Pressan - 15.04.1993, Side 5

Pressan - 15.04.1993, Side 5
SKILABOÐ Fimmtudagurinn 15.apríl 1993 PRESSAN 5 HELGIÞÓRÍBARÁTT- UNNIVIÐ KANADA- MENNINA... Sem kunnugt er hefur flHveríð mikil óánægja með framgang kanad- íska verktakafyrirtækisins sem byggði flugskýlið stóra fyrir Flugleiðir á Keflavíkurflugvelli. Meðal undirverktaka hefur ver- ið mikil óánægja með efndir Kanadamannanna, sem þeir telja að skuldi sér háar fjárhæð- ir. Var svo komið að rétt áður en skila átti húsinu var boðað til fundar meðal undirverktaka til að samræma kröfugerð. Var það meðal annars að frum- kvæði Helga Þórs Jónssonar sem löngum hefur verið kennd- ur við Hótel örk. Helgi er einn þeirra sem áttu orðið inni tölu- verðar fjárhæðir hjá Kanada- mönnunum. Lyktir fundarins urðu þær að Flugleiðamenn samþykktu að ábyrgjast sjálfir þær kröfur undirverktaka sem sátt væri um. Nú er hins vegar aftur risin upp óánægja meðal undirverktaka sem segja að Kanadamennirnir skuldi sér há- ar upphæðir. Til samans eru þær taldar á milli 50 og 70 millj- ónir króna. TEKJULAUST FÉLAGMEÐ4 MILUÓNASTJÓRN- UNARKOSTNAÐ... »Eignarhaldsfélag Al- I þýðubankans hélt að- alfund sinn um dag- inn og kom þá í ljós að á síð- asta ári breyttist 65 milljóna króna hagnaður 1991 í 36 milljóna króna tap. Árið ein- kenndist annars af því að helmingur hluthafa skipti á bréfum sínum í félaginu fýrir bréf f íslandsbanka, en félagið stendur þó eftir sem stærsti einstaki hiuthafmn í íslands- banka. Og í sjálfú sér má segja að þetta félag sé eingöngu til utan um sinn 12,7 prósenta hlut í Islandsbanka, því það hefúr engar rekstrartekjur, að- eins fjármunatekjur í formi vaxta og verðbóta. Stjómarfor- maður var á síðasta ári Ás- mundur Stefánsson, fyrrum forseti ASÍ, en nú hefur Jó- hannes Siggeirsson tekið við. Framkvæmdastjóri er Guðjón Ármann Jónsson lögff æðing- ur. En þótt eiginlegur rekstur sé enginn hljóðuðu laun og launatengd gjöld upp á 2 millj- ónir í fýrra og annar rekstrar- kostnaður upp á 1,8 milljónir til viðbótar. Þar af var 1,1 millj- ón vegna kostnaðar við aðal- fund og hluthafafúnd og ferða- kostnaðar stjórnarmanna vegna stjórnarfúnda. MYNDLISTASKÓLINN Á AKUREYRI KaupVangsstræti 16 auglýsirinntöku nýrra nemenda ffornámsdeild, málun- ardeild og grafíska hönnun veturinn 1993-1994. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, Kaupvangsstræti 16. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 96-24958. Umsóknarfresturertil 15. maí. Skólastjóri. AF HVERJU AÐ BORGA MEIRA? Þú sparar um 600 kr. að framkalla hjá okkur miðað við næstu framköllun. * Filma fylgir hverri framköllun FRAMKÖLLUN - LITLJÓSRITUN MIÐBÆJARMYNDIR Lœkjargötu 2 - 8. 611530 * Sparnaður miðað við framköllun og kaup á 36 mynda filmu. Samvinnuháskólinn - rekstrarfræði Rekstrarfræðadeiid Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum miðar að því að rekstrarfræðingar séu undirbúnir til forystu-, ábyrgðar- og stjórnunarstarfa í atvinnulífinu. Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða við- skiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við Sam- vinnuháskólann eða annað sambærilegt nám. Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, viðskipta og stjórnunar, s.s. markaðsfræði, fjármálastjórn, starfs- mannastjórn, stefnumótun, lögfræði, félagsmál o.fl. Námstími: Tveir vetur, frá september til maí. Námið er lánshæft hjá LlN. Frumgreinadeild Nám til undirbúnings rekstrarfræðanámi. Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á framhaldsskóla- stigi, án tillits til námsbrautar. Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugreinar, enska, íslenska, stærðfræði, lögfræði og félagsmála- fræði. Einn vetur. Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir á Bif- röst ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.fl. Barnaheimili og grunnskóli nærri. Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætluð um 38.000 kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur. Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnuháskólans á Bifröst. Umsókn á að sýna persónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti skírteina og um fyrri störf. Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Þeir umsækjendur ganga fyrir sem eru orðnir eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Um- sóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan eftir því sem skólarými leyfir. Samvinnuháskólinn á Bifröst 311 Borgarnes - sími 93-50000 Dpnaðu augun fyrir nýjum valkosti! Því skyldir |ni veija japanskan fólkstiíl eins og allir hinir, þegar hægt er að fá ríkuiega úthúinn, sex strokka amerískan fólksbíl fyrir lægra verð? í Chrysler Saratoga færðu m.a.: V6 3.0 lítra vél, 4 (irepa sjálfskiptingu, rafdrifnar rúður, samlæsingar, hraðafesti, veltistýri og loftpúða í stýri. Chrysler Saratoga V6 - frá kr. 1.698.000.- á götuna! Kíktu við á Nýbýlaveg 2, eða hafðu samband í síma 42600.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.