Pressan


Pressan - 15.04.1993, Qupperneq 23

Pressan - 15.04.1993, Qupperneq 23
Fimmtudagurinn 15. apríl 1993 15. tbl. 4. árg. HAFA SKAL PRESSANi SEM BETUR HLJOMAR 230 krónur í lausasölu (Wikuritið PRESSAIV fylgir án endurgjaldsJ Kjötkaupmaður á Akureyri LÍFGAÐIVID KINDA- SKROKK SEM HAFÐI LEGIÐ í FRYSTI í 3 ÁR „Ég hefverið að dunda mér við tilraunir í nokkur ár og virðist hafa dottið niður á réttu lausnina," segir Ingvar Friðriksson kjötkaupmaður. Akureyri, 15. apríl.___________ Kjötkaupmanninum Ingvarí Friðrikssyni tókst í fyrri viku að lífga við kindaskrokk sem legið hafði í frysti í þrjú ár. „Þetta byrjaði sem fikt hjá mér,“ segir Ingvar. „Ég hef haft áhyggjur af því hvað iambakjötið tapar miklum bragðgæðum við geymslu í frosti og ákvað að reyna að gera eitthvað í því. Þegar skrokkurinn jarmaði hélt ég að ég hefði gengið of langt. Kjötið var orðið ferskara en ég ætlaðist til. En svo sá ég að með þessu móti má geyma kjötið ótrúlega lengi í frysti; vekja það síðan upp, slátra því að nýju og borða það eins og það væri af ný- slátruðu.“ „Stefna okkar hefur alltaf verið sú að fara varlega í allar nýjungar," segir Haukur Halldórsson, formaður Stétt- arsambands bænda, aðspurður um hvort samtökin hygðust nýta sér þessa uppgötvun Ingvars. „Mér dettur til dæmis í hug að það sé alls ekki gott ef allt það kindakjöt sem við eigum í geymslum færi aftur á stjá. Ég held það mundi heyrast hljóð úr horni landverndarmanna ef það færi aftur að bíta gras.“ ingvar segist vonast til að uppgötvun sín leiði til aukinnar sölu á lamba- kjöti. „Með þessu má halda vörunni ótrúlega ferskri," segir Ingvar. Starfsmenn útvarpsins hafa áttað sig á að eina leiðin til að halda fólinu í útvarpsstjóranum niðri er að draga íslenska fánann að húni. Neyðarástand á Ríkisútvarpinu „ÞETTA VAR FÓLIÐ, ÞETTA VAR FÓLIГ - segir Una Friðriksen starfsstúlka, sem varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að mæta Heimi Steinssyni á göngum út- varpsins þegar fólið íhonum braust fram. „Ég sá hvernig guð- leg ásjóna hans breyttist í dímon," segir Una. Kraftaverk ÚTIDYRNAR HJA SAM- ÚTGAFUNNI OPNUÐUST Þrátt fyrír að Snorrí Óskarsson, forstöðu- maður Betel- safnað- arins, hefði lokað fyr- irtækinu í Jesú-nafni. Revkiavík. 15. april, „Ég get ekki skýrt þetta með mannlegum rökum. Hér er eitt- hvað yfirnáttúrulegt á seyði,“ segir Þórarinn Jón Magnússon, ritstjóri Samúels, en hann gekk beint inn á kontór sinn í morg- un þrátt fyrir að Snorri Óskars- son, forstöðumaður Betel-safn- aðarins, hefði lokað fyrirtækinu í Jesú-nafni í útvarpinu á skír- dag. Þórarinn segist aldrei hefði tní- að því að sér tækist að opna fyrir- tækið eftir að Snorri lokaði því — að minnsta kosti ekki án erfiðis- muna. „Ég heflent í því að skattstjórinn hefur lokað hjá mér og þá hef ég ekki komist inn fyrr en efiir dúk og disk og allskyns vesen. Nú stakk ég lyklinum bara í skrána og gekk inn. Eg get ekki kallað þetta annað en kraftaverk,“ segir Þórarinn Jón. Snorri Óskarsson vildi ekki tjá sig um málið í samtali við GULU PRESSUNA, en benti þó á að ekki mætti rekja öll tákn til himna. Umræðuþættir Ríkissjónvarpsins um Ríkissjónvarpið vekja athygli GULA PRESSAN OPNAR STARFSMANNAFUNDINA Reykjavík, 15. apríl. „Mér hefur fundist þessir fundir starfsmanna Ríkissjónvarpsins í beinni útsendingu afskaplega hlý- legt dagskrárefni og sé ekkert að því þótt við á GP tökum þetta upp eftir sjónvarpinu,“ segir Hlín Kjartansdóttir, formaður starfs- mannafélags GULU PRESSUNN- AR. Hún verður aðalgesturinn á fyrsta opna starfsmannafúndi GP, en nákvæm skáning hans mun birtast í næsta blaði. „Það má búast við fjörugum fundi,“ segir Hlín. „Við ætlum að ræða um mötuneytið, en það málefhi hleypir alltaf fjöri í umræðurnar. Síð- an verður rætt um árshátíðina og matseðilinn á henni. Auk þess verður imprað á ýmsum umgengnismálum, svo sem reykingum á vinnustað, um- gengni um kaffistofu og fleiru skemmtilegu. Til að fá meiri vídd í umræðuna munum við bjóða utanað- komandi gestum að sitja með okkur.“ Eins og áður sagði verður skýrsla af þessum fyrsta opna starfsmananfúndi GULU PRESSUNNAR birt í næsta blaði. Reykjavík, 15. apríl.________ Mikill ótti greip um sig meðal starfsfólks í útvarpshúsinu við Efstaleiti í gær, þegar fólið í út- varpsstjóranum braust fram enn á ný. Ung starfsstúlka, Una Friðrik- sen, átti leið um einn ganga húss- ins þegar hún mætti útvarpsstjór- anum um leið og fólið braust fram. Unu tókst að bjarga sér á hlaupum og fólið varð ekki hamið fýrr en Brodda Broddasyni frétta- manrn tókst að draga íslenska fán- annaðhúnL „Það mátti ekki tæpara standa,“ segir Broddi. „Fólið var að því komið Herbert Daníelsson skipstjóri er óánægður með þjónustufulltrúann TEK í HNAKKA- DRAMBIÐ Á HONUM ÞEGAR EG KEM í LAND - segir Herbert, sem segist hafa treyst þjón- ustufulltrúanum sínum ííslandsbanka og meira að segja auglýst hann í sjónvarpinu. að hreppa Unu en lyppaðist niður þegar fáninn var kominn upp. Þá birt- ist aftur hin rétta ásjóna Heimis.“ Starfsmenn Ríkisútvarpsins urðu varir við þetta fól nokkru áður en Heimir varaði Hrafn Gunnlaugsson við því í bréfi. Því hefur brugðið fyrir annað slagið á göngum útvarpsins. f fyrstu forðaðist það starfsfólkið en undanfarið hefur það gerst árásar- gjarnara. „Mér finnst eins og fólið hafi tvíeflst eftir að Hrafti var ráðinn aftur,“ segir Sigurður G. Tómasson, dagskrárstjóri Rásar 2. „Áður átti það til að hnupla sandköku úr mötuneytinu en gerði engum mein. Nú veður það um gang- anaívígahug.“ Starfsfólk Ríkisútvarpsins hefúr átt- að sig á að eina leiðin til að hemja fól- ið er að flagga íslenska fánanum á flaggstönginni fyrir utan útvarpshús- ið. „Við tókum eftir því að fólið birtist aldrei á föstudögum þegar útvarpsráð fúndar og flaggað er,“ segir Kári Jón- asson fréttastjóri. Herbert segist ekki geta beðið þess að koma í land og taka í lurginn á andskot- ans þjónustufulltrúanum. Hlín Kjartansdóttir segir eðlilegt að fleiri fjölmiðlar fylgi í kjölfar Ríkis- sjónvarpsins og GULUPRESSUNNAR og opni starfsmannafundi sína. Vestfjarðamiðum, 15. apríl.____________ „Ég hefði átt að sætta mig við vextina eina,“ segir Herbert Daní- elsson skipstjóri, en hann er einn þeirra sem urðu illa úti vegna gripdeildar þjónustufulltrúans í Islandsbanka. Tilfelli Herberts er einkar bagalegt þar sem hann hafði tekið þátt í auglýsingum um ágæti fulltrúans. „Auðvitað er ég reiður,“ segir Her- bert. „Ég er svo reiður áð ég lamdi til eins hásetans áðan. Ég verð því í góðri æfingu þegar ég hef uppi á fúlltrúan- ((

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.