðuflokksins að
rétt væri að styðja tillögu stjórn-
arandstöðunnar um rannsókn á
„einkavinavæðingunni“ sem
birtist í máli Hrafns Gunn-
laugssonar. Davíð reiddist
þessu ákaflega og gegndi Geir
H. Haarde hlutverki sáttasemj-
ara um tíma á meðan Davíð lét
ekki eftir sér að yrða á krata. En
svo sátu þeir Jón Baldvin
Hannibalsson krísufund
framyfir miðnætti sem lyktaði
með því að Jóhanna Sigurðar-
dóttir var leidd fram og látin
játa að hún hefði viðhaft um-
mælin. Þetta er afar óvenjuleg,
ef ekki fordæmislaus, „fórn“ á
einum ráðherra, sérstaklega
þegar haft er í huga að Jóhanna
var ekki eini krataráðherrann
sem talaði svona. En í kjölfarið
hafa þeir Jón Baldvin og Sig-
hvatur Björgvinsson sagt op-
inberlega að viðskipti Hrafns
við Sjónvarpið væru nánast
einkamál hans og því væri til-
lagan tæplega þingtæk.
Vorþing í
uppnámi_______________
Allir vita að Hrafn Gunn-
laugsson er valdamikill, en
færri grunar eflaust að vesenið í
kringum hann getur sett strik í
reikning kjarasamninga. Vegna
þess hversu seint er fram komin
tillaga stjómarandstöðunnar
um rannsókn á viðskiptum
Hrafns við ríkið þarf að sam-
þykkja afbrigði ffá þingsköpum
til að málið komist á dagskrá á
þessu þingi. Til þess þarf tvo
þriðjuhluta atlevæða og þar með
stuðning fjölda stjórnarliða.
Hingað til hefur stjórnarand-
staðan stutt slík afbrigði þegar
stjórnin hefur þurft á því að
halda í tímaþröng á vorin og lit-
ið á það sem eðlilega kurteisi. Ef
stjórnarliðar leggjast hins vegar
gegn tillögunni um Hrafn —
eins og allt bendir til — telur
stjórnarandstaðan sig hvergi
bundna af því heiðursmanna-
samkomulagi sem hingað til
hefur gilt. Það getur sett þing-
störf á vordögum í mikið upp-
nám og þýðir til dæmis að
stjórnarandstæðingar geta
drepið mál sem stjórnin þyrfti
að leggja fram í tengslum við
kjarasamninga. Og stjórnarand-
staðan spyr: Er Hrafn Gunn-
laugsson Davíð Oddssyni og
Sjálfstæðisflokknum svo mikils
virði að öllum öðrum friði sé
fómandi?
Jónatan rannsak-
qr Mikson_______________
Hjá embætti ríkissaksóknara
er nú unnið fullum krafti að
rannsókn máls Eðvalds Hin-
rikssonar. Það er mikil vinna
og víst að enn er langt í niður-
stöðu. Það flýtir þó örugglega
vinnunni að Hallvarður Ein-
varðsson ríkissaksóknari hefúr
fengið sér til halds og trausts
Jónatan Þórmundsson, pró-
fessor í refsirétti. Forstjóri Wie-
senthal-stofnunarinnar, Efr-
aim Zuroff, fór ffam á að skip-
aður yrði sérstakur saksóknari í
máli Eðvalds, en það er eflaust
tilviljun að Jónatan var einmitt
Borgarspítala stefnt
og sótt um gjafsókn
Aðalheiður Guðjónsdóttir, sem varð ekkja eftir að eiginmað-
ur hennar, Amþór Sigtryggsson, lést á Borgarspítalanum eftir
einfalda hálskirtlaaðgerð eins og PRESSAN greindi ítarlega ffá í
byrjun febrúar, er um þessar mundir ásamt lögmanni sínum, Jóni
Steinari Gunnlaugssyni, að stefna Borgarspítalanum vegna
þessa máls og verður dómsmálið þmgfest 22. apríl. Að öllum lík-
indum verður sótt um gjafsókn til dómsmálaráðherra í málinu.
Verði gjafsóknin samþykkt mun ríkið greiða málskostnað en for-
sendurnar eru að gjafsóknarhafi búi við þröngan kost og eða að
úrlausn máls hafi verulega almenna þýðingu.
Fyrir hálfum mánuði fóru hins vegar fram vitnaleiðslur fyrir
Héraðsdómi Reykjaness vegna hjúskaparmála Aðalheiðar og Am-
þórs. Nokkm áður en hann lést höfðu þau skilið að borði og sæng
til að ffeista þess að bjarga fjárhag fjölskyldunnar. Arnþór hafði
skrifað upp á lán fyrir bróður sinn, sem hann var að fá í hausinn.
„Þetta var bara leið til að láta ekki hirða allt sitt af sér á einni
nóttu,“ segir Aðalheiður. Af þessum ástæðum óttast hún að
Tryggingastofnun hafni beiðni
sinni um bætur vegna skilnaðar-
ins, en svar þaðan berst líklega í
dag eða á morgun. „Ef Trygg-
ingastofnun ríkisins hafnar
beiðni minni mun hún dæma
mig, prestinn og vitnin í hjú-
skaparmálinu lygara. Það vita
allir í kringum okkur á hvaða
forsendum við sóttum um skiln-
að að borði og sæng. Ég vil ítreka
það að ég er fyrst og fremst að
fara í mál við Borgarspítalann
vegna þess að ég er ósátt við
Aðalheiður
GUÐJÓNSDÓTTIR
Óttastað Tryggingastofn-
un ríkisins hafni bótakröfu
vegna hjúskaparstöðu
sinnar og Arnþórs áður en
hann lést.
dauða Arnþórs. Fyrir utan það að missa manninn minn finnst mér
blóðugt ef ekki verður tekið mark á mér og öðrum um hjúskapar-
stöðu okkar.“
í 33. grein í lögum um stofhun og slit hjúskapar segir að takist
aftur samvistir með hjónum sem skilið hafa að borði og sæng falli
réttaráhrif skilnaðarins niður.
Að sögn Jóns Steinars Gunnlaugssonar, lögmanns Aðalheiðar,
er einfaldast að skýra þessa klausu með því að á meðan fólk er skil-
ið að borði og sæng séu hjúskaparskyldurnar enn í fullu gildi þó
það geti ekki giff sig. Ef að sama skapi hjón í slíkri hjúskaparstöðu
taka saman aftur þurfa þau ekki að gifta sig. Hjónaband eigi held-
ur ekki að ráðast af því hvort hjón hafa sama lögheimili. Ef nægi-
legt væri að skipta um lögheimili til að losna undan hjónabands-
skyldum væri skilnaður einfaldur.
Hitt er svo annað mál hvort einhver vill vefengja það að þau
Arnþór og Aðalheiður hafi búið saman, en slíkt krefst sönnunar af
hálfu Tryggingastofnunar og gæti leitt til málaferla.
sérstakur saksóknari í öðru
ffægu máli seinni tíma — Haf-
skipsmálinu.
Þeir sem ekki
skrifuðu upp
á fyrir Hrain
Tíu listamenn mótmæltu op-
inberlega brottrekstri Hrafns
Gunnlaugssonar af Sjónvarp-
inu, en þeir voru fleiri sem leit-
að var til og neituðu. Meðal
þeirra ffegnum við að hafi verið
formaður Rithöfundasambands
íslands, Þráinn Bertelsson,
sem neitaði eftir að hafa ráðfært
sig við lögmann og komist að
þeirri niðurstöðu að ekki væri
um málfrelsismál að ræða.
Einnig var leitað til Einars
Kárasonar, sem neitaði eftir
þrýsting frá stjórnendum Máls
og menningar, að sögn okkar
heimilda, en bætti það upp að
hluta með kjallaragrein í DV. Þá
heyrum við að leitað hafi verið
til Hjálmars H. Ragnars, for-
manns Bandalags íslenskra
listamanna, án árangurs. Eftir
að listinn birtist var það haft eft-
ir Heimi Steinssyni að tveir
listamenn styddu hann í þessari
deilu, þeir Þráinn og Thor Vil-
hjálmsson. Hrafnsmenn leit-
uðu ekki til Thors — „vissu lík-
lega að það þýddi ekkert" sagði
Thor við PRESSUNA — en
Þráinn og Hrafn hafa lengi eld-
að grátt silfúr. Það gerir stöðu
Þráins erfiðari að hann á þessa
dagana í samningum við Hrafn
um gerð sjónvarpsmyndarinnar
Sigla himinfley, sem ffestað var
í fyrra vegna launadeilu milli
leikara og Sjónvarpsins.
Ekki-stólaskipti
Eftir nokkurra vikna bolla-
leggingar um stólaskipti í ríkis-
stjórninni er líklegt að útkoman
verði hálfgerð ekki-ffétt. Engar
ákvarðanir hafa verið teknar
enn, en forystumenn í stjórnar-
liðinu segja þetta vitað núna:
Engar breytingar verða hjá
Sjálfstæðisflokknum, þótt Dav-
íð Oddsson hafi gjarna viljað
sjá til dæmis Ólaf G. Einars-
son færa sig um set. Hann naut
hins vegar verndar Þorsteins
Pálssonar og eftir vendingarn-
ar í Hrafnsmálum er enn erfið-
ara að hreyfa við honum, enda
pólitísk örlög Davíðs og Ólafs
orðin rækilega samtvinnuð. Hjá
krötum hafa engar ákvarðanir
verið teknar, en allir eiga von á
að Jón Sigurðsson fari í Seðla-
bankann. Jóhanna Sigurðar-
dóttir situr kyrr í félagsmála-
ráðuneytinu, en að öðru leyti er
allt óljóst um breytingar hjá
krötum. Ekki er að vænta
neinna ákvarðana fýrr en um
þinglok.
JÓHANNA SlGURÐARDÓTTIR. Játaði á sig „brotið" á miðnæturfundi í þinghúsinu. ÞRÁINN BERTELSSON. Neitaði að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við Hrafn. ElNAR KÁRA-
SON. Vildi skrifa undir listann, en skrifaði kjallaragrein í staðinn. THOR VILHJÁLMSSON. „Það þýðir ekkert fyrir Hrafnsmenn að tala við mig." JÓNATAN ÞÓRMUNDSSON. Til
aðstoðar Hallvarði í Mikson-málinu. HRAFN GUNNLAUGSSON. Átökin um hann geta sett strik í reikning kjarasamninga.
UMMÆLI VIKUNNAR
Höfðu þeir
svona lítiö
aö lesa?
„Ég sýndi ritstjórum
Morgunblaðsins jafn-
ffamt þetta bréf.“
Hrafn Gunnlaugsson
trúnaðarvinur.
Smáþjóðaleikar
upplýsingafulltrúa
„Við munum breiða úr okkur eins og við
komumst upp með og á þessu stigi er að-
eins hægt að segja að það muni kenna ým-
issa grasa og að kynning okkar verði eins
víðfeðm og aðstæður leyfa.“
Jakob Magnússon,
keppandi á Dvergeyjaleikunum.
Losnar maður þá við
veiðisögurnar?
„Ég held að það sé ekki um-
ræðuhæft þótt menn fari einhverja
daga og veiði lax.“
Sverrir Hermannsson, bankastjóri
oa veiðikló.
JÁ, MEÐ ÞYÍ AÐ
SKJÓTA ALLA
ÓFRIÐARSEGGI!
„Þar á ofan eru flestar þessar bíómyndir bannaðar börnum, þannig að hálft grunnskóla-
stigið getur ekki notið þess að sjá gubbað á skjáinn í skólatíma."
Jónas Kristjánsson siðavöndur.
En afnógu erþó að taka?
„Halldór Blöndal er mér svo kær að ég vil
ekkert illt segja um hann.“
Össur Skarphéðinsson ihaldsvinur.
„NATO gæti í raun orð-
ið ffiðarbandalag.“
Ólafur Ragnar Grímsson
friðardúfa.