Pressan - 15.04.1993, Page 20

Pressan - 15.04.1993, Page 20
20 PR£SSAN A R FELAGSSKYTSINS Fimmtudagurinn 15. apríl 1993 Tekst Eric Cantona hið ómögulega að taka titilinn með sértil Manchester? Leikmaðurinn sem þolir ekki að vera í liði Menn verða gjarnan skáld- mæltir þegar Eric Cantona ber á góma. Svo mjög að þessum 26 ára knattspyrnumanni er oítar líkt við listamenn og lífskúnstn- jira en venjulega íþróttamenn. Eigi að síður er hlutskipti hans nú að standa undir væntingum „svekktasta“ aðdáendahóps í heimi íþróttanna; nefnilega að- dáenda rauðu djöflanna frá Manchester. (Það er helst að finna megi samjöfnuð meðai KR-inga hér heima á Fróni, en það er önnur saga.) Cantona er af mörgum talinn hafa það sem til þarf að bera til að landa titlinum hjá United — að standa hæfilega mikið á sama. Vandinn er sá að þeir United-menn fara á taugum þegar titillinn er í sjónmáli og Wdptir þá engu þótt forskot þeirra sé mikið. Á því gæti orðið breyting nú, þökk sé Cantona og að sjálfsögðu mjög hæfileika- rflku liði. Cantona hrökklaðist yfir til Englands fyrir rúmu ári eftir að hafa tilkynnt að hann væri hætt- ur að leika knattspyrnu. Hann er þekktur fyrir uppákomur innan og utan vallar. Árið 1988 var Cantona rekinn úr franska landsliðinu eftir að hann líkti landsliðsþjálfaranum Henri Michels við poka af hrossaskít! Má vera að honum hafi dottið þessi samlíking í hug eftir gegn- ingar, en Cantona á arabískan gæðing. Hjá Montpellier og Auxerre stóð hann fyrir slags- málum í búningsklefunum við liðsfélaga sína. Hjá Marseille- liðinu var hann sektaður fyrir að fara úr treyju sinni í miðjum leik. Hjá Nimes sauð að lokum upp úr þegar hann henti boltan- um í dómarann. Cantona var leiddur fyrir aganefnd sem dæmdi hann í leikbann. Þegar Cantona gekk í burtu frá dóm- araborðinu heyrðist hann tuldra; hálfvitar. Meðlimir aga- nefndarinnar heyrðu þetta og kölluðu Cantona aftur að borð- inu og báðu hann að endurtaka það sem hann tuldraði. Það hefðu þeir ekki átt að gera: Can- tona gekk að hverjum fyrir sig og sagði hátt og skýrt; hálfviti. Bannið var tvöfaldað og Can- tona sagðist vera hættur að leika knattspyrnu um leið og hann opinberaði þá skoðun sína að frönsk knattspyrna væri full af „lygurum og svindlurum". Platini telur hann einn afsex bestu Cantona er hins vegar talinn einn af hæfileikaríkustu knatt- spyrnumönnum heims og margir urðu til að reyna að fá hann til sín. Michel Platini segir hann einn af sex bestu ieikmönnum Evrópu og Pele og George Best hafa látið eitthvað svipað frá sér fara. Trevor Francis hjá Sheffield Wednes- day fékk Cantona yfir til Eng- lands en náði ekki að tjónka við hann. Howard Wilkinson hjá Leeds greip hins vegar tækifær- ið og tókst hið ómögulega; að laga Cantona að liðinu og jafn- vel fá hann til að sætta sig við að vera ekki alltaf í byrjunarliðinu. Afraksturinn var Englands- meistaratitillinn og Cantona varð dýrlingur í Yorkshire. Það var reyndar skrautlegt sam- band, því Cantona, sem málar og yrkir ljóð í frístundum (sic!), er ekki beinlínis líklegasti sálu- félagi enskra knattspyrnubulla sem ávallt hafa staðið föstum fótum í fátæktinni á Mið-Eng- landi. Ólík áhugasvið geta reyndar haft spaugilegar hliðar, eins og þegar Cantona lét hafa eftir sér í viðtali í leikskrá Leeds- liðsins að hann væri aðdáandi Rimbaud og fékk sendar heim þúsundir mynda af Rambó frá auðmjúkum Leeds-aðdáend- um! En Wilkinson náði ekki að halda Cantona og þá kom Alex Ferguson hjá United til skjal- anna. Honum hefur tekist að nýta sér Cantona þrátt fyrir alla hans galla. Skiptir litlu þó að Cantona sé að eðlisfari stjórn- leysingi sem á erfitt með að að- lagast liði — leikur United-liðs- ins tekur stakkaskiptum þegar hann er inná. Má vera að það dugi til að aflétta álögunum. fiUÐNI „OKKAR" BERGSSON MEÐ LÆGSTU EINKUNN... [Eins og flestum knattspyrnu- ' mönnum er kunnugt lék Guðni Bergsson síðustu tíu mínúturnar gegn Arsenal á Wembley-leikvanginum þarsíðasta laugardag. Bresku blöðin r^'lgdust vel með leiknum og í Daily Star var öllum leikmönnum gefin einkunn fyrir hann. Einkunnaskalinn var frá 5 upp í 10 og fékk Ian Wright, leikmaður quðn| Bergsson Arsenal, 9, en lægstu e.nkunnina hlaut Fékk, tu einkunn hjá Carter, sem einmg leikur með ArsenaL b!aða Jnni Dai|y Star.J Guðm var lægstur í liði Tottenham með ’ 6, og um hann sagði blaðamaðurinn: „Islendingurinn er vanur því vera hafður úti í kuldanum og hann er næstum því alltaf á vara- mannabekknum.“ Þess má til gamans geta að samkvæmt heimild- um PRESSUNNAR eru laun fyrstudeildarleikmanna á Englandi sjaldan undir 600 þúsund krónum á mánuði, þannig að þrátt fyrir að Guðni fái lítið að leika hefur hann það ekki svo slæmt strákurinn! MIKAEL TONAR Á LEIÐ í STJÖRNUNA? • Eins og flestum er kunnugt féll lið HK í Kópavogi í aðra i deild nú á dögunum. Meðal leikmanna þess er Tékkinn Mikael Tonar en hann er á förum frá félaginu. Nokkur lið hafa falast eftir honum, þar á meðal þýsk og svissnesk úrvalsdeild- arfélög. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum PRESSUNNAR hefur Stjarnan í Garðabæ einnig sýnt Tonar, sem er aðeins 23 ára, mikinn áhuga, en hann mundi tvímælalaust styrkja liðið verulega. Tonar, sem var í hópi markahæstu manna fyrstu deildar, er tékkneskur landsliðsmaður. I landsliðinu leikur hann sem hægri hornamaður en með HK hefur hann leikið fyrir utan. Ekki er gott að sjá hvern honum er ætlað að leysa af hólmi hjá Stjörnunni„en hægri horna- *Tnaður liðsins er Haf- steinn Bragason og fyrir utan hægra megin leikur Magnús Sigurðsson. Báð- ir þykja þeir færir leik- menn. Þá er ljóst að HK mun ekki láta Tonar frá sér fyrir minna en tvær *fnilljónir króna, sem er svipað verð og það greiddi fyrir hann á sín- um tíma. Samkvæmt heimildum blaðsins mun bæjarstjórn Garðabæjar hafa boðist til að greiða upp samninginn við HK, en það yrði þá Stjörnunn- ar að halda kappanum uppl' MikaelTonar f leik með tékkneska landsliðinu. Úrslitakeppnin íhandknattleik VALSMENN SIGURSTRANGLEGASTIR SELFYSSINGAR AD MISSA DAMPINN Framundan erhá- punktur handknatt- leikstímabilsins, sjálf úrslitakeppnin. Erfitt er að gera upp á milli liðanna og því fékk PRESSAN nokkra sér- fræðinga til að spá í leiki átta liða árslit- anna. Atli Hilmarsson Valur - ÍBV „Valur er með sterkasta liðið í dag og ég held að þeir taki Vestmanneyingana í tveimur leikjum. Þeir búa yfir mikilli breidd; valinn maður í hverri stöðu og menn á bekkn- um til að taka við af þeim.“ FH - Víkingur „FH-liðið er sterkara á flestum sviðum og Víkingsliðið hefur ekki leikið vel að undanförnu. Það hefur örugglega sitt að segja að þjálf- ari Víkings var lengi í burtu frá liðinu á heimsmeistaramótinu. FH sigrar Víkingana í tveimur leikjum." Stjaman - ÍR „Ég held að liðin þurfi að leika þrjá leiki og ég er ekki frá því að IR-ingar sigri í þessari viðureign. Mér frnnst muna miklu að Patrekur leikur ekki með í fyrsta leiknum fyrir Stjörnuna og næsti leikur er í Seljaskóla og þar hafa öll lið lent í vandræðum.“ Haukar - Selfoss „Þarna verða Atli Hilmarsson ótrúlegir leikir. Ég held að liðin leiki þrjá leiki og það verður heimavöllurinn sem gerir gæfu- muninn. Selfossliðið er ekki eins gott og það var í fyrra, þó svo að þar séu sömu menn á ferð. Haukar eru hins vegar mun sterkari nú en í fyrra og þeir munu komast áfram.“ Björgvin Björgvinss. Valur - ÍBV „Mér virðist Vals- menn vera með langsterkasta liðið í dag. Vestmanneyingar geta væntanlega staðið í þeim úti í Eyjum, en það yrði þá að- eins aukaleikur. Valsmenn, sem búa yfir mikilli breidd, munu komast áfram. FH - Víkingur „Ég heid að þetta verði tiltölulega létt fyrir FH-liðið. Munurinn á þessum liðum er fyrst og fremst sá að Víkingarnir hafa of fáa sterka ’leikmenn og FH-ingarnir hafa titil að verja. Því verður þetta erfitt fyrir Víkinga.“ Stjarnan - ÍR „Undir eðlileg- um kringumstæðum ætti Stjarnan að taka ÍR-inga, en nú er þetta mjög tvísýnt. Stjörnu- menn hafa verið mjög daprir að Björgvin Björgvinsson unanförnu en ÍR-ingar vaxið geysilega. Markvörður ÍR, Brynjar Kvaran, er gamalreynd- ur Stjörnumaður og gjörþekkir innviði Stjörnunnar. Þá má ekki gleyma því að IR er mikið bar- áttulið. Þrátt fyrir það held ég að Stjörnumenn komist áfram, í þriðja leik.“ Haukar - Selfoss „Haukarnir hafa verið mjög góðir síðustu leiki, en Selfyssingar daprir lengst af. Þeir hafa þó verið að lifna við í síðustu leikjum og ég held því að Selfyssingar nái að sigra þá tvö-eitt og komast þar með í undanúrslit.“ Hans Guðmundsson Valur - ÍBV „Ég held að það sé öruggt að Valsmenn komist áfram og að þeir sigri 2-0. Styrkur Valsaranna er mark- varslan og hraðaupphlaupin. Síðan er spurningin með ungu strákana hvernig þeir standa sig. Valsmenn hafa sýnt í vetur að þeir eru grimmir og þá þyrst- ir í titia.“ FH - Víkingur „Víkingsliðið er að skríða saman aftur en samt held ég að FH sigri þá í HansGuðmundsson tveimur leikjum. Munurinn á liðunum er fyrst og fremst fal- inn í markvörslu og varnarleik, sem er betri hjá FH, en bæði lið eru áþekk sóknarlega." Stjarnan - ÍR „Stjarnan mun sigra ÍR í þremur leikjum. Það kærni mér ekki á óvart þótt ÍR- ingar sigruðu í fyrsta leiknum, en Stjarnan sigrar svo næstu tvo. Stjörnumenn eru svolítið sleipir í að sigra leiki þar sem mikið liggur við, þrátt fyrir að þeir hafi steinlegið á móti Val um daginn.“ Haukar - Selfoss „Haukarnir komast áfram, þeir hafa leikið geysivel í vetur og að mínu viti eru þeir spútnikkliðið í vetur. Ég held að liðin sigri heimaleiki sína og því fari þetta tvö eitt fyr- ir Hauka. Styrkur Hauka er liðs- heildin og mikil barátta. Það er hvergi veikur hlekkur hjá þeim og þeir hafa sýnt virkilega góð- an bolta í vetur.“ Alfreð Gíslason Valur - ÍBV „Valur er án efa með sterkasta liðið í dag, en Eyjamenn hafa Sigmar Þröst Óskarsson markvörð og ef hann Alfreð Gíslason kemst í stuð gætu Valsmenn lent í vandræðum." FH - Víkingur „FH-ingar hafa verið í vandræðum vegna meiðsla leikmanna og því ekki náð að sýna sitt rétta andlit. Þeir eru með mun sterkara lið en Víkingur og ég hef þvf meiri trú á að FH fari áfram en Víkingar.“ Stjarnan - ÍR„Nú kemur það sér mjög illa fyrir Stjörnuna að hafa Patrek í banni og það er gífurleg pressa á Stjörnunni að sigra heimaleikinn. Ef ÍR-ingar ná að sigra fyrsta leikinn þá klára þeir heimaleikinn sinn. Ég held að Stjarnan verði slegin út á móti ÍR.“ Haukar - Selfoss „Selfyssingar hafa ekki sýnt það sem þeir gerðu í fyrra. Mér sýnist að þar séu einhver vandræði í gangi. Haukarnir eru með jafnan og góðan mannskap og hafa sýnt jafna og góða leiki, sérstaklega síðari hluta mótsins. Ég held að Haukarnir klári þetta nokkuð örugglega og ég held reyndar að Haukarnir séu það lið sem getur komið mest á óvart í úrslita- keppninni.“

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.