Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 18

Pressan - 06.05.1993, Blaðsíða 18
SKOÐA N 1 R 1 8 PRESSAN Fimmtudagurinn 6. maí 1993 DAVÍÐFÆR BRÉF... *Á þriðjudaginn hittu 1 fulltrúar Simon Wie- senthal-stofhunarinnar sendifulltrúa íslands hjá Sam- einuðu þjóðunum, Kornelíus Sigmundsson, að máli. Til- gangurinn var að afhenda hon- -um rúmlega átta hundruð bréf til Davíðs Oddssonar forsæt- isráðherra ffá fólki sem fór ffam á að engin gögn yrðu látin óhreyfð í rannsókn á máli Eð- valds Hinrikssonar. Korneh'us mun hafa lofað að koma bréf- unum til skila og tilkynnti jafn- framt að Jónatan Þórmimds- son hefði verið fenginn sérstak- lega til að aðstoða við rannsókn málsins. Við heyrum að mun umfangsmeiri aðgerðir séu fyrir dyrum í Bandaríkjunum, Evr- ópu og Israel til að tryggja að ís- lensk stjórnvöld láti málið ekki falla í gleymsku. HARKA í PRENT- BRANSANUM... >Úr prentbransanum jberast nú fregnir af ótrúlegri samkeppni prentsmiðja um jafnvel minnstu verkefni. Þannig heyr- um við að nýlega hafi félaga- samtök leitað tilboða í árs- skýrslu af tiltölulega einfaldri gerð, 40 síður í fimm hundruð eintökum. Tilboð sem bárust voru allt frá um 120 þúsund krónum hið lægsta og upp í 270 þúsund það hæsta, fyrir ná- kvæmlega sama verkið. Það virðast ffekar vera eldri og um- fangsmeiri prentsmiðjur sem slá lítið af verði þrátt fyrir harða samkeppni; hinar virðast teygja sig ótrúlega langt til að ná til sín verkum. Kunnugir segja að það Jiefði verið óhugsandi fyrir ekki nema einu ári að fá tilboð í svona verk upp á lítil 120 þús- und. Leiðrétting I síðustu PRESSU varð sú misritun að Bergur Haralds- son, stjórnarformaður í Sam- einuðum verktökum, var kenndur við Vatnsvirkjann. Hið rétta er að Bergur er fram- kvæmdastjóri Félags vatns- "rirkja. Einnig misritaðist nafn Jakobs Bjamasonar, stjórnar- formanns Hamla hf. Er beðizt velvirðingar á þessum mistök- um. Ritstj. Opið bréf til blaða- manns Pressunnar Bréf til framkvæmda stjóra Sjónvarpsins Til Karls Birgissonar blaðamanns hjá Pressunni f síðustu viku spjölluðum við saman í síma vegna greinar sem ég sendi til þín og hét „Upp- ljóstrunin mikla“ og var um tel- ex-ofanflettingu Ólafs Hanni- balssonar. I þessu samtali benti ég þér á að oft væri farið ærið ónákvæmt með tilvitnanir sem hafðar væru eftir mönnum í Pressunni. Tilefhið var að í við- tali sem þú tókst við mig hefði ég sagt: Skussum stendur stugg- ur af mér, en hjá þér hefði þessi setning orðið að fyrirsögn og þá með ákveðnum greini: Skuss- unum stendur stuggur af mér, þannig að vegna samhengisins hljómaði textinn eins og ég ætti eingöngu við starfsfólk Ríkisút- varpsins. Þú baðst velvirðingar á þessu og kvaðst mundu vanda vinnubrögðin betur næst, og þótti mér vænt um að heyra það. I framhaldi þessa fórum við yfir það hvernig stjórnarsetu væri háttað í fyrirtæki mínu FILM. Þú hélst að Ingimundur Sigfússon væri stór aðili í fyrir- tækinu og sæti þar í stjórn, en ég benti þér á að Ingimundur Sigfússon væri í varastjórn fé- lagsins, og ætti innan við 4% af hlutafé. Vera hans í félaginu væri öðru fremur móralskur stuðningur við kvikmyndagerð mína. Ég bað þig að virða „fair play“ í þessu máli og, ef þú skrifaðir um málefni FILM, að staðreyndir málsins kæmu ffam. Þú tjáðir mér að þú hefðir ekki tekið eftir því í fyrstu að Ingimundur væri aðeins í vara- stjórn, þegar þú last yfir upplýs- ingarnar úr hlutafélagaskránni, en nú vissirðu hvernig málið væri í pottinn búið, og þú skyld- ir virða það sem rétt væri. ORÐ ERU DÝR Nú sé ég í Pressunni 29. apríl klausu sem ber nafnið Athuga- semd ritstjóra. Textinn er þann- ig að hann skilst á þá leið að Ingimundur hafi fulla stjórnar- setu í FILM. Kíkjum á textann. „Meginefni fréttar PRESS- UNNAR var að þeir Hrafn og Ingimundur sitja báðir í stjórn FILM hf., samkvæmt upplýs- ingum hlutafélagaskrár. Þeirri hugsun var velt upp að annars staðar yrðu líklega gerðar at- hugasemdir við að yfirmenn sitt hvors fyrirtækisins á sjónvarps- markaði eigi saman umsvifa- mikið kvikmyndafyrirtæki og það væntanlega kallaðir óásætt- anlegir hagsmunaárekstrar. Ritstj." Ég bendi þér á það vinsam- lega, að þarna er gengið á skjön við það sem ég hélt að við hefð- um orðið ásáttir um. Á síðu 17 í sama blaði er sagt frá því að Jónas Knútsson hafi fengið 120.000 krónur til undir- búnings og handritsgerðar vegna sjónvarpsþátta sem byggja eiga á bók Ólafs Ásgeirs- sonar um Iðnbyltingu hugar- farsins. Og síðan er þessi klausa orðrétt: Og eru menn almennt sam- mála um að sjaldan hafi jafnhátt ffamlag fengist frá Sjónvarpi til undirbúningsverks af þessari stærðargráðu. Þessi athugasemd er víðs- fjarri sannleikanum. Sú upp- hæð sem um getur er í sam- ræmi við það sem tíðkast hefur í sambærilegum tilvikum og „Ég bendi þér á það vinsamlega, að þarna ergengið á skjön viðþað sem ég hélt að við hefð- um orðið ásáttir um.“ jafnvel lægri (miðað við tveggja mánaða laun) ef tekið er mið af launum dagskrárgerðarmanns. Þannig að ég sé ekki betur en þessi texti sé settur á blað til þess eins að sverta viðkomandi aðila. Jónas Knútsson er einn þeirra fjölmörgu ungu kvik- myndagerðarmanna sem lokið hafa námi erlendis. Hann gekk á minn fund sem dagskrár- stjóra, eins og fjöldi annarra að- ila, til að kynna eigin hugmynd- ir. Mér þótti hugmynd Jónasar athyglisverð og bað hann vinna hana áfram svo hægt væri að taka afstöðu til þess, hvort ástæða væri til að fara í upp- töku. Jónas vann á sínum tíma sem dagskrárgerðarmaður á IDD, áður en hann fór í lokanám í New York, og jafnframt vann hann um tíma á Stöð 2. Mér þykir leitt að nafh hans sé dreg- ið inn í nornadansinn þegar keppst er við að gera mig tor- tryggitegan. Að lokum þetta. Á stjórnar- fundi Kvikmyndasjóðs fimmtu- daginn 29. apríl var fjallað um mál mitt vegna Hinna helgu véa og samninga við Sjónvarpið. Þetta mál hefur off borið á góma í Pressunni og þykir mér því ástæða til að skýra málið eft- ir því sem kostur er. Eins og þú sérð í þessum gögnum er Kvikmyndasjóði frjálst að veita þá undanþágu sem sjóðnum sýnist samkvæmt 5. grein, þannig að hvort sýning myndar í sjónvarpi fer ffam eft- ir eitt ár, hálft ár eða tvö eða þrjú ár, er ákvörðun sjóðs- stjórnar á hverjum tíma. Um þetta atriði segir á skilyrðablaði: 4. Styrkþegi skuldbindur sig til þess, selji hann myndbanda- og/eða sjónvarpsrétt að mynd- inni, að hún verði ekki sýnd í þessum miðlum hérlendis inn- an þriggja ára frá ffumsýningu myndarinnar. 5. Sé um að ræða samvinnu (co-production) við íslenska sjónvarpsstöð geta aðilar samið sérstaklega við Kvikmyndasjóð um styttingu tímans, sem um getur í gr. 4. Vegna þessara ákvæða í skil- yrðablaði skrifaði lögfræðingur FILM svohljóðandi bréf: Til stjórnar Kvikmyndasjóðs formaður Ragnar Árnalds c/o Kvikmyndasjóður íslands Laugavegi 24 Reykjavík V/HIN HELGU VÉ Ljóst er að 4. og 5. grein skil- yrðablaðs Kvikmyndasjóðs eru þrátt fyrir orðalag gerðar til að tryggja hagsmuni styrkþega en ekki Kvikmyndasjóðs. I þessu tilviki eru það ríkari hagsmunir fyrir styrkþega að fá þá undan- þágu, sem heimilt er að veita samkvæmt 5. grein til sex mán- aða, en haldið sé fast við ýtrustu fresti samkvæmt 4. grein. Það eru hagsmunir FILM að geta lokið við gerð myndarinnar „Hin helgu vé“ og er samning- urinn við Ríkissjónvarpið mik- ilvægur þátturþess. Undirritaður óskar eftir fyrir hönd FILM h/f að veitt verði undanþága ffá 4. grein skilyrða- blaðs Sjóðsins, samanber 5. grein, vegna samnings við Rík- issjónvarpið. Óskað er effir 6 mánaða ffesti. Til vara er sótt um sama tíma og sömu skilmála og Ryði var veitt á sínum tíma vegna samn- inga við Stöð 2. Vísað er til 5. greinar skilyrðablaðsins vegna þessa erindis. Leikstjóri myndarinnar hefur kynnt formanni málavexti um erfiða fjárhagsstöðu verksins og hvers vegna samið var við Rík- issjónvarpið, en FILM hefur orðið á sú handvömm að senda ekki inn formlegt erindi fyrr en nú. Virðingarfyllst, f.h. FILM (sign.) Dr. juris Gunnlaugur Þórðar- son Það er kannski kaldhæðni ör- laganna að það er fyrrverandi leikstjóri Bílaverkstæðis Badda, Lárus Ýmir Óskarsson, sem mun fjalla um ákvörðun Kvik- myndasjóðs í þessu máli, en þar á Lárus stjórnarsæti. Bið ég þig svo vel að lifa og vona að þessi litla orðsending mín valdi ekki misskilningi. (Sign.) Hrafn Gunnlaugsson. Hrafh Gunnlaugsson ffamkvæmdastjóri Sjónvarps Síðast þegar við skrifuðumst á í blöðunum sakaðirðu mig um „sefasýki“, svo líklega ætti mér að vera nokkur léttir að í þetta skipti sé bara látið liggja að óheiðarleika mínum. Þó kemst ég ekki hjá því að reyna að verja það sem eftir er af ær- unni nokkrum orðum. Fyrst um þennan ákveðna greini og skussana. Ég er ekki vanur að taka upp á segulband spjall eins og við áttum um dag- inn (en treysti því að þú hafir gert það og leiðréttir mig, ef mig misminnir), en ég er nokkuð viss um að ég hef ekki „beðizt velvirðingar“ á þessum greini, enda engin ástæða til. Þegar þú nefndir þetta í samtali okkar hafði ég þegar heyrt svipaða kenningu ffá vini okkar Hann- esi Hólmsteini og þótti hún hvort tveggja, torskilin og ffekar ómerkileg miðað við annað í málinu. Ekki síður af því að þið virðist líta á þennan litla, ákveðna greini sem einn af bit- unum í púsluspilinu „herferð PRESSUNNAR gegn Hrafni Gunnlaugssyni“. Sú kenning er fóstur of líflegs ímyndunarafls, enda er raunveruleikinn bæði miklu einfaldari og meira óspennandi. Víkjum þá að stjórnarsetu Ingimundar Sigfússonar í FILM. Og nú ætla ég að biðja þig velvirðingar. Sagan um „at- hugasemd ritstjóra“ er svona: Þú sendir mér greinarkornið á mánudegi og úr því las ég, að það gæti verið einhver misskiln- ingur að Ingimundur sæti í stjórn FILM. Ég reyndi að ná tali af þér, en tókst ekki. Ég hafði hins vegar fyrir framan mig gögn Hlutafélagaskrár, þar sem nafh Ingimundar er ásamt þremur öðrum undir fyrirsögn- inni: „Stjórn félagsins skipa skv. fundi þann 20/09/91:“, og þóttist aldeilis geta staðið á því að hann sæti í stjórninni. Þess vegna skrifaði ég athuga- semdina áhyggjulaus (fyrir hönd ritstjóra, f.h.r. eins og Knútur forðum) og sneri mér að næsta verkefni. Þú svaraðir skilaboðum mín- um á þriðjudag og bentir mér á það sem ég hafði misst af: nefni- lega að einn af fjórmenningun- um á blaðinu er „til vara“ í stjórninni og það er Ingimund- ur. Þetta vildi ég leiðrétta, talaði við prófarkalesarann okkar og bað hana láta mig vita þegar „Illa innréttað fólk gœti ályktað sem svo aðþú hafir ver- ið að blekkja sjóð- inn. Vonandi var það bara „hand- vömm“.“ textinn væri kominn á síðu til aflestrar, því ég þyrfti að bæta inn setningu. Þetta gerði hún samviskusamlega, ég handskrif- aði inn setningu um varastjórn- arsetu Ingimundar og sneri mér aftur að öðru verki. Þetta er hin venjubundna leið í vinnslu blaðsins, enda sér umbrotsfólk um að bæta slíkum leiðrétting- um inn á lokastigi vinnslu. Hvað gerðist eftir þetta veit ég ekki, nema hvað ég bölvaði hressilega þegar ég sá blaðið á fimmtudaginn og sá að leiðrétt- ingin hafði ekki komizt til skila. Ég hefði kannski átt að fylgjast með síðunni alveg þangað til hún var komin til prentsmiðju, en satt að segja leiddi ég ekki hugann að því að á örlögum hennar ylti heiður minn sem blaðamanns. Og einhvern veg- inn finnst mér svo ekki vera enn, þótt kannski séum við ósammála um það. En „ábyrgð- in er mín“, eins og Ólafur Garð- ar sagði, og því bið ég þig vel- virðingar á þessu. Hitt er rangt hjá þér, að ég hafi talið Ingimund vera „stór- an aðila“ í FILM. Ég hafði ekki gert mér neinar hugmyndir um það, enda aukaatriði í því sem ég skrifaði. Það snerist um þá hagsmunaárekstra sem felast í því að ffamkvæmdastjóri Sjón- varpsins og stjórnarformaður Stöðvar 2 eigi saman kvik- myndafyrirtæki. f því meginat- riði er eignarhlutur hvors um sig aukaatriði og varla stendur á hlutabréfum Ingimundar að þau séu ekki alvöru, heldur táknræn og „móralskur stuðn- ingur“ við þig. Enda varstu sammála mér um það í samtali okkar, að ástæða væri fyrir ykk- ur að endurskoða þetta eignar- fyrirkomulag eitthvað, og það þótti mér vænt um að heyra. Um þennan Jónas Knútsson veit ég ekkert, hef aldrei skrifað stafkrók um hann og get því ekkert aðstoðað þig með það mál. Þá er það samningur þinn við Sjónvarpið, sem PRESSAN hef- ur einu sinni sagt frá. Það er ánægjulegt að FILM er loks bú- ið að sækja um undanþáguna sem hefði átt að sækja um áður en samningurinn var gerður. Ég tek eftir að bréf FILM er ekki dagsett, en geri ráð fyrir það hafi verið skrifað eftir umfjöllun fjölmiðla um málið. Sem er það sem veldur nokkrum áhyggj- um. Þú hafðir ekki einasta sam- þykkt skilyrði Kvikmyndasjóðs heldur hefðir átt að þekkja þau öðrum betur eftir langvarandi stjórnarsetu í sjóðnum. Það er enn óútskýrt af hverju þú gerðir samninginn við Sjónvarpið án þess að sækja um undanþágu og braust þannig reglur sjóðs- ins. Það kom í ljós að stjórnar- formaður, Ragnar Arnalds, vissi ekki af þessum samningi fyrr en fjölmiðlar skýrðu frá honum nýlega. í síðustu umsókn þinni um styrk úr sjóðnum vegna Hinna helgu véa er hvergi minnzt á að Sjónvarpið ætlaði að styrkja gerð myndarinnar. Samkvæmt mínum upplýsingum fór út- hlutunarnefnd fram á frekari gögn með umsókninni seint í haust. Þar var heldur ekki minnzt á þennan samning. Illa innréttað fólk gæti ályktað sem svo að þú hafir verið að blekkja sjóðinn. Vonandi var það bara „handvömm". Að lokum aðeins um „fair play“. Ég er löngu hættur að kippa mér upp við tal um óáreiðanlega blaðamennsku PRESSUNNAR. Það eru orða- leppar sem fólk grípur til og frekar ódýrir sem slíkir. Það eru ekki fleiri missagnir í PRESS- UNNI en til dæmis í Moggan- um, svo ekki sé minnzt á DV. Við leiðréttum þær þegar vakin er athygli á þeim og er það bæði ljúft og skylt. Okkar hlaðamennska er hins vegar þannig að við birtum upplýsingar sem oft eiga ekki að vera opinberar og getur stund- um þurft nokkra útsjónarsemi blaðamanna til að nálgast. Þær eru oft einhverjum óþægilegar (sem er ein ástæðan fyrir því að þær eru ekki opinberar), en les- endur okkar ætlast til að við leitum þeirra. í frétt verður aldrei sögð öll sagan — hún er alltaf „bezta fá- anlega útgáfa af raunveruleik- anum á hverjum tíma“. Það sem á okkur hvílir er að bera fram upplýsingar þannig að verði lesendum okkar til skiln- ingsauka í hverju máli. Þannig var það líka í Hrafhs/HeimismáHnu. Af stutt- um fréttatilkynningum var ekki nokkur leið að skilja um hvað málið snerist, en við reyndum að segja söguna eins og hún var. Ef fréttaflutningur PRESS- UNNAR varð til þess að skýra málið, þá erum við bara stolt af því. Það var engin „herferð gegn Hrafni Gunnlaugssyni“, eins og Hannes Hólmsteinn hefur orð- að það. Ég nenni ekki að standa í slíku — mér er einfaldlega ekki nógu illa við fólk til þess. Auðvitað viljum við „fair play“, en það má ekki breytast í „skandinavískt hommahlut- leysi“, eins og vinur okkar Vil- mundur orðaði það frekar ósmekklega. Það felst í því að segja fféttir af svo miklu ímynd- uðu „hlutleysi11 að lesandinn er engu nær um málið. Á endan- um er það ekki þjónusta við les- andann heldur þjónkun við stofnanir samfélagsins sem óska sér einskis fremur en að þagað sé um annað en þær vilja láta fréttast. Beztu kveðjur, Karl Th. Birgisson IkrittléhsmlMtNtwlMfkmw* m tfrbvatahtfa fn, kfáfaHroím Uppljóstrntu. mikla {tilefni teiex-ofanfletí- íngdr Ólafe Hannibitlf sonttr tao þ.i» »• »FVVSLí.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.