Pressan - 15.04.1993, Side 15
Fimmtudagurinn 15. apríl 1993
||§||a||gc •-■ ■■ Ag§§g|§§g§i||g§k.
AKUREYRINGARVILDU
TRYGGINGAR FYRIR ÞJÓÐ-
LÍFSKRÖFUNUM...
>Sem kunnugt er hafa Jó-
I hannes Halldórsson og fé-
lagar hjá Innheimtum og
ráðgjöf komið Þjóðlífskröfunum aftur
á kreik. Hafa þeir sent út gíróseðla
með nauðungaruppboðskröfum.
Þessar beiðnir þeirra um nauðungar-
uppboð hafa þó fengið misjafna með-
ferð. Hjá Héraðsdómi Norðurlands á
Akureyri var ákveðið að fara ffam á
30.000 króna tryggingu með hverri
uppboðsbeiðni og voru
þær endursendar
með þeim skilaboð-
um. Eftir það hefur
ekkert heyrst frá
Innheimtum
og ráðgjöf.
JÓHANNFÆR
TfUNDADÓMINN...
i í gær var kveðinn upp dóm-
( ur yfir Jóhanni Jónasi Ing-
ólfssyni vegna aðOdar að
innflutningi á hassi í febrúar 1990. Jó-
hann fékk sjö mánaða fangelsi, þar af
þrjá mánuði skilorðsbundna í þrjú ár.
Hann á að baki níu refsidóma fyrir
annars konar brot, þjófhað og „skírlíf-
isbrot“, auk dóma fyrir minni háttar
brot.
GÍSLIÖRN í TRYGGINGAR Á NÝ...
, Heldur hefur farið lítið fyrir Gísla Erni
Lárussyni eftir að hann hætti í Skandía-fyrir-
tækinu í lok síðasta árs. Gísli hefúr síðan unn-
ið að ýmsum smáverkefhum en nú hefur heyrst af því
að hann eigi hugsanlega innkomu á vátrygginga-
sviðið aftur. Eru neíhdir þar til erlendir aðilar
og þá sérstaklega ffanskir, sem munu vera að
leita fyrir sér hér á landi.
JET BLACK J0E Á LEIÐ ÚT í
„HEIMSFRÆGÐINA"...
, Fyrir skömmu kom hingað
til lands maður að nafni Paul
Adams frá Polygram-tónlist-
arútgáfufyrirtækinu á Englandi. Hing-
aðkoma hans byggðist gagngert á því
að hlusta á drengina úr Jet Black Joe
fremja tónlist sína. Færri vita hins
vegar hvar og hvernig sú hlustun fór
ffarn; slegið var upp tónleikum í Ing-
ólfscafé helgina fyrir páska með það
eingöngu fyrir augum að Adams þessi
gæti hlýtt á hljómsveitina. Það er
skemmst frá því að segja að Jet Black
Joe vakti hrifhingu Pauls, sem telur þá
mjög góða og „orginaT. Hann vill fá
þá innan noldcurra vikna í heimsókn
til Bretlands svo að tíu toppar fyrir-
tækisins geti einnig hlýtt á þá. Ef allir
verða jafhhrifnir og Paul þessi má bú-
ast við að næsta skrefið verði samn-
ingur. Þess má geta að þetta er sama
fyrirtæki og fleytti Sykurmolunum út í
heimsffægðina.
MÆTTURÍSÍÐKJÓLÁ
SLYSADEILDINA...
0Starfsfólki slysadeildar
Borgarspítalans brá
heldur betur í brún að-
faranótt skírdags, þegar ungur
karlmaður kom æðandi inn á
deildina, klæddur síðum, svört-
um kjól með klauf upp á mið læri
og í hælaháum skóm. Þegar betur
var að gáð kom í ljós, að maður-
inn uppábúni var að koma af veit-
ingahúsinu Laugavegi 22, en ekki
mun heyra til tíðinda að rekast
þar á karlmenn klædda kjólum.
Ekkert amaði að manninum, sem
reyndist vera í fylgd með Jean-
Philippe Labadie, aðalleikara
kvikmyndarinnar Stutts frakka,
en hann varð fyrir bíl um nóttina,
þar sem hann var staddur fyrir
utan veitingahúsið 22 ásamt
fjölda fólks. Auk kjólmannsins
voru tveir aðrir karlmenn í för
með Frakkanum, sem reyndist
vera illa brotinn á fæti, en þeir
voru þó báðir klæddir hefð-
bundnum karlmannafötum.
Þú pantar eina og
1 færð aðra á hálfvirði
St.
Pizza Hut kynnir Pizzupar -
frábæra nýjung. Þú kaupir eina
pizzu, miðstærð, stóra eða júmbó,
með því sem þér þykir best. Síðan
kaupir þú aðra, annaðhvort með
því sama eða velur álegg sem
öðrum í fjölskyldunni þykir best
og færð 50% afslátt af þeirri pizzu.
Með Pizzupari eykur þú
fjölbreytnina og allir fá
eitthvað við sitt hæfi.
Ókeypis heimsendingarþj ónusta.
Hótel Esju, sími 680809
Mjódd,sími682208
fe
■
!
■
■
-• ■
BYGGÐAVERKI
REDDAÐMEÐ
70MILUÓNA
ÁBYRGÐ...
Það hefur allt gengið
afturfótunum í
verktakabransanum
síðustu misserin og af ein-
hverjum ástæðum gengur
verst ef fyrirtæki á þessu sviði
eiga höfuðstöðvar í Hafnar-
firði. Vandræði Hagvirkis og
SH-verktaka er óþarfi að rekja
og brátt verður gert upp yfir
100 milljóna króna þrotabú
Reisis þar í bæ. Eitt af fimm
stærstu verktakafyrirtækjum
landsins er Byggðaverk og
það á heima í Hafnarfirði, að-
almaðurinn í því fyrirtæki
hefur verið Sigurður E. Sig-
urjónsson. Fyrirtækið hefur
staðið höllum fæti undanfar-
ið, sagt er að skuldir þess séu
um 500 milljónir króna. Það á
ágæt veð og verkefnastaðan er
góð, en er í miklu lausafjár-
basli og gengur á dýrum
skammtímareddingum. Sig-
urður ofangreindur ætlaði að
kúpla sig út úr fyrirtækinu
fyrir nokkru, enda að byggja
upp fyrirtæki í Bandaríkjun-
um, en íslandsbanki mun
hafa krafist þess að hann sett-
ist við stjórnvölinn á ný. í
kjölfarið hafa hætt Óskar
Bragi Valdimarsson fram-
kvæmdastjóri og Karl G.
Ragnarsson stjórnarmaður.
Nýlega samþykkti síðan bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar ein-
falda bæjarábyrgð fyrir 70
milljónum króna vegna
Byggðaverks. Fyrirtækið er
jafnan með á bilinu 100 til 200
manns í vinnu og mun skulda
lífeyrissjóðum háar upphæðir
vegna þeirra. Þá munu undir-
verktakar hafa fengið íbúðir
sem greiðslu í stað peninga.
DVEGISHÚSGÖGN
Frá laugard. 10. - 18. apríl
Margar tegundir
húsgagna seldar
á mikið lækkuðu
SÍÐUMÚLA 20 • SÍMl 91-688799