Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 19

Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 19
SKILABOÐ Fimmtudagurinn 6. maí 1993 PRESSAN FRIÐRIK ÞORIKLEMMU... Það hefur vart farið framhjá sjónvarpsáhugamönnum að út- varpsráð bannaði að sýndur yrði sjónvarpsþáttur um áhuga íslenskra kvik- myndagerðarmanna á að kaupa Háskóla- bíó. Það mun vera draumur margra kvik- myndagerðarmanna að eignast bíóið til að geta sýnt myndir sínar þar allt árið, auk þess sem bíóið yrði gert að musteri list- rænna erlendra kvikmynda. Meðal þeirra sem talað var við í þessum landskunna en ósýnda sjón- varpsþætti var Friðrik Þór Friðriksson, kvikmynda- gerðarmaður og höfundur hinna marg- rómuðu Barna náttúrunnar. f þættinum, þar sem ekki mátti nefna Há- skólabíó á nafri samkvæmt til- mælum út- varpsráðs, mun Friðrik hafa lýst einlæg- um áhuga kvikmyndagerðarmanna á bíó- inu, en einmitt það fer mjög í skap for- svarsmanna bíósins, sem telja umræðu sem þessa geta skaðað stórlega viðskipta- vild sína á erlendri grundu. Það er hins vegar skondið að þessi sami Friðrik situr í stjórn kvikmyndaklúbbsins Hreyfi- myndafélagsins, sem Háskólabíó stofhaði ásamt Stúdentaráði háskólans fyrir um ári, en þar situr einnig Friðbert Pálsson, framkvæmdastjóri Háskólabíós. Fróðlegt verður að vita hvert verður umræðuefni þeirra á næsta fundi klúbbsins. ÁTÖKÁ AÐALFUNDI SAMSKIPA... ^Aðalfundur Samskipa var hald- f inn síðastliðinn föstudag og voru þá lagðar fram hinar hrikalega taptölur íyrirtækisins, en tapið nam nærri hálfum milljarði króna. Þau tíðindi urðu á fundinum að fulltrúar tveggja hluthafa, Draupnissjóðsins og Lífeyrissjóðs verslun- armanna, lögðu fram þá tillögu að árs- reikningunum yrði vísað aftur til stjómar. Var það gert á þeim forsendum að í reikn- ingunum væru ónógar upplýsingar um lífeyrisskuldbindingar félagsins auk þess sem skip þess væru ofmetin um tæpar 70 milljónir króna, samkvæmt mati erlends skipmatsmanns. Af þessu að dæma er staða fyrirtækisins því enn verri en fram kemur í reikningum félagsins. Svo fór þó að tiilaga hluthafanna var ekki samþykkt af stærsta eiganda Samskipa, Hömlum, eignarhaldsfélagi Landsbankans, og mnnu ársreikningarnir því í gegn. TVEIR FÁ STYRK ÚR NOR- RÆNA KVIKMYNDASJÓÐN- UM... Tvær íslenskar kvikmyndir fengu í gær úthlutun úr Norræna kvik- fft J myndasjóðnum. Er annars vegar um að ræða mynd Þorsteins Jónssonar, Skýjahöllina, og hins vegar mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Bíó- daga. Hljóðar styrkur Þorsteins upp á 2,4 milljónir sænskra króna, sem samsvarar 20 milljónum íslenskra króna. Áður hafði hann hlotið sömu upphæð úr Kvik- myndasjóði Islands og að auki hafði hann fengið 1 milljón danskra króna frá Dönsku kvikmyndastofnuninni, sem jafh- gildir 10 milljónum íslenskra króna. Þor- steinn hefur einnig fengið til liðs við sig er- lenda samstarfsaðila frá Þýskalandi og Noregi sem Ieggja munu fram eitthvert fjármagn. Tökur á Skýjahöllinni hefjast væntanlega í byrjun ágúst og lýkur í byrj- un vetrar. Ekki er endanlega búið að ganga frá ráðningu starfsfólks en líklegt þykir að Sigurður Sverrir Pálsson verði kvikmyndatökumaður og Iögð verður áhersla á að fá íslendinga í verkefnið. emur engum^á óvart að fj ölmiðlakannanir ÍM Gallup hafa leitt rgunblaðið er útbreiddasta blað á íslandi og að Pressan selst >kum en DV. Aftur ámóti hefur hvað eftir annað komið í ljós Pressunnar lesa blaðið sitt mun betur en lesendur annarra lesa blaðið upp til agna, en mestur hlúti hinna blaðanna í tunnuna ólesinn. J7 rá því að Pressan hóf göngu sína hefu hún markað ser sérstöðu. PRESSAN þorir að taka fyrir mál, sem aðrir Qölmiðlar veigra sér við að snerta á. Hún fjallarj£|& um málefni og persónur án tepru? skapar og annarlegra hagsmuna/ tengsla. Og Pressan gerir það * með þeim hætti að lesendur { taka eftir umíjöllun blaðsins ****$& en fletta ekki framhjá henniy. Blað fyrir fólky sem vill lesa blöðin um leið ogþað flettirþeim.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.