Pressan


Pressan - 06.05.1993, Qupperneq 3

Pressan - 06.05.1993, Qupperneq 3
Fimmtudagurinn 6. maí 1993 S K I L A BOÐ PRESSAN BRÆÐURMUNU BERJAST... Ljóst er á um- | mælum þeim sem Davíð Oddsson forsætisráðherra lét falla í eldhúsdagsumræðum á Al- þingi síðasdiðinn mánudag að deilan á milli hans og Þorsteins Pálssonar sjáv- arútvegsráðherra um þorskaflann er ekki búin. Davíð sagði að ekki væri hægt að skera aflann meira niður en gert hefði verið á síðasta ári, en Þorsteinn hefúr hins vegar látið í veðri vaka að líklega sé ekki hægt að veiða nema um það bil 175 þúsund tonn, töluvert minna en Davíð vill. Það verður fróðlegt að fylgjast með hvemig þeim fjandvin- unum gengur að setja þessa deilu niður, en í fyrra end- aði hún með því að Þor- steinn hótaði afsögn ef hann fengi ekki sitt fram. GUÐMUNDURÍ KLAUSTURHÓLUM TILGJALDÞROTA- SKIPTA... Nýlega var kveð- inn upp gjaldþrota- úrskurður yfir Guðmundi Axelssyni, sem kunnastur er fyrir list- muna- og bókauppboð í Klausturhólum. Hann hóf feril sinn á þessu sviði fyrir tuttugu árum, þá í samfloti við Knút Bruun, en síðar skildi leiðir þeirra. Með ár- unum efiiaðist Guðmundur vel á viðskiptunum og byggði upp Laugaveg 71 (þar sem Hvannbergsbræð- ur og Parísartískan hafa ver- ið). Þá fasteign seldi hann og keypti Breiðfirðingabúð við Skólavörðustíg og er það talið hans fyrsta feilspor. Enn síðar keypti hann Laugaveg 8 og byrjaði að byggja tvær hæðir ofan á þá fasteign. Þær ffamkvæmdir mörkuðu endalok veldis Guðmundar; 1986 var fast- eignin slegin Útvegsbank- anum á uppboði, en bank- inn fékk þó ekki afsal fyrir eigninni fyrr en þremur ár- um síðar vegna málaferla. Af meintu fjármálaveldi Guðmundar má nefha frægt dæmi: Við álagningu 1985 vegna 1984 hafði Guð- mundur ekki skilað ffamtali og var því áætlað á hann og vel smurt. Niðurstaðan var skattar sem ffamreiknað til. núvirðis þýddu að hann hefði fiaft í 'tekjur um 4,5. milijónir á mánuði, sem þýddi 105% hærri tekjur en hjá Þorvaldi Guðmunds- syni í Síld og fisk. Álagning- in var kærð ’og við endur- álagningu lækkuðu fram talin mánaðarlaun niður í 115 þúsund að núvirði. Það eru vissulega ekki miklar tekjur, hjá manni sem með- al annars affekaði það 1982 að selja einmitt Þorvaldi Guðmundssyni Lífshlaup Kjarvals, þ.e. vinnustofú Jó- hannesar Kjarvals, og var mikil samkeppni um „verk- ið“. Hagstæðustu ferðatilboð sumarsins eru hjá Heimsferðum Með einstökum samningum geta Heimsferðir nú tryggt þér frábært sumarleyfi á spennandi áfangastöðum þar sem þú nýtur þjónustu reyndra fararstjóra með margra ára reynslu í fararstjórn og besta aðbúnað. París Benidorm Mexíkó 19.900,- 29.900,- 59.900,- Frá 7. júlí - 25. ágúst. Flug frara og til balca, vilculegar brðttfarir. Bcint lciguflug í samstarfi við stmrstu ferðaskrifsofur Frakklands. 29.900,- flug oggisting í viku. Takmarkað sætamagn. • Brottfön 7. júlí - 6 sæti laus ll.ágúst -fasæti laus 18,ágúst-uppselt. Frá 14. júlí - 22. sept. Bcint leiguflug, brottför alla miðvifeudaga. 34.900,- verð pr. mann, hjón með 2 böm, Evamar í 2 vikur. Glæsileg, ný íbúðahótel. Brottför: H.júlí-12 sacti taus 4. ágúst - fá sæti laus ■ 18. ágúst - uppselt Beint leiguflug Verð pr. mann, m.v. hjón með 2 böm, 2 vifeur, 8. júlí. 69.900,- verð pr. mann m.v. 2 í studio. Glæsileg 4 stjömu hótel. Brottför: 24. maí - uppsclt 10. júní - laus sæti , 24. júní - laus sæti Flngvallarskattar: Flugvallarskattar og forfallatrygging kr. 3.090,' f. fullorðinn, kr. ‘1.865,- f. böm. Flugvallarskattar: Flugvallarskattar og forfallatrygging kr. 3.510,- \. fullorðim, kr. 2.285,- f. börn. Flugvallarskattar: Flugvallarskattar og forfallatrygging kr. 3.710,- f. tullorðinn, kr. 2.485,- f. börn. HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 l.vinnmgur! Vertu með -draumurinn gæti orðið oð veruleika ! MERKISMENN HF

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.