Pressan


Pressan - 15.04.1993, Qupperneq 18

Pressan - 15.04.1993, Qupperneq 18
18 PRESSAN G L E Ð S A L A R KULUROKK Fimmtudagurínn 15. apríl 1993 BIOIN HASKOLABIO Vinir Péturs Peter's Friends ★ Kenneth Branagh hefur hér búið til afspyrnuleiðinlega endurfundamynd (anda Big Chill. Hann býður upp á allan matseðilinn; alkóhólisma, ungbarnadauða, gjálífi, hjónaerjur, brostna drauma ásamt óheyrilegu magni af þeim söknuði eftir æskunni sem slær fólk fimm árum eftir að það lýkur námi. Þegar einn vinurinn upplýsir að hann sé með HlV-veiruna hverfur skáldskapurinn end- anlega úr sögunni og útvatn- að vandamálakjaftæðið verð- ur eitt eftir. Kraftaverkamaðurinn Leap ofFaith ★★ Steve Martin er fyndinn. Hann skyggir á alla aðra leikara og tekst meira að segja að draga athygli áhorf- enda frá væminni og frekar bjánalegri sögu myndarinn- ar. Á bannsvæði Trespass ★★ Spenna á litlum gólffleti. Bóhemalíf ★★★ Hrá mann- lífslýsing frá Aki Kaurismáki. Howards End ★★★ Bók- menntaverk gert að góðri bíómynd. Elskhuginn The Lover ★★★ Hugljúf saga um ást og losta. Karlakórinn Hekla ★ Vond mynd og metnaðarlítil. LAUGARASB Hörkutól Fixing theShadow ★ Laugarásbíó er orðið að musteri B-myndanna. Það væri gleðiefni ef B-myndirnar væru jafngóðar og þær voru á gullöld Hafnarbíós. En svo er ekki. Tvífarinn Doppelganger © Vond mynd. Svala veröld Cool World ★★ Ralph Bakshi (Fritz the Cat) hefur hér búið til hráa og sorglega hugmyndalausa út- gáfu af Who Framed Roger Rabbit? Nemo litli ★★★ Falleg teiknimynd. REGNBOGI NN Ferðin til Las Vegas Hon- eymoon in Vegas ★★ Það má vel hlæja að þessari mynd; sérstaklega örvæntingu Nico- las Cage. Englasetrið ★★ Þokkaleg gamanmynd frá frændum vorum Svíum. Nótt í New York Night in the City ★★ Þótt leiðinlegt sé að segja það þá fellur þessi mynd á leik sjálfs Roberts De Niro. Chaplin ★★ Myndin sem fékk menn til að spyrja sig hvort Chaplin hefði í raun verið nokkuð fyndinn. Tommi og Jenni ★★★ Krökkunum þykir hún fyndin. Prinsessan og durtarnir ★★★ Ævintýri. SAMBÍÓIN Stuttur frakki ★★★ Lofum guð fyrir að það er komin ný kynslóð til að leysa þá frá '68 af hólmi. Stuttur frakki er í ætt við Sódómu og Veggfóð- ur. Langt frá þvl fullkomin en það er eitthvað svo undar- lega þægilegt að vera laus við sjálfbirgingsháttinn sem hefur einkennt íslenskt bíó hingað til. Maður nær andan- um í bíó. Konuilmur Scentofa Woman ★★★ Leikur Als Pacino og Chris O'Donnel er næg ástæða til að sjá myndina. Háttvirtur þingmaður The Distinguished Gentleman ★ Murphy á ágæta spretti en alltof fáa til að halda uppi þessari gleðilausu mynd. Hinir vægðarlausu Unforgi- ven ★★★★ Frábær mynd um áhrif ofbeldis á ofbeldis- manninn. ★*** IRsffllsÉffi mnk Lás ★ Ljótur leikur The Crying Game -k-kirk Kemur jafnvel útlifuðum bíófríkum á óvart og fær þau til að gleyma sér. Elskan, ég stækkaði barnið Honey, I Blew Up The Kid ★★ Óhæf nema öll fjölskyldan fari saman í bíó. Gamanmynd fyrir börnin. Hryllingsmynd fyrirforeldrana. Olía Lorenzos Lorenzo's Oil ★★★ Vel sögð saga foreldra sem leita þar til þau finna lækningu við banvænum sjúkdómi sonarsíns. Lífvörðurinn The Bodyguard ★ Mislukkuð mynd með myndarlegum leikurum. Aleinn heima 2 - Týndur í New York HomeAlone2- Lostin New York ★★★★ Mynd ársins fyrir aðdáendur dett'-á- rassinn-húmors. Bambi ★★★★ Þó ekki væri nema vegna sagnfræðilegra ástæðna er skylda að sjá Bamba reglulega. Fríða og dýrið The Beauty and the Beast ★★★★ Snilld- arverk. 3 ninjar ★ Fyrir tilvonandi vandræðaunglinga. STJORNUBIO Hetja Accidental Hero ★★★ Þrátt fýrir yfirþyrmandi leið- indi persónunnartekst Dust- in Hoffman ekki að eyði- leggja söguna með ofleik eins og honum hættir til. Galdur myndarinnar liggur í handritinu og frásagnargleði leikstjórans. Bragðarefir Mo'Money ★ Myndin er hröð og skemmti- leg þegar við sjáum heiminn með augum Damons Wayans en leysist síðan upp. Drakúla Bram Stoker's Drac- ula ★ Góð mynd fyrir áhuga- menn um förðun en sagan sjálf er nánast óbærilega leið- inleg. Heiðursmenn A Few Good Men ★★★ Gott réttardrama með stólpagóðum leik. Sálin hætt! Það er sama hvað hver segir; vinsælasta hljómsveit landsins til margra ára, Sálin hans Jóns míns, er hætt. Síðasta ball sveit- arinnar var á annan í páskum í Njálsbúð í Vestur-Landeyjum. Slegið var upp heilmikilli drykkjuveislu þar sem gamlir meðlimir sveitarinnar mættu og tóku í hljóðfæri og aðdáendur fóru yfir um af gleði og sorg. Stefán og Friðrik geta nú snú- ið sér að vinnslu Pláhnetuplöt- unnar „Speis“, Guðmundur að Pelican og Birgir að trommu- störfúm með Silfurtónum. Stefán tók ekki fyrir að Sálin kæmi saman aftur — einhvern tímann og þá ekki endilega í þessari síðustu mynd. Ástæðan yrði þó ekki peningaleysi — Sálin kemur ekki saman aftur jafnvel þótt öll verkefiii-sumars- ins floppi algjörlega hjá með- limum sveitarinnar. „Þetta er ekkert undirbúið peningaplott," fullyrti Stefán, sem hefur mörg járn í eldinum fyrir utan Plá- hnetuplötu og sveitaballarúnt í sumar, þ.á m. sólóplötu sem hann er byrjaður að hugsa um og stefnir á að koma út fyrir jól- in. Það má því búast við að Stef- án og Friðrik og Guðmundur með gömlu mönnunum rekist nokkuð á í sumar á vegum landsins og eins gæti Birgir trommari valdið nokkrum usla ef honum tekst að markaðs- setja Silfurtónana almennilega og bóka þá á böllin. Fyrir utan fyrrum Sálar-menn verða svo líkast til allt að tuttugu hljóm- sveitir vafrandi á rykugum vegum landsins leitandi að samkomuhúsum. Það kemur þvf fljótt í ljós fyrir Sálar- menn hvort gamla máltæk- ið „Sameinaðir stöndum við, sundraðir föll- um við“ reyn- ist rétt. stefán HlLMARSSON Síðasta sveitaballið búið og Plá- hnetuplatan „Speis" fram- undan. Ur karaoke í kúlurokk Spjallað við Yucatan, sigurvegara Músíktilrauna Þeir nefna sig eftir skaga í - Mexíkó og unnu Músíktilraunir Tónabæjar í ár. Yucatan er ung hljómsveit úr Breiðholti og Ár- bæ. Trommarinn Óli Björn, sem kallar sig Óbó, er fimmtán ára en tekur flesta trommara landsins í nefið með frábærri leikni. Birkir Björnsson er sautján og spilar á bassa og Reynir Baldursson er átján og syngur og spilar á gítar. Sveitin var bæði áberandi þéttust á Til- raununum og spilaði einnig áberandi karaktermestu tónlist- ina — þungt nýrokk sem þó er fullt af olnbogarými fyrir skap- andi tilraunir. „Sigurinn verður vonandi til þess að við komum sterkir inn í bransann," segja strákarnir. Þeir ætla að reyna að spila mik- ið í sumar. Segið mérsögu Yucatan. „Við hétum upphaflega Ví- dalíns-postular og vorum eins konar lifandi karaoke-box. Þetta var fyrir svona tveimur ár- um. Við spiluðum Clapton-lög og fengum að spila á balli í FellaheUi en öryggið var tekið af eftir tíu mínútur. Svo fengum við vitrun; Reynir fór að syngja og við þróuðumst í „bubble"- rokksveit. Við erum stoltir af að vera eina starfandi „bubble“- rokksveitin á landinu í dag.“ „Bubble“-hvað? „Bubble“ eins og í tyggjókúlurokki? „Nei, „Bubble“ eins og í „kúlu“ — „kúlurokk“.“ Jœja, allt í lagi. Segið mér, POPP Merkikerti oggleðirokk DEPECHE MODE SONGS OF FAITH AND DEVOTION ★★ SPIN DOCTORS POCKET FULL OF KRYPTONITE ★★★ GUNNAR HJÁLMARSSON Depeche Mode eru með elstu og stærstu hljómsveitun- um í dag. Þeir hafa farið í gegn- um ýmis skeið og þá oftast elt tíðarandann, ekki skapað hann nema að hluta til í byrjun þegar hljómsveitin var brautryðjandi í enska smápíutölvupoppinu sem leiddi af sér nýrómantík- ina. Fyrri afurðir hafa elst illa. Og þótt nýja platan, sú tíunda, sé á yfirborðinu nýtískuleg og sýnist vitræn og „þung“ eru lögin þó flest gerð úr utanað- komandi frauðplasti. Það vantar ekki að íburður- inn er gríðarlegur, platan tekin upp í helstu stórborgum Evr- ópu, unnin á tæplega ári og ég veit ekki hvað og hvað. Það sem stendur þó eftir er að lögin kikna oftast undan hleðslunni. Inn við beinið eru þau í besta falli ágæt dægurlög en er ætlað að vera eitthvað allt annað og merkilegra. Svona gömul og stór bönd viðurkenna nefnilega aldrei að þau séu „bara“ dæg- urlagahljómsveitir. Líkt og U2 rembist Depeche Mode við að halda gáfumannastimplinum á lofti og hamra honum á allt sem hún gerir. Depeche Mode heldur sínu striki hér, enda þótt strikið sé að megninu til stolið. Aðeins útlit söngvarans og smáskífu- lagið „I feel you“ koma upp um drengina; þeir hafa hnuplað smávegis frá Seattle-rokkinu. í laginu „I feel you“ eru hráir gít- arar notaðir til að dulbúa frekar þunna lagasmíð. Lagið stingur í stúf við annað efni plötunnar — hin lögin eru öll hæg, hátíð- leg og í mikilfenglegum bún- ingi; merkikertarokk í topp- klassa. Því verður ekki neitað að vinnslan nálgast tæknilega full- komnun og mörg lög luma á góðum melódíum, ef maður nennir að grafa sig í gegnum hástemmdan hjúpinn. „One Caress" og „Condemnation“ eru t.d. snotrar ballöður og í „Rush“ eru drengimir á heima- slóðum rafeindapoppsins. Depeche Mode ætti með þess- ari plötu að tryggja enn stöðu sína í efstu þrepum poppgogg- unarraðarinnar, því platan er nógu yfirborðskennd til að áhangendurnir fyllist gleði og telji hér enn eitt meistaraverkið komið. Leiðin á popptoppinn hefur verið hlykkjótt hjá New York- sveitinni Spin Doctors. Fyrsta breiðskífa sveitarinnar, sú sem hér er til umfjöllunar, kom út 1991 og seldist í 60.000 eintök- um, aðallega til harðra aðdá- enda sem sveitin hafði aflað sér með endalausum tónleika- ferðalögum. Það leit út fýrir að ekkert meira yrði úr sveitinni en þá fór lagið „Little miss can’t be wrong“ að heyrast æ offar á útvarpsstöðvum og varð síðan eitt vinsælasta lagið á MTV. Hljómsveitin fór að spila fyrir stærri og stærri áhorfendaskara og þegar peningaveskin hjá Ep- ic-samsteypunni áttuðu sig á vinsældunum og settu fúlgur í auglýsingar komust Spin Doc- tors ffarnan á Rolling Stone og í dag hefur platan náð tveggja milljóna eintaka sölu og rýkur enn út. Það heyrist á plötunni að meðlimirnir hafa lifað í rútu síðustu árin og spilað uppá næstum hvert einasta kvöld. Lögin eru mjög þétt og djamm- fílingur í þeim. Tónlistin er „Það heyrist á meðlimum Spin Doctors aðþeir hafa lif- að í rútu síðustu árin ogspilað upp á nœstum því hvert einasta kvöld. “ pöbbakennt gleðirokk sem sækir jafnt í nýmóðins pönk- fönk, riþmablús og hipparokk — fi'nasta gleði- og partípopp. Þegar hafa „Little miss can’t be wrong“ og „Two Princes“ gert það gott, en fleiri lög hafa alla burði til að síast inn í útvarps- hlustendur. Þótt auðveldlega megi hafa gaman af sveitinni eru hér engir poppsnillingar á ferð, engin ffumlegheit né sér- staklega ferski^ straumar. Þeir spila tónlist sem í fáu er frá- brugðin ríkjandi úrvali, en létt- leikinn og fundvísi á grípandi melódíur hafa helst komið þeim á kortið hjá fjöldanum. hverju má búast við afykkur og afhverju fóruð þið að spila? „Við vorum aldrei neitt góðir í fótbolta, — aldrei valdir í lið og svona. Við rottuðum okkur eiginlega saman út af því. Fram- tíðin? Ja, við stefhum auðvitað á spjöld sögunnar — deyjum annaðhvort úr ofneyslu eitur- lyfja 27 ára eða verðum gamlir og gefum út styrktarplötu fyrir eitthvert gott málefni." Kom ykkur á óvart að þið skylduð vinna Músíktilraunir? „Já, það kom nú frekar á óvart. Við áttum von á að kom- ast í úrslit en ekki vinna. Ætli þolið og snerpan hafi ekki verið það sem þurfti á lokasprettin- um, — við notuðum ekki stera.“ Hvernig leist ykkur á hin böndin? „Við heyrðum í þeim velflest- um og þau voru bara nokkuð fi'n. Annars hefur maður minni yfirsýn yfir þetta þegar maður er sjálfur í eldlínunni og verður heldur aldrei alveg hlutlaus.“ Af hverju eru svona fáar stelpur í rokkhljómsveitum? „Stelpur eru alltaf að gera eitthvað annað; eru í ballett, fimleikum eða í fyrirsætubrans- anum eða eitthvað. Þær hafa heldur ekki þann styrk sem þarf til að standast þrýstinginn í bransanum.“ Er íslenski markaðurinn nógu stórjyrirykkur? „Nei, metnaður okkar er meiri. Við stefnum t.d. að því núna að ná yfirráðum á norska markaðinum. Stefnum á Hol- menkollenrokk í sumar, en það er vissara að tala sem minnst um það.“ Einmitt það. Þá er bara að vona að Yucatan geri eitthvað sniðugt við hljóðverstímana sem þeir unnu með sigrinum. Það er stutt í að sveitin eigi efni á heila plötu, en þangað til verð- ur lagið um fjöldamorðingja- hippann Manson á „Núll“-disk- unum svokölluðu, sem koma út í sumar, að duga. Yucatan-drengir eru ágætt dæmi um nýja kynslóð nýrokk- ara. Þeir hafa alla burði til að láta að sér kveða — ef þeim endist ákefðin og tilbreytingar- leysi hins smáa rokkmarkaðar hér dregur ekki úr þeim allan kjark. Gunnar Hjálmarsson

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.