Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 17

Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 17
SKILABOÐ Fimmtudagurinn 6. maí 1993 PRESSAN EKKISAMA HELGIOG SÉRAARNGRÍM- UR... • Sem kunnugt er hefur , y Helgi Jónsson átt í mikilli glímu við Flugráð og Loftferðaeftirlitið með að fá flugrekstrarleyfi fyr- ir flugfélagið Óðin. Síðan í janúar hefur Helgi barist fyrir því að fá leyfið og reynt að uppfylla kröfur um eiginfé. Kunnugir menn í flugbransan- um segja að þarna sé bara ver- ið að þreyta Helga og benda á afgreiðsluna sem Arngrímur Jónsson fékk með Atlantsflug, en hann fékk flugrekstrarleyfi eftir einn fund á sínum tíma. Það er reyndar athyglisvert að það leyfi miðaðist við rekstur einnar flugvélar en Arngrímur hefur svo sannarlega vaxið ffam úr eigin flugrekstrarleyfi, því nú er hann með átta flug- vélar í rekstri. SLASAÐISTVIÐ RÖNTGENMYNDA- TÖKU OG STEFNDI SPÍTALANUM... Fyrir skömmu var flutt fyrir Hæstarétti mál 68 ára gamallar konu sem slasaðist við röntg- enmyndatöku á Landspítalan- um árið 1986. Svo virðist sem liðið hafi yfir konuna við myndatöku, hún datt á gólfið og slasaðist töluvert. Upp- handleggur hennar brotnaði við axlarlið auk þess sem hún skarst á höfði. Út úr þessu kom 12 prósent varanleg ör- orka og fór konan fram á ríf- lega milljón króna í skaðabæt- ur með dráttarvöxtum frá því atburðurinn átti sér stað. Spít- alinn hafnaði öllum kröfum og bar því við að konan hefði fengið „drop attack“ sem mun vera algengt yfirliðseinkenni hjá konum á hennar aldri. Konan tapaði málinu fyrir undirrétti en er nú komin með það upp í Hæstarétt — sjö ár- um efiir að atburðurinn varð. ÁKÆRTVEGNANÝT- INGARÁ12MILU- ÓNA KRÓNA BLANKÓ VÍXLI_ Ákæruvaldið hefur gefið út ákæru á hendur hjónum hér í Reykjavík. Eru þeim gefin að sök umboðssvik, þar sem þau fénýttu 12 milljóna króna blankó víxil sem þau höfðu undir höndum. Hjónin munu hafa talið sig í fullum rétti til að nýta víxilinn enda hafi þau haft hann undir höndum sem tryggingavíxil fyrir ákveðnum viðskiptum, en þau stunda verslunarrekstur. Það sem vekur athygli við þetta mál er upphæð víxilsins, en óvenju- legt er að svo háir blankó-víxl- ar séu settir í umferð. VERD AÐ FÁ ÞAÐ BÍLALEIGUBÍLL í EINN SÓLARHRING INNIFALDIR 100 KM OG VSK HLAÐBREKKU 2, SÍMI: 91-43300, FAX: 91-42837, V/BSÍ, SÍMI: 91-17570 Stjörnu snakK - fyrir íslenskan saltfisk! Reykjavík Immingham Barcelona Bilbao SanSebastian Flutn.tími: 6 dagar Afh.dagur: Þriðjud. Hamborg Barcelona Bilbao SanSebastian 8 dagar Fimmtud. Antwerpen ! Barcelona Bilbao SanSebastian 9 dagar Föstud. Rotterdam I Barcelona Bilbao SanSebastian 10 dagar Laugard. * Miðað er við 6 - 10 daga ferðir með gámi aðra leiðina. Brottför alla miðvikudaga. Flutningur EIMSKIPS á saltfiski til Spánar er eitt dæmið um sveigjanlega, hag- kvæma og örugga þjónustu við saltfisksútflytjendur til Miðjarðarhafslanda. Val á milli nokkurra leiða til áfangastaðar gefur kost á mismunandi verði og afhend- ingartími er sveigjanlegur. Öflugur bílafloti erlendis og sérhæft starfsfólk EIMSKIPS hér heima og á skrifstofum okkar í Evrópu annast öruggan flutning alla leið. Fyrsta flokks kæligámar tryggja kjörhitastig á flutn- ingstíma (1 - 4 °C) og í Sundahöfn eru kæligeymsl- ur sérútbúnar með geymslu á saltfiski í huga. VIÐ GREIÐUM PÉR LEIÐ EIMSKIP Vlvi Uno, barnahjól meö hjálpardekkjum. Frá 3 ára, 12 1/2", verö kr. 8.800, stgr. 8.360. Frá 4 ára, 14", verö kr. 9.500, stgr. 9.025. Frá 5 ára 16" kr. 10.500, stgr. 9.975. Kreditkort og greiðslusamningar, sendum i póstkröfu. Vandið valið og verslið i Markinu - þar sem þjónustan er i varahlutum og viðgerðum.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.