Pressan - 15.04.1993, Page 14

Pressan - 15.04.1993, Page 14
SKOÐANIR 1 4 PRESSAN Fimmtudagurinn 15. apríl 1993 PRESSAN Útgefandi Blað hf. Ritstjóri Cunnar Smári Egilsson Ritstjórnarfulltrúi Sigurður Már Jónsson Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar: Nýbýlavegi 14 -16, sími 64 30 80 Faxnúmen Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76 Eftir lokun skiptiborðs: Ritstjórn 64 30 85, dreifing 64 30 86, tæknideild 64 30 87 Áskriftargjald 700 kr. á mánuði ef greitt er með VISA/EURO en 750 kr. á mánuði annars. PRESSAN kostar 230 krónur í lausasölu Enn einar aðgerðirnar Samningaviðræður Alþýðusambands íslands og vinnu- veitenda eru orðnar að skrípaleik. Þrátt fyrir að um ekkert sé að semja virðist sem stöðuorkan í samninganefndum þessara samtaka verði að fá útrás. Sameiginlega hafa þær gert kröfur á ríkisvaldið um aðgerðir til að draga úr áhrif- um kreppunnar. Allar beinast þessar kröfur að því að flytja hluta af kreppunni yfir á framtíðina. Engin þeirra bætir stöðu okkar svo um munar. Allar búa þær til mikinn vanda sem erfitt verður að leysa í framtíðinni. í sjálfu sér er ekkert að því að Alþýðusambandið og vinnuveitendur geri kröfur á ríkisvaldið. Þær kröfur ættu hins vegar að snúast um kerfisbreytingar sem hugsanlega leiddu til bættrar stöðu til einhverrar framtíðar. Undanfarna áratugi hafa efnahagsgerðir líkar þeim sem nú eru í undirbúningi dunið yfir þjóðina. Þær hafa aldrei gagnast almenningi. Þær hafa verið afieiðing valdabaráttu forystumanna verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda annars vegar og stjórnmálamanna hins vegar. Allir þessir hafa síðan hag af því að umbjóðendur þeirra haldi að þeir séu að vinna þeim góðverk. Ef ekkert er um að semja er best að semja ekki um neitt. Endilega rann- sóknarnefnd Stjórnarandstaðan á þingi hefur krafist þess að viðskipti Hrafns Gunnlaugssonar við Ríkisútvarpið, menntamála- ráðuneytið og stofnanir þess verði kannaðar af sérstakri þingnefiid. Þar sem farsinn í kringum Ríkisútvarpið er fyr- ir löngu orðinn að flokkspólitísku máli eru engar líkur til að þessi nefnd verði skipuð. Því miður. Hrafn Gunnlaugsson er ekki stærsta vandamálið í ís- lensku þjóðlífi. Hann hefur vissulega fengið mikið af styrkjum úr opinberum sjóðum og staðið í stórviðskiptum inni á skrifstofum ráðherra. Þær upplýsingar sem komið hafa fram á undanförnum dögum benda til að þessi við- skipti séu sum hver vafasöm. Það er sjálfsagt mál að rann- saka þau og þingnefhd er án efa rétti vettvangurinn. Eng- inn heldur því fram að Hrafn eða þeir sem hafa styrkt hann hafi brotið lög. Þetta er siðferðislegt mál og á því heimaíþingnefnd. Áhugi stjórnarandstöðunnar á þingnefnd um Hrafh ætti að benda til þess að hún gæti fallist á að þingheimur kann- aði önnur mál með þessum hætti. Ef til vill er til of mikils mælst að stjórnarandstaðan taki á málum á borð við pen- ingauppgufunina í Landsbankanum. Hún gæti hins vegar rannsakað fjármál stjórnmálaflokkanna, útgjöld ráðuneyt- anna vegna flokkshagsmuna ráðherranna og svo framveg- is. Jafnvel þótt hún vilji forðast umfangsmikil mál er nóg til af málum á stærð við mál Hrafns Gunnlaugssonar. En þótt Hrafn sé ekki stærsta vandamál íslendinga í dag er alls ekki vitlaust að byija á honum. Það gæti orðið til að kveikja áhuga þingmanna á meðferð opinbers fjár. Þegar sá áhugi hefur kviknað er af nógu að taka. BLAÐAMENN Bergljót Friðriksdóttir, Friðrik Þór Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Jón Óskar Flafsteinsson útlitshönnuður, Jónas Sigurgeirsson, Jim Smart Ijósmyndari, Karl Th. Birgisson, Kristán Þór Árnason myndvinnslumaður, Sigriður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Telma L. Tómasson. PENNAR Stjórnmál: Árni Páll Árnason, Einar Karl Flaraldsson, Guðmundur Einarsson, Flannes Flólmsteinn Gissurarson, Hreinn Loftsson, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn Kárason, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Össur Skarphéðinsson. Listir: Gunnar Árnason, myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntir, Martin Regal leiklist. Teikningar: Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján Þór Árnason. Setning og umbrot: PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI ANDSVAR Fallin spýtan Þórarinn Eldjárn skrifarí tilefniafgrein Marðar Árnasonar í síðustu PRE55U Við sem settum nöfn okkar undir mótmæli gegn brottvikn- ingu Hrafns Gunnlaugssonar úr starfi dagskrárstjóra sjónvarps vorum vissulega að mótmæla aðför að skoðanafrelsi, aðför sem okkur þótti ekki hæfa yfir- manni Ríkisútvarpsins, þeirrar stofnunar sem á að vera brjóst- vörn málfrelsis í landinu. Séra Heimir Steinsson gaf að vísu ekki upp neina ástæðu fyrir brottrekstri Hrafns, en skýrt kom ffam að ráðherra sínum og velgjörðamanni hafði þessi genetíski embættismaður ekki tjáð annað en að orð Hrafns felld í sjónvarpsþætti lægju þarna til grundvallar. Það var þetta sem okkur þótti alvarlegt mál, tjáningarfrelsismál, og haf- ið yfir allar vangaveltur um per- sónu Hrafns Gunnlaugssonar. Ýmsir sem leitað var til um undirskrift kváðust okkur fúll- komlega sammála (og reyndar öllu sem Hrafn sagði í þættin- um), en treystu sér þó ekkftil að vera með vegna spýtu nokkurr- ar sem pískrað væri um að væri í raun burðarásinn í gemingi sr. Heimis og ótalmargt héngi á. Af óþekktum ástæðum hefði út- varpsstjóri kosið að sýna menntamálaráðherra ekki spýt- una áður en hann lét til skarar skríða gegn Hrafni, en samt væri búist við að hún yrði mjög fljótlega höfð almenningi til sýnis. Skemmst er þó ffá því að segja að engin slík sýning hefúr enn farið ffam. Hékk ekkert á spýtunni eða var hún kannski aldrei til? Greinilega ekki ef trúa má orð- um Marðar Ámasonar í síðasta tbl. PRESSUNNAR. Fyrir hon- um er málið einfalt: Hrafn hafði verið með „kjafthátt“ og fyrir slíkt eru menn að sjálfsögðu „settir af‘. í því felst engin mál- frelsisskerðing og valdsmenn sem fyrir slíku standa eru ekki valdníðingar heldur bara „geð- ríkir“ og „hugmiklir“. Að minnsta kosti þegar einn af „okkur“ er að reka einn af „hin- um“. Þetta var fyrsta vers. Setning Hrafns í stöðu framkvæmda- stjóra til eins árs er síðan annað vers og undirskriftirnar tengjast henni að sjálfsögðu ekki. Vegna aðdraganda og aðstæðna er eðlilegt að deilt sé um hvort þessi ráðstöfun menntamála- í ‘f t „Eða hvar voru sömu hetjurþegar tilkynnt var um þcer stöðuveitingar Ólafs G. Einarssonar sem svo sann- arlega eru fordœmanlegar? Enginn spangólaði einu sinniþegar hann gerði sr. Heimi Steinsson að út- varpsstjóra, þvert á móti hefur sr. Heimir verið tekinn í dýrlingatölu fyrir „geð“ og„hug“ nú þegar hann hefur skapað allan þennan ófrið um Ríkisútvarpið. “ ráðherra hafi verið fordæman- leg eða ekki, en augljóst ætti þó að vera öllum sem ekki eru blindaðir af pólitískri eða per- sónulegri heift að menntun og reynsla gera Hrafn út af fyrir sig fullkomlega hæfan til að gegna þessu starfi. Auk þess var staðan veitt í fullri sátt við þann sem leyst- ur er af, Pétur Guðfinnsson. Dæmalausar persónuofsókn- ir stjórnarand- stöðunnar á þingi á hendur Hrafni eiga sér því pólitískar orsakir fyrst og fremst, þær stafa af því að mönnum er kunnugt um vináttu þeirra Davíðs Odds- sonar. Eða hvar voru sömu hetj- ur þegar til- kynnt var um þær stöðuveit- ingar Ólafs G. Einarssonar sem svo sann- arlega eru for- dæmanlegar? Enginn span- gólaði einu sinni þegar . > hann gerði sr. Heimi Steinsson að útvarps- stjóra, þvert á móti hefur sr. Heimir verið tekinn í dýrlinga- tölu fyrir „geð“ og „hug“ nú þegar hann hefur skapað allan þennan ófrið um Ríkisútvarpið. Ekki man ég heldur eftir nema einstaka bofsi út af því þegar ráðherrann setti Guð- mund Magnússon blaðamann í embætti þjóðminjavarðar án samráðs við skipaðan þjóð- minjavörð, Þór Magnússon. En auðvitað er á það að líta að Þjóðminjasafnið hefur ekki sömu pólitísku þýðingu og Rík- isútvarpið og því ekki miðsviðs á áhugasviði stjórnmálamanna eins og Páls Péturssonar og Marðar Árnasonar. Mörður Árnason er nefhilega stjórnmálamaður, meðal ann- ars fyrrum talsmaður Ólafs Ragnars Grímssonar í bóka- skattsmálum, þó úrslit síðustu alþingiskosninga hafi nú hrint honum í lágan sess íslensku- fræðings um sinn. Hann er pól- itískur varðhundur í fríi. Við verðum þess vegna að hafa skilning á því að stöku sinnum þarf hann að sýna húsbóndan- um að enn sé hann klár á sínum pósti, alltaf tilbúúin í slaginn að glefsa og hælbíta ef lyklavöld skyldu breytast. Meðan friið varir þurfum við þó ekkert að óttast hljóðin sem heyrast nú frá honum: „Grrrrr, Grrrrr, Gjamm! Grrrrr, Grrrrr, Gjamm!“ Þórarinn Eldjárn FJ0LMIÐLAR LekurMogginn ÍPRESSUNA? Ekki skil ég hvers vegna stórkanóna eins og Hrafn Gunnlaugsson er svona við- kvæmur þegar rétt aðeins gust- ar um hann. Hann er að þessu leitinu eins og Sverrir Her- mannsson, sem eina stundina bölvar öllu lóðrétta leið til and- skotans en grætur þá næstu vegna þess að Jónas Kristjáns- son sagði að hann gæti ekki skúrað Landsbankann. Hrafn afhausaði svo gott sem alla starfsmenn Ríkissjónvarpsins einn daginn en vældi síðan um aftökur og mannorðsmorð á sjálfum sér þann næsta. Þessir tveir hafa sannað að það á jafrit við um þá dómhörðu eins og þá sem eru fyndnir á kostnað annarra að þeir þola það illa þegar þeirra meðulum er beint gegn þeim sjálfúm. Á sama hátt og þeir lauslyndustu eru alltaf afbrýðisamastir. Og Úlfar Þor- móðsson stefridi PRESSUNNI til að fá dómsúrskurð um æru sína. Annars ætlaði ég að skrifa um Hrafns/Heimis-málið. Það mál hefur endalaust margar hliðar. Ein sú skemmtilegasta var afsökunarbeiðni Heimis Steinssonar til Sveins Einars- sonar í Mogganum fýrir páska. Tilefnið voru tilvitnanir sem PRESSAN birú úr bréfi Heimis til Hrafris og fjölluðu um Svein. Þessar tilvitnanir og aðrar bentu til að útvarpsstjóri væri ekki fyllilega í jafnvægi og af- sökunarbeiðni hans sannaði það síðan endanlega. Um leið og Heimir viðurkenndi með sínum hefðbundnu krúsídúll- um upp á sig ummælin reyndi hann að gera Hrafn ábyrgan fýrir þeim þar sem hann hlyti að hafa lekið þeim í PRESS- UNA. Hrafn svaraði fýrir sig með að segja að hann hefði lát- ið bréfið fýlgja með öðrum gögnum sem hann afhenti menntamálaráðherra eftir að Heimir rak hann. Hrafn bætti því síðan við að hann hefði lát- ið ritstjóra Morgunblaðsins fá affit af bréfinu. Þetta síðasta sannar að Heimis/Hrafris-málið er óend- anlega fýndið. Um leið og mað- ur hefur uppgötvað eina hlið á því birtast fleiri enn skemmti- legri. Hver lak tilvitnunum úr bréfinu í PRESSUNA? Ekki var það Hrafn og ekki heldur Heimir. Báðir hafa svarið fýrir það. Þá eru eftir, samkvæmt upplýsingum Hrafris, mennta- málaráðherrann Ólafúr G. Ein- arsson eða Morgunblaðsrit- stjórarnir Styrmir og Matthías. Ég ætla ekki að upplýsa það hér. Ég ætla ekki einu srnni að segja neitt til um hvort það voru einhverjir þessara eða ein- hverjir allt aðrir. Mér er reyndar sama hver lak bréfinu. Ég vil hins vegar vita hvers vegna bréfið sem Morgunblaðsritstjórarnir sátu á birtist í PRESSUNNI en ekki Mogganum? Og hvort þeir fé- lagar liggja á fleiri svona bréf- um sem lesendur Moggans vildu hugsanlega fá að heyra af? Og hvers vegna Hrafn sýndi Moggaritstjórunum bréfið af öllum mönnum? Cunnar Smári Egilsson „Hver lak tilvitnunum úr bréfinu í PRESSUNA? Ekki varþað Hrafn og ekki heldur Heimir. Báðir hafa svariðfyrir það. Þá eru eftir, samkvœmt upplýsing- um Hrafns, menntamálaráðherrann Ól- afur G. Einarsson eða Morgunblaðsrit- stjórarnir Styrmir ogMatthías. “

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.