Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 6

Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 6
PRESSAN F R ETT I R Fimmtudagurinn 6. maí 7 993 MENN . zTYtoa /fr 'WWveíTV, físT&rfzi-fc Xj'tSÍHDH'ZTfy, j •^Si, V'rQlrYsjnpfaX AritWvyiSAnii/wtiTí, ' Hannes Hólmsteinn Gissurarson ríkisstarfsmaður Orðintt að manni Þessu hef ég beðið eftir lengi. Hann Hannes Hólmsteinn er orðinn að manni. Jú, jú, ég veit að hann er löngu kominn af unglingsárunum og ríflega það, enda ekki það sem ég meina. Hann er orðinn að manni í allt öðrum skilningi. Ég er nefnilega búinn að upp- götva að Hannes hefur mann- legar taugar eins og við hin. Ég hef efast um þetta alveg frá því ég man fyrst eftir frjálshyggj- unni sem hann boðaði einu sinni. Þá var hann á því að við ættum eiginlega ekkert að vera að borga meðulin fyrir gamlar konur sem veiktust og höfðu ekki haff fyrirhyggju til að leggja fyrir á yngri árum. Nema kannski svona prívat, ef við værum þannig innréttuð. Sem ég var aldrei viss um að Hannes væri. Ég er reyndar enn ekki viss um að þetta hafi breytzt. Að minnsta kosti hef ég aldrei séð Hannes skrifa neitt í þá áttina og hef þó varla undan að lesa það sem hann sendir frá sér. Þetta með mannlegu taug- arnar kemur úr allt annarri átt. Það rann upp fyrir mér þegar ég frétti að Hannes leitaði nú í öll- um afkimum skipurits Háskól- ans í leit að sjóðum sem gætu borgað honum fyrir að hafa skrifað ævisögu Jóns Þorláks- sonar. Þá skildi ég. Hannes er eins og við hin. Auðvitað læddist efinn að þegar Hannes gerðist láglauna- maður sem lektor á vegum rík- isins. Mér fannst það stílbrjótur gagnvart frjálshyggjunni, en hugsaði svo með mér að líklega mætti skýra þetta eins og ríkis- afskiptin í Kreppunni: það sem markaðurinn getur ekki leyst, það tekur ríkið að sér. Ekki gekk að maðurinn væri atvinnulaus. Auðvitað jókst efinn enn þeg- ar hann gerðist svo formaður Þýðingasjóðs í ofanálag. Þýð- ingasjóður borgar fólki fyrir að þýða bækur sem útgefendur vilja ekki borga því fyrir að þýða. Ástæðan fyrir að útgef- „En svofór hann að leita að sjóðum í Há- skólanum ogþá skildi ég. Hannes stenst ekki mátið þegar hann hefur tcekifœri til að mjólka ríkiskúna aðeins. “ endur vilja ekki borga er að það er ekki nógu margt fólk sem vill kaupa bækurnar. Með öðrum orðum: þær eru ekki nógu góð markaðsvara. Þessi formennska í Þýðinga- sjóði var náttúrlega annar stíl- brjótur gagnvart frjálshyggj- unni. Auðvitað vissi Hannes betur en allir aðrir að hann átti ekkert að vera að spreða pen- ingunum mínum í bækur sem enginn vill kaupa. En ég var þó til í að gefa Hannesi annan séns. Þetta var jú menningin, eitt- hvert hobbí varð maðurinn að hafa og svo veitti honum ábyggilega ekki af því að drýgja tekjurnar. En svo fór hann að leita að sjóðum í Háskólanum og þá skildi ég. Hannes stenst ekki mátið þegar hann hefur tæki- færi til að mjólka ríkiskúna að- eins. Ég stæðist það ekki heldur og ég veit að það væri eins með ykkur. Það er bara mannlegt. Peningarnir eru þarna, það er fullkomlega löglegt að taka við þeim og það saknar þeirra áreiðanlega enginn. Hannes er búinn að sanna kenningu Jónasar Kristjánsson- ar um að við séum öll jafnspillt; spillingin kemur úr grasrótinni. Þar er Hannes engin undan- tekning. Velkominn í klúbbinn. ÁS Styrkveitingar úr Menningarsjóði útvarpsstöðva EKKEKT FYLGZT MEB HVERNIG FÉNII ERUARW BaldurHermannsson Sjónvarpsþættir hans vekja athygli fyrir fleira en efnistökin. Þáttaröð Baldurs Her- mannssonar hefur orðið tilþess að beina sjónum að styrkveit- ingum Menningar- sjóðs útvarpsstöðva. Sjónvarpsþáttaröð Baldurs Hermannssonar um Þjóð í .hlekkjum hugarfarsins hefur vakið athygli fyrir fleira en óvenjuleg efnistök. Meðal þess eru styrkir að fjárhæð 8,9 millj- ónir laóna sem Baldur fékk frá Menningarsjóði útvarpsstöðva, en mörgum sem þekkja til sjón- varps- og kvikmyndagerðar þykir með ólíkindum að vinnsla myndarinnar hafi kostað neitt nálægt því sem nemur þeim styrkjum. Rétt er að hafa í huga að ein- ungis hefur verið sýndur einn þáttur af fjórum, en af honum að dæma fullyrða kvikmynda- og þáttagerðarmenn að vafa- samt sé að þáttagerðin hafi kostað neitt nálægt 8,9 milljón- um. Bent er á að myndvinnsla hafi verið með allra einfaldasta móti, mikið hafi verið notað af gömlu myndefni, Ijósmyndum og einföldum yfirlitsmyndum af Iandslagi, sveitabæjum og kaupstöðum. Þegar PRESSAN hafði sam- band við Baldur vildi hann ekki annað segja í stuttu samtali en að hann hefði það fyrir reglu að tala ekki við blaðamenn PRESSUNNAR fremur en blaðamenn Helgarpóstsins áður fyrr. Ekkert eftirlit með notkun styrkja Hjá Kvikmyndasjóði tíðkast að fylgjast náið með því hvernig styrkjafé er varið. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila inn ársreikningum og dæmi eru þess að beðið hafi verið um bókhald vegna gerðar einstakra mynda og handrita. Það hefur einnig gerzt að styrkþegar hafa skilað styrkjum sem ekki voru nýttir í verk sem úthlutað var til. Hjá Menningarsjóði útvarps- stöðva virðist hins vegar ekkert slíkt eftirlit. Sjóðstjórn fær skýrslur frá styrkþegum um framgang verka, en þeir eru ekki skyldaðir til að skila reikningum. Þess eru ekki dæmi að krafizt hafi verið end- anlegu uppgjöri að verki loknu, þar sem sæist til hverra hluta féð var notað, að sögn Davíðs Þór Björgvinssonar, ritara stjórnar. Ekki náðist í Hrafn Gunn- laugsson, sem nýhættur er störfum sem stjórnarformaður Menningarsjóðs, en hann er er- lendis. 12.500 krónur á mínútu Auk styrkjanna frá Menning- arsjóði útvarpsstöðva keypti Sjónvarpið sýningarrétt að þátt- unum fyrir fjórar milljónir króna. Það eru 750 þúsund krónur fyrir hvern þátt, en til samanburðar má geta að fyrir sýningarrétt að nýjustu mynd Magnúsar Guðmundssonar, I leit að Paradís, var greidd ein milljón króna. Sú mynd er af svipaðri lengd og hver þáttur Baldurs. Verðið sem Sjónvarpið greiddi samsvarar um 12.500 krónum á útsenda mínútu. Til samanburðar kostar hver mín- úta í fr éttatíma um það bil fimm þúsund krónur. Þótt 750 þúsund krónur séu ekki óvenjuleg upphæð fyrir klukkustundarlangan sjón- varpsþátt er sett spurningar- merki við hversú mikil vinna lá í raun að baki gerð þátta Bald- urs. Hann vildi ekki tjá sig, eins og áður sagði, en svo aftur sé vísað til myndar Magnúsar Guðmundssonar, þá lágu að baki henni ferðalög um nokkrar heimsálfur. Samkvæmt upplýsingum PRESSUNNAR var gengið frá samkomulagi við Baldur í tíð Péturs Guðfinnssonar sem framkvæmdastjóra Sjónvarps. Það var þó ekki hann, heldur Rúnar Gunnarsson aðstoðar- framkvæmdastjóri sem skrifaði undir samninginn. Rúnar var hins vegar kvikmyndatöku- maður í þáttunum og átti því nokkurra hagsmuna að gæta, svo hann leitaði eftir staðfest- ingu Heimis Steinssonar áður en samningurinn tæki gildi. Út- varpsstjóri staðfesti samninginn með undirskrift sinni. Ekki hefur farið hjá því í um- raéðu um þetta mál að velt sé upp tengslum Baldurs við Hrafn Gunnlaugsson, en þeir hafa verið nánir samstarfsmenn til margra ára. Baldur hefur fylgt Hrafni úr og í störf hjá Sjónvarpi (meðal annars þá fáu daga í apríl þegar Hrafn var at- vinnulaus). Baldur starfar nú hjá Sjónvarpinu og gegnir með- al annars hlutverki ritara á reglubundnum þriðjudags- fundum sem framkvæmda- stjórinn stýrir. í tíð Péturs Guð- finnssonar var það verk jafnan í höndum aðstoðarfram- kvæmdastjóra, Rúnars Gunn- arssonar.___________________ Karl Th. Birgisson ERU LAXVEIÐIBOÐ YFIRMANNA EKKIILLVERJANLEGUR LÚXUS, STEINGRÍMUR? „Hvað með forstjórabílana og milljón króna launin?“ NAFN STEINGRÍMUR HER- MANNSSON ALDUR64 ÁRASTARF ÞINGMAÐUR/BANKA- RÁÐSMAÐUR/LAXVEIÐI- ÁHUGAMAÐUR Starfsmenn Landsbankans og Kristín Sigurðardóttir banka- ráðsmaður leggja tilað dregið verði úr eða hætt við árleg lax- veiðiboð yfirmanna bankans. „Ég hef vísað í menn sem hafa þekkingu á þessu, t.d. Jón- as Haralz, fyrrum bankastjóra Landsbankans, sem skrifaði eitt sinn grein þar sem hann fullyrti að í slíkum boðum væri fólgin mjög góð fjárfesting fýrir Landsbankann með því að þar skapast tengsl við ýmsa mikil- væga viðskiptamenn erlendis. Það er betra að sýna þeim feg- urð Islands og bjóða upp á lax- veiði en að bjóða þeim á ein- hvern kvöldstað. Annars er miklu nær að bankastjórarnir svari til um laxveiðiboðin.“ - Telur þú ekki nokkuð erfitt að réttlæta slíka fjárfestingu á þessum samdráttartímum, er ekki tortryggni um gildi UNDIR ÖXINNI STEINGRÍMUR SVARAR FYRIR LAXVEIÐINA siíkra ferða skiljanleg? „Það má vel vera, en ég held að það þyrfti þá að skoða málin á heildarvísu. Það má draga úr ýmsu hjá þessum stofnunum og út af fyrir sig hef ég ekkert á móti því að draga úr laxveiði- boðunum. En hvað með for- stjórabílana og milljón króna launin á mánuði? Ætti ekki al- veg eins að líta á slíkt? Það ætti fremur að líta á heildarrisnu op- inberra stofnana og reyndar margra fyrirtækja en að einblína á þetta tiltekna atriði.“ - Það mátti skilja á blaðafrétt nýverið að þú litir á þetta sem nokkurs konar launa- uppbót. Þetta eru þá væntan- lega hlunnindi sem gefin eru upp til skatts? „Ég leiðrétti þetta í útvarpi eftir að það birtist. Þetta var að vísu ekki innan gæsalappa og því ekki haft eftir mér beint, en það mátti skilja fféttina þannig að þetta væri mitt viðhorf. En þetta er ekki frá mér komið. Ég ítreka að nær væri fyrir ykkur að tala við bankastjórana, ég hef sjálfur aðeins farið í eina slíka ferð á vegum bankans, ég kemst í lax við .önnur tækifæri. En í þeirri ferð sem ég fór sannfærð- ist ég um að hinir erlendu gestir höfðu af henni mikla ánægju." - Stjórnarmaður í íslands- banka hefur lýst því yfir í okkar blaði að svona lax- veiðiboð tíðkist ekki í þeim banka. Ertu trúaður á slíka fullyrðingu? „Ig hef ekki hugmynd um þetta og ætla ekki að vefengja þennan mann. Islandsbanki tapar enn meiru en Landsbank- inn, kannski þyrftu þeir að bæta viðskiptasambönd sín erlend-

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.